{"id":3530,"date":"2011-02-22T12:36:37","date_gmt":"2011-02-22T12:36:37","guid":{"rendered":"http:\/\/kaninka.net\/arngrimurv\/?p=3530"},"modified":"2019-01-01T13:37:03","modified_gmt":"2019-01-01T13:37:03","slug":"t%c3%a6kif%c3%a6ri-til-breytinga","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/2011\/02\/22\/t%c3%a6kif%c3%a6ri-til-breytinga\/","title":{"rendered":"T\u00e6kif\u00e6ri til breytinga?"},"content":{"rendered":"<p>N\u00fa \u00feykir \u00fdmsum sem blikur s\u00e9u \u00e1 lofti \u00ed d\u00f6nskum stj\u00f3rnm\u00e1lum og a\u00f0 s\u00e1 m\u00f6guleiki s\u00e9 n\u00fa fyrir hendi a\u00f0 vinstristj\u00f3rn ver\u00f0i myndu\u00f0 a\u00f0 kosningum loknum. B\u00faist er vi\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 Lars L\u00f8kke Rasmussen, fors\u00e6tisr\u00e1\u00f0herra, bo\u00f0i senn til kosninga og a\u00f0 \u00fe\u00e6r ver\u00f0i haldnar \u00ed vor fremur en s\u00ed\u00f0ar \u00e1 \u00e1rinu, sem jafnframt v\u00e6ri takt\u00edskt besta \u00fatkoman fyrir laska\u00f0a r\u00edkisstj\u00f3rnina sem vands\u00e9\u00f0 er hvort lifa\u00f0 g\u00e6ti fram \u00e1 haust.<\/p>\n<p>Einsog \u00e9g hef geti\u00f0 \u00ed fyrri pistlum m\u00ednum samanstendur r\u00edkisstj\u00f3rnin af Venstre og Konservative Folkeparti, me\u00f0 Dansk Folkeparti sem h\u00e6kju \u2013 sem aftur hafa \u00f3spart n\u00fdtt s\u00e9r oddas\u00e6ti sitt til a\u00f0 <a href=\"http:\/\/www.smugan.is\/pistlar\/fastir-pennar\/arngrimur-vidalin\/nr\/4800\">tro\u00f0a \u00fdmsum umdeildum m\u00e1lum gegnum \u00feingi\u00f0<\/a>. Eftirma\u00f0ur Lene Espersen \u00ed formannss\u00e6ti Konservative, Lars Barfoed, l\u00fdsti hinsvegar n\u00fdveri\u00f0 yfir a\u00f0 flokkurinn myndi ekki undir nokkrum kringumst\u00e6\u00f0um starfa me\u00f0 DF a\u00f0 loknum kosningum. \u00cd sama streng t\u00f3k Lars L\u00f8kke Rasmussen, fors\u00e6tisr\u00e1\u00f0herra og forma\u00f0ur Venstre, og b\u00e6tti vi\u00f0 a\u00f0 hann v\u00e6ri \u00ed engum vafa um a\u00f0 stj\u00f3rnin st\u00e6\u00f0i eftir sem \u00e1\u00f0ur sterk eftir kosningar \u00e1n stu\u00f0nings DF.<\/p>\n<p>N\u00fa hefur L\u00f8kke hinga\u00f0 til ekki veri\u00f0 reyndur a\u00f0 mikilli athyglisg\u00e1fu, nema \u00feess \u00fe\u00e1 heldur a\u00f0 um innihaldslaust skrum s\u00e9 a\u00f0 r\u00e6\u00f0a. F\u00f3lk getur sj\u00e1lft gert upp vi\u00f0 sig hvor m\u00f6guleikinn er l\u00edklegri, en hitt er daglj\u00f3st a\u00f0 \u00feessi draumar\u00edkisstj\u00f3rn \u00feeirra nafna mun ekki l\u00edta dagsins lj\u00f3s einsog sta\u00f0an er or\u00f0in.