{"id":3542,"date":"2011-02-28T17:47:30","date_gmt":"2011-02-28T17:47:30","guid":{"rendered":"http:\/\/kaninka.net\/arngrimurv\/?p=3542"},"modified":"2019-01-01T13:37:04","modified_gmt":"2019-01-01T13:37:04","slug":"endalok-kristjaniu-i-nuverandi-mynd","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/2011\/02\/28\/endalok-kristjaniu-i-nuverandi-mynd\/","title":{"rendered":"Endalok Kristjan\u00edu \u00ed n\u00faverandi mynd"},"content":{"rendered":"<p><strong>Virkisveggurinn<\/strong><br \/>\n<a href=\"http:\/\/slimjimy.klaki.net\/images\/christiania.jpg\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" src=\"http:\/\/slimjimy.klaki.net\/images\/christiania.jpg\" width=\"220\" height=\"160\" alt=\"\" align=\"left\" border=\"0\" hspace=\"4\" vspace=\"4\"\/><\/a>\u00c1 \u00e1runum 1682 til 1692, eftir ums\u00e1tur Sv\u00eda um Kaupmannah\u00f6fn \u00feann 11. febr\u00faar \u00e1ri\u00f0 1659, var r\u00e1\u00f0ist \u00ed ger\u00f0 virkisveggs vi\u00f0 b\u00e6inn Kristj\u00e1nsh\u00f6fn, til a\u00f0 tengja vi\u00f0 virkisveggi Kaupmannahafnar og tryggja varnir borgarinnar. Virkisveggurinn st\u00f3\u00f0 allt umhverfis g\u00f6mlu Kaupmannah\u00f6fn fram \u00e1 19. \u00f6ld, \u00feegar st\u00f3rir hlutar hans voru rifnir, a\u00f0 undanskildum \u00feeim hluta sem enn stendur \u00ed Kristj\u00e1nsh\u00f6fn. \u00cd s\u00ed\u00f0ari heimsstyrj\u00f6ld reisti st\u00f3rskotali\u00f0 danska hersins herb\u00fa\u00f0ir innan virkisveggjanna. Eftir str\u00ed\u00f0i\u00f0 ur\u00f0u hinsvegar l\u00edtil not fyrir b\u00fa\u00f0irnar, og notkun \u00feeirra f\u00f3r minnkandi uns \u00e1 endanum \u00fe\u00e6r voru alveg yfirgefnar \u00e1ri\u00f0 1971.<\/p>\n<p>Samt\u00ed\u00f0is skorti \u00e1 h\u00fasn\u00e6\u00f0i \u00e1 vi\u00f0r\u00e1\u00f0anlegu ver\u00f0i voru m\u00f6rg h\u00fasanna \u00fe\u00e1 \u00feegar or\u00f0in a\u00f0 athvarfi heimilislausra. \u00deann 4. september sama \u00e1r brutust nokkrir \u00edb\u00faar Kristj\u00e1nshafnar inn \u00ed b\u00fa\u00f0irnar til a\u00f0 n\u00fdta sv\u00e6\u00f0i\u00f0 sem leiksv\u00e6\u00f0i fyrir b\u00f6rnin s\u00edn. \u00deetta var upphafi\u00f0 a\u00f0 byltingu efnaminni \u00edb\u00faa Kaupmannahafnar gegn r\u00edki og borg. \u00deann 26. september 1971 birtist loks yfirl\u00fdsing \u00ed Hovedbladet \u00feess efnis a\u00f0 \u00edb\u00faarnir hef\u00f0u teki\u00f0 yfir herb\u00fa\u00f0irnar og \u00fe\u00e6r yr\u00f0u \u00fear eftir sj\u00e1lfb\u00e6rt fr\u00edr\u00edki, me\u00f0 samhyg\u00f0 og sam\u00e1byrg\u00f0 a\u00f0 lei\u00f0arlj\u00f3si. Umr\u00e6ddur virkisveggur afmarkar n\u00fa su\u00f0austurhli\u00f0 fr\u00edr\u00edkisins Kristjan\u00edu fr\u00e1 eyjunni Amager. Nor\u00f0vesturhli\u00f0in er m\u00f6rku\u00f0 af me\u00f0 einf\u00f6ldu skilti. \u00c1 \u00fev\u00ed stendur einfaldlega \u201eChristiania\u201c \u00e1 \u00feeirri hli\u00f0 sem sn\u00fdr a\u00f0 g\u00f6tunni. \u00c1 hinni hli\u00f0inni stendur: \u201eYou are now entering the EU\u201c.