{"id":3156,"date":"2010-04-14T01:35:53","date_gmt":"2010-04-14T01:35:53","guid":{"rendered":"http:\/\/kaninka.net\/arngrimurv\/?p=3156"},"modified":"2019-01-01T13:36:57","modified_gmt":"2019-01-01T13:36:57","slug":"rannsoknarskyrslan-er-fulln%c3%a6gjandi-til-sins-bruks","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/2010\/04\/14\/rannsoknarskyrslan-er-fulln%c3%a6gjandi-til-sins-bruks\/","title":{"rendered":"Ranns\u00f3knarsk\u00fdrslan er fulln\u00e6gjandi &#8211; til s\u00edns br\u00faks"},"content":{"rendered":"<p><a href=\"http:\/\/kaninka.net\/arngrimurv\/wp-images\/24609_392467994384_528574384_3839605_7516351_n.jpg\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" src=\"http:\/\/kaninka.net\/arngrimurv\/wp-images\/24609_392467994384_528574384_3839605_7516351_n.jpg\" width=\"200\" height=\"100\" alt=\"\" align=\"left\" border=\"0\" hspace=\"4\" vspace=\"4\"\/><\/a>\u00c6tli \u00fea\u00f0 hafi ekki komi\u00f0 fleirum a\u00f0 \u00f3v\u00f6rum en m\u00e9r hversu v\u00f6ndu\u00f0 sk\u00fdrsla Ranns\u00f3knarnefndar Al\u00feingis er. L\u00edklega bjuggust f\u00e1ir vi\u00f0 hversu afgerandi h\u00fan \u00ed raun er. St\u00f6rf nefndarinnar eru eiginleg andst\u00e6\u00f0a alls \u00feess sem l\u00fdst er \u00ed sk\u00fdrslunni. Stj\u00f3rns\u00fdslan einkenndist af f\u00e1bj\u00e1nah\u00e6tti og innvi\u00f0ir bankanna voru hriplekir og sto\u00f0irnar f\u00fanar &#8211; \u00fe\u00e1 undanskil \u00e9g \u00e1byrg\u00f0arleysi \u00feeirra sem stj\u00f3rnu\u00f0u \u00feeim. \u00dea\u00f0 er heill annar kafli. Hitt sem \u00e9g nefni sk\u00fdrist af myndinni af krosseignatengslum \u00ed \u00edslensku vi\u00f0skiptal\u00edfi sem fylgir f\u00e6rslunni (kaldh\u00e6\u00f0ni ekki undanskilin).<\/p>\n<p>En eins g\u00f3\u00f0 og sk\u00fdrslan er mi\u00f0a\u00f0 vi\u00f0 \u00feann ramma sem nefndin starfa\u00f0i innan \u00fe\u00e1 svarar h\u00fan ekki \u00fdmsum spurningum. N\u00fa fellir sk\u00fdrslan mj\u00f6g alvarlegan \u00e1fellisd\u00f3m yfir \u00ferem r\u00e1\u00f0herrum, jafnm\u00f6rgum se\u00f0labankastj\u00f3rum og einu stykki forstj\u00f3ra Fj\u00e1rm\u00e1laeftirlitsins. Sk\u00fdrslan fjallar einnig um Einkav\u00e6\u00f0ingarnefnd og a\u00f0draganda og ferli einkav\u00e6\u00f0ingar \u00edslensku bankanna. En \u00ed sk\u00fdrslunni er ekki felldur beinn d\u00f3mur yfir \u00feeim sem a\u00f0 henni st\u00f3\u00f0u. Af gj\u00f6r\u00f0unum skuli\u00f0 \u00fe\u00e9r d\u00e6ma \u00feau frekar en vi\u00f0 segjum nokku\u00f0 g\u00e6ti veri\u00f0 mott\u00f3i\u00f0 \u00fear, <a href=\"http:\/\/www.dv.is\/frettir\/2010\/4\/13\/valgerdur-vissi-ad-samson-uppfyllti-ekki-krofur-en-skrifadi-samt-undir\/\">Valger\u00f0ur Sverrisd\u00f3ttir ekki undanskilin<\/a>.