{"id":3563,"date":"2011-04-10T13:38:19","date_gmt":"2011-04-10T13:38:19","guid":{"rendered":"http:\/\/kaninka.net\/arngrimurv\/?p=3563"},"modified":"2019-01-01T13:37:04","modified_gmt":"2019-01-01T13:37:04","slug":"huglei%c3%b0ingar-um-urslitin","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/2011\/04\/10\/huglei%c3%b0ingar-um-urslitin\/","title":{"rendered":"Huglei\u00f0ingar um \u00farslitin"},"content":{"rendered":"<p>\u00c9g ber mikla vir\u00f0ingu fyrir \u00feeirri prins\u00edpsko\u00f0un a\u00f0 \u00cdslendingum beri yfirh\u00f6fu\u00f0 ekki a\u00f0 grei\u00f0a skuldir einkafyrirt\u00e6kja (\u00fe\u00f3 er deilt um hvort \u00fea\u00f0 s\u00e9 tilfelli\u00f0 h\u00e9r), og var sj\u00e1lfur \u00feeirrar sko\u00f0unar fyrst eftir hrun. Afsta\u00f0a m\u00edn breyttist s\u00ed\u00f0ar og \u00fe\u00e1 fyrst og fremst af pragmat\u00edskum \u00e1st\u00e6\u00f0um \u2013 au\u00f0vita\u00f0 \u00e1 almenningur ekki a\u00f0 borga skuldir einkafyrirt\u00e6kja, en fyrirt\u00e6ki sem ekki mega fara \u00e1 hausinn \u00e6ttu heldur ekki a\u00f0 vera einkafyrirt\u00e6ki, \u00fe\u00e1 s\u00edst af \u00f6llu bankar. \u00dea\u00f0 sem ger\u00f0ist var fyrirsj\u00e1anlegt \u00f6llum sem ekki h\u00f6f\u00f0u hausinn \u00ed sandinum, \u00fe\u00f3tt vitanlega v\u00e6ri okkur \u00f6llum brug\u00f0i\u00f0. \u00deegar heilt bankakerfi fer \u00e1 hli\u00f0ina er ekki anna\u00f0 h\u00e6gt en a\u00f0 bjarga \u00fev\u00ed sem bjarga\u00f0 ver\u00f0ur.<\/p>\n<p>En h\u00e9r bau\u00f0st okkur samningur um a\u00f0 grei\u00f0a lygilega l\u00e1ga og sanngjarna upph\u00e6\u00f0 fyrir \u00fe\u00e1 fj\u00e1rmuni sem \u00edslensku bankarnir r\u00e6ndu almenning \u00ed Bretlandi og Hollandi um, og \u00e9g kaus me\u00f0 honum af \u00fev\u00ed \u00e9g tel a\u00f0 \u00fea\u00f0 sem kemur \u00fej\u00f3\u00f0inni best a\u00f0 lokum s\u00e9 \u00f3h\u00e1\u00f0 \u00ferj\u00f3skulegum prins\u00edpum; \u00feeir sem helst bera sig saman vi\u00f0 Bjart \u00ed Sumarh\u00fasum eiga \u00fe\u00e1 sj\u00e1lfsl\u00edkingu \u00e1rei\u00f0anlega skuldlausa. Hann er einhver alversta fyrirmynd sem hugsast getur, en einhverra hluta vegna hefur hann or\u00f0i\u00f0 a\u00f0 t\u00e1knmynd hins sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0a \u00cdslendings. Kannski er eitthva\u00f0 til \u00ed \u00fev\u00ed.<\/p>\n<p>\u00c9g \u00feekki margt gott og g\u00e1fa\u00f0 f\u00f3lk sem kaus \u00e1 m\u00f3ti samningnum \u00ed g\u00e6r, og \u00e9g \u00feekki s\u00f6mulei\u00f0is margt gott og g\u00e1fa\u00f0 f\u00f3lk sem kaus me\u00f0 honum. \u00de\u00f3 held \u00e9g a\u00f0 \u00feeir fyrrnefndu hafi rangt fyrir s\u00e9r, af nokkrum \u00e1st\u00e6\u00f0um.