{"id":3569,"date":"2011-04-19T18:48:17","date_gmt":"2011-04-19T18:48:17","guid":{"rendered":"http:\/\/kaninka.net\/arngrimurv\/?p=3569"},"modified":"2019-01-01T13:37:04","modified_gmt":"2019-01-01T13:37:04","slug":"tad-sem-sanna-atti","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/2011\/04\/19\/tad-sem-sanna-atti\/","title":{"rendered":"\u00dea\u00f0 sem sanna \u00e1tti"},"content":{"rendered":"<p><a href=\"http:\/\/i2-images1.tv2net.dk\/s\/69\/23006669-d42c414e5dddc22f6791a852e7303a3b.jpeg\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" src=\"http:\/\/i2-images1.tv2net.dk\/s\/69\/23006669-d42c414e5dddc22f6791a852e7303a3b.jpeg\" width=\"280\" height=\"200\" alt=\"\" align=\"left\" border=\"0\" hspace=\"4\" vspace=\"4\"\/><\/a>Taugaskur\u00f0l\u00e6knirinn Milena Penkowa hefur miki\u00f0 veri\u00f0 \u00e1 s\u00ed\u00f0um bla\u00f0anna og milli tannanna \u00e1 f\u00f3lki \u00ed Danm\u00f6rku undanfarin misseri. H\u00fan var vonarstjarna danska fr\u00e6\u00f0aheimsins, hampa\u00f0 sem snillingnum sem \u00fatr\u00fdma myndi krabbameini \u00far heiminum, t\u00e1knmynd hinnar frj\u00e1lsu Danmerkur og hennar d\u00fdr\u00f0lega menntakerfis, og s\u00f6nnun \u00feess a\u00f0 konur \u2013 af \u00fatlendum \u00e6ttum hvorki meira n\u00e9 minna \u2013 g\u00e6tu h\u00e9r uppskori\u00f0 eins r\u00edkulega og hv\u00edtir, danskir karlar. \u00dev\u00ed fer alls ekki fjarri a\u00f0 Penkowa hafi \u00ed einhverjum skilningi veri\u00f0 br\u00faku\u00f0 sem \u00e1tylla fyrir ni\u00f0urrifi menntakerfisins \u00ed skugga reykmetta\u00f0ra bakherbergja og sk\u00e1lkaskj\u00f3l fyrir mannfjandsamlega stefnu stj\u00f3rnvalda \u00ed gar\u00f0 innflytjenda, sem d\u00e6mi sem alh\u00e6fa m\u00e6tti \u00fafr\u00e1 me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 benda \u00e1 \u2013 \u00fea\u00f0 sem sanna \u00e1tti.<\/p>\n<blockquote><p>\u201eSj\u00e1i\u00f0 bara Milenu Penkowu! H\u00fan er \u00fatlensk, d\u00f6kk \u00ed \u00feokkab\u00f3t, og h\u00fan er kona (\u00fe\u00e1 fyrst skiptir m\u00e1li a\u00f0 benda \u00e1 konu \u00feegar brei\u00f0a \u00fearf yfir fjarveru kvenna annarssta\u00f0ar, m\u00e6lskubrag\u00f0 sem \u00fdmsum er ekki s\u00ed\u00f0ur tamt \u00e1 \u00cdslandi og nefna m\u00e6tti \u201ehic femina est-r\u00f6kin\u201c). \u00cd ofan\u00e1lag er h\u00fan fram\u00farskarandi v\u00edsindama\u00f0ur sem f\u00e6r millj\u00f3nastyrki \u00e1 anna\u00f0 eins ofan. Vi\u00f0 h\u00f6tum ekki \u00fatlendinga h\u00e9r, e\u00f0a konur, og allir hafa j\u00f6fn t\u00e6kif\u00e6ri \u00ed Danm\u00f6rku. Q.e.d.\u201c<\/p><\/blockquote>\n<p>Vegna \u00feess hversu afgerandi undantekning h\u00fan var fr\u00e1 norminu var f\u00e1tt mikilv\u00e6gara en a\u00f0 gera sem mest \u00far framandi uppruna hennar, en \u00fe\u00e1 gleymdist v\u00edst a\u00f0 nefna a\u00f0 Penkowa er f\u00e6dd \u00ed \u00d3\u00f0insv\u00e9um undir nafninu Milena Pedersen. H\u00fan er \u00fev\u00ed t\u00e6past miki\u00f0 meiri \u00fatlendingur en H.C. Andersen.