{"id":3421,"date":"2010-11-12T08:58:24","date_gmt":"2010-11-12T08:58:24","guid":{"rendered":"http:\/\/kaninka.net\/arngrimurv\/?p=3421"},"modified":"2019-01-01T13:37:01","modified_gmt":"2019-01-01T13:37:01","slug":"kristjansborg-fra-framleidendum-melrose-place","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/2010\/11\/12\/kristjansborg-fra-framleidendum-melrose-place\/","title":{"rendered":"Kristj\u00e1nsborg, fr\u00e1 framlei\u00f0endum Melrose Place"},"content":{"rendered":"<p><a href=\"http:\/\/www.idablomsterberg.dk\/wp-content\/uploads\/2010\/02\/christiansborg1.jpg\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" src=\"http:\/\/www.idablomsterberg.dk\/wp-content\/uploads\/2010\/02\/christiansborg1.jpg\" width=\"220\" height=\"140\" alt=\"\" align=\"left\" border=\"0\" hspace=\"4\" vspace=\"4\"\/><\/a>Danska ver\u00f0launamyndin Kongekabale fr\u00e1 2004 fjallar um \u00e1t\u00f6k og undirferli \u00ed danska \u00feinginu, Kristj\u00e1nsborg. \u00cd upphafi myndar lendir forma\u00f0ur Mi\u00f0flokksins \u00ed b\u00edlslysi svo tv\u00eds\u00fdnt er um l\u00edf hans. S\u00ed\u00f0ar kemur \u00ed lj\u00f3s a\u00f0 uppl\u00fdsingum um l\u00ed\u00f0an formannsins hefur veri\u00f0 haldi\u00f0 fr\u00e1 fj\u00f6lmi\u00f0lum \u00e1 me\u00f0an plotta\u00f0 er innan flokksins um arftaka hans. Hinn \u00f3fyrirleitni Erik Dreier Jensen gerir spunameistara sinn \u00fat af \u00f6rkinni til a\u00f0 leka \u00fat \u00f3sannindum um einkal\u00edf samflokkskonu sinnar, Lone Kjeldsen, me\u00f0 \u00feeim aflei\u00f0ingum a\u00f0 eiginma\u00f0ur hennar sviptir sig \u00e1 endanum l\u00edfi undan \u00e1lagi. \u00cd kj\u00f6lfari\u00f0 dregur Kjeldsen sig \u00far stj\u00f3rnm\u00e1lum og Dreier Jensen situr einn a\u00f0 formannsemb\u00e6ttinu, eftir a\u00f0 hafa k\u00faga\u00f0 fleiri samflokksmenn til hl\u00fd\u00f0ni. \u00dea\u00f0 er a\u00f0 v\u00edsu bjartur punktur \u00ed myndinni, en ekki svo a\u00f0 hann skipti neinu raunverulegu m\u00e1li. \u00cd lok myndarinnar stendur Dreier Jensen uppi afhj\u00fapa\u00f0ur fyrir framan myndav\u00e9lar \u00ed beinni \u00fatsendingu, en \u00fea\u00f0 eru lokaor\u00f0 hans sem er raunverulegur bo\u00f0skapur myndarinnar, endurs\u00f6g\u00f0 eftir minni: \u201eKj\u00f3sendur muna ekki eftir \u00feessu. Eftir viku ver\u00f0ur \u00feetta gleymt, vika er langur t\u00edmi \u00ed p\u00f3lit\u00edk. \u00de\u00fa, \u00e1 hinn b\u00f3ginn, f\u00e6r\u00f0 hvergi vinnu aftur vi\u00f0 bla\u00f0amennsku.\u201c<\/p>\n<p>Pers\u00f3na Dreier Jensens er bygg\u00f0 \u00e1 fyrrum fors\u00e6tisr\u00e1\u00f0herra Danmerkur, Anders Fogh Rasmussen, og Mi\u00f0flokkurinn sj\u00e1lfur er flokkur Rasmussens, Venstre, \u00ed l\u00e9legum dulb\u00faningi. \u00cd fyrstu kann \u00feetta a\u00f0 vir\u00f0ast ofurdramat\u00edseru\u00f0 \u00fatg\u00e1fa af raunveruleika danskra stj\u00f3rnm\u00e1la, en \u00feegar n\u00e1nar er a\u00f0 g\u00e6tt er l\u00edfi\u00f0 \u00ed Kristj\u00e1nsborg s\u00edst vi\u00f0bur\u00f0aminna en syrpa af Dallas e\u00f0a Melrose Place.