<\/p>\n<p>Eftir a\u00f0 fyrri samningi var hafna\u00f0 hafa margir or\u00f0i\u00f0 til \u00feess a\u00f0 segja a\u00f0 ekkert hafi gerst, a\u00f0 h\u00f6fnun \u00feess samnings hafi veri\u00f0 aflei\u00f0ingalaus fyrir \u00cdsland, jafnvel tala\u00f0 um tilefnislausan hr\u00e6\u00f0slu\u00e1r\u00f3\u00f0ur stj\u00f3rnvalda. \u00c1 sama t\u00edma hefur r\u00edkisstj\u00f3rnin veri\u00f0 \u00e1s\u00f6ku\u00f0 um a\u00f0ger\u00f0aleysi \u00ed efnahagsm\u00e1lum \u00fej\u00f3\u00f0arinnar. \u00dea\u00f0 er einsog f\u00f3lk sj\u00e1i ekki samhengi\u00f0 \u00fearna \u00e1 milli.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 er nokku\u00f0 lj\u00f3st a\u00f0 \u00cdsland er l\u00e1nsfj\u00e1r\u00feurfi, og a\u00f0 h\u00f6fnun Svavarssamningsins hefur or\u00f0i\u00f0 \u00feess valdandi a\u00f0 \u00cdslendingum hafa ekki sta\u00f0i\u00f0 til bo\u00f0a mikilv\u00e6g erlend l\u00e1n sem nota m\u00e6tti til a\u00f0 m\u00e6ta eldri l\u00e1num \u00e1 gjalddaga og d\u00e6la peningum \u00fat \u00ed atvinnul\u00edfi\u00f0 til a\u00f0 efla hagv\u00f6xt, sem er forsenda \u00feess a\u00f0 gjaldeyrish\u00f6ftin ver\u00f0i afnumin. \u00cd \u00feeim skilningi er \u00fea\u00f0 r\u00e9tt hj\u00e1 f\u00f3lki a\u00f0 \u201eekkert hafi gerst\u201c vi\u00f0 a\u00f0 neita \u00feeim samningi. \u00de\u00e6r fj\u00e1rh\u00e6\u00f0ir sem hafa tapast vegna \u00feessa ver\u00f0a ekki m\u00e6ldar \u00ed neinum sm\u00e1r\u00e6\u00f0is einingum, ef \u00fe\u00e6r eru yfirh\u00f6fu\u00f0 m\u00e6lanlegar.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 er raunar \u00f3tr\u00falegt a\u00f0 \u00cdsland s\u00e9 ekki verr statt en raun ber vitni. \u00dea\u00f0 m\u00e1 margt segja um r\u00edkisstj\u00f3rnina, en henni hefur \u00fe\u00f3 tekist a\u00f0 halda \u00cdslandi \u00e1 floti me\u00f0 Icesavem\u00e1li\u00f0 \u00f3kl\u00e1ra\u00f0. \u00c1 me\u00f0an heldur ni\u00f0urskur\u00f0urinn \u00e1fram, atvinnuleysi eykst og almenningur \u00e1 s\u00edfellt erfi\u00f0ara me\u00f0 a\u00f0 n\u00e1 endum saman. En st\u00f6\u00f0nun \u00ed fj\u00e1rm\u00e1lakerfi og atvinnul\u00edfi \u00cdslands er ekki r\u00edkisstj\u00f3rninni a\u00f0 kenna, heldur er h\u00fan aflei\u00f0ing hruns \u00edslenska bankakerfisins og l\u00e1nleysi stj\u00f3rnvalda til a\u00f0 semja um \u00fea\u00f0 sem \u00fat af stendur. Me\u00f0 \u00feetta m\u00e1l hangandi yfir hausam\u00f3tunum \u00e1 okkur horfumst vi\u00f0 \u00ed augu vi\u00f0 nokkur \u00e1r til vi\u00f0b\u00f3tar af \u00feessu sama.