<\/p>\n<p>Lesendur geta \u00fev\u00ed r\u00e9tt \u00edmynda\u00f0 s\u00e9r hversu s\u00e1rgr\u00e6tilegt \u00fea\u00f0 var fyrir stu\u00f0ningsmenn hennar \u00ed stj\u00f3rnm\u00e1last\u00e9tt (af \u00fev\u00ed f\u00e1tt er mikilv\u00e6gara v\u00edsindunum en \u00e1r\u00f3\u00f0ursendinn \u00e1 ret\u00f3r\u00edk), og h\u00e1sk\u00f3lasamf\u00e9lagi\u00f0 allt, \u00feegar \u00ed lj\u00f3s kom a\u00f0 Milena Penkowa er svikahrappur og skottul\u00e6knir af verstu sort. \u00c1ri\u00f0 1998 hlaut h\u00fan cand. med. fr\u00e1 Kaupmannahafnarh\u00e1sk\u00f3la, a\u00f0eins 25 \u00e1ra g\u00f6mul. Tveim \u00e1rum s\u00ed\u00f0ar var h\u00fan r\u00e1\u00f0in vi\u00f0 sk\u00f3lann sem a\u00f0junkt og \u00e1ri\u00f0 2002 sem lektor. \u00c1ri s\u00ed\u00f0ar skila\u00f0i h\u00fan inn doktorsritger\u00f0 \u00ed taugaskur\u00f0l\u00e6knisfr\u00e6\u00f0i, \u00fe\u00e1 \u00fer\u00edtug a\u00f0 aldri. \u00dea\u00f0 er gr\u00ed\u00f0arlegt afrek hj\u00e1 svo ungri manneskju og er nokku\u00f0 sem flestir a\u00f0 \u00e9g hyg\u00f0i settu strax spurningamerki vi\u00f0. Og vissulega vakti ranns\u00f3kn Penkowu strax upp \u00fdmsar spurningar, til d\u00e6mis \u00fe\u00f3ttu ni\u00f0urst\u00f6\u00f0ur hennar \u00f3tr\u00faver\u00f0ugar, og \u00fe\u00e1 \u00fe\u00f3tti doktorsnefndinni gr\u00ed\u00f0arlega \u00f3l\u00edklegt a\u00f0 h\u00fan hef\u00f0i gert ranns\u00f3knir \u00e1 hvorki meira n\u00e9 minna en 750 rottum (e\u00f0lilegur fj\u00f6ldi rotta fyrir samb\u00e6rilega ranns\u00f3kn er milli 50 og 60), og ba\u00f0 \u00fev\u00ed nefndin um \u00f6ll vi\u00f0eigandi g\u00f6gn \u00e1samt opinberum leyfum og kvittunum. \u00deau g\u00f6gn sem svo b\u00e1rust voru ekki vottu\u00f0 af vi\u00f0eigandi a\u00f0ilum og \u00fe\u00f3tti nefndinni \u00feau \u00e1 allan h\u00e1tt grunsamleg og \u00f3tr\u00faver\u00f0ug. Ritger\u00f0in var \u00ed kj\u00f6lfari\u00f0 d\u00e6md marklaus og henni hafna\u00f0 til doktorsvarnar \u2013 sem \u00ed sj\u00e1lfu s\u00e9r er f\u00e1heyrt.<\/p>\n<p>\u00cd br\u00e9fi nokkru s\u00ed\u00f0ar til \u00fe\u00e1verandi skorarformanns Heilbrig\u00f0isv\u00edsindadeildar Kaupmannahafnarh\u00e1sk\u00f3la (og n\u00faverandi rektors hans), Ralfs Hemmingsen, vegna \u00farskur\u00f0ar doktorsnefndarinnar, l\u00fdsti Penkowa \u00fev\u00ed yfir a\u00f0 h\u00fan hef\u00f0i ekki haft f\u00e6ri \u00e1 a\u00f0 svara doktorsnefndinni fyrr \u00fearsem h\u00fan hef\u00f0i misst foreldra s\u00edna og systur \u00ed b\u00edlslysi \u00ed Belg\u00edu, og \u00fev\u00ed vari\u00f0 miklum t\u00edma undanfari\u00f0 \u00e1 sj\u00fakrah\u00fasinu og \u00ed kj\u00f6lfari\u00f0 \u00ed \u00fatf\u00f6r \u00feeirra. Penkowa hafna\u00f0i gagnr\u00fdni nefndarinnar og Hemmingsen