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 eru nefnilega fleiri afgl\u00f6p \u00ed starfi en \u00feeirra sj\u00f6 sem s\u00e9rstaklega hafa veri\u00f0 nefndir til s\u00f6gunnar, en einsog Ranns\u00f3knarnefnd Al\u00feingis tilt\u00f3k s\u00e9rstaklega var \u00fea\u00f0 ekki \u00feeirra hlutverk a\u00f0 grennslast fyrir um einkav\u00e6\u00f0ingarferli\u00f0 sem sl\u00edkt. En \u00fea\u00f0 vekur hinsvegar upp spurningar um hver \u00e1byrg\u00f0 \u00feeirra sem st\u00f3\u00f0u a\u00f0 henni er og hvort \u00feau ver\u00f0i l\u00e1tin svara til \u00feeirrar \u00e1byrg\u00f0ar.<\/p>\n<p>\u00deegar Ol\u00edusamr\u00e1\u00f0i\u00f0 komst upp var\u00f0 allt vitlaust og s\u00e1 kvittur gekk me\u00f0al f\u00f3lks a\u00f0 n\u00fa v\u00e6ri eina r\u00e1\u00f0i\u00f0 a\u00f0 s\u00fdna m\u00f3tm\u00e6li \u00ed verki og h\u00e6tta a\u00f0 kaupa pylsur \u00e1 Select, af \u00fev\u00ed f\u00f3lk gat j\u00fa ekki h\u00e6tt a\u00f0 kaupa bens\u00edn. Rekstrargrundv\u00f6llur ol\u00eduf\u00e9laga er hinsvegar ekki pylsur heldur einmitt bens\u00edn og \u00feeim sem bentu \u00e1 Atlantsol\u00edu sem \u00fe\u00e1 \u00feegar var til var sagt a\u00f0 st\u00f6\u00f0varnar \u00feeirra v\u00e6ru of f\u00e1ar til a\u00f0 \u00fea\u00f0 v\u00e6ri h\u00e6gt. Ekki \u00fearfyrir, \u00e1taki\u00f0 n\u00e1\u00f0i kannski til svona 200 manns. \u00c9g neita enn a\u00f0 skipta vi\u00f0 Ol\u00eds, \u00fe\u00f3tt ekki skipti \u00fea\u00f0 nokkru.<\/p>\n<p>\u00deegar bankarnir hrundu skiptu \u00feeir \u00fdmsir um n\u00f6fn me\u00f0an \u00feau g\u00f6mlu k\u00far\u00f0u \u00ed sk\u00faffum skilanefnda. \u00de\u00f3tt \u00feeir hafi flestir skipt um eigendur n\u00fa gildir \u00fea\u00f0 einu; \u00feetta eru s\u00f6mu bankarnir. \u00dea\u00f0 er ekki m\u00f6guleiki \u00e1 a\u00f0 skipta um banka af \u00fev\u00ed \u00feeir eru allir \u00e1l\u00edka spilltir. Einu bankarnir sem ekki f\u00e9llu \u00ed hruninu 2008 sitja n\u00fa undir \u00e1m\u00e6li fyrir \u00fdmis atri\u00f0i sem \u00e9g kann ekki n\u00e6gileg skil \u00e1. M\u00edn vi\u00f0skipti eru hj\u00e1 Byr, \u00fea\u00f0 ku vera \u00f3vins\u00e6lt \u00feessa dagana. En hvern fjandann getur ma\u00f0ur svosem gert?<\/p>\n<p>\u00cd kj\u00f6lfar hrunsins ur\u00f0u sviptingar \u00e1 svi\u00f0i stj\u00f3rnm\u00e1la, en ekki n\u00e1ndar n\u00e6rri n\u00f3gu r\u00f3tt\u00e6kar. J\u00fa, eini flokkurinn sem haf\u00f0i ekkert me\u00f0 \u00feetta a\u00f0 s\u00fdsla komst \u00ed stj\u00f3rn, en menn \u00f3ttast enn\u00fe\u00e1 a\u00f0 komm\u00fanismi brei\u00f0ist \u00fea\u00f0an \u00fat\u00ed \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9lagi\u00f0 