{"id":3410,"date":"2010-10-26T21:26:18","date_gmt":"2010-10-26T21:26:18","guid":{"rendered":"http:\/\/kaninka.net\/arngrimurv\/?p=3410"},"modified":"2019-01-01T13:37:01","modified_gmt":"2019-01-01T13:37:01","slug":"hr%c3%a6sna%c3%b0-um-frumskogarlogmali%c3%b0","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/2010\/10\/26\/hr%c3%a6sna%c3%b0-um-frumskogarlogmali%c3%b0\/","title":{"rendered":"Hr\u00e6sna\u00f0 um frumsk\u00f3garl\u00f6gm\u00e1li\u00f0"},"content":{"rendered":"<p><a href=\"http:\/\/multimedia.pol.dk\/archive\/00447\/Gellerup__447470y.jpg\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" src=\"http:\/\/multimedia.pol.dk\/archive\/00447\/Gellerup__447470y.jpg\" width=\"220\" height=\"140\" alt=\"\" align=\"left\" border=\"0\" hspace=\"4\" vspace=\"4\"\/><\/a>\u00cd s\u00ed\u00f0asta pistli fjalla\u00f0i \u00e9g um misheppna\u00f0a uppbyggingu snobbhverfis \u00fear sem \u00ed dag stendur v\u00f6lundarh\u00fas \u00f3gnarst\u00f3rra blokka \u00ed \u00f3r\u00e6kt undir samheitinu Gellerup, umluki\u00f0 \u00f3hirtum trj\u00e1m sem vaxa hvert me\u00f0 s\u00ednu laginu svo l\u00edkja m\u00e6tti vi\u00f0 frumsk\u00f3g. Raunar er \u00fea\u00f0 svo vins\u00e6l l\u00edking a\u00f0 n\u00e1lega \u00ed hvert sinn sem fj\u00f6lmi\u00f0lar taka Gellerup til umfj\u00f6llunar, sem er \u00e6ri\u00f0 oft, er \u00feessi l\u00edking dregin upp. N\u00fa s\u00ed\u00f0ast hafa b\u00e6\u00f0i Stiften og Politiken \u00e9ti\u00f0 upp alveg \u00e1g\u00e6ta fyrirs\u00f6gn fr\u00e1 \u00fev\u00ed dagbla\u00f0i sem hva\u00f0 s\u00edst skyldi kalla hlutlaust \u00ed gar\u00f0 innflytjenda \u2013 Jyllands Posten. Fyrirs\u00f6gnin kom m\u00e9r s\u00ed\u00f0ur \u00e1 \u00f3vart en myndin af n\u00e6sta h\u00fasi vi\u00f0 mitt sem fylgdi fr\u00e9ttinni. \u00dear b\u00fdr vinur minn og telur sig b\u00faa \u00ed betri enda gett\u00f3sins, ef h\u00e6gt er a\u00f0 nota sl\u00edkt or\u00f0alag.<\/p>\n<p>Fr\u00e9ttin er n\u00e1kv\u00e6mlega sama fr\u00e9tt og \u00e9g vitna\u00f0i til \u00ed s\u00ed\u00f0asta pistli, bara m\u00e1nu\u00f0i yngri \u00ed \u00feetta sinn. \u00dea\u00f0 \u00feykir v\u00edst jafng\u00f3\u00f0 fr\u00e9ttamennska h\u00e9r einsog \u00e1 \u00cdslandi a\u00f0 endurtaka s\u00f6mu m\u00f6ntruna aftur og aftur uns h\u00fan hefur r\u00e6kilega fest sig \u00ed sessi. \u201eJungleloven r\u00e5der i flere ghettoer\u201c. Me\u00f0fylgjandi mynd af risav\u00f6xnu steinsteypuskr\u00edmsli me\u00f0 veggjakroti uppeftir allri hli\u00f0inni og gervihnattadiski \u00e1 \u00feri\u00f0ju hverjum sv\u00f6lum, gu\u00f0 hj\u00e1lpi okkur ef \u00feetta er b\u00e6namotta sem hangir \u00fearna yfir handri\u00f0i\u00f0. Gellerup er \u00fatlandi\u00f0 \u00ed \u00c1r\u00f3sum, landam\u00e6rin liggja vi\u00f0 verslunarmi\u00f0st\u00f6\u00f0ina City Vest hverrar turnum ver\u00f0ur sj\u00e1lfsagt breytt \u00ed m\u00ednarettur von br\u00e1\u00f0ar ef marka m\u00e6tti bl\u00f6\u00f0in, mi\u00f0r\u00fdminu \u00ed mosku. \u00deetta er ekki mynd sem b\u00fd\u00f0ur f\u00f3lk velkomi\u00f0. F\u00f3lki\u00f0 sem b\u00fdr h\u00e9r er enda ekki velkomi\u00f0 sj\u00e1lft. Eftir nokkur \u00e1r ver\u00f0ur myndin af f\u00e1t\u00e6krablokkinni eini minnisvar\u00f0inn um tilvist hennar utan minninga \u00feeirra sem h\u00e9r hafa b\u00fai\u00f0, \u00fev\u00ed eitthva\u00f0 finnst borgaryfirv\u00f6ldum skorta \u00e1 fj\u00f6lda verslanami\u00f0st\u00f6\u00f0va \u00ed Gellerup<\/p>\n<p>N\u00fdjast \u00ed fr\u00e9ttum er hinsvegar sext\u00edu \u00e1ra sta\u00f0reynd sem loksins hefur reyrt sitt lj\u00f3ta h\u00f6fu\u00f0 n\u00f3gu langt upp undir pilsfald Kristj\u00e1nsborgar a\u00f0 \u00feingm\u00f6nnum finnist sem a\u00f0ger\u00f0a s\u00e9 \u00fe\u00f6rf. Komi\u00f0 hefur \u00e1 daginn a\u00f0 timburframlei\u00f0andinn Collstrop, sem s\u00e9rh\u00e6fir sig \u00ed a\u00f0 b\u00f3lusetja tr\u00e9 gegn \u00fdmsum kvillum til a\u00f0 tryggja langl\u00edfi vi\u00f0arins og \u00fear me\u00f0 bj\u00f3\u00f0a upp \u00e1 bestu v\u00f6runa, hefur veri\u00f0 a\u00f0 losa mengu\u00f0 \u00fargangsefni \u00fat \u00ed danska n\u00e1tt\u00faru s\u00ed\u00f0an \u00e1 sj\u00f6tta \u00e1ratugnum. A\u00f0 v\u00edsu eru \u00feetta engin n\u00fd t\u00ed\u00f0indi \u00feannig laga\u00f0, og einhverra hluta vegna hefur fyrirt\u00e6ki\u00f0 aldrei veri\u00f0 dregi\u00f0 til \u00e1byrg\u00f0ar fyrir \u00feessa starfsemi. En n\u00fa finnast tunnur af arseniki, kr\u00f3mi og kopar \u00e1 n\u00fd \u00ed m\u00fdrum \u00e1 einkal\u00f3\u00f0um \u00e1 Fj\u00f3ni, \u00ed n\u00e1grenni \u00d3\u00f0insv\u00e9a, \u00fe\u00e1 vi\u00f0 Horsens og loks n\u00e1l\u00e6gt \u00edb\u00faabygg\u00f0 vi\u00f0 Brabrandvatn r\u00e9tt su\u00f0ur af Gellerup, uppl\u00fdsir Danmarks Radio.<\/p>\n<p>Brabrandvatn er eitt st\u00e6rsta \u00fativistarsv\u00e6\u00f0i \u00c1r\u00f3sa. \u00dear er ekki einungis \u00edb\u00faabygg\u00f0 nor\u00f0anmegin vatnsins heldur er bl\u00f3mleg sumarb\u00fasta\u00f0abygg\u00f0 sunnanmegin vi\u00f0 ja\u00f0ar Brabrandsk\u00f3gar. Bryggjur fyrir b\u00e1ta og dorgara m\u00e1 v\u00ed\u00f0a finna og vins\u00e6lt er a\u00f0 synda \u00ed vatninu \u00e1 heitum sumard\u00f6gum. \u00dar vatninu rennur sj\u00e1lf \u00e1in sem borgin er kennd vi\u00f0 og bug\u00f0ast gegnum kjarna mi\u00f0b\u00e6jarins uns h\u00fan rennur \u00fat \u00ed haf. Og einmitt \u00fearna fannst Collstrop sni\u00f0ugt