<\/p>\n<p><strong>Vandam\u00e1l Kristjan\u00edu<\/strong><br \/>\nS\u00ed\u00f0an eru li\u00f0in t\u00e6p 40 \u00e1r. Vi\u00f0 \u00feekkjum flest framhaldi\u00f0: tilraunir borgaryfirvalda til a\u00f0 r\u00edfa \u00fe\u00f6kin ofan af \u00edb\u00faum fr\u00edr\u00edkisins, rass\u00edur l\u00f6greglunnar \u00ed tilraun til a\u00f0 sporna vi\u00f0 eiturlyfjas\u00f6lu og \u2013framlei\u00f0slu, tilraunir til a\u00f0 fjarl\u00e6gja \u00edb\u00faana me\u00f0 valdi. Umr\u00e6\u00f0unni hefur ekki linnt s\u00ed\u00f0astli\u00f0in 40 \u00e1r, \u00fe\u00f3tt margir \u00cdslendingar sem ekki hafa komi\u00f0 til Kristjan\u00edu \u00feekki hana kannski helst \u00far d\u00f6nskut\u00edmum e\u00f0a \u00far kvikmynd Kims Larsen, Midt om natten. Raunveruleikinn hefur heldur ekki \u00e1tt s\u00e9r st\u00f3ra m\u00e1lsvara \u00ed \u00feessari umr\u00e6\u00f0u allri. Einsog annarssta\u00f0ar beinist kastlj\u00f3si\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0eins a\u00f0 fr\u00edr\u00edkinu \u00feegar \u00fear gerist nokku\u00f0 sem teljast m\u00e6tti fr\u00e9ttn\u00e6mt.<\/p>\n<p>Af n\u00fdli\u00f0num atbur\u00f0um sem vaki\u00f0 hafa \u00e1huga fj\u00f6lmi\u00f0la og s\u00f6mulei\u00f0is hafa kynt undir b\u00e1li umr\u00e6\u00f0unnar m\u00e6tti helst nefna skot\u00e1r\u00e1s sem \u00e1tti s\u00e9r sta\u00f0 \u00ed Kristjan\u00edu \u00e1ri\u00f0 2005 vegna deilna um yfirr\u00e1\u00f0 \u00e1 eiturlyfjamarka\u00f0i Kaupmannahafnar. Einn l\u00e9st og \u00fer\u00edr s\u00e6r\u00f0ust. Orsakirnar eru \u00ed senn einfaldar og fl\u00f3knar. \u00dea\u00f0 gleymist oft a\u00f0 Kristjan\u00eda er ekki fr\u00edr\u00edki hasshausa heldur framfylgir r\u00edkisr\u00e1\u00f0 hennar eigin l\u00f6gum sem allir \u00edb\u00faar fr\u00edr\u00edkisins \u00feurfa a\u00f0 sam\u00feykkja \u2013 til a\u00f0 mynda er sala sterkra f\u00edkniefna me\u00f0 \u00f6llu b\u00f6nnu\u00f0 \u00fear. \u00c1ri\u00f0 2004 ger\u00f0i l\u00f6greglan hinsvegar rass\u00edu gegn opinni s\u00f6lu \u00e1 kannabisefnum \u00ed Kristjan\u00edu, og marka\u00f0urinn hefur enn ekki jafna\u00f0 sig a\u00f0 fullu. Enn er \u00fe\u00f3 \u201eleyfilegt\u201c a\u00f0 neyta kannabisefna \u00ed einr\u00fami \u2013 algeng sj\u00f3n \u00ed Kristjan\u00edu er einmitt h\u00f3pur hassreykingaf\u00f3lks utan vi\u00f0 helstu vertsh\u00fasin me\u00f0an \u00feeir sem inni eru mega reykja t\u00f3bak einsog \u00feeim s\u00fdnist, svol\u00edti\u00f0 einsog Reykjav\u00edk \u00e1 hvolfi. En eftir a\u00f0 f\u00f3r a\u00f0 halla undir f\u00e6ti hj\u00e1 f\u00edkniefnas\u00f6lum Kristjan\u00edu f\u00e6r\u00f0u \u00fdmis gengi sig upp \u00e1 skafti\u00f0 og svo f\u00f3r \u00e1 endanum a\u00f0 dr\u00f3st til \u00e1taka, me\u00f0 \u00feessum aflei\u00f0ingum. Allir \u00feeir sem ur\u00f0u fyrir skoti voru saklausir vegfarendur; f\u00edkniefnasalar Kristjan\u00edu \u00e1ttu \u00fear engan hlut a\u00f0 m\u00e1li.