svo endi me\u00f0 \u00fej\u00f3\u00f0armor\u00f0i, e\u00f0a \u00fea\u00f0 skilst m\u00e9r \u00e1 umr\u00e6\u00f0u h\u00e6grisinnu\u00f0ustu h\u00e1lfvitanna \u00e1 moggablogginu. Sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0isflokkurinn m\u00e6list aftur st\u00e6rstur og hefur gert \u00ed h\u00e1lft \u00e1r e\u00f0a meira. Frams\u00f3knarflokkurinn er eini flokkurinn sem f\u00e6r makleg m\u00e1lagj\u00f6ld \u00ed sko\u00f0anak\u00f6nnunum &#8211; hva\u00f0 svosem er a\u00f0 marka \u00fe\u00e6r &#8211; enda svosem ekki a\u00f0 fur\u00f0a me\u00f0 eins l\u00e9lega m\u00e1lsvara og raun ber vitni.<\/p>\n<p>En n\u00fana \u00e6tla\u00f0i \u00e9g ekki beinl\u00ednis a\u00f0 fara a\u00f0 hrauna yfir allt og alla. \u00c9g vildi frekar p\u00e6la \u00ed v\u00f6rumerkjum og neysluvitund &#8211; svo \u00e9g beiti fyrir mig hugt\u00f6kum sem eru v\u00edst n\u00f3gu sjaldg\u00e6f h\u00e9rna \u00e1 vinstriv\u00e6ngnum (ef \u00fea\u00f0 er yfirleitt gjaldgengt hugtak enn\u00fe\u00e1). Allir \u00feingmenn og r\u00e1\u00f0herrar flokka sem bera \u00e1byrg\u00f0 \u00e1 \u00fev\u00ed hversu komi\u00f0 er segjast munu axla s\u00edna \u00e1byrg\u00f0, fyrir utan svo au\u00f0vita\u00f0 \u00fea\u00f0 a\u00f0 ekkert af \u00feessu s\u00e9 \u00feeim pers\u00f3nulega a\u00f0 kenna. Flokkarnir beri s\u00edna \u00e1byrg\u00f0 og muni axla hana, en \u00e9g, \u00f3nei. \u00dea\u00f0 getur ekki \u00fe\u00fdtt neitt anna\u00f0 en \u00fea\u00f0 a\u00f0 \u00feessir flokkar eigi ekkert erindi \u00e1 \u00feing lengur einsog \u00feeir leggja sig, e\u00f0a hva\u00f0?<\/p>\n<p>\u00deingmenn og r\u00e1\u00f0herrar bera \u00e1byrg\u00f0, flokkar bera \u00e1byrg\u00f0, en n\u00fa eru flokkarnir me\u00f0 n\u00fdja og hreina forystu og \u00feingmennirnir ekki lengur r\u00e1\u00f0herrar e\u00f0a r\u00e1\u00f0herrarnir fyrrverandi h\u00e6ttir sem se\u00f0labankastj\u00f3rar e\u00f0a hva\u00f0eina sem \u00feeim dettur \u00ed hug a\u00f0 segja. M\u00e1li\u00f0 er \u00ed raun miklu einfaldara en \u00feetta; \u00feeim sem dettur \u00ed hug a\u00f0 bj\u00f3\u00f0a sig fram fyrir flokk sem \u201eber \u00e1byrg\u00f0 sem hann mun axla\u201c er ekki a\u00f0 breyta e\u00f0a hreinsa flokkinn af nokkrum sk\u00f6pu\u00f0um hlut. Hann er a\u00f0 byggja \u00e1 grunni &#8211; e\u00f0a r\u00fastum &#8211; \u00feess flokks og mun aldrei geta for\u00f0ast \u00fe\u00e1 grundvallarhugmynd sem hann reisir s\u00edna stefnu \u00e1. \u00dea\u00f0 gengur enginn \u00ed V\u00edtisenglana til a\u00f0 stofna leiksk\u00f3la og \u00fea\u00f0 gengur enginn \u00ed Ku Klux Klan til a\u00f0 breyta skilningi \u00feeirra \u00e1 bl\u00f6kkum\u00f6nnum innanfr\u00e1.