a\u00f0 senda f\u00f3lk \u00ed eiturheldum b\u00faningum, svosem sj\u00e1 m\u00e1 \u00e1 nokkrum vel v\u00f6ldum fr\u00e9ttamyndum, til a\u00f0 grafa tunnur af arseniki \u00ed skj\u00f3li n\u00e6tur. Ekki n\u00e1\u00f0ist \u00ed umhverfisr\u00e1\u00f0herra vi\u00f0 vinnslu fr\u00e9ttarinnar en DR n\u00e1\u00f0i hinsvegar tali af fulltr\u00faum Radikale Venstre og Socialdemokraterne sem s\u00f6g\u00f0ust \u00e6tla a\u00f0 gera sitt \u00edtrasta til a\u00f0 setja pressu \u00e1 stj\u00f3rnv\u00f6ld svo h\u00e6gt ver\u00f0i a\u00f0 s\u00e6kja Collstrop til saka.<\/p>\n<p>Grunnvatni\u00f0, a\u00f0 vistkerfinu \u00f6llu \u00f3l\u00f6stu\u00f0u, er ein vi\u00f0kv\u00e6masta au\u00f0lind Danmerkur og ekki eru nema \u00f6rf\u00e1ar vikur s\u00ed\u00f0an vart var\u00f0 vi\u00f0 E. coli smit \u00ed vatnsb\u00f3li nor\u00f0urb\u00e6jarins. \u00c1st\u00e6\u00f0an var rakin til mikilla rigninga sem fl\u00e6tt h\u00f6f\u00f0u yfir grunnvatnsl\u00ednuna og skola\u00f0 saur fr\u00e1 n\u00e6rliggjandi b\u00fdlum \u00fear ofan \u00ed. Fyrir mikla mildi var\u00f0 f\u00e1um meint af, en n\u00fa er \u00fdmsum n\u00f3g bo\u00f0i\u00f0 og engum ver\u00f0ur li\u00f0in s\u00fa i\u00f0ja a\u00f0 f\u00edflast frekar me\u00f0 grunnvatni\u00f0. \u00dev\u00ed er \u00fatlit fyrir a\u00f0 60 \u00e1rum eftir a\u00f0 Collstrop h\u00f3f s\u00edna l\u00f6ngu s\u00f6gu umhverfishry\u00f0juverka ver\u00f0i loksins gripi\u00f0 \u00ed taumana.<\/p>\n<p>Sta\u00f0setningin sj\u00e1lf er \u00fe\u00f3 ekki s\u00ed\u00f0ur \u00e1hugaver\u00f0 \u00ed \u00fev\u00ed lj\u00f3si sem \u00e9g dr\u00f3 upp \u00ed upphafi pistilsins. \u00dea\u00f0 er einsog \u00fea\u00f0 eigi ekki af f\u00f3lkinu h\u00e9rna a\u00f0 ganga. Me\u00f0an gar\u00f0arnir liggja \u00ed \u00f3r\u00e6kt \u00ed frumsk\u00f3garb\u00e6linu mi\u00f0ju og h\u00fasin eru l\u00e1tin drabbast ni\u00f0ur a\u00f0 \u00fev\u00ed marki a\u00f0 loks ver\u00f0i h\u00e6gt a\u00f0 r\u00edfa \u00feau og hreinsa Gellerup af \u00f6llu dekkra en me\u00f0als\u00f3lstrandag\u00e6ja ja\u00f0rar \u00fea\u00f0 vi\u00f0 a\u00f0 b\u00edta hausinn af sk\u00f6mminni \u00feegar hv\u00edtir kap\u00edtalistar taka upp \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 grafa eiturefnin s\u00edn \u00e1 ja\u00f0ri bygg\u00f0arinnar. Innflytjendur f\u00e1 v\u00edst n\u00f3g af fyrirm\u00e6lum fr\u00e1 hv\u00edtri yfirst\u00e9tt hvernig \u00feeir skuli haga s\u00ednu l\u00edfi og \u00e1tr\u00fana\u00f0i \u00fe\u00f3tt ekki s\u00e9 l\u00edka r\u00e1\u00f0ist \u00e1 \u00fe\u00e1 \u00ed eigin bakgar\u00f0i \u00e1n d\u00f3ms og laga. Au\u00f0vita\u00f0 er \u00feetta algerlega \u00f3l\u00ed\u00f0andi sama hver ver\u00f0ur fyrir, en ekki s\u00edst \u00ed \u00fev\u00ed samhengi n\u00e1kv\u00e6mlegahver f\u00f3rnarl\u00f6mbin eru, eina fer\u00f0ina enn, er \u00fea\u00f0 einl\u00e6g \u00f3sk m\u00edn a\u00f0 forstj\u00f3rar Collstrop ver\u00f0i dregnir til \u00e1byrg\u00f0ar og fyrirt\u00e6ki\u00f0 svipt starfsleyfi \u00ed Danm\u00f6rku.