skarst \u00fe\u00e1 \u00f3v\u00e6nt \u00ed leikinn og fyrirskipa\u00f0i a\u00f0 \u00f3h\u00e1\u00f0ir a\u00f0ilar skyldu fara yfir ranns\u00f3knina og \u00e1litsger\u00f0 doktorsnefndarinnar. L\u00f6gfr\u00e6\u00f0ingur Penkowu (l\u00f6gfr\u00e6\u00f0ingar eru nefnilega standard \u00fatb\u00fana\u00f0ur allra doktorsnema) f\u00e9kk \u00ed samr\u00e1\u00f0i vi\u00f0 hana a\u00f0 r\u00e1\u00f0a hverjir \u00feeir \u00f3h\u00e1\u00f0u a\u00f0ilar yr\u00f0u, og b\u00fai\u00f0 var svo um hn\u00fatana a\u00f0 \u00feeir fengju ekki a\u00f0gang a\u00f0 \u00f6llum nau\u00f0synlegum g\u00f6gnum, til a\u00f0 mynda heildar\u00fatg\u00e1fu ritger\u00f0arinnar, svo \u00feeir k\u00e6must \u00f6rugglega a\u00f0 annarri ni\u00f0urst\u00f6\u00f0u en doktorsnefndin \u2013 sem \u00feeir og ger\u00f0u.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 er komi\u00f0 \u00e1 daginn a\u00f0 Hemmingsen f\u00f3r sj\u00e1lfur yfir g\u00f6gnin og gaf gr\u00e6nt lj\u00f3s \u00e1 sk\u00fdrsluna \u00e1n \u00feess a\u00f0 hafa anna\u00f0 \u00ed h\u00f6ndunum en nafn \u00e1 dularfullu einkafyrirt\u00e6ki \u00e1 Sp\u00e1ni sem framkv\u00e6mt \u00e1tti a\u00f0 hafa ranns\u00f3knir \u00e1 \u00feeim gr\u00ed\u00f0arlega fj\u00f6lda rotta sem \u00fat af st\u00f3\u00f0u \u00ed reikningum Penkowu. Fyrir tilstilli skorarformanns var \u00fev\u00ed falli\u00f0 fr\u00e1 st\u00f3ra rottum\u00e1linu og bl\u00e1si\u00f0 \u00e1 a\u00f0rar efasemdir doktorsnefndarinnar. Penkowa var\u00f0i ritger\u00f0ina og \u00fatskrifa\u00f0ist sem dr. med. \u00e1ri\u00f0 2006. Hemmingsen fannst hinsvegar ekkert undarlegt vi\u00f0 \u00fea\u00f0 \u00feegar hann skr\u00e1\u00f0i hina l\u00e1tnu foreldra Penkowu \u00e1 bo\u00f0slista varnarinnar og spjalla\u00f0i vi\u00f0 \u00feau \u00ed m\u00f3tt\u00f6kunni eftir \u00e1.<\/p>\n<p>\u00c1ri eftir doktorsv\u00f6rnina barst erindi inn \u00e1 bor\u00f0 Hemmingsens, sem \u00fe\u00e1 var or\u00f0inn rektor h\u00e1sk\u00f3lans. \u00der\u00edr nemendur Penkowu h\u00f6f\u00f0u fari\u00f0 \u00e1 fund pr\u00f3fessors vi\u00f0 deildina vegna \u00feess a\u00f0 \u00f3m\u00f6gulegt reyndist a\u00f0 endurtaka ranns\u00f3knir hennar me\u00f0 s\u00f6mu ni\u00f0urst\u00f6\u00f0um og a\u00f0 h\u00e1\u00f0um s\u00f6mu skilyr\u00f0um, sem er grundvallaratri\u00f0i \u00ed \u00f6llum v\u00edsindum, og n\u00fa f\u00e9ll \u00fea\u00f0 \u00ed skaut hins vilhalla rektors \u00e1n \u00feess a\u00f0 undan \u00fev\u00ed yr\u00f0i komist a\u00f0 senda erindi\u00f0 \u00e1fram til ranns\u00f3knarnefndar. Nefndin \u00farskur\u00f0a\u00f0i a\u00f0 Penkowa hef\u00f0i gerst sek um alvarleg brot \u00e1 v\u00edsindalegum vinnubr\u00f6g\u00f0um. Ni\u00f0urst\u00f6\u00f0ur nefndarinnar f\u00f3ru \u00fe\u00f3 aldrei fyrir almenning, st\u00f3rfelldar falsanir Penkowu voru aldrei tilkynntar og h\u00fan var hvorki k\u00e6r\u00f0 fyrir alvarleg afgl\u00f6p \u00ed starfi n\u00e9 svipt gr\u00e1\u00f0unni. Fyrir sakir rektors, sem hafna\u00f0i \u00f6llum \u00e1s\u00f6kunum \u00ed hennar sta\u00f0.