<\/p>\n<p>\u00cd g\u00e6r fengum vi\u00f0 valkost um a\u00f0 grei\u00f0a 32 milljar\u00f0a kr\u00f3na mi\u00f0a\u00f0 vi\u00f0 n\u00fdjustu \u00fatreikninga. \u00deeir sem t\u00f3ku afst\u00f6\u00f0u gegn samningnum voru margir \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 betra v\u00e6ri a\u00f0 l\u00e1ta \u00e1 \u00fea\u00f0 reyna fyrir d\u00f3mst\u00f3lum hvort \u00cdslendingar \u00feyrftu yfirh\u00f6fu\u00f0 a\u00f0 borga. \u00c9g deili ekki \u00feeirri bjarts\u00fdni me\u00f0 \u00feeim. EFTA h\u00f6f\u00f0ar ekki m\u00e1l nema a\u00f0 vel athugu\u00f0u m\u00e1li, enda vinnur EFTA undantekningal\u00edti\u00f0. \u00de\u00e1 voru sumir sem t\u00f6ldu a\u00f0 t\u00f6pu\u00f0u \u00cdslendingar m\u00e1linu yr\u00f0u \u00feeir t\u00e6past d\u00e6mdir til a\u00f0 grei\u00f0a meira en umsamda 32 milljar\u00f0a kr\u00f3na. \u00dea\u00f0 er \u00f3skhyggja.<\/p>\n<p>Sannleikurinn er s\u00e1 a\u00f0 vi\u00f0 vitum ekki hva\u00f0 vi\u00f0 g\u00e6tum \u00feurft a\u00f0 grei\u00f0a, og st\u00f3r hluti \u00feeirrar upph\u00e6\u00f0ar ver\u00f0ur eing\u00f6ngu reikna\u00f0ur \u00ed t\u00f6pu\u00f0um t\u00edma &#8211; l\u00edkt og me\u00f0 h\u00f6fnun fyrri Icesavesamnings. S\u00e1 \u00e1rangur sem ekki n\u00e6st me\u00f0an \u00cdsland rekur m\u00e1l sitt fyrir EFTA er glata\u00f0ur \u00e1rangur, glata\u00f0ir fj\u00e1rmunir, meiri ni\u00f0urskur\u00f0ur og auki\u00f0 atvinnuleysi. \u00dea\u00f0 var f\u00f3rnarkostna\u00f0ur s\u00ed\u00f0asta neis og \u00fea\u00f0 ver\u00f0ur f\u00f3rnarkostna\u00f0ar \u00feessa. Vi\u00f0 \u00feessu var b\u00fai\u00f0 a\u00f0 vara og \u00fea\u00f0 gekk eftir, sama \u00fe\u00f3tt \u00fea\u00f0 s\u00e9 n\u00fa kalla\u00f0 hr\u00e6\u00f0slu\u00e1r\u00f3\u00f0ur og stj\u00f3rnv\u00f6ld s\u00f6g\u00f0 \u201ea\u00f0ger\u00f0alaus me\u00f0an heimilin brenna\u201c. Meira m\u00e1 n\u00fa drama\u00f0 vera. L\u00fd\u00f0r\u00e6\u00f0inu fylgir \u00e1byrg\u00f0 og \u00fej\u00f3\u00f0in t\u00f3k \u00feessa \u00e1kv\u00f6r\u00f0un sj\u00e1lf. <\/p>\n<p>Enn a\u00f0rir spur\u00f0u sig hvers vegna Bretar og Hollendingar hef\u00f0u ekki \u00feegar k\u00e6rt okkur fyrst \u00feeir v\u00e6ru svona vissir um r\u00e9ttm\u00e6ti krafna sinna. \u00dev\u00ed er au\u00f0svara\u00f0: \u00fej\u00f3\u00f0ir sem eiga \u00ed samningavi\u00f0r\u00e6\u00f0um k\u00e6ra ekki samningsa\u00f0ilann. \u00dea\u00f0 er f\u00e1r\u00e1nleg hugmynd. En \u00e1 n\u00e6stu vikum og m\u00e1nu\u00f0um munum vi\u00f0 sannarlega f\u00e1 a\u00f0 sj\u00e1 hversu einar\u00f0ir \u00feeir standa me\u00f0 kr\u00f6fum s\u00ednum. Um \u00fea\u00f0 er ekki a\u00f0 efast a\u00f0 \u00feeir taka slaginn me\u00f0 sannf\u00e6ringu, r\u00e9tt einsog \u00edslensk stj\u00f3rnv\u00f6ld l\u00fdstu yfir \u00ed g\u00e6rkv\u00f6ldi a\u00f0 \u00feau myndu gera fyrir h\u00f6nd \u00cdslendinga.