<\/p>\n<p><a href=\"http:\/\/sorenz.dk\/Film%202004\/Kongekabale%20poster.JPG\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" src=\"http:\/\/sorenz.dk\/Film%202004\/Kongekabale%20poster.JPG\" width=\"160\" height=\"220\" alt=\"\" align=\"right\" border=\"0\" hspace=\"4\" vspace=\"4\"\/><\/a> \u00cd tilefni \u00feingsetningar h\u00e9r \u00ed Danm\u00f6rku fj\u00f6llu\u00f0u \u00edslenskir fj\u00f6lmi\u00f0lar \u00f6gn um vandr\u00e6\u00f0i Lene Espersen, formanns Konservative Folkeparti. H\u00fan var sta\u00f0in a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 halda uppl\u00fdsingum um ofgreidda r\u00edkisstyrki til einkasj\u00fakrah\u00fasa fr\u00e1 \u00feinginu og neyddist a\u00f0 lokum til a\u00f0 bi\u00f0jast afs\u00f6kunar. Styrkirnir voru 25% h\u00e6rri en sj\u00fakrah\u00fasin \u00e1ttu a\u00f0 f\u00e1. Einsog v\u00e6nta m\u00e1tti hefur Espersen \u00e6t\u00ed\u00f0 haldi\u00f0 fram a\u00f0 h\u00fan hafi ekki vita\u00f0 betur og hafi veitt allar \u00fe\u00e6r uppl\u00fdsingar sem h\u00fan bj\u00f3 yfir \u00e1 \u00feeim t\u00edma. Hvort \u00fea\u00f0 er r\u00e9tt e\u00f0a ekki \u00fearf a\u00f0 liggja milli hluta, en hitt er lj\u00f3st a\u00f0 \u00fea\u00f0 var\u00f0 ansi heitt undir henni s\u00e6ti\u00f0 \u00ed kj\u00f6lfari\u00f0, enda var\u00f0ar \u00fea\u00f0 a\u00f0 lj\u00faga a\u00f0 \u00feinginu vi\u00f0 l\u00f6g um r\u00e1\u00f0herra\u00e1byrg\u00f0 og sem vi\u00f0skiptar\u00e1\u00f0herra heyr\u00f0i einkageirinn undir hana \u00e1 \u00feeim t\u00edma (\u00f3l\u00edkt \u00cdslandi hafa r\u00e1\u00f0herrar \u00e1\u00f0ur veri\u00f0 s\u00f3ttir til saka \u00ed Danm\u00f6rku). Fors\u00e6tisr\u00e1\u00f0herra Danmerkur og forma\u00f0ur \u00e1\u00f0urnefnds Venstre, Lars L\u00f8kke Rasmussen, gaf \u00fat yfirl\u00fdsingu \u00ed kj\u00f6lfar afs\u00f6kunarbei\u00f0narinnar \u00feess efnis a\u00f0 afs\u00f6kunin sem sl\u00edk hlyti a\u00f0 duga.<\/p>\n<p> M\u00e1li\u00f0 er \u00fe\u00f3 ekki n\u00e1ndar n\u00e6rri svo einfalt. Lars L\u00f8kke var nefnilega sj\u00e1lfur heilbrig\u00f0isr\u00e1\u00f0herra \u00e1rin 2001 til 2007 \u00ed stj\u00f3rn Anders Fogh Rasmussen, og vi\u00f0skiptar\u00e1\u00f0herra \u00ed stj\u00f3rn Anders Fogh uns hann t\u00f3k vi\u00f0 af honum sem fors\u00e6tisr\u00e1\u00f0herra \u00e1 s\u00ed\u00f0asta \u00e1ri, eftir a\u00f0 Anders Fogh hlotna\u00f0ist sta\u00f0a a\u00f0alritara NATO. \u00c1 starfst\u00edma hans sem heilbrig\u00f0isr\u00e1\u00f0herra kynnti hann \u00e1\u00e6tlun sem f\u00f3lst \u00ed a\u00f0 \u201epeningarnir fylgi \u00fe\u00e9r\u201c. \u00dea\u00f0 \u00fe\u00fd\u00f0ir a\u00f0 almenningur geti n\u00fdtt s\u00e9r \u00fej\u00f3nustu einkasj\u00fakrah\u00fasa og r\u00edki\u00f0 grei\u00f0i me\u00f0 sem nemi \u00fev\u00ed sem vi\u00f0komandi hafi greitt \u00ed skatta \u2013 einskonar heilbrig\u00f0isl\u00edfeyriskerfi, sems\u00e9. Kerfi\u00f0 var einkum til \u00feess hugsa\u00f0 a\u00f0 \u00feeir sem \u00fea\u00f0 vildu g\u00e6tu losna\u00f0 vi\u00f0 bi\u00f0ra\u00f0ir \u00ed almenna kerfinu. \u00deegar Lars L\u00f8kke svo t\u00f3k vi\u00f0 sem vi\u00f0skiptar\u00e1\u00f0herra n\u00e1mu \u00feessar grei\u00f0slur til einkasj\u00fakrah\u00fasa, skyndilega, fyrir hans tilstilli, einmitt 25% meir en \u00feeim bar fr\u00e1 r\u00edkinu, og \u00fea\u00f0an sprettur gagnr\u00fdnin \u00e1 eftirmann hans \u00ed emb\u00e6tti. Hva\u00f0 hann f\u00e9kk \u00ed sta\u00f0inn skal \u00f3sagt l\u00e1ti\u00f0 en \u00fea\u00f0 skal engan undra a\u00f0 honum \u00feyki afs\u00f6kunarbei\u00f0ni Lene Espersen hlj\u00f3ta a\u00f0 duga. Vika er langur t\u00edmi \u00ed p\u00f3lit\u00edk a\u00f0 s\u00f6nnu.<\/p>\n<p> En sagan er ekki b\u00fain. \u00cd vi\u00f0leitni til a\u00f0 sn\u00faa vi\u00f0 neikv\u00e6\u00f0ri umfj\u00f6llun um \u00feetta m\u00e1l og \u00f6nnur, s\u00e9r \u00ed lagi \u00fe\u00f3 samb\u00e6rilegar lygar og haldi\u00f0 var a\u00f0 \u00cdslendingum um r\u00e9ttm\u00e6ti \u00cdraksstr\u00ed\u00f0sins sem er miki\u00f0 hitam\u00e1l \u00ed Danm\u00f6rku um \u00feessar mundir, hafa spunameistarar r\u00edkisstj\u00f3rnarflokkanna svifist einskis vi\u00f0 a\u00f0 leka \u00fat \u00f3\u00fe\u00e6gilegum uppl\u00fdsingum um stj\u00f3rnarandst\u00f6\u00f0una. \u00dev\u00ed var til a\u00f0 mynda leki\u00f0 til Berlingske Tidende a\u00f0 Helle Thorning-Schmidt (Socialdemokraterne) og ma\u00f0ur hennar hef\u00f0u sviki\u00f0 millj\u00f3nir undan skatti. Eftir ranns\u00f3kn skattayfirvalda \u00ed kj\u00f6lfari\u00f0 kom \u00e1 hinn b\u00f3ginn \u00ed lj\u00f3s a\u00f0 skatturinn skulda\u00f0i \u00feeim hj\u00f3num peninga en ekki \u00f6fugt. \u00dev\u00ed var ennfremur leki\u00f0 \u00ed Jyllandsposten a\u00f0 Ole Sohn (Sosialistisk Folkeparti) hef\u00f0i \u00feegi\u00f0 5.2 millj\u00f3nir danskra kr\u00f3na \u00ed styrk fr\u00e1 Sov\u00e9tr\u00edkjunum me\u00f0an hann var forma\u00f0ur danska Komm\u00fanistaflokksins. \u00de\u00e6r \u00e1sakanir ver\u00f0ur \u00fe\u00f3 aldrei h\u00e6gt a\u00f0 sta\u00f0festa, enda byggjast \u00fe\u00e6r allar \u00e1 einu br\u00e9fi sem fannst \u00ed Austur\u00fe\u00fdsku skjalageymslunum og Ole Sohn rita\u00f0i Erich Honecker sex d\u00f6gum eftir fall Berl\u00ednarm\u00farsins, \u00fear sem Sohn lofar austur\u00fe\u00fdsku komm\u00fanistastj\u00f3rnina.