<\/p>\n<p>\u00c1ri\u00f0 2007 m\u00e6tti svo l\u00f6greglan \u00e1samt jar\u00f0\u00fdtum \u00ed \u00feeim tilgangi a\u00f0 r\u00edfa ni\u00f0ur gamla byggingu \u00ed Kristjan\u00edu. \u00dev\u00ed var m\u00e6tt me\u00f0 h\u00f6rku og \u00e1 endanum \u00feurfti l\u00f6greglan a\u00f0 l\u00e1ta undan s\u00edga. Sk\u00f6mmu eftir heims\u00f3kn m\u00edna \u00feanga\u00f0 \u00e1ri\u00f0 2009 var handsprengju varpa\u00f0, a\u00f0 \u00fev\u00ed er vir\u00f0ist a\u00f0 tilefnislausu, inn um gluggann \u00e1 vertsh\u00fasi \u00ed Kristjan\u00edu, og s\u00e1 eini sem slasa\u00f0ist lif\u00f0i af, a\u00f0 tali\u00f0 er, s\u00f6kum \u00feess eins a\u00f0 hann n\u00e1\u00f0i a\u00f0 sk\u00fdla s\u00e9r \u00e1 bakvi\u00f0 bor\u00f0i\u00f0 sem hann sat vi\u00f0, me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 varpa \u00fev\u00ed framfyrir sig. \u00deetta eru \u00fe\u00e6r s\u00f6gur sem vi\u00f0 heyrum gjarnan af Kristjan\u00edu, enda eru \u00feetta \u00fe\u00e6r s\u00f6gur sem einar rata \u00ed fj\u00f6lmi\u00f0la. Brei\u00f0holti\u00f0 ratar heldur aldrei \u00ed fj\u00f6lmi\u00f0la nema \u00fear hafi \u00e1tt s\u00e9r sta\u00f0 skot\u00e1r\u00e1s e\u00f0a sve\u00f0juslagur. Almennt hafa \u00fe\u00f3 flestir fegurri \u00edmynd af Brei\u00f0holtinu en Kristjan\u00edu, og \u00fea\u00f0 m\u00e1 velta fyrir s\u00e9r hvers vegna \u00fea\u00f0 s\u00e9 \u2013 ef ekki \u00fe\u00e1 fyrir linnulausan \u00e1r\u00f3\u00f0ur gegn fr\u00edr\u00edkinu s\u00ed\u00f0astli\u00f0in 40 \u00e1r. Kaldh\u00e6\u00f0nin \u00ed m\u00e1linu er vitaskuld s\u00fa a\u00f0 helstu vandam\u00e1l Kristjan\u00edu eru ekki sprottin upp \u00fear, heldur innan Kaupmannahafnar, n\u00e1nar tilteki\u00f0 \u00e1 N\u00f8rrebro. Og me\u00f0an gl\u00e6pamenn \u00fea\u00f0an halda \u00e1fram a\u00f0 \u00fejarma a\u00f0 \u00edb\u00faum Kristjan\u00edu er kl\u00e9nt a\u00f0 kl\u00edna vandam\u00e1lunum \u00e1 Kristjan\u00edu. Kristjan\u00eda er ekki vandam\u00e1li\u00f0 \u2013 \u00fea\u00f0 er Kaupmannah\u00f6fn sem er vandam\u00e1li\u00f0.<\/p>\n<p><strong>D\u00f3murinn og kr\u00f6furnar<\/strong><br \/>\nF\u00f6studaginn 18. febr\u00faar 2011 var felldur d\u00f3mur \u00ed H\u00e6star\u00e9tti Danmerkur \u00feess efnis a\u00f0 Kaupmannah\u00f6fn eigi landsv\u00e6\u00f0i og byggingar Kristjan\u00edu. Virkisveggurinn, sem n\u00fa sk\u00fdlir Kristjan\u00edu og \u00fear \u00e1\u00f0ur Kaupmannah\u00f6fn, er engin v\u00f6rn gegn \u00feeim s\u00ed\u00f0arnefndu n\u00fana \u00ed ums\u00e1tri \u00feeirra um Kristjan\u00edu. \u00deetta gerist n\u00fana vegna \u00feess, fremur