<\/p>\n<p>2008 var Milena Penkowa \u00e1k\u00e6r\u00f0 fyrir fj\u00e1rdr\u00e1tt, og v\u00edsa\u00f0i h\u00fan \u00e1k\u00e6runni \u00e1 bug en \u00e1saka\u00f0i nemanda sinn \u00ed sta\u00f0inn um a\u00f0 hafa stoli\u00f0 fj\u00e1rmununum, og s\u00fdndi undirritu\u00f0 g\u00f6gn me\u00f0 hans nafni \u00fev\u00ed til sta\u00f0festingar. Nemandinn var \u00ed kj\u00f6lfari\u00f0 handtekinn en gat flj\u00f3tlega sanna\u00f0 a\u00f0 hann hef\u00f0i ekkert me\u00f0 m\u00e1li\u00f0 a\u00f0 gera, enda h\u00f6f\u00f0u engar sl\u00edkar peningatilf\u00e6rslur \u00e1tt s\u00e9r sta\u00f0 \u00e1 reikningnum hans, svo lj\u00f3st var a\u00f0 Penkowa var ekki einungis sek um fj\u00e1rdr\u00e1tt, heldur einnig um skjalafals og falskar \u00e1sakanir. Nemandinn vildi \u00ed kj\u00f6lfari\u00f0 vita hvernig Penkowa f\u00e9kk uppl\u00fdsingar um bankareikningsn\u00famer sitt fr\u00e1 h\u00e1sk\u00f3lanum, en f\u00e9kk ekkert svar. \u00deegar \u00e1k\u00e6ra \u00e1tti Penkowu vegna \u00feess m\u00e1ls og annarra, beiddist Kaupmannahafnarh\u00e1sk\u00f3li \u00feess a\u00f0 m\u00e1lin yr\u00f0u heldur l\u00e1tin ni\u00f0ur falla. \u00cd \u00f6llum m\u00e1lum sem Penkowa hefur veri\u00f0 vi\u00f0ri\u00f0in gegnum \u00e1rin hefur Hemmingsen vari\u00f0 hana.<\/p>\n<p>\u00c1ri\u00f0 2009 var h\u00fan loks ger\u00f0 a\u00f0 pr\u00f3fessor vi\u00f0 h\u00e1sk\u00f3lann. Sama \u00e1r hlaut h\u00fan EliteForsk-ver\u00f0launin upp \u00e1 1.1 millj\u00f3n danskra kr\u00f3na, \u00fe\u00f3 ekki nema fyrir \u00edhlutun Helge Sander, \u00fe\u00e1verandi menntam\u00e1lar\u00e1\u00f0herra, og Ralf Hemmingsen, rektors, sem settu mikinn \u00fer\u00fdsting \u00e1 a\u00f0 h\u00fan hlyti \u00feau. \u00cd fyrra sprakk \u00feetta svo framan \u00ed alla hluta\u00f0eigandi.<\/p>\n<p>\u00cd mars 2010 var Milena Penkowa svipt pr\u00f3fessorsst\u00f6\u00f0u sinni \u00e1 grundvelli \u00e1k\u00e6ru r\u00edkissaks\u00f3knara \u00e1 hendur henni, vegna m\u00e1ls sem Kaupmannahafnarh\u00e1sk\u00f3li haf\u00f0i fulla vitneskju um tveimur \u00e1rum \u00e1\u00f0ur \u2013 sems\u00e9, \u00e1\u00f0ur en h\u00fan var fyrir spillingu \u00fatnefnd pr\u00f3fessor og \u00e1\u00f0ur en h\u00fan fyrir spillingu hlaut EliteForsk-ver\u00f0launin \u2013 en sk\u00f3linn, \u00fea\u00f0 er rektor, s\u00e1 s\u00e9r ekki f\u00e6rt a\u00f0 a\u00f0hafast neitt \u00e1 \u00feeim t\u00edma. Helge Sander, sem \u00fe\u00e1 haf\u00f0i l\u00e1ti\u00f0 af st\u00f6rfum sem menntam\u00e1lar\u00e1\u00f0herra, hringdi \u00ed kj\u00f6lfari\u00f0 \u00ed skorarformann Heilbrig\u00f0isv\u00edsindadeildarinnar, Ulle Wewer, og t\u00edttnefndan rektor, Ralf Hemmingsen, til a\u00f0 \u00fer\u00fdsta \u00e1 a\u00f0 m\u00e1li\u00f0 