<\/p>\n<p>Sigmundur Dav\u00ed\u00f0 Gunnlaugsson byggir \u00e1 90% h\u00fasn\u00e6\u00f0isl\u00e1num, K\u00e1rahnj\u00fakavirkjun og einkav\u00e6\u00f0ingu bankanna. Hann mun ekki geta for\u00f0ast \u00fe\u00e1 \u00e1byrg\u00f0 \u00fe\u00f3tt flokkurinn hans \u201eaxli\u201c hana, enda \u00feegar flokksmenn segja a\u00f0 flokkurinn (ekki \u00feeir) beri \u00e1byrg\u00f0, hvern fjandann er flokkurinn \u00fe\u00e1 a\u00f0 bj\u00f3\u00f0a fram? Bjarni Benediktsson byggir \u00e1 s\u00f6mu einkav\u00e6\u00f0ingu bankanna, \u00e1byrg\u00f0arlausum skattal\u00e6kkunum \u00e1 \u00feenslut\u00edma, innr\u00e1s \u00ed \u00cdrak og Afganistan &#8211; \u00fea\u00f0 gerir Sigmundur Dav\u00ed\u00f0 raunar l\u00edka &#8211; og \u00e9g bara nenni ekki a\u00f0 telja upp einst\u00f6k atri\u00f0i lengur. \u00deetta er fullkomlega \u00fat \u00ed h\u00f6tt. Og me\u00f0an enginn telur sj\u00e1lfan sig bera nokkra einustu \u00f6r\u00f0u af \u00e1byrg\u00f0 hl\u00fdtur s\u00fa \u00e1byrg\u00f0 a\u00f0 falla \u00e1 flokkinn \u00ed heild sinni og \u00fev\u00ed s\u00e9 hann ekki t\u00e6kur til frambo\u00f0s fyrir \u00fea\u00f0 fyrsta, til n\u00faverandi setu \u00e1 \u00feingi og \u00ed sveitastj\u00f3rnum hva\u00f0 hitt var\u00f0ar. Og \u00fea\u00f0 er hreint \u00fat sagt \u00f3tr\u00falegt a\u00f0 sj\u00e1 tilbur\u00f0i og kattakl\u00f3r \u00feessara emb\u00e6ttismanna \u00ed kj\u00f6lfar birtingar sk\u00fdrslunnar einsog \u00feeir \u00e6tli s\u00e9r a\u00f0 taka nokkra einustu \u00e1byrg\u00f0 \u00e1 \u00fev\u00ed hvernig komi\u00f0 er. Fyrir utan svo \u00fea\u00f0 a\u00f0 ef \u00feeir sem kj\u00f3sa Sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0isflokkinn taka mark \u00e1 Geir H. Haarde \u00fe\u00e1 hlj\u00f3ta \u00feeir a\u00f0 sj\u00e1 a\u00f0 Samfylkingin er a\u00f0 minnsta kosti eins saklaus af \u00f6llu og hann sj\u00e1lfur. Allt tal um \u201eSamspillingu\u201c er h\u00e9rumbil \u00fea\u00f0 heimskasta sem \u00e9g hef komist \u00ed t\u00e6ri vi\u00f0 a\u00f0 undanf\u00f6rnu.<\/p>\n<p>En hva\u00f0 segir \u00fea\u00f0 okkur \u00fe\u00e1 a\u00f0 svona margir vilja kj\u00f3sa Sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0isflokkinn til lands og sveita? \u00c9g held a\u00f0 sk\u00fdringin s\u00e9 margslungin:<\/p>\n<blockquote><p>1. \u00dea\u00f0 er ekkert anna\u00f0 fyrir h\u00e6grimenn a\u00f0 kj\u00f3sa &#8211; sem l\u00fdsir jafnvel meira \u00e1byrg\u00f0arleysi me\u00f0al kj\u00f3senda en frambj\u00f3\u00f0enda.<\/p>\n<p>2. \u00dea\u00f0 er komin n\u00fd forysta sem axlar \u00e1byrg\u00f0 &#8211; sem er ekki satt sbr. allt ofantali\u00f0.