en \u00fer\u00e1tt fyrir, a\u00f0 margra mati, a\u00f0 Kristjan\u00eda er or\u00f0in ein st\u00e6rsta tekjulind fer\u00f0amannai\u00f0na\u00f0arins \u00ed Kaupmannah\u00f6fn \u2013 tv\u00f6falt st\u00e6rri en Litla hafmeyjan. Fr\u00edr\u00edki\u00f0 dregur fleira f\u00f3lk til s\u00edn en Litla hafmeyjan, N\u00fdh\u00f6fn og kr\u00fanudj\u00e1snin samanlagt, og auglj\u00f3st er a\u00f0 n\u00fa \u00e1 samdr\u00e1ttart\u00edmum hafa borgaryfirv\u00f6ld \u00feeim mun meiri hagsmuni af \u00fev\u00ed a\u00f0 tryggja s\u00e9r skatttekjur af starfseminni. \u00dear eru \u00f3beinar tekjur af fer\u00f0amannastraumi sem munu glatast \u00fe\u00f3 ekki teknar inn \u00ed reikningsd\u00e6mi\u00f0, enda er erfitt a\u00f0 m\u00e6la hversu miklar \u00fe\u00e6r eru.<\/p>\n<p>R\u00edkisr\u00e1\u00f0 Kristjan\u00edu hefur gefi\u00f0 \u00fat yfirl\u00fdsingu \u00ed kj\u00f6lfar d\u00f3msins, \u00fear sem \u00e1r\u00e9tta\u00f0 er hlutverk fr\u00edr\u00edkisins innan Kaupmannahafnar, og \u00fe\u00e6r kr\u00f6fur eru ger\u00f0ar a\u00f0 samf\u00e9lagsger\u00f0in ver\u00f0i virt. Kr\u00f6furnar eru eftirfarandi, \u00ed lauslegri \u00fe\u00fd\u00f0ingu minni:<\/p>\n<blockquote><p><strong>1.<\/strong> \u00dea\u00f0 er mikilv\u00e6gt a\u00f0 Kristjan\u00eda klofni ekki e\u00f0a einangrist. \u00dea\u00f0 er ekki h\u00e6gt a\u00f0 fjarl\u00e6gja horn h\u00e9r, hva\u00f0 \u00fe\u00e1 heilt hverfi \u00fear, og kalla \u00fea\u00f0 sem eftir er Kristjan\u00edu. Hverjum e\u00f0a hverju g\u00e6tum vi\u00f0 enda f\u00f3rna\u00f0? Fyrsta krafan er \u00fear af lei\u00f0andi a\u00f0 Kristjan\u00eda skuli var\u00f0veitt \u00ed sinni n\u00faverandi heild.<\/p>\n<p><strong>2.<\/strong> Vegna mi\u00f0l\u00e6grar st\u00f6\u00f0u og n\u00e1tt\u00farufegur\u00f0ar er hverfi\u00f0 eftirs\u00f3tt til \u00edb\u00fa\u00f0ar. Komi fasteignir til tals h\u00e9rna mun fj\u00f6lbreytnin fara forg\u00f6r\u00f0um. \u00cd sta\u00f0inn mun h\u00e9r b\u00faa r\u00edkt f\u00f3lk \u00e1samt \u00f6\u00f0ru r\u00edku f\u00f3lki. Vi\u00f0 h\u00f6fum \u00feegar n\u00e6g r\u00edkramannahverfi fyrir hina f\u00e1u. H\u00fasn\u00e6\u00f0i Kristjan\u00edu \u00fearf a\u00f0 vernda gegn fj\u00e1rmagnsv\u00e6\u00f0ingu.<\/p>\n<p><strong>3.<\/strong> \u00dea\u00f0 eru ekki bankab\u00e6kur e\u00f0a \u00e6vilangir bi\u00f0listar sem skulu \u00e1kvar\u00f0a hver f\u00e6r a\u00f0 flytja hinga\u00f0. \u00cd Kristjan\u00edu geta allir s\u00f3tt um laust h\u00fasn\u00e6\u00f0i \u00e1 jafnr\u00e6\u00f0isgrundvelli. \u00de\u00e1 eru \u00fea\u00f0 \u00edb\u00faarnir sem saman leggja mat \u00e1 hva\u00f0a ums\u00e6kjandi h\u00e6fir best h\u00fasn\u00e6\u00f0inu. \u00dea\u00f0 er a\u00f0 sj\u00e1lfs\u00f6g\u00f0u \u00e1 hreinu a\u00f0 Kristjan\u00eda skal vi\u00f0halda fj\u00f6lbreyttri \u00edb\u00faasamsetningu, og \u00fear af lei\u00f0andi ver\u00f0ur ekki undan \u00fev\u00ed vikist a\u00f0 Kristjan\u00eda skal halda eftir r\u00e9ttinum til stj\u00f3rnar leigumarka\u00f0arins.