<\/p>\n<p> \u00c1 me\u00f0an heldur spillingin \u00e1fram a\u00f0 flj\u00f3ta upp \u00e1 yfirbor\u00f0i\u00f0. Jacob Winther, spunameistari fyrrum varnarm\u00e1lar\u00e1\u00f0herrans S\u00f8ren Gade, hefur veri\u00f0 \u00e1k\u00e6r\u00f0ur fyrir a\u00f0 brj\u00f3ta l\u00f6gbundna \u00feagnarskyldu s\u00edna og str\u00ed\u00f0a gegn \u00fej\u00f3\u00f0ar\u00f6ryggi me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 leka \u00fat uppl\u00fdsingum um leynilega sendif\u00f6r danskra f\u00f3tg\u00f6nguli\u00f0a \u00ed \u00cdrak 2007. Claus Hjort Frederiksen, fyrrum framkv\u00e6mdastj\u00f3ri Venstre og n\u00e1nasti r\u00e1\u00f0gjafi Anders Fogh Rasmussen \u2013 me\u00f0 \u00f6\u00f0rum or\u00f0um spindoktor \u2013 hefur svo or\u00f0i\u00f0 uppv\u00eds a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 sem atvinnum\u00e1lar\u00e1\u00f0herra snemma \u00e1 \u00feessum \u00e1ratug laug hann a\u00f0 \u00feinginu og gekk gegn \u00f6llum kjarar\u00e9ttindum erlendra verkamanna. Af n\u00f3gu er a\u00f0 taka af hans ferli og m\u00e1 \u00fear nefna leynilegt og \u00fear af lei\u00f0andi \u00f3l\u00f6glegt afn\u00e1m \u00f6ryggissta\u00f0la fyrir erlenda verkamenn \u00ed h\u00e6ttulegum st\u00f6rfum, krafa um a\u00f0 sveitarf\u00e9l\u00f6gin framfylgdu hinni \u00f3l\u00f6glegu 300 t\u00edma reglu sem krefst \u00feess a\u00f0 par sem \u00feiggur framf\u00e6rslu skuli hafa samanlagt unni\u00f0 300 t\u00edma s\u00ed\u00f0ustu tv\u00f6 \u00e1r \u00e1 undan, m\u00fatur til greiningardeilda r\u00e1\u00f0gjafafyrirt\u00e6kja fyrir a\u00f0 gefa upp falsa\u00f0ar t\u00f6lur sem l\u00e9tu r\u00e1\u00f0uneyti\u00f0 l\u00edta betur \u00fat, og ey\u00f0ingu upplj\u00f3strandi s\u00f6nnunargagna um \u00f3l\u00f6glega starfsemi innan r\u00e1\u00f0uneytisins sj\u00e1lfs.<\/p>\n<p>Vika er sannarlega langur t\u00edmi \u00ed p\u00f3lit\u00edk. Sama dag og ni\u00f0urst\u00f6\u00f0ur al\u00fej\u00f3\u00f0legrar k\u00f6nnunar um fj\u00f6lmi\u00f0lafrelsi voru kynntar, \u00fear sem fram kom a\u00f0 Danm\u00f6rku haf\u00f0i hraka\u00f0 allverulega fr\u00e1 \u00fev\u00ed \u00e1\u00f0ur, kom \u00ed lj\u00f3s a\u00f0 sj\u00f3nvarpsstj\u00f3ri TV2 haf\u00f0i banna\u00f0 birtingu vi\u00f0tals vi\u00f0 fors\u00e6tisr\u00e1\u00f0herrann, Lars L\u00f8kke Rasmussen, vegna \u00feess a\u00f0 \u00fea\u00f0 hef\u00f0i komi\u00f0 r\u00e1\u00f0herranum illa. Vi\u00f0tali\u00f0 mun hafa veri\u00f0 samb\u00e6rilegt vi\u00f0 \u00feekkt vi\u00f0tal sem G. P\u00e9tur Matth\u00edasson t\u00f3k vi\u00f0 Geir Haarde \u00ed Hruninu en var ekki birt nema s\u00ed\u00f0ar \u00e1 YouTube, a\u00f0 \u00fev\u00ed fr\u00e1brug\u00f0nu \u00fe\u00f3 a\u00f0 Lars L\u00f8kke var hamslaus af rei\u00f0i og \u00f6skra\u00f0i \u00e1 fr\u00e9ttamanninn \u00edtreka\u00f0 a\u00f0 hann v\u00e6ri f\u00edfl og f\u00e1bj\u00e1ni. \u00dea\u00f0 hefur enn ekki komi\u00f0 fram hvort sj\u00f3nvarpsstj\u00f3rinn var \u00fevinga\u00f0ur til \u00feessa, e\u00f0a hvort hann er sj\u00e1lfur bundinn hagsmunum vi\u00f0 r\u00e1\u00f0herrann.