<\/p>\n<p>\u00de\u00f3tt \u00e1rei\u00f0anlega megi rekja lengri a\u00f0draganda a\u00f0 tilvistarkreppu r\u00edkisstj\u00f3rnarinnar m\u00e6tti segja a\u00f0 vandr\u00e6\u00f0in hafi hafist \u00feegar fyrrum flokksforma\u00f0ur Konservative, Lene Espersen, neyddist til a\u00f0 bi\u00f0jast afs\u00f6kunar \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 hafa teki\u00f0 fj\u00f6lskyldufr\u00ed \u00e1 Mallorca framyfir fund me\u00f0 r\u00e1\u00f0herrum Bandar\u00edkjanna, Kanada, Gr\u00e6nlands og R\u00fasslands s\u00ed\u00f0astli\u00f0i\u00f0 sumar, \u00fear sem r\u00e6dd var framt\u00ed\u00f0, landhelgi og skipting \u00e1 \u00fev\u00ed hafsv\u00e6\u00f0i sem n\u00fa er a\u00f0 opnast \u00ed nor\u00f0urheimskauti \u2013 m\u00e1lefni sem skiptir Gr\u00e6nland og \u00fear me\u00f0 Danm\u00f6rku gr\u00ed\u00f0arlegu m\u00e1li, ekki s\u00edst vegna ol\u00eduhagsmuna.<\/p>\n<p>Ekki lei\u00f0 \u00e1 l\u00f6ngu \u00e1\u00f0ur en spj\u00f3tin beindust aftur a\u00f0 Espersen fyrir a\u00f0 hafa bl\u00e1kalt logi\u00f0 a\u00f0 \u00feinginu til a\u00f0 brei\u00f0a yfir gr\u00edmulausa spillingu forvera s\u00edns \u00ed emb\u00e6tti heilbrig\u00f0isr\u00e1\u00f0herra, Lars nokkurs L\u00f8kke, n\u00faverandi fors\u00e6tisr\u00e1\u00f0herra. L\u00f8kke, sem a\u00f0eins \u00f6rf\u00e1um m\u00e1nu\u00f0um \u00e1\u00f0ur haf\u00f0i vari\u00f0 Espersen gagnr\u00fdni, l\u00fdsti \u00fe\u00e1 yfir a\u00f0 s\u00e9r \u00fe\u00e6tti Espersen bera skyldu til a\u00f0 bi\u00f0ja \u00feingi\u00f0 afs\u00f6kunar \u2013 \u00fe\u00f3tt ekki v\u00e6ri \u00feetta sm\u00e1m\u00e1l n\u00fa afsagnars\u00f6k. \u00deegjandi og hlj\u00f3\u00f0alaust t\u00f3k h\u00fan upp hanskann fyrir L\u00f8kke, afsaka\u00f0i sig a\u00f0 endingu fyrir \u00feinginu og l\u00e9t gera sig a\u00f0 <a href=\"http:\/\/www.smugan.is\/pistlar\/fastir-pennar\/arngrimur-vidalin\/nr\/4315\">bl\u00f3rab\u00f6ggli \u00ed einu st\u00e6rsta spillingarm\u00e1li Danmerkur \u00e1 s\u00ed\u00f0asta \u00e1ratug<\/a>.  <\/p>\n<p>\u00derautag\u00f6ngu Lene Espersen var \u00fe\u00f3 ekki loki\u00f0. \u00cd desemberlok kalla\u00f0i L\u00f8kke hana \u00e1 fund \u00e1n samr\u00e1\u00f0s vi\u00f0 \u00feingflokkana \u00fear sem \u00feau s\u00e6ttust \u00e1 efnisatri\u00f0i frumvarps hans um afn\u00e1m eftirlauna og h\u00e6kkun l\u00edfeyrisaldurs. \u00deingflokkur Konservative var\u00f0 snarhoppandi brj\u00e1la\u00f0ur \u00fear sem frumvarpi\u00f0, sem \u00ed fyrsta lagi\u00f0 samr\u00fdmist ekki stefnu flokksins a\u00f0 \u00feeirra s\u00f6gn (um \u00fea\u00f0 m\u00e1 efast), var \u00ed \u00f6\u00f0ru lagi sam\u00feykkt \u00e1n