{"id":3493,"date":"2006-07-26T12:04:50","date_gmt":"2006-07-26T12:04:50","guid":{"rendered":"http:\/\/kaninka.net\/arngrimurv\/?p=3493"},"modified":"2019-01-01T13:35:53","modified_gmt":"2019-01-01T13:35:53","slug":"a%c3%b0-hafa-en-geta-ekki","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/2006\/07\/26\/a%c3%b0-hafa-en-geta-ekki\/","title":{"rendered":"A\u00f0 hafa, en geta ekki"},"content":{"rendered":"<p>N\u00fa eru s\u00ed\u00f0ustu forv\u00f6\u00f0 a\u00f0 sko\u00f0a landsv\u00e6\u00f0i\u00f0 sem enginn hefur komi\u00f0 til, raunverulegt draumaland, st\u00e6rsta sv\u00e6\u00f0i \u00f3snortinnar n\u00e1tt\u00faru sem eimir eftir af \u00ed Evr\u00f3pu. \u201eVi\u00f0 erum forr\u00e9ttindakynsl\u00f3\u00f0,\u201c sag\u00f0i \u00d3mar Ragnarsson, \u201evi\u00f0 ver\u00f0um fyrst til a\u00f0 sj\u00e1 h\u00e1lendi\u00f0 \u00ed allri sinni d\u00fdr\u00f0, og sj\u00e1um jafnframt til \u00feess a\u00f0 enginn annar muni sj\u00e1 \u00fea\u00f0 aftur\u201c. Hva\u00f0 er svo sem h\u00e6gt a\u00f0 sj\u00e1 vi\u00f0 K\u00e1rahnj\u00faka? Kannski ekki miki\u00f0 n\u00fana utan drullugar leifar Dimmuglj\u00fafra og urmul vinnuv\u00e9la, en \u00fea\u00f0 sem fyrir handan er, \u00fear liggur ormur \u00e1 gulli. Eins og sj\u00e1 m\u00e1 af \u00feessum myndum. \u00dea\u00f0 er meira en bara hnj\u00fakurinn, \u00fea\u00f0 er heil ver\u00f6ld \u00f3numin, sem best skyldi haldast \u00f3numin; gri\u00f0asta\u00f0ur einstakrar n\u00e1tt\u00farufegur\u00f0ar og d\u00fdral\u00edfs \u00ed heiminum til \u00e1r\u00fe\u00fasunda; gri\u00f0asta\u00f0ur sem sj\u00e1lfum ver\u00f0a engin gri\u00f0 gefin, og senn fer undir vatn.<\/p>\n<p>P\u00f3lit\u00edkin hefur firrt okkur svo a\u00f0 kjarni deilunnar hefur sn\u00faist um hagv\u00f6xt og hvort andm\u00e6lendur st\u00edflunnar hafi einu sinni komi\u00f0 \u00e1 fjalli\u00f0. Enginn spur\u00f0i \u00fe\u00e1 s\u00f6mu hvort \u00feeir hef\u00f0u siglt ni\u00f0ur Yangtze e\u00f0a Amazon; s\u00e9\u00f0 norska sk\u00f3glendi\u00f0 e\u00f0a komi\u00f0 a\u00f0 N\u00edlar\u00f3sum. Alveg \u00e1rei\u00f0anlega hl\u00fdtur a\u00f0 mega r\u00fasta \u00feessu \u00f6llu. Raunar er veri\u00f0 a\u00f0 r\u00fasta \u00feessu flestu, ef ekki er \u00feegar b\u00fai\u00f0 a\u00f0 \u00fev\u00ed. Sk\u00f3garnir sleppa. Hvernig \u00e6tli hagv\u00f6xtur s\u00e9 \u00ed Noregi?<\/p>\n<p>Ef f\u00f3rna m\u00e1 hlutum \u00f3verulegs fj\u00e1rhagslegs gildis til a\u00f0 sitja fimm m\u00edn\u00fatum lengur \u00ed s\u00f3linni, hl\u00fdtur a\u00f0 vakna s\u00fa spurning hversu langt vi\u00f0 viljum ganga. Ef \u00fea\u00f0 skiptir \u00fe\u00e1 nokkru hva\u00f0 vi\u00f0 viljum, hlutirnir vir\u00f0ast ganga \u00e1g\u00e6tlega af sj\u00e1lfu s\u00e9r. Anna\u00f0 sem skipt g\u00e6ti m\u00e1li eru allar \u00fe\u00e6r virkjanir og \u00e1lver sem enn sitja \u00e1 vinnubor\u00f0inu, n\u00fa \u00feegar Frams\u00f3knarflokkurinn \u00feykist hafa sn\u00fai\u00f0 baki vi\u00f0 st\u00f3ri\u00f0justefnunni. Fyrst hugvit og n\u00fdsk\u00f6pun \u00feykir skyndilega eftirs\u00f3knarver\u00f0, \u00fe\u00e1 v\u00e6ri kannski r\u00e1\u00f0 a\u00f0 hreinsa bor\u00f0i\u00f0 og hugsa hlutina upp \u00e1 n\u00fdtt. \u00dea\u00f0 er ef nokkur innist\u00e6\u00f0a v\u00e6ri fyrir hinni meintu stefnubreytingu Frams\u00f3knarflokksins. \u00dea\u00f0 er ef nokku\u00f0 anna\u00f0 en fj\u00e1rhagsleg r\u00f6k skiptu m\u00e1li \u00ed \u00feessari umr\u00e6\u00f0u.