<\/p>\n<p><strong>4.<\/strong> Hi\u00f0 sama gildir um skipulag Kristjan\u00edu, fyrirt\u00e6kjastj\u00f3rn, stofnanir og menningarl\u00edf, \u00edb\u00faal\u00fd\u00f0r\u00e6\u00f0i og margt fleira, sem \u00fer\u00f3ast hefur sj\u00e1lfst\u00e6tt \u00ed fr\u00edr\u00edkinu. N\u00fdsk\u00f6pun og hi\u00f0 \u00f3hef\u00f0bundna \u00fer\u00edfst h\u00e9rna vegna \u00feess a\u00f0 h\u00e9r eru margir a\u00f0rir m\u00f6guleikar til tj\u00e1ningar. Hverfi \u00fea\u00f0, \u00fe\u00e1 er Kristjan\u00eda \u00feegar horfin. \u00dea\u00f0 er \u00fev\u00ed algj\u00f6rlega nau\u00f0synlegt a\u00f0 Kristjan\u00eda haldi sj\u00e1lfstj\u00f3rn.<\/p>\n<p><strong>5. <\/strong>\u00dea\u00f0 lei\u00f0ir af sj\u00e1lfu a\u00f0 einkenni Kristjan\u00edu er hennar s\u00e9rstaka stj\u00f3rnskipan, \u00fear sem hver tillaga er \u00e1kve\u00f0in me\u00f0 fullu sam\u00feykki \u00edb\u00faa. Hi\u00f0 beina \u00edb\u00faal\u00fd\u00f0r\u00e6\u00f0i stendur \u00ed beinu samhengi me\u00f0 sj\u00e1lfstj\u00f3rninni, sem stu\u00f0lar a\u00f0 virku l\u00fd\u00f0r\u00e6\u00f0i og beinni \u00fe\u00e1ttt\u00f6ku \u00edb\u00faa. \u00deegar allt er \u00e1kve\u00f0i\u00f0 einr\u00f3ma b\u00fdr einstaklingurinn vi\u00f0 vernd gegn meirihlutanum og allir ney\u00f0ast til a\u00f0 hugsa \u00ed heildst\u00e6\u00f0um lausnum \u00ed sta\u00f0 beinna meirihluta.<\/p>\n<p><strong>6.<\/strong> Sj\u00f6tta og s\u00ed\u00f0asta atri\u00f0i\u00f0 er a\u00f0 Kristjan\u00eda skal standa v\u00f6r\u00f0 um jafnr\u00e6\u00f0isl\u00fd\u00f0r\u00e6\u00f0i\u00f0.<\/p><\/blockquote>\n<p><strong>Framhaldi\u00f0<\/strong><br \/>\nHva\u00f0 gerist n\u00e6st er engum einum lj\u00f3st fremur en \u00feeim n\u00e6sta. Borgin sam\u00feykkti a\u00f0 selja fr\u00edr\u00edkinu eina byggingu fyrir eina kr\u00f3nu, andvir\u00f0i 21.43 \u00edslenskra kr\u00f3na \u00e1 n\u00faverandi gengi, og veri\u00f0 er a\u00f0 vinna a\u00f0 \u00fev\u00ed n\u00fa a\u00f0 koma af sta\u00f0 s\u00f6fnun me\u00f0al \u00edb\u00faa og velunnara svo unnt ver\u00f0i a\u00f0 kaupa upp allt fr\u00edr\u00edki\u00f0 af borginni. Ni\u00f0ursta\u00f0a d\u00f3msins er \u00fe\u00f3 sk\u00fdr hva\u00f0 \u00fea\u00f0 var\u00f0ar a\u00f0 fasteignaeigandi, \u00ed \u00feessu tilviki fr\u00edr\u00edki\u00f0 Kristjan\u00eda, sj\u00e1i h\u00fan s\u00e9r f\u00e6rt a\u00f0 kaupa sj\u00e1lfa sig, mun grei\u00f0a fasteignagj\u00f6ld af \u00fev\u00ed h\u00fasn\u00e6\u00f0i sem h\u00fan eignast og \u00fev\u00ed landsv\u00e6\u00f0i sem h\u00fasn\u00e6\u00f0i\u00f0 stendur \u00e1, svo leiguver\u00f0 mun \u00f3hj\u00e1kv\u00e6milega h\u00e6kka fr\u00e1 hinum hef\u00f0bundnu 1800 kr\u00f3num \u00e1 