yr\u00f0i l\u00e1ti\u00f0 ni\u00f0ur falla. \u00de\u00e1 k\u00e6r\u00f0i Penkowa brottvikninguna til d\u00f3msm\u00e1lar\u00e1\u00f0uneytisins og Sander lag\u00f0i sitt af m\u00f6rkum til a\u00f0 \u00fer\u00fdsta \u00e1 Lars Barfoed, d\u00f3msm\u00e1lar\u00e1\u00f0herra, a\u00f0 leysa grei\u00f0lega \u00far m\u00e1linu. Hvers vegna var \u00feetta svo miki\u00f0 kappsm\u00e1l? Vegna alls \u00feess sem stj\u00f3rnv\u00f6ld og h\u00e1sk\u00f3lasamf\u00e9lagi\u00f0 h\u00f6f\u00f0u fj\u00e1rfest \u00ed henni, vegna alls \u00feess \u00fev\u00e6ttings sem h\u00fan var notu\u00f0 til a\u00f0 representera, og \u00feegar menn eru komnir \u00f6kkladj\u00fapt \u00ed fl\u00f3rinn eiga \u00feeir til a\u00f0 velta s\u00e9r enn frekar upp\u00far honum \u00ed von um a\u00f0 \u00fea\u00f0 finni \u00fe\u00e1 enginn \u00ed haugnum.<\/p>\n<p>Ekki batna\u00f0i sirkusinn \u00feegar s\u00e1 kvittur komst \u00e1 kreik a\u00f0 ekki a\u00f0eins hef\u00f0i Penkowa \u00e1tt \u00ed n\u00e1num kynnum vi\u00f0 rektor, heldur einnig vi\u00f0 \u00e1\u00f0urnefndan fyrrum menntam\u00e1lar\u00e1\u00f0herra og \u00fdmsa a\u00f0ra r\u00e1\u00f0uneytisstarfsmenn sem beitt h\u00f6f\u00f0u s\u00e9r fyrir framgangi hennar innan h\u00e1sk\u00f3lasamf\u00e9lagsins. \u00deessu hafa \u00feau \u00f6ll sta\u00f0fastlega neita\u00f0. S\u00e9u \u00fe\u00e6r \u00e1sakanir \u00e1 r\u00f6kum reistar eykst enn vi\u00f0 \u00fe\u00e6r fj\u00f6lm\u00f6rgu v\u00edddir alvarleika \u00feessa m\u00e1ls, en hitt ver\u00f0ur a\u00f0 j\u00e1ta a\u00f0 \u00e1sakanir um sl\u00edkt eru or\u00f0nar a\u00f0 h\u00e1lfger\u00f0um standard \u00fear sem konur eiga \u00ed hlut. Fe\u00f0raveldi\u00f0 er nefnilega alveg sannf\u00e6rt um a\u00f0 konur komist ekki upp \u00e1 toppinn nema hann g\u00edni \u00ed gegnum raufina \u00e1 n\u00e6rbuxum. \u00cd st\u00e6rra samhengi m\u00e1lsins skiptir \u00fea\u00f0 hinsvegar litlu m\u00e1li; \u00fe\u00e1ttur hins opinbera \u00ed Penkowum\u00e1linu sk\u00e1nar ekkert hva\u00f0 sem \u00e1hr\u00e6rir hv\u00edlubr\u00f6g\u00f0 hluta\u00f0eigenda \u2013 sama hve st\u00edfir bla\u00f0amenn standa \u00ed einer\u00f0ni sinni.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 sem raunverulega skiptir m\u00e1li eru \u00fe\u00e6r umfangsmiklu lygar, falsanir og fj\u00e1rsvik sem Milena Penkowa hefur veri\u00f0 sta\u00f0in a\u00f0. \u00dea\u00f0 sem h\u00fan hefur gert stenst ekki einu sinni samanbur\u00f0 vi\u00f0 a\u00f0 hannesa heilu b\u00e6kurnar \u00fear sem ranns\u00f3knarni\u00f0urst\u00f6\u00f0ur hennar hafa ekki bara \u00e1hrif \u00e1 a\u00f0standendur Halld\u00f3rs Laxness, heldur hafa \u00fe\u00e6r bein \u00e1hrif \u00e1 l\u00edf krabbameinssj\u00faklinga og a\u00f0standenda \u00feeirra. Hennar eigin nemendur tilkynntu hana til h\u00e1sk\u00f3layfirvalda fyrir ranns\u00f3kn hennar \u00e1 eitilfrumukrabbameini, eftir