samr\u00e1\u00f0s vi\u00f0 samstarfsflokkinn af formanni sem \u00ed \u00feri\u00f0ja lagi haf\u00f0i ekkert umbo\u00f0 fr\u00e1 s\u00ednu baklandi. Afsagnar hennar var krafist, og \u00fev\u00ed var\u00f0 h\u00fan vi\u00f0. \u00deannig t\u00f3kst L\u00f8kke a\u00f0 spila \u00e1 Espersen einsog h\u00f6rpu trekk \u00ed trekk \u00ed gl\u00e6silega fl\u00e9ttu\u00f0um spuna til a\u00f0 dreifa athyglinni fr\u00e1 eigin flokki yfir \u00e1 samstarfsflokkinn; me\u00f0an \u00f3f\u00e1 hneykslism\u00e1l hafa skeki\u00f0 Konservative undanfari\u00f0 \u00e1r \u00e6tlar Venstre a\u00f0 komast undan vetri me\u00f0 nokku\u00f0 hreinan skj\u00f6ld, jafnt\u00ed\u00f0is \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeirra umdeildustu m\u00e1l \u00e6tla a\u00f0 ver\u00f0a a\u00f0 veruleika. Str\u00ed\u00f0syfirl\u00fdsing verkal\u00fd\u00f0shreyfingarinnar \u00e1 hendur L\u00f8kke vegna eftirlaunafrumvarpsins vir\u00f0ist hafa ko\u00f0na\u00f0 ni\u00f0ur \u00ed f\u00e6\u00f0ingu, og \u00fea\u00f0 er von hans a\u00f0 s\u00fa gagnr\u00fdni sem hann ver\u00f0ur fyrir vegna \u00feess muni ver\u00f0a gleymd \u00feegar l\u00ed\u00f0ur a\u00f0 kosningum.<\/p>\n<p>N\u00fdr flokksforma\u00f0ur Konservative, Lars Barfoed, er aftur h\u00e6st\u00e1n\u00e6g\u00f0ursj\u00e1lfsagt me\u00f0 s\u00edna st\u00f6\u00f0u vi\u00f0 h\u00e1s\u00e6ti nafna s\u00edns \u2013 en hann \u00e1 eftir a\u00f0 vinna s\u00e9r inn traust samflokksmanna sinna sem margir hverjir eru \u00e6fir, svo bakland formannsins er eftir sem \u00e1\u00f0ur \u00f3lj\u00f3st. \u00deeirri atbur\u00f0ar\u00e1s sem n\u00fa hefur veri\u00f0 hrint \u00ed gang ver\u00f0ur nefnilega ekki au\u00f0veldlega beint inn \u00e1 beinni brautir. N\u00fdveri\u00f0 var\u00f0 \u00feingflokkur Konservativetil d\u00e6mis allt \u00ed einu einhuga um a\u00f0 andm\u00e6la har\u00f0neskju stigakerfisins sem <a href=\"http:\/\/www.smugan.is\/pistlar\/fastir-pennar\/arngrimur-vidalin\/nr\/4686\">Venstre leiddi \u00ed l\u00f6g<\/a>  og vill n\u00fa breyta \u00fev\u00ed svo \u00fe\u00fasundum ver\u00f0i ekki v\u00edsa\u00f0 \u00far landi a\u00f0 \u00f3sekju, \u00e1 \u201e\u00f3manneskjulegum grundvelli\u201c einsog \u00fea\u00f0 var or\u00f0a\u00f0. Venstre undra sig \u00e1 gagnr\u00fdninni og har\u00f0neita a\u00f0 breyta kerfinu, jafnvel \u00fe\u00f3tt \u00fea\u00f0 \u00fe\u00fd\u00f0i a\u00f0 f\u00f3lki sem b\u00fai\u00f0 hefur \u00ed Danm\u00f6rku \u00ed \u00e1rara\u00f0ir ver\u00f0i n\u00fa gert a\u00f0 yfirgefa landi\u00f0 hi\u00f0 snarasta.