{"id":3391,"date":"2010-09-20T19:17:14","date_gmt":"2010-09-20T19:17:14","guid":{"rendered":"http:\/\/kaninka.net\/arngrimurv\/?p=3391"},"modified":"2019-01-01T13:37:01","modified_gmt":"2019-01-01T13:37:01","slug":"stiklur-ur-fer%c3%b0asogu-i","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/2010\/09\/20\/stiklur-ur-fer%c3%b0asogu-i\/","title":{"rendered":"Stiklur \u00far fer\u00f0as\u00f6gu I"},"content":{"rendered":"<p><a href=\"http:\/\/www.reiseliv.no\/var\/reiseliv\/storage\/images\/media\/images\/destinasjoner_bilder\/norden\/norge\/oslo\/oslo_by_night\/16112-2-nor-NO\/oslo_by_night_article_large_image.jpg\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" src=\"http:\/\/www.reiseliv.no\/var\/reiseliv\/storage\/images\/media\/images\/destinasjoner_bilder\/norden\/norge\/oslo\/oslo_by_night\/16112-2-nor-NO\/oslo_by_night_article_large_image.jpg\" width=\"220\" height=\"140\" alt=\"\" align=\"left\" border=\"0\" hspace=\"4\" vspace=\"4\"\/><\/a>\u00c1 lei\u00f0inni til \u00c1laborgar fr\u00e1 \u00c1r\u00f3sum keyr\u00f0i lestin \u00e1 eitthva\u00f0 og t\u00e6tti \u00fea\u00f0 svo \u00ed sundur undir hj\u00f3lunum. Titringurinn og \u00f3hlj\u00f3\u00f0in fundust \u00f3b\u00e6rilega vel og \u00e9g gr\u00edna\u00f0ist me\u00f0 a\u00f0 vi\u00f0 hef\u00f0um keyrt yfir d\u00e1d\u00fdr. Stuttu s\u00ed\u00f0ar var tilkynnt \u00ed h\u00e1talarakerfinu a\u00f0 vi\u00f0 hef\u00f0um keyrt yfir d\u00e1d\u00fdr.<\/p>\n<p>\u00c1laborg virtist m\u00e9r vera \u00e1g\u00e6tispl\u00e1ss en h\u00fan er sm\u00e1msaman a\u00f0 deyja. St\u00f6rfum f\u00e6kkar og flestir flytja anna\u00f0 til a\u00f0 mennta sig. \u00dear var \u00e1g\u00e6tisbar sem heitir The Wharf. Bj\u00f3rinn er afgreiddur \u00far st\u00f3rum \u00e1mum sem liggja \u00e1 hli\u00f0inni bakvi\u00f0 barinn. \u00de\u00e6r eru merktar me\u00f0 heiti og greinarg\u00f3\u00f0ri brag\u00f0l\u00fdsingu. Hvergi hef \u00e9g s\u00e9\u00f0 anna\u00f0 eins \u00farval og einsog allir g\u00f3\u00f0ir barir var \u00fear reykingal\u00f3kall.<\/p>\n<p>Vi\u00f0 Christian og Mathias gistum \u00fe\u00e1 n\u00f3tt hj\u00e1 Olle, sem \u00fe\u00f3 heitir Carsten, \u00ed N\u00f8rresundby sem liggur hinumegin \u00e1rinnar, svipa\u00f0 og hva\u00f0 hinn b\u00e6rinn heitir hinumegin Lagarflj\u00f3ts. Vi\u00f0 v\u00f6knu\u00f0um fj\u00f3rum t\u00edmum s\u00ed\u00f0ar og ekki gruna\u00f0i nokkurn okkar \u00fe\u00e1 a\u00f0 \u00feannig \u00e6tti \u00fea\u00f0 eftir a\u00f0 ver\u00f0a alla n\u00e6stu viku. Vi\u00f0 t\u00f3kum lestina til Fri\u00f0rikshafnar og \u00fea\u00f0an ferju yfir til Osl\u00f3ar.