a\u00f0 \u00feeir, l\u00edkt og a\u00f0rir nemendur hennar \u00e1\u00f0ur, sem sag\u00f0i, reyndu a\u00f0 endurtaka ranns\u00f3knina en fengu allt a\u00f0rar ni\u00f0urst\u00f6\u00f0ur. \u00dea\u00f0 mun taka fram \u00ed ma\u00ed n\u00e6stkomandi a\u00f0 leggja mat \u00e1 ranns\u00f3knarvinnu hennar, en allt bendir til \u00feess a\u00f0 h\u00fan hafi v\u00edsvitandi hagr\u00e6tt ni\u00f0urst\u00f6\u00f0um. \u00cd br\u00e9fi \u00farskur\u00f0arnefndar til skorarformanns Heilbrig\u00f0isv\u00edsindadeildar segir a\u00f0 svo gr\u00f3flega hafi h\u00fan sv\u00edvirt v\u00edsindaleg vinnubr\u00f6g\u00f0 og falsa\u00f0 ni\u00f0urst\u00f6\u00f0ur a\u00f0 \u00fea\u00f0 r\u00e9ttl\u00e6ti \u00e6vilanga brottvikningu fr\u00e1 sk\u00f3lanum. \u00de\u00e1 hefur komi\u00f0 \u00ed lj\u00f3s a\u00f0 ranns\u00f3knarstyrkir hennar, \u00e1samt EliteForsk-ver\u00f0laununum, hafa a\u00f0 mestu fari\u00f0 \u00ed fer\u00f0al\u00f6g, veitingasta\u00f0i og h\u00fasgagnakaup, a\u00f0 \u00f3gleymdum m\u00e1lskostna\u00f0i gegn Kaupmannahafnarh\u00e1sk\u00f3la \u2013 h\u00e1sk\u00f3la sem var\u00f0 a\u00f0 gj\u00f6ra svo vel a\u00f0 endurgrei\u00f0a \u00fdmsa hennar styrki vegna misferlisins.<\/p>\n<p>Svo \u00fea\u00f0 sem sanna \u00e1tti, a\u00f0 meira\u00f0segja \u00fatlenskar konur g\u00e6tu komist til metor\u00f0a fyrir eigin ver\u00f0leika \u00ed hinu fullkomna og fr\u00e1b\u00e6ra danska menntakerfi, og sannarlega skara\u00f0 fram\u00far, vir\u00f0ist enn vera alveg jafn fjarri raunveruleikanum og \u00e1\u00f0ur. Milena Penkowa er ekki \u00fatlendingur, <a href=\"http:\/\/kaninka.net\/arngrimurv\/2010\/12\/14\/nasistinn-i-veislunni\/\">enda hafa \u00fatlendingar n\u00e6r engin t\u00e6kif\u00e6ri til menntunar \u00ed Danm\u00f6rku<\/a>. H\u00fan er a\u00f0 v\u00edsu kona, kona sem t\u00f3kst a\u00f0 svindla \u00e1 gj\u00f6rv\u00f6llu kerfinu \u00ed t\u00f3lf \u00e1r og jafnvel lengur, me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 manip\u00falera mi\u00f0aldra hv\u00edta karla \u2013 hina raunverulegu valdhafa, sems\u00e9 \u2013 og m\u00f6gulega selt sig \u00feeim \u00ed skiptum fyrir frama (nau\u00f0synlegt ferli hverju fe\u00f0raveldi). Og hva\u00f0 menntakerfi\u00f0 snertir \u00fe\u00e1 fyrir \u00fea\u00f0 fyrsta er auglj\u00f3st a\u00f0 \u00fev\u00ed hefur me\u00f0 vilja veri\u00f0 h\u00e6gt og b\u00edtandi sl\u00e1tra\u00f0 undanfarinn \u00e1ratug, ekki s\u00edst er \u00fea\u00f0 auglj\u00f3st \u00ed lj\u00f3si <a href=\"http:\/\/kaninka.net\/arngrimurv\/2010\/12\/31\/fimm-spor-til-afnams-mannrettinda-%E2%80%93-drog-a%C3%B0-ursogn-ur-al%C3%BEjo%C3%B0asamfelaginu\/\">n\u00fdlegra a\u00f0ger\u00f0a stj\u00f3rnvalda<\/a>. En framvinda Penkowum\u00e1lsins s\u00fdnir a\u00f0 h\u00e1sk\u00f3lasamf\u00e9lagi\u00f0 er ekki einu sinni \u00ed stakk b\u00fai\u00f0 lengur til a\u00f0 takast \u00e1 vi\u00f0 falsanir, f\u00fask og fj\u00e1rdr\u00e1tt \u2013 s\u00e9r \u00ed lagi ekki ef \u00fer\u00fdstingi m\u00e1 svo au\u00f0veldlega beita a\u00f0 ofan.