<\/p>\n<p>3. Afi minn var sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0isma\u00f0ur, pabbi minn l\u00edka og \u00e9g er sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0isma\u00f0ur &#8211; sem er ekki s\u00e9rlega kl\u00f3kt, \u00ed alv\u00f6ru bara hugsi\u00f0 m\u00e1lin.<\/p><\/blockquote>\n<p>Margt fleira m\u00e6tti svosem telja h\u00e9r til. En \u00feessi pistill sn\u00fdst um v\u00f6rumerki og neysluvitund. \u00dea\u00f0 er ekki h\u00e6gt a\u00f0 kaupa s\u00e9r bens\u00edn \u00e1 \u00cdslandi \u00e1n \u00feess a\u00f0 versla vi\u00f0 gl\u00e6pamenn &#8211; nema gegnum Atlantsol\u00edu (enn sem komi\u00f0 er a.m.k.). \u00dea\u00f0 er ekki h\u00e6gt a\u00f0 flj\u00faga \u00e1 e\u00f0a fr\u00e1 \u00cdslandi nema versla vi\u00f0 gl\u00e6pamenn (P\u00e1lmi \u00ed Fons og Hannes Sm\u00e1ra, svo \u00e9g skilji Baug sem stofnun a\u00f0eins undan). \u00dea\u00f0 er ekki h\u00e6gt a\u00f0 eiga bankareikning \u00e1 \u00cdslandi nema vera sj\u00e1lfur m\u00e1\u00f0ur af gl\u00e6psamlegri fors\u00f6gu bankanna sem hafa l\u00edti\u00f0 anna\u00f0 gert en skipta um nafn. \u00dea\u00f0 er ekki einu sinni h\u00e6gt a\u00f0 horfa \u00e1 St\u00f6\u00f0 2 e\u00f0a lesa Moggann \u00e1n \u00feess a\u00f0 sverta sj\u00e1lfan sig \u00f6gn \u00ed lei\u00f0inni. Og f\u00e1keppni og hef\u00f0arveldi \u00e1 stj\u00f3rnm\u00e1lamarka\u00f0num hefur or\u00f0i\u00f0 \u00feess valdandi a\u00f0 tveir elstu stj\u00f3rnm\u00e1laflokkar landsins vir\u00f0ast \u00e6tla a\u00f0 lifa af mesta hneyksli \u00cdslandss\u00f6gunnar. \u00dea\u00f0 sem \u00e9g er a\u00f0 segja er \u00feetta: \u00fea\u00f0 er einfaldlega ekki h\u00e6gt a\u00f0 skipta \u00fat f\u00f3lki \u00ed \u00f3ge\u00f0slegri stofnun (svo \u00e9g vitni \u00ed Styrmi Gunnarsson) og \u00e6tlast til \u00feess a\u00f0 froskurinn breytist \u00ed prins. \u00dea\u00f0 er bara f\u00e1r\u00e1nlegt. Sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0is- og Frams\u00f3knarflokkurinn bera, bara sem d\u00e6mi, \u00e1byrg\u00f0 \u00e1 hruni \u00edslenska fj\u00e1rm\u00e1lakerfisins og hundru\u00f0um \u00fe\u00fasunda myrtra \u00ed Afganistan og \u00cdrak. \u00dea\u00f0 getur \u00fev\u00ed varla talist g\u00f3\u00f0 hugmynd a\u00f0 bj\u00f3\u00f0a fram undir sama merki \u00ed nafni r\u00e9ttl\u00e6tis og \u00e1byrg\u00f0ar.<\/p>\n<p>Svo kannski er \u00feetta ekki spurning um neyslu- e\u00f0a stj\u00f3rnm\u00e1lavitund almennings eftir allt saman. Kannski er \u00feetta ekki spurning um fair trade. \u00c1 \u00cdslandi hefur aldrei veri\u00f0 neitt fair trade. Anna\u00f0hvort er \u00feetta spurning um \u00fea\u00f0 hvort f\u00f3lki s\u00e9 virkilega sama e\u00f0a vilji heldur sj\u00e1 breytingar, e\u00f0a hitt, hvort kerfi\u00f0 