<\/p>\n<p>Ferjan <a href=\"http:\/\/www.stenaline.nl\/en\/ferry\/ships\/stena-saga\/\">Stena Saga<\/a>, sem var l\u00edkari litlu skemmtifer\u00f0askipi en neinni ferju sem \u00e9g hef \u00e1\u00f0ur teki\u00f0, er s\u00e9rkap\u00edtuli \u00ed fer\u00f0inni allri. \u00dear var bara gj\u00f6rsamlega st\u00f3rfur\u00f0ulegt f\u00f3lk, flestir Nor\u00f0menn \u00ed rossignol\u00falpum me\u00f0 aflita\u00f0 h\u00e1r, mottu og \u00fdstru. \u00c1 ellefta dekki m\u00e1tti komast \u00e1 neti\u00f0 og \u00feegar \u00e9g kom \u00feanga\u00f0 upp st\u00f3\u00f0 h\u00f3pur af D\u00f6num \u00e1 n\u00e6rf\u00f6tunum sem spur\u00f0u hvort \u00feau fengju t\u00f6skuna m\u00edna l\u00e1na\u00f0a. \u00c9g star\u00f0i \u00e1 \u00feau og t\u00f3kst \u00e1 endanum a\u00f0 \u00e6la \u00fat\u00far m\u00e9r nei. \u00deau voru v\u00edst a\u00f0 leika einhvern leik og \u00feegar hann var b\u00fainn skilu\u00f0u \u00feau \u00fdmsum hlutum til annarra \u00ed r\u00fdminu og kl\u00e6ddu sig.<\/p>\n<p>Tveir Nor\u00f0menn voru \u00feegar fullir \u00feegar vi\u00f0 sigldum \u00far v\u00f6r og vi\u00f0 teljum a\u00f0 \u00feeir hafi keypt s\u00e9r mi\u00f0a b\u00e1\u00f0ar lei\u00f0ir. \u00cd lok fer\u00f0ar voru tveir Nor\u00f0menn einmitt kalla\u00f0ir upp fj\u00f3rum sinnum \u00fev\u00ed \u00feeir hef\u00f0u ekki yfirgefi\u00f0 herbergi s\u00edn, sj\u00e1lfsagt dau\u00f0ir. Skipi\u00f0 allt var svo smekkleysislega hanna\u00f0 a\u00f0 f\u00e1 or\u00f0 leyfa sannleikanum a\u00f0 nj\u00f3ta s\u00edn \u00ed stuttri bloggf\u00e6rslu. \u00c1 einum margra veitingasta\u00f0a m\u00e1tti svo sj\u00e1 allskonar vi\u00f0rini vappa milli hla\u00f0bor\u00f0s og bars skreyttum me\u00f0 veggmyndum af Fri\u00f0\u00fej\u00f3fi forvitna einsog vi\u00f0 hef\u00f0um keypt mi\u00f0a \u00e1 fr\u00edksj\u00f3 P.T. Barnums.<\/p>\n<p>\u00deetta var eitt allsherjar flj\u00f3tandi ge\u00f0veikrah\u00e6li. Barinn \u00e1 sj\u00f6unda dekki var n\u00e1kv\u00e6mlega einsog \u00e9g s\u00e1 fyrir m\u00e9r barinn \u00ed Hinu st\u00f3rkostlega leyndarm\u00e1li heimsins eftir Steinar Braga. Hann h\u00e9t C-View (!), me\u00f0 eftir \u00fev\u00ed g\u00f3\u00f0u \u00fats\u00fdni, a\u00f0 \u00fev\u00ed undanskildu a\u00f0 hann sn\u00e9rist ekki. Disk\u00f3k\u00falur h\u00e9r og \u00fear og yndislega vandvirknislega valin drasldisk\u00f3l\u00f6g \u00f3mu\u00f0u um salinn. Eftir skamma hr\u00ed\u00f0 h\u00f6f\u00f0um vi\u00f0 \u00fe\u00f3 vanist \u00feessari vitleysu og \u00feegar rigningunni haf\u00f0i slota\u00f0 g\u00e1tum vi\u00f0 seti\u00f0 vi\u00f0 stafninn, drukki\u00f0 bj\u00f3r og be\u00f0i\u00f0 eftir a\u00f0 strendur Noregs d\u00fakku\u00f0u upp vi\u00f0 sj\u00f3ndeildarhringinn. Fer\u00f0in t\u00f3k n\u00edu t\u00edma \u00ed allt.<\/p>\n<p>Ekki bei\u00f0 okkur neitt betra \u00ed Osl\u00f3. \u00dear settumst vi\u00f0 \u00e1 Kebabsta\u00f0 sem var rekinn af mellud\u00f3lg. Mellurnar st\u00f3\u00f0u fyrir utan sta\u00f0inn og str\u00e1kar \u00e1 \u00f6\u00f0ru g\u00f6tuhorni reyndu a\u00f0 selja gangandi vegfarendum a\u00f0gang a\u00f0 \u00feeim og rapporteru\u00f0u svo til kebabmannsins. Til a\u00f0 k\u00f3r\u00f3na d\u00f3pistana vi\u00f0 h\u00f6fnina m\u00e1tti svo sj\u00e1 eitthvert \u00fea\u00f0 \u00f3tr\u00falegasta samsafn af forlj\u00f3tum svartleitum h\u00e1h\u00fdsum me\u00f0 lj\u00f3saskiltum a\u00f0 kauph\u00f6llinni og flj\u00f3tandi marka\u00f0svir\u00f0i hlutabr\u00e9fa flj\u00f3tandi fr\u00e1 h\u00e6gri til vinstri \u00e1 stafr\u00e6num skj\u00e1 engan veginn undanskilinni.