<\/p>\n<p>M\u00e1li\u00f0 allt er hi\u00f0 p\u00ednlegasta, b\u00e6\u00f0i fyrir r\u00edkisstj\u00f3rnina og Kaupmannahafnarh\u00e1sk\u00f3la, og b\u00faast m\u00e1 vi\u00f0 \u00fev\u00ed eftir \u00fev\u00ed sem m\u00e1linu enn vindur fram a\u00f0 \u00fdmsir \u00f3nefndir \u00feurfi a\u00f0 segja af s\u00e9r vegna \u00feess. Ef m\u00e1li\u00f0 v\u00e6ri ekki allt svo \u00f3endanlega dapurlegt fylltist ma\u00f0ur ef til vill einhverri \u00fe\u00f3r\u00f0argle\u00f0i yfir \u00feessu kl\u00fa\u00f0ri \u00f6llusaman. En Danm\u00f6rk vir\u00f0ist eftir sem \u00e1\u00f0ur vera land sem hatar \u00fatlendinga, jafnan r\u00e9tt til menntunar og s\u00ed\u00f0ast en ekki s\u00edst konur. \u00dea\u00f0 er \u00fea\u00f0 sem sanna\u00f0 er, \u00fev\u00ed mi\u00f0ur.<\/p>\n<p><i>Birtist fyrst \u00e1 <a href=\"http:\/\/www.smugan.is\/pistlar\/fastir-pennar\/arngrimur-vidalin\/nr\/5624\">Smugunni<\/a> 6. apr\u00edl 2011.<\/i><\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Taugaskur\u00f0l\u00e6knirinn Milena Penkowa hefur miki\u00f0 veri\u00f0 \u00e1 s\u00ed\u00f0um bla\u00f0anna og milli tannanna \u00e1 f\u00f3lki \u00ed Danm\u00f6rku undanfarin misseri. H\u00fan var vonarstjarna danska fr\u00e6\u00f0aheimsins, hampa\u00f0 sem snillingnum sem \u00fatr\u00fdma myndi krabbameini \u00far heiminum, t\u00e1knmynd hinnar frj\u00e1lsu Danmerkur og hennar d\u00fdr\u00f0lega menntakerfis, og s\u00f6nnun \u00feess a\u00f0 konur \u2013 af \u00fatlendum \u00e6ttum hvorki meira n\u00e9 minna \u2013 g\u00e6tu &hellip; <a href=\"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/2011\/04\/19\/tad-sem-sanna-atti\/\" class=\"more-link\">Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa: <span class=\"screen-reader-text\">\u00dea\u00f0 sem sanna \u00e1tti<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":3,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[33,9,21],"tags":[],"class_list":["post-3569","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-feminismi","category-greinar","category-politik"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/3569","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/users\/3"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3569"}],"version-history":[{"count":3,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/3569\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":13828,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/3569\/revisions\/13828"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3569"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=3569"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=3569"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}