m\u00e1nu\u00f0i \u2013 og \u00fea\u00f0 g\u00e6ti reynst m\u00f6rgum Kristj\u00f6num erfitt a\u00f0 m\u00e6ta aukinni grei\u00f0slubyr\u00f0i. <\/p>\n<p>\u00deetta er \u00fe\u00f3 \u00fea\u00f0 eina sem d\u00f3murinn segir: a\u00f0 eignarr\u00e9ttur \u00e1 landsv\u00e6\u00f0i og fasteignum tilheyri Kaupmannahafnarstifti, svo fj\u00e1rhagslegur \u00e1vinningur af h\u00e1lfu borgarinar ver\u00f0ur aldrei mikill, sama \u00fe\u00f3tt h\u00fan kreisti \u00far fr\u00edr\u00edkinu hvern einasta aur sem h\u00fan getur. Spurningin er \u00fev\u00ed s\u00fa hvort minni hagsmunir s\u00e9u teknir fram yfir hina meiri, \u00fear sem meiri fj\u00e1rmunir munu \u00f3hj\u00e1kv\u00e6milega glatast ver\u00f0i sj\u00e1lfstj\u00f3rn hrifsu\u00f0 af Kristj\u00f6num. Vonir standa til a\u00f0 unnt ver\u00f0i a\u00f0 kaupa \u00fea\u00f0 h\u00fasn\u00e6\u00f0i sem \u00feegar stendur innan fr\u00edr\u00edkisins, en \u00fear sem landi\u00f0 er n\u00fa opinberlega \u00ed eigu borgarinnar er henni \u00ed l\u00f3fa lagi\u00f0 a\u00f0 n\u00fdta s\u00e9r r\u00e9tt sinn hven\u00e6r sem henni s\u00fdnist til a\u00f0 negla ni\u00f0ur einsog \u00f6rf\u00e1ar byggingar og reisa \u00fear h\u00f3tel e\u00f0a hva\u00f0 sem l\u00f6ngunin stendur til. \u00de\u00f3tt vonin lifi \u00ed hj\u00f6rtum \u00feeirra eitt\u00fe\u00fasund manneskja sem b\u00faa \u00ed Kristjan\u00edu liggur \u00fe\u00f3 nokku\u00f0 lj\u00f3st fyrir a\u00f0 landsv\u00e6\u00f0i\u00f0 sj\u00e1lft er afar d\u00fdrm\u00e6tt, og a\u00f0 hafi borgaryfirv\u00f6ld ekki svifist einskis hinga\u00f0 til \u00ed \u00fev\u00ed markmi\u00f0i s\u00ednu a\u00f0 endurheimta \u00fea\u00f0, \u00fe\u00e1 muni \u00feau gera \u00fea\u00f0 senn. Og h\u00f6ggi\u00f0 ver\u00f0ur \u00feungt. Ekki a\u00f0eins fyrir Kristjan\u00edu, heldur Kaupmannah\u00f6fn einnig.<\/p>\n<p>Kristjan\u00eda hefur fyrir l\u00f6ngu afla\u00f0 s\u00e9r tilverur\u00e9ttar, og ekki er til ein einasta fer\u00f0ahandb\u00f3k sem ekki nefnir hana sem s\u00e9rlega \u00e1hugavert kennileiti \u201e\u00ed Kaupmannah\u00f6fn\u201c. \u00dear eru veitingasta\u00f0ir sem hafa m\u00e1na\u00f0arlangan bi\u00f0lista eftir bor\u00f0i, og hafa haft s\u00ed\u00f0astli\u00f0in 20 \u00e1r, til a\u00f0 mynda Spiseloppen \u2013 einn \u00feekktasti, og a\u00f0 s\u00f6gn besti, veitingasta\u00f0ur \u00ed Danm\u00f6rku. Margir fer\u00f0amenn koma \u00feanga\u00f0 gagnvert til a\u00f0 sj\u00e1 f\u00f3lk reykja hass \u00fati \u00e1 g\u00f6tu (e\u00f0a kaupa s\u00e9r sj\u00e1lfir) og ver\u00f0a ekki fyrir vonbrig\u00f0um. Svo setjast \u00feeir inn \u00e1 Woodstock og drekka heimabrugga\u00f0an Kristjan\u00edubj\u00f3r og r\u00e6\u00f0a vi\u00f0 skringilegt heimaf\u00f3lki\u00f0. \u00dear er s\u00fapueldh\u00fas \u00e1 a\u00f0fangadag \u00fear sem allir eru velkomnir, sama hvort \u00feeir eru