<\/p>\n<p>Me\u00f0an lj\u00f3st er a\u00f0 samstarfsflokkur Venstre sty\u00f0ur n\u00fa ekki tv\u00f6 umfangsmestu m\u00e1lefni r\u00edkisstj\u00f3rnarinnar \u00e1 \u00feessum vetri a\u00f0 \u00f3breyttu, hugsa vinstriflokkarnir s\u00e9r gott til gl\u00f3\u00f0arinnar. Sosialistisk Folkeparti og Socialdemokraterne eru \u00feegar farin a\u00f0 gera me\u00f0 s\u00e9r m\u00e1lefnaskr\u00e1 og Enhedslisten fylgir \u00feeim eftir me\u00f0 nau\u00f0synlegu a\u00f0haldi. \u00c1 femin\u00edskum grundvelli hyggjast SF og S til a\u00f0 mynda leggja bann vi\u00f0 v\u00e6ndi og nektardansst\u00f6\u00f0um, einnig \u00fear sem \u00feeim \u00feykir s\u00fdnt a\u00f0 n\u00faverandi l\u00f6ggj\u00f6f s\u00e9 \u00f6ll \u00e1 kostna\u00f0 kvenna \u00ed ney\u00f0 og geri \u00fear me\u00f0 ekkert til a\u00f0 draga \u00far vandam\u00e1linu. \u00de\u00e1 hafa flokkarnir kynnt till\u00f6gur s\u00ednar \u00ed skattam\u00e1lum, sem Enhedslisten krefst breytinga \u00e1 ef koma eigi til stu\u00f0nings \u00feeirra \u00e1 \u00feingi. \u00de\u00e1 hugsar hinn kaldh\u00e6\u00f0nislega nefndi h\u00e6gri-vi\u00f0-mi\u00f0juflokkur Radikale Venstre s\u00e9r gott til gl\u00f3\u00f0arinnar einnig og gerir n\u00fa hosur s\u00ednar gr\u00e6nar fyrir S\u00f3s\u00edaldem\u00f3kr\u00f6tum s\u00e9rstaklega.<\/p>\n<p>Ef vi\u00f0 treystum stj\u00f3rnm\u00e1lam\u00f6nnum fyrir eigin afst\u00f6\u00f0u m\u00e6tti draga upp myndina af p\u00f3lit\u00edska landslaginu \u00feannig, einsog sakir standa, a\u00f0 a\u00f0eins einn m\u00f6guleiki s\u00e9 \u00e1 h\u00e6gristj\u00f3rn eftir kosningar: draumastj\u00f3rn Larsanna tveggja, Konservative Folkeparti og Venstre. S\u00fa stj\u00f3rn ver\u00f0ur \u00fe\u00f3 \u00e1rei\u00f0anlega aldrei myndu\u00f0 nema me\u00f0 stu\u00f0ningi e\u00f0a a\u00f0ild Dansk Folkeparti, e\u00f0a flokka \u00e1 bor\u00f0 vi\u00f0 Radikale Venstre sem g\u00e6tu \u00ed anda sl\u00edkra frams\u00f3knarflokka vel sveiflast langt inn \u00e1 h\u00e6gri v\u00e6nginn. M\u00f6guleikar \u00e1 stj\u00f3rnarmyndun \u00e1 vinstri v\u00e6ngnum eru fleiri: Socialdemokraterne og Socialistisk Folkeparti, me\u00f0 stu\u00f0ningi e\u00f0a a\u00f0ild Enhedslisten annarsvegar, e\u00f0a Radikale Venstre hinsvegar \u2013 \u00fear sem fyrrnefndi neitar a\u00f0 starfa me\u00f0 s\u00ed\u00f0arnefnda. \u00de\u00e1 neita allir vinstriflokkarnir s\u00f6mulei\u00f0is a\u00f0 starfa me\u00f0 DF. Auk \u00feessa benda sumir \u00e1 hina \u00fdmsu sm\u00e1flokka sem m\u00f6gulegar h\u00e6kjur, en \u00fea\u00f0 held \u00e9g a\u00f0 f\u00e1um muni l\u00edtast s\u00e1 kostur vel a\u00f0 mynda veikbur\u00f0a fj\u00f6lflokkastj\u00f3rn.