<\/p>\n<p>Um \u00fe\u00e1tt forsetans vil \u00e9g sem minnst segja. \u00c9g er almennt hlynntur sl\u00edku hli\u00f0skipu\u00f0u a\u00f0haldi, hvort sem er fr\u00e1 forseta, meirihluta \u00feings e\u00f0a tilteknu hlutfalli kj\u00f3senda, en \u00e9g er l\u00edka samm\u00e1la fors\u00e6tisr\u00e1\u00f0herra \u00feegar h\u00fan segir a\u00f0 m\u00e1l af \u00feessu tagi henti ekki til \u00fej\u00f3\u00f0aratkv\u00e6\u00f0agrei\u00f0slna. \u00deegar f\u00f3lki b\u00fd\u00f0st a\u00f0 grei\u00f0a umtalsver\u00f0ar fj\u00e1rh\u00e6\u00f0ir e\u00f0a sleppa \u00fev\u00ed hl\u00fdtur \u00fea\u00f0 alltaf a\u00f0 sleppa \u00fev\u00ed, og \u00fear kemur ofureinf\u00f6ldunin inn: atkv\u00e6\u00f0agrei\u00f0slan snerist ekki um a\u00f0 sleppa \u00fev\u00ed, heldur um hvernig, hven\u00e6r og hversu miki\u00f0 vi\u00f0 komum til me\u00f0 a\u00f0 grei\u00f0a \u00e1 endanum. Kannski grei\u00f0um vi\u00f0 ekkert, en f\u00f3rnarkostna\u00f0urinn vi\u00f0 m\u00e1lareksturinn ver\u00f0ur alltaf h\u00e6rri en s\u00fa upph\u00e6\u00f0 sem bau\u00f0st \u00ed g\u00e6r. \u00de\u00e1 fyrst ver\u00f0um vi\u00f0 kannski einsog Bjartur \u00ed Sumarh\u00fasum, sem st\u00f3\u00f0 uppi me\u00f0 ekkert a\u00f0 lokum s\u00f6kum \u00ferj\u00f3sku sinnar og heim\u00f3ttarskap.<\/p>\n<p>\u00c1 sama t\u00edma hef \u00e9g or\u00f0i\u00f0 fyrir gr\u00ed\u00f0arlegum vonbrig\u00f0um me\u00f0 \u00cdslendinga \u2013 ekki vegna ni\u00f0urst\u00f6\u00f0u kosninganna, \u00e9g ber vir\u00f0ingu fyrir henni \u2013 heldur vegna \u00feeirrar umr\u00e6\u00f0u sem \u00e1tti s\u00e9r sta\u00f0 \u00ed a\u00f0draganda kosninganna. Vigd\u00eds Finnbogad\u00f3ttir l\u00fdsti afst\u00f6\u00f0u sinni til m\u00e1lsins og var \u00ed kj\u00f6lfari\u00f0 k\u00f6llu\u00f0 landr\u00e1\u00f0ama\u00f0ur og af\u00e6ta \u00e1 \u00edslenskri \u00fej\u00f3\u00f0. \u00dea\u00f0 er hreinlega ekki \u00ed lagi. Sigurj\u00f3n \u00c1rnason, fyrrum bankastj\u00f3ri og h\u00f6fu\u00f0paur Icesave, l\u00fdsti einnig yfir sinni afst\u00f6\u00f0u \u2013 og uppskar engin h\u00farrahr\u00f3p \u00fe\u00f3tt hann seg\u00f0i n\u00e1kv\u00e6mlega \u00fea\u00f0 sama og margir nei-arar (enda skyldi engan undra). \u00de\u00e1 voru \u00fdmsir sem stilltu Vigd\u00edsi og Sigurj\u00f3ni upp sem d\u00fdrlingi \u00e1 m\u00f3ti dj\u00f6fli \u2013 gl\u00e6poninn segir nei, sameiningart\u00e1kni\u00f0 segir j\u00e1, hver s\u00e1 sem s\u00e6i \u00fea\u00f0 ekki v\u00e6ri heimskur. \u00dea\u00f0 var ekki til fyrirmyndar.