r\u00edkir e\u00f0a f\u00e1t\u00e6kir, og \u00fea\u00f0 kostar ekki kr\u00f3nu. Kristjan\u00eda liggur auk \u00feess steinsnar fr\u00e1 \u00feingh\u00fasinu, Kristj\u00e1nsborg, svo h\u00fan er \u00ed alfaralei\u00f0 fr\u00e1 Strikinu. \u00dea\u00f0 tekur ekki nema 10 m\u00edn\u00fatur a\u00f0 ganga \u00feanga\u00f0 fr\u00e1 Amagertorgi. \u00dea\u00f0 er n\u00e1kv\u00e6mlega \u00feetta, \u00feetta s\u00e9rst\u00e6\u00f0a fr\u00edr\u00edki, sem fer\u00f0amenn jafnt sem heimaf\u00f3lk s\u00e6kir svo gjarnan \u00ed, nokku\u00f0 sem gerir Kaupmannah\u00f6fn einstaka: tilraun til anark\u00edsks samf\u00e9lags innan skandinav\u00edsks \u201evelfer\u00f0arr\u00edkis\u201c, sem virka\u00f0 hefur \u00ed 40 \u00e1r, ein st\u00e6rsta tekjulind fer\u00f0amannai\u00f0na\u00f0ar Kaupmannahafnar \u2013 vilji ma\u00f0ur r\u00e6\u00f0a peninga \u00ed \u00feessu samhengi \u2013 nokku\u00f0 sem allir \u00e6ttu a\u00f0 geta veri\u00f0 stoltir af.<\/p>\n<p><strong>Lei\u00f0arlok \u2013 nema vi\u00f0 veljum anna\u00f0<\/strong><br \/>\n\u00dea\u00f0 er merkileg tilhugsun a\u00f0 \u00e1ri\u00f0 sem \u00e9g f\u00e6ddist var l\u00fd\u00f0veldi\u00f0 \u00cdsland jafngamalt og Kristjan\u00eda er n\u00fa. \u00deegar \u00e9g fer\u00f0a\u00f0ist einu sinni sem svo oft \u00e1\u00f0ur til Kaupmannahafnar, \u00ed lok jan\u00faar 2009, og gekk \u00fat af ne\u00f0anjar\u00f0arlestarst\u00f6\u00f0inni vi\u00f0 Kristj\u00e1nsh\u00f6fn spur\u00f0i \u00e9g vegfarendur hvort \u00feeir g\u00e6tu v\u00edsa\u00f0 m\u00e9r \u00e1 Prinsessug\u00f6tu, \u00fear sem \u00e9g \u00e1tti a\u00f0 dveljast. Fyrstu \u00fer\u00edr vi\u00f0m\u00e6lendur m\u00ednir e\u00f0a svo \u00fe\u00f3ttust ekkert vita hvar gatan v\u00e6ri, svo \u00e9g reyndi a\u00f0 finna hana sj\u00e1lfur, og gekk handan vi\u00f0 horni\u00f0 fr\u00e1 st\u00f6\u00f0inni. \u00dear var Prinsessugata. \u00c9g fur\u00f0a\u00f0i mig \u00e1 \u00feessu \u00fear til m\u00e9r var s\u00ed\u00f0ar sagt a\u00f0 Kristjan\u00eda l\u00e6gi um 400 metra \u00ed nor\u00f0austur fr\u00e1 h\u00fasinu m\u00ednu, vi\u00f0 s\u00f6mu g\u00f6tu. \u00dear var \u00fe\u00e1 komin sk\u00fdringin. \u00dea\u00f0 eru einfaldlega alltof margir sem vilja ekkert af \u00feessu vita, skammast s\u00edn, jafnvel. Sama hversu sk\u00edtlega \u00cdsland heg\u00f0ar s\u00e9r \u00e1 al\u00fej\u00f3\u00f0avettvangi vir\u00f0ast \u00fe\u00f3 f\u00e1ir vera til sem skammast s\u00edn fyrir \u00fea\u00f0. En n\u00fa er kominn t\u00edmi til a\u00f0 allir l\u00e1ti sig m\u00e1li\u00f0 var\u00f0a. N\u00fana \u00feurfa allir a\u00f0 vita af Kristjan\u00edu, og skammast s\u00edn ekki fyrir, og s\u00f6mulei\u00f0is \u00feurfa allir a\u00f0 leggja h\u00f6nd \u00e1 pl\u00f3g svo unnt ver\u00f0i a\u00f0 bjarga \u00fev\u00ed sem bjarga\u00f0 ver\u00f0ur.