<\/p>\n<p>\u00de\u00f3tt blikur s\u00e9u n\u00fa \u00e1 lofti og vel megi hugsa s\u00e9r a\u00f0 samstarf n\u00e1ist \u00e1 vinstri v\u00e6ngnum eru \u00fe\u00f3 enn margir sem hrista hausinn yfir bjarts\u00fdninni. Hafi n\u00faverandi stj\u00f3rnarflokkar \u00fe\u00e1 m\u00f6guleika eina a\u00f0 gefa eftir e\u00f0a halda v\u00f6ldum me\u00f0 hj\u00e1lp nasistanna \u00ed Dansk Folkeparti, \u00fe\u00e1 muni \u00feeir a\u00f0 sj\u00e1lfs\u00f6g\u00f0u sv\u00edkja lofor\u00f0i\u00f0 og hoppa \u00ed s\u00e6ng me\u00f0 nasistunum. \u00dea\u00f0 kann \u00fev\u00ed sitthva\u00f0 a\u00f0 vera til \u00ed \u00feeim or\u00f0um Piu Kj\u00e6rsgaard, formanni DF, \u00feegar h\u00fan a\u00f0spur\u00f0 hleypti \u00ed br\u00fdn og svara\u00f0i \u00fev\u00ed til a\u00f0 \u00fea\u00f0 v\u00e6ri ekki undir stj\u00f3rnarflokkunum komi\u00f0 hvort DF t\u00e6ki \u00fe\u00e1tt \u00ed r\u00edkisstj\u00f3rn e\u00f0a ekki \u2013 \u00feanga\u00f0 f\u00e6ru \u00feau n\u00fa bara samt, hvort sem samstarfsflokkunum litist \u00fea\u00f0 betur e\u00f0a verr!<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 s\u00fdnist m\u00e9r \u00ed \u00f6llu falli munu ver\u00f0a tilfelli\u00f0 ef h\u00e9r ver\u00f0ur \u00e1fram h\u00e6gristj\u00f3rn vi\u00f0 l\u00fd\u00f0i a\u00f0 v\u00f6ld Piu Kj\u00e6rsgaard muni f\u00e6rast \u00ed aukana, svo \u00e1byrg\u00f0 kj\u00f3senda er s\u00edst minni n\u00fa \u00e1 \u00feessum t\u00edmam\u00f3tum en \u00e1\u00f0ur. St\u00e6rsti m\u00f6guleikinn \u00e1 vinstriv\u00e6ngnum kann svo aftur a\u00f0 ver\u00f0a \u00feriggja flokka stj\u00f3rn S\u00f3s\u00edaldem\u00f3krata, SF og anna\u00f0hvort Radikale Venstre e\u00f0a Enhedslisten. Enn er \u00fe\u00f3 fullsnemmt a\u00f0 sp\u00e1 fyrir um framvindu m\u00e1la \u00fear sem hi\u00f0 p\u00f3lit\u00edska landslag er s\u00edbreytilegt milli vikna og fylgi\u00f0 rokkar milli stj\u00f3rnarflokkanna og stj\u00f3rnarandst\u00f6\u00f0u. Miklar vonir eru bundnar innan Konservative vi\u00f0 n\u00fdjan flokksformann og standa \u00fe\u00e6r helst til a\u00f0 hann n\u00e1i a\u00f0 r\u00edfa upp fylgi\u00f0 eftir stormasamt kj\u00f6rt\u00edmabil og leiti aftur \u00ed g\u00f6mlu gildi flokksins \u2013 burt fr\u00e1 \u00feeirri hugsj\u00f3nas\u00f6lu sem fari\u00f0 hefur fram undanfarin \u00e1r. Hann, \u00e1samt L\u00f8kke, \u00e1 \u00fe\u00f3 vi\u00f0 ramman reip a\u00f0 draga \u00fear sem b\u00e1\u00f0ir t\u00f3ku vi\u00f0 emb\u00e6tti \u00e1 mi\u00f0ju kj\u00f6rt\u00edmabili, og hefur hvorugur \u00fev\u00ed nokkurt umbo\u00f0 kj\u00f3senda flokkanna til forystu innan r\u00edkisstj\u00f3rnarinnar.