<\/p>\n<p>\u00de\u00e1 hafa \u00fdmsir kalla\u00f0 eftir lei\u00f0toga sem st\u00e6\u00f0i \u00ed lappirnar gagnvart erlendri k\u00fagun. \u00dea\u00f0 \u00fearf ekki miki\u00f0 \u00edmyndunarafl til a\u00f0 sj\u00e1 hvert sl\u00edkur \u00feankagangur g\u00e6ti leitt okkur. En \u00fej\u00f3\u00f0in er ge\u00f0klofin \u00ed \u00feessu sem svo m\u00f6rgu \u00f6\u00f0ru: h\u00fan hafnar \u201eforingjar\u00e6\u00f0i fj\u00f3rflokksins\u201c (?) en bi\u00f0ur um \u201esterkan lei\u00f0toga\u201c \u00ed sta\u00f0inn. Umr\u00e6\u00f0an hefur sp\u00fai\u00f0 fnyk \u00fej\u00f3\u00f0ernishyggju yfir grandvaralausa og vitna\u00f0 er \u00ed hverja b\u00e1biljuna \u00e1 f\u00e6tur annarri, einsog \u00feeir sem l\u00fdstu yfir \u00e1 Facebook a\u00f0 nei \u00e1ri\u00f0 1918 hef\u00f0i skila\u00f0 okkur fullveldi, nei \u00e1ri\u00f0 1944 hef\u00f0i skila\u00f0 okkur sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0i og nei \u00e1ri\u00f0 1976 hef\u00f0i skila\u00f0 okkur 200 m\u00edlna landhelgi. \u00deetta er svo galin s\u00f6gusko\u00f0un a\u00f0 \u00fea\u00f0 \u00fearf ekki a\u00f0 hafa frekari or\u00f0 um \u00fea\u00f0.<\/p>\n<p>En s\u00f6guvitund \u00e1 \u00cdslandi hefur svosem aldrei veri\u00f0 neitt s\u00e9rlega beisin. H\u00fan er svona: \u00cdslendingar voru stoltir v\u00edkingar sem l\u00e9tu erlent yfirvald ekki sv\u00ednbeygja sig svo \u00feeir stofnu\u00f0u fyrsta l\u00fd\u00f0veldi heimsins (nei \u00e1ri\u00f0 871 skila\u00f0i okkur \u2026). Svo komu Danir og k\u00fagu\u00f0u okkur og l\u00e9tu okkur bor\u00f0a ma\u00f0ka. \u00de\u00e1 kom J\u00f3n Sigur\u00f0sson og m\u00f3tm\u00e6lti \u00ed fleirt\u00f6lu. Svo fengum vi\u00f0 sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0i og ur\u00f0um langsv\u00f6lust.<\/p>\n<p>\u00de\u00e1 hefur f\u00f3lk veri\u00f0 kalla\u00f0 f\u00edfl, bj\u00e1nar, ge\u00f0sj\u00faklingar og \u00e9g veit ekki hva\u00f0 \u00e1 b\u00e1\u00f0a b\u00f3ga fyrir \u00fea\u00f0 eitt a\u00f0 mynda s\u00e9r sko\u00f0un \u00e1 einu umdeildasta m\u00e1li \u00cdslandss\u00f6gunnar og kj\u00f3sa eftir sannf\u00e6ringu sinni. \u00c9g get ekki sagt a\u00f0 \u00e9g s\u00e9 stoltur \u00cdslendingur eftir \u00feetta. Umr\u00e6\u00f0uhef\u00f0in vir\u00f0ist sn\u00faast um a\u00f0 gagga sem h\u00e6st innant\u00f3m slagor\u00f0 einsog tourettesj\u00faklingur \u00ed mi\u00f0ju ra\u00f0heilabl\u00f3\u00f0falli. \u00c9g var um daginn spur\u00f0ur hvort \u00e9g \u00e6tla\u00f0i a\u00f0 skuldsetja \u201eb\u00f6rnin okkar\u201c, sem a\u00f0 v\u00edsu er sk\u00e1rra en a\u00f0 senda \u00feau \u00ed kolan\u00e1mu einsog annar nei-ari gaf \u00ed skyn. Margur \u00e1 j\u00e1-hli\u00f0inni var litlu sk\u00e1rri. \u00cdslendingar mega eiga \u00fea\u00f0 eftir hruni\u00f0 a\u00f0 \u00feeir eru gagnr\u00fdnir og veita stj\u00f3rnv\u00f6ldum a\u00f0hald, en umr\u00e6\u00f0an einsog h\u00fan var or\u00f0in fyrir atkv\u00e6\u00f0agrei\u00f0sluna var fyrir margt l\u00f6ngu farin a\u00f0 da\u00f0ra vi\u00f0 fasisma. Og m\u00e9r s\u00fdnist \u00e1 netinu a\u00f0 ekki s\u00e9 h\u00fan enn b\u00fain \u00fear sem j\u00e1-arar og nei-arar munnh\u00f6ggvast n\u00fa sem aldrei fyrr.