<\/p>\n<p>Hvernig sem \u00e1 \u00fea\u00f0 er liti\u00f0 flykkist n\u00fa f\u00f3lk austur \u00e1 land til a\u00f0 sj\u00e1 \u00fea\u00f0 sem \u00fea\u00f0 getur \u00e1\u00f0ur \u00fea\u00f0 er or\u00f0i\u00f0 of seint. \u00deau bera n\u00e1tt\u00farud\u00fdr\u00f0inni fagurt vitni, pr\u00edsa og d\u00e1sama upplifunina af \u00fev\u00ed a\u00f0 hafa komi\u00f0 \u201etil K\u00e1rahnj\u00faka\u201c. Me\u00f0an \u00fea\u00f0 gat. N\u00fa fer f\u00f3lk \u00feanga\u00f0 \u00ed heilu r\u00fatuf\u00f6rmunum, vegna \u00feess \u00fea\u00f0 hefur a\u00f0eins alla \u00e6vina til a\u00f0 sj\u00e1 eftir \u00fev\u00ed a\u00f0 hafa ekki fari\u00f0. Ef \u00fea\u00f0 er \u00fe\u00e1 \u00fea\u00f0 sem raunverulega skiptir m\u00e1li. A\u00f0 hafa fari\u00f0, en geta \u00fea\u00f0 aldrei aftur.<\/p>\n<p>Hefur \u00fe\u00fa komi\u00f0 til K\u00e1rahnj\u00faka? <\/p>\n<p><i>Birtist \u00e1 <a href=\"http:\/\/www.murinn.is\/eldra_b.asp?nr=2040&#038;gerd=Frettir&#038;arg=7\">M\u00farnum<\/a> 26. j\u00fal\u00ed 2006.<\/i><\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>N\u00fa eru s\u00ed\u00f0ustu forv\u00f6\u00f0 a\u00f0 sko\u00f0a landsv\u00e6\u00f0i\u00f0 sem enginn hefur komi\u00f0 til, raunverulegt draumaland, st\u00e6rsta sv\u00e6\u00f0i \u00f3snortinnar n\u00e1tt\u00faru sem eimir eftir af \u00ed Evr\u00f3pu. \u201eVi\u00f0 erum forr\u00e9ttindakynsl\u00f3\u00f0,\u201c sag\u00f0i \u00d3mar Ragnarsson, \u201evi\u00f0 ver\u00f0um fyrst til a\u00f0 sj\u00e1 h\u00e1lendi\u00f0 \u00ed allri sinni d\u00fdr\u00f0, og sj\u00e1um jafnframt til \u00feess a\u00f0 enginn annar muni sj\u00e1 \u00fea\u00f0 aftur\u201c. Hva\u00f0 er &hellip; <a href=\"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/2006\/07\/26\/a%c3%b0-hafa-en-geta-ekki\/\" class=\"more-link\">Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa: <span class=\"screen-reader-text\">A\u00f0 hafa, en geta ekki<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":3,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[9],"tags":[],"class_list":["post-3493","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-greinar"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/3493","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/users\/3"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3493"}],"version-history":[{"count":3,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/3493\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":13049,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/3493\/revisions\/13049"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3493"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=3493"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=3493"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}