sj\u00e1lft s\u00e9 \u00fea\u00f0 einsleitt a\u00f0 f\u00f3lki s\u00e9 sl\u00e9tt sama hva\u00f0 \u00fea\u00f0 kj\u00f3si. \u00cd \u00f6llu falli er \u00e1standi\u00f0 alvarlegt \u00feegar svo margir kj\u00f3sa si\u00f0spilltustu \u00f6fl landsins enn af fullum krafti, og fyrir mitt leyti mun \u00e9g taka kr\u00f6fum um r\u00f3tt\u00e6kni og breytingar \u00feeirra hinna s\u00f6mu me\u00f0 fyrirvara me\u00f0an flestir kj\u00f3sa Sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0isflokkinn. Ver\u00f0i \u00feeim a\u00f0 vi\u00f0leitni sinni, segi \u00e9g bara.<\/p>\n<p><i>Birtist einnig \u00e1 <a href=\"http:\/\/kistan.is\/default.asp?sid_id=25401&#038;fre_Id=101359&#038;tid=2&#038;meira=1&#038;Tre_Rod=005|&#038;qsr\">Kistunni<\/a> \u00feann 14. apr\u00edl 2010.<\/i><\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00c6tli \u00fea\u00f0 hafi ekki komi\u00f0 fleirum a\u00f0 \u00f3v\u00f6rum en m\u00e9r hversu v\u00f6ndu\u00f0 sk\u00fdrsla Ranns\u00f3knarnefndar Al\u00feingis er. L\u00edklega bjuggust f\u00e1ir vi\u00f0 hversu afgerandi h\u00fan \u00ed raun er. St\u00f6rf nefndarinnar eru eiginleg andst\u00e6\u00f0a alls \u00feess sem l\u00fdst er \u00ed sk\u00fdrslunni. Stj\u00f3rns\u00fdslan einkenndist af f\u00e1bj\u00e1nah\u00e6tti og innvi\u00f0ir bankanna voru hriplekir og sto\u00f0irnar f\u00fanar &#8211; \u00fe\u00e1 undanskil \u00e9g \u00e1byrg\u00f0arleysi &hellip; <a href=\"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/2010\/04\/14\/rannsoknarskyrslan-er-fulln%c3%a6gjandi-til-sins-bruks\/\" class=\"more-link\">Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa: <span class=\"screen-reader-text\">Ranns\u00f3knarsk\u00fdrslan er fulln\u00e6gjandi &#8211; til s\u00edns br\u00faks<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":3,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[7,9,12,21],"tags":[],"class_list":["post-3156","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-fjolmilar","category-greinar","category-kreppan","category-politik"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/3156","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/users\/3"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3156"}],"version-history":[{"count":5,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/3156\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":13752,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/3156\/revisions\/13752"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3156"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=3156"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=3156"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}