<\/p>\n<p>Til er fr\u00e6g, og sumpart klisjukennd, saga af manni sem hj\u00e1lpa\u00f0i engum \u00feegar nasistar \u00fatr\u00fdmdu sm\u00e1msaman heilu \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9lagsh\u00f3punum \u00far samf\u00e9laginu. En hann sag\u00f0i aldrei neitt, vegna \u00feess a\u00f0 honum fannst \u00fea\u00f0 ekki snerta hann. Loks \u00feegar \u00feeir sneru s\u00e9r a\u00f0 honum hr\u00f3pa\u00f0i hann h\u00e1st\u00f6fum, en \u00fe\u00e1 var enginn eftir til a\u00f0 hj\u00e1lpa honum.<\/p>\n<p>N\u00fa er t\u00edminn til a\u00f0 bjarga Kristjan\u00edu, og \u00fea\u00f0 krefst \u00fe\u00e1ttt\u00f6ku n\u00fana en ekki s\u00ed\u00f0ar, \u00fev\u00ed \u00fea\u00f0 ver\u00f0ur ekkert s\u00ed\u00f0ar. Virkisveggurinn st\u00f3\u00f0 vissulega af s\u00e9r marga hildina, en hann heldur s\u00e9r ekki sj\u00e1lfur \u00feegar r\u00e1\u00f0ist er \u00e1 hann innan fr\u00e1.<\/p>\n<p><i>\u2013 Birtist fyrst \u00e1 <a href=\"http:\/\/www.smugan.is\/pistlar\/fastir-pennar\/arngrimur-vidalin\/nr\/5263\">Smugunni<\/a> \u00feann 23. febr\u00faar 2011.<\/i><\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Virkisveggurinn \u00c1 \u00e1runum 1682 til 1692, eftir ums\u00e1tur Sv\u00eda um Kaupmannah\u00f6fn \u00feann 11. febr\u00faar \u00e1ri\u00f0 1659, var r\u00e1\u00f0ist \u00ed ger\u00f0 virkisveggs vi\u00f0 b\u00e6inn Kristj\u00e1nsh\u00f6fn, til a\u00f0 tengja vi\u00f0 virkisveggi Kaupmannahafnar og tryggja varnir borgarinnar. Virkisveggurinn st\u00f3\u00f0 allt umhverfis g\u00f6mlu Kaupmannah\u00f6fn fram \u00e1 19. \u00f6ld, \u00feegar st\u00f3rir hlutar hans voru rifnir, a\u00f0 undanskildum \u00feeim hluta sem &hellip; <a href=\"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/2011\/02\/28\/endalok-kristjaniu-i-nuverandi-mynd\/\" class=\"more-link\">Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa: <span class=\"screen-reader-text\">Endalok Kristjan\u00edu \u00ed n\u00faverandi mynd<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":3,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[9,21],"tags":[],"class_list":["post-3542","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-greinar","category-politik"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/3542","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/users\/3"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3542"}],"version-history":[{"count":3,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/3542\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":13823,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/3542\/revisions\/13823"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3542"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=3542"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=3542"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}