<\/p>\n<p>\u00cd Osl\u00f3 komst \u00e9g a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 hvorki danski s\u00edminn n\u00e9 korti\u00f0 virka utan Danmerkur. Me\u00f0 \u00fe\u00e1 gle\u00f0i \u00ed hjarta f\u00f3r \u00e9g \u00ed part\u00ed um bor\u00f0 \u00ed skipi vi\u00f0 h\u00f6fnina, sem er einhverskonar part\u00edb\u00e1tur\/bar sem \u00e1 \u00fear varanlegt a\u00f0setur. \u00dear hittum vi\u00f0 f\u00e9lagar vinkonu eins, Silje nokkra, sem keyr\u00f0i okkur til Drammen \u00fear sem vi\u00f0 gistum \u00fe\u00e1 n\u00f3ttina. H\u00fan er \u00e1satr\u00faar og ekki s\u00ed\u00f0ur en fyrir kurteisissakir en fyrir \u00feann si\u00f0 f\u00e6r\u00f0um vi\u00f0 henni vodkafl\u00f6sku fyrir grei\u00f0ann. H\u00fan \u00e1tti eftir kom \u00e1 daginn a\u00f0 hj\u00e1lpa okkur enn meira \u00fear sem str\u00e6t\u00f3samg\u00f6ngur \u00ed Noregi eru \u00fat \u00ed h\u00f6tt og \u00f3skiljanlegar me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 keyra okkur \u00fe\u00f3nokkra vegalengd a\u00f0 lestarst\u00f6\u00f0inni klukkan 6 um morgun.<\/p>\n<p>\u00deannig lei\u00f0 fyrsti einn og h\u00e1lfur s\u00f3larhringurinn \u00ed stuttu m\u00e1li.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00c1 lei\u00f0inni til \u00c1laborgar fr\u00e1 \u00c1r\u00f3sum keyr\u00f0i lestin \u00e1 eitthva\u00f0 og t\u00e6tti \u00fea\u00f0 svo \u00ed sundur undir hj\u00f3lunum. Titringurinn og \u00f3hlj\u00f3\u00f0in fundust \u00f3b\u00e6rilega vel og \u00e9g gr\u00edna\u00f0ist me\u00f0 a\u00f0 vi\u00f0 hef\u00f0um keyrt yfir d\u00e1d\u00fdr. Stuttu s\u00ed\u00f0ar var tilkynnt \u00ed h\u00e1talarakerfinu a\u00f0 vi\u00f0 hef\u00f0um keyrt yfir d\u00e1d\u00fdr. \u00c1laborg virtist m\u00e9r vera \u00e1g\u00e6tispl\u00e1ss en h\u00fan er sm\u00e1msaman &hellip; <a href=\"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/2010\/09\/20\/stiklur-ur-fer%c3%b0asogu-i\/\" class=\"more-link\">Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa: <span class=\"screen-reader-text\">Stiklur \u00far fer\u00f0as\u00f6gu I<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":3,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[6],"tags":[],"class_list":["post-3391","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-feralog"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/3391","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/users\/3"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3391"}],"version-history":[{"count":3,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/3391\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":13797,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/3391\/revisions\/13797"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3391"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=3391"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=3391"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}