<\/p>\n<p>Kannski yr\u00f0i \u00fea\u00f0 skref \u00ed \u00e1tt \u00feeirrar \u00f3skar l\u00f6greglunnar a\u00f0 \u00edb\u00faar Gellerup vir\u00f0i og treysti \u00e1 yfirv\u00f6ld. Skyldi \u00fe\u00f3 engan undra \u00fe\u00f3tt \u00fdmsum h\u00e9r \u00feyki l\u00edti\u00f0 til \u00feeirra koma einsog komi\u00f0 er fram vi\u00f0 f\u00f3lki\u00f0, og me\u00f0an fj\u00f6lmi\u00f0lar hr\u00e6sna um frumsk\u00f3garl\u00f6gm\u00e1li\u00f0.<\/p>\n<p><i>Birtist fyrst \u00e1 <a href=\"http:\/\/www.smugan.is\/pistlar\/fastir-pennar\/arngrimur-vidalin\/nr\/4142\">Smugunni<\/a> 8. okt\u00f3ber.<\/i><\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00cd s\u00ed\u00f0asta pistli fjalla\u00f0i \u00e9g um misheppna\u00f0a uppbyggingu snobbhverfis \u00fear sem \u00ed dag stendur v\u00f6lundarh\u00fas \u00f3gnarst\u00f3rra blokka \u00ed \u00f3r\u00e6kt undir samheitinu Gellerup, umluki\u00f0 \u00f3hirtum trj\u00e1m sem vaxa hvert me\u00f0 s\u00ednu laginu svo l\u00edkja m\u00e6tti vi\u00f0 frumsk\u00f3g. Raunar er \u00fea\u00f0 svo vins\u00e6l l\u00edking a\u00f0 n\u00e1lega \u00ed hvert sinn sem fj\u00f6lmi\u00f0lar taka Gellerup til umfj\u00f6llunar, sem er &hellip; <a href=\"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/2010\/10\/26\/hr%c3%a6sna%c3%b0-um-frumskogarlogmali%c3%b0\/\" class=\"more-link\">Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa: <span class=\"screen-reader-text\">Hr\u00e6sna\u00f0 um frumsk\u00f3garl\u00f6gm\u00e1li\u00f0<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":3,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[9,21],"tags":[],"class_list":["post-3410","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-greinar","category-politik"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/3410","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/users\/3"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3410"}],"version-history":[{"count":3,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/3410\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":13802,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/3410\/revisions\/13802"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3410"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=3410"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=3410"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}