<\/p>\n<p>N\u00fa f\u00e1 kj\u00f3sendur \u00e1 hinn b\u00f3ginn loksins t\u00e6kif\u00e6ri til a\u00f0 lei\u00f0r\u00e9tta \u00feann \u00f3skapna\u00f0 n\u00faverandi r\u00edkisstj\u00f3rnar sem \u00e1\u00f0ur var danska velfer\u00f0arkerfi\u00f0. Enn getur brug\u00f0i\u00f0 til beggja vona, en enda \u00fe\u00f3tt erfitt s\u00e9 a\u00f0 segja til um hvernig fer a\u00f0 endingu er \u00fe\u00f3 lj\u00f3st a\u00f0 kosningarnar \u00ed vor ver\u00f0a me\u00f0 \u00e1hugaver\u00f0asta m\u00f3ti, og a\u00f0 fr\u00e9ttaritari Smugunnar \u00ed Danm\u00f6rku ver\u00f0ur a\u00f0 sj\u00e1lfs\u00f6g\u00f0u me\u00f0 puttann \u00e1 p\u00falsinum.<\/p>\n<p><i>Birtist fyrst \u00e1 <a href=\"http:\/\/www.smugan.is\/pistlar\/fastir-pennar\/arngrimur-vidalin\/nr\/5204\">Smugunni<\/a> \u00feann 17. febr\u00faar 2011.<\/i><\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>N\u00fa \u00feykir \u00fdmsum sem blikur s\u00e9u \u00e1 lofti \u00ed d\u00f6nskum stj\u00f3rnm\u00e1lum og a\u00f0 s\u00e1 m\u00f6guleiki s\u00e9 n\u00fa fyrir hendi a\u00f0 vinstristj\u00f3rn ver\u00f0i myndu\u00f0 a\u00f0 kosningum loknum. B\u00faist er vi\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 Lars L\u00f8kke Rasmussen, fors\u00e6tisr\u00e1\u00f0herra, bo\u00f0i senn til kosninga og a\u00f0 \u00fe\u00e6r ver\u00f0i haldnar \u00ed vor fremur en s\u00ed\u00f0ar \u00e1 \u00e1rinu, sem jafnframt v\u00e6ri takt\u00edskt &hellip; <a href=\"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/2011\/02\/22\/t%c3%a6kif%c3%a6ri-til-breytinga\/\" class=\"more-link\">Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa: <span class=\"screen-reader-text\">T\u00e6kif\u00e6ri til breytinga?<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":3,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[33,9,21],"tags":[],"class_list":["post-3530","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-feminismi","category-greinar","category-politik"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/3530","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/users\/3"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3530"}],"version-history":[{"count":3,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/3530\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":13821,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/3530\/revisions\/13821"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3530"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=3530"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=3530"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}