<\/p>\n<p>En n\u00fa er ni\u00f0ursta\u00f0an komin og vi\u00f0 hana ver\u00f0ur a\u00f0 una. Vi\u00f0 rekum \u00fe\u00e1 m\u00e1li\u00f0 fyrir d\u00f3mst\u00f3lum og sj\u00e1um hva\u00f0 setur. \u00c9g vona bara a\u00f0 \u00cdslendingar hafi \u00feroska til a\u00f0 axla \u00e1byrg\u00f0 s\u00edna \u00feegar \u00fear a\u00f0 kemur og l\u00e1ta af \u00feessum heimskulega f\u00fakyr\u00f0aflaumi \u00e1 b\u00e1\u00f0a b\u00f3ga. Hvorugur helmingur \u00feessarar klofnu \u00fej\u00f3\u00f0ar m\u00e1 segja \u201etold you so\u201c \u00feegar endanleg ni\u00f0ursta\u00f0a liggur fyrir. \u00de\u00e1 skulum vi\u00f0 \u00ed eitt skipti fyrir \u00f6ll taka h\u00f6ndum saman, halda kjafti og borga helv\u00edtis reikninginn. \u00c9g vona a\u00f0 sem flestir geti veri\u00f0 samm\u00e1la um \u00fea\u00f0.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00c9g ber mikla vir\u00f0ingu fyrir \u00feeirri prins\u00edpsko\u00f0un a\u00f0 \u00cdslendingum beri yfirh\u00f6fu\u00f0 ekki a\u00f0 grei\u00f0a skuldir einkafyrirt\u00e6kja (\u00fe\u00f3 er deilt um hvort \u00fea\u00f0 s\u00e9 tilfelli\u00f0 h\u00e9r), og var sj\u00e1lfur \u00feeirrar sko\u00f0unar fyrst eftir hrun. Afsta\u00f0a m\u00edn breyttist s\u00ed\u00f0ar og \u00fe\u00e1 fyrst og fremst af pragmat\u00edskum \u00e1st\u00e6\u00f0um \u2013 au\u00f0vita\u00f0 \u00e1 almenningur ekki a\u00f0 borga skuldir einkafyrirt\u00e6kja, en &hellip; <a href=\"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/2011\/04\/10\/huglei%c3%b0ingar-um-urslitin\/\" class=\"more-link\">Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa: <span class=\"screen-reader-text\">Huglei\u00f0ingar um \u00farslitin<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":3,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[7,12,21],"tags":[],"class_list":["post-3563","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-fjolmilar","category-kreppan","category-politik"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/3563","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/users\/3"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3563"}],"version-history":[{"count":3,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/3563\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":13827,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/3563\/revisions\/13827"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3563"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=3563"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=3563"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}