<\/p>\n<p>\u00c9g minntist \u00e1 kvikmynd h\u00e9r \u00ed upphafi, og hversu fjarri veruleikanum h\u00fan vir\u00f0ist vera \u00ed fyrstu. \u00de\u00f3 t\u00e6pir h\u00fan a\u00f0eins \u00e1 einu m\u00e1li, samb\u00e6rilegu vi\u00f0 hundru\u00f0i m\u00e1la sem raunverulega hafa komi\u00f0 upp og tvinnast \u00f6ll saman \u00ed einni st\u00f3rri spillingar- og fyrirlitningarh\u00edt sem fyllir hvern kr\u00f3k og kima danska \u00feingsins. H\u00e9r hefur \u00fe\u00f3 veri\u00f0 stikla\u00f0 \u00e1 ansi st\u00f3ru yfir agnarl\u00edti\u00f0 brot \u00feeirrar s\u00e1pu\u00f3peru sem l\u00edfi\u00f0 \u00ed Kristj\u00e1nsborg er, og \u00fea\u00f0 er ekki laust vi\u00f0 a\u00f0 manni \u00feyki Al\u00feingi h\u00e1lfger\u00f0 Gr\u00e6naborg vi\u00f0 hli\u00f0ina.<\/p>\n<p><i>Birtist fyrst \u00e1 <a href=\"http:\/\/www.smugan.is\/pistlar\/fastir-pennar\/arngrimur-vidalin\/nr\/4315\">Smugunni<\/a> 29. okt\u00f3ber.<\/i><\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Danska ver\u00f0launamyndin Kongekabale fr\u00e1 2004 fjallar um \u00e1t\u00f6k og undirferli \u00ed danska \u00feinginu, Kristj\u00e1nsborg. \u00cd upphafi myndar lendir forma\u00f0ur Mi\u00f0flokksins \u00ed b\u00edlslysi svo tv\u00eds\u00fdnt er um l\u00edf hans. S\u00ed\u00f0ar kemur \u00ed lj\u00f3s a\u00f0 uppl\u00fdsingum um l\u00ed\u00f0an formannsins hefur veri\u00f0 haldi\u00f0 fr\u00e1 fj\u00f6lmi\u00f0lum \u00e1 me\u00f0an plotta\u00f0 er innan flokksins um arftaka hans. Hinn \u00f3fyrirleitni Erik Dreier &hellip; <a href=\"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/2010\/11\/12\/kristjansborg-fra-framleidendum-melrose-place\/\" class=\"more-link\">Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa: <span class=\"screen-reader-text\">Kristj\u00e1nsborg, fr\u00e1 framlei\u00f0endum Melrose Place<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":3,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[9,21],"tags":[],"class_list":["post-3421","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-greinar","category-politik"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/3421","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/users\/3"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3421"}],"version-history":[{"count":3,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/3421\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":13804,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/3421\/revisions\/13804"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3421"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=3421"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=3421"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}