{"id":3627,"date":"2011-07-12T18:35:51","date_gmt":"2011-07-12T18:35:51","guid":{"rendered":"http:\/\/kaninka.net\/arngrimurv\/?p=3627"},"modified":"2019-01-01T13:37:06","modified_gmt":"2019-01-01T13:37:06","slug":"en-hun-var-svo-djarflega-kl%c3%a6dd","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/2011\/07\/12\/en-hun-var-svo-djarflega-kl%c3%a6dd\/","title":{"rendered":"En h\u00fan var svo djarflega kl\u00e6dd!"},"content":{"rendered":"<p><a href=\"http:\/\/images.sodahead.com\/polls\/001718507\/slut-walk-43777558406_xlarge.jpeg\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" src=\"http:\/\/images.sodahead.com\/polls\/001718507\/slut-walk-43777558406_xlarge.jpeg\" width=\"260\" height=\"170\" alt=\"\" align=\"left\" border=\"0\" hspace=\"4\" vspace=\"4\"\/><\/a>\u00dea\u00f0 er vi\u00f0tekinn skilningur margra a\u00f0 jafnr\u00e9tti hafi veri\u00f0 n\u00e1\u00f0 milli kynjanna, og \u00fev\u00ed s\u00e9 bar\u00e1tta fyrir jafnr\u00e9tti or\u00f0in a\u00f0 t\u00edmaskekkju \u2013 a\u00f0 sumar konur vilji \u201emeira jafnr\u00e9tti\u201c en a\u00f0rir eiga a\u00f0 nj\u00f3ta, einsog sv\u00ednin \u00e1 D\u00fdrab\u00e6; eiginleg kvenr\u00e9ttindi \u00ed sta\u00f0 mannr\u00e9ttinda \u2013 og svo \u00fatbreiddur er \u00feessi skilningur a\u00f0 upphafleg \u00feverst\u00e6\u00f0a Orwells hefur tapast \u00ed umr\u00e6\u00f0unni \u00feegar konum er jafna\u00f0 vi\u00f0 sv\u00edn, sem aftur er jafna\u00f0 vi\u00f0 fasista, sbr. hugtaki\u00f0 fem\u00ednasismi. Jafnr\u00e9tti er n\u00e1\u00f0, og samt \u00feurfa konur s\u00e9rstaklega a\u00f0 m\u00f3tm\u00e6la \u00fev\u00ed a\u00f0 orsakasamhengi s\u00e9 milli kynbundins ofbeldis og \u00feess hvernig \u00fe\u00e6r kl\u00e6\u00f0a sig. \u00dea\u00f0 er ekki s\u00edst merkilegt a\u00f0 \u00feeim sem helst er t\u00ed\u00f0r\u00e6tt um a\u00f0 banna skuli b\u00farkur, \u00fev\u00ed \u00fe\u00e6r s\u00e9u k\u00fagunart\u00f3l, skuli ekki finnast neitt athugavert vi\u00f0 \u00fe\u00e1 andst\u00e6\u00f0u k\u00fagun a\u00f0 konur sem kl\u00e6\u00f0i sig \u201edjarflega\u201c kalli eftir \u00fev\u00ed sj\u00e1lfar a\u00f0 \u00feeim s\u00e9 nau\u00f0ga\u00f0. Kannski er \u00fe\u00e1 ekki svo mikill munur \u00e1 islam\u00f3f\u00f3bum \u00cdslands og \u00feeim sem \u00feeir \u00f3ttast hva\u00f0 mest eftir allt saman. Kannski \u00e6ttu karlar bara a\u00f0 h\u00e6tta a\u00f0 p\u00e6la \u00ed \u00fev\u00ed hvernig konur kl\u00e6\u00f0a sig.<\/p>\n<p>Undirliggjandi r\u00f3t \u00feessarar \u00f6ndver\u00f0u \u00feverst\u00e6\u00f0u einsog h\u00fan n\u00fa er sett fram liggur \u00ed kjarna vestr\u00e6nnar menningar og \u00f3r\u00f6kstuddum \u00f3tta vi\u00f0 fyrirb\u00e6ri sem gjarnan er nefnt \u201ep\u00f3lit\u00edsk r\u00e9tthugsun\u201c. L\u00e1tum liggja \u00e1 milli hluta hvort \u00fea\u00f0 s\u00e9 p\u00f3lit\u00edsk r\u00e9tthugsun a\u00f0 vilja ekki vera nau\u00f0ga\u00f0, og hvort \u00fea\u00f0 s\u00e9 nau\u00f0synlega sl\u00e6m sort af r\u00e9tthugsun \u00ed sj\u00e1lfu s\u00e9r. \u00cd menningunni er nefnilega f\u00f3lginn \u00f3tti sem dansar \u00e1 egg tv\u00edeggja\u00f0s sver\u00f0s, \u00f3tti vi\u00f0 ford\u00f3ma og \u00e1\u00f0urnefnda r\u00e9tthugsun, og allt sem \u00fataf stendur \u00e1 hvorn b\u00f3ginn sem liti\u00f0 er til liggur handan gagnr\u00fdni nema s\u00e1 sem gagnr\u00fdnir vilji h\u00e6tta \u00e1 a\u00f0 teljast forpoka\u00f0ur.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 er ekki langt s\u00ed\u00f0an sj\u00f3nvarpsma\u00f0urinn S\u00f6lvi Tryggvason st\u00f6kk upp \u00e1 nef s\u00e9r af illskiljanlegu \u00f3\u00feoli gagnvart \u00edmynda\u00f0ri menningarel\u00edtu sem honum fannst hann vera kominn upp \u00e1 kant vi\u00f0, af \u00fev\u00ed hann haf\u00f0i skrifa\u00f0 b\u00f3k um J\u00f3n\u00ednu Benediktsd\u00f3ttur sem f\u00e9kk ekki alveg \u00fe\u00e6r vi\u00f0t\u00f6kur sem hann \u00e1tti von \u00e1. Hluti af v\u00f6rn hans var a\u00f0 hann teldi samspil milli l\u00e1gmenningar og h\u00e1menningar nau\u00f0synlegt, og nefndi \u00ed \u00fev\u00ed sambandi a\u00f0 hann hef\u00f0i b\u00e6\u00f0i Krishnamurti \u00e1 n\u00e1ttbor\u00f0inu s\u00ednu og <em>L\u00edfsleikni<\/em> Gillzeneggers.<\/p>\n<p>Eins skemmtilegt og \u00fea\u00f0 hl\u00fdtur a\u00f0 vera fyrir Gillzenegger a\u00f0 vera spyrt saman vi\u00f0 einhverja \u00f3skilgreinda l\u00e1gmenningu \u00fe\u00e1 hefur S\u00f6lvi rangt fyrir s\u00e9r. Gillzenegger er ekki l\u00e1gmenning. Menn sem upphefja sta\u00f0almyndir og \u00fdta undir kvenhatur dagsdaglega eru ekki l\u00e1gmenning fyrir menningarel\u00edtu a\u00f0 meta \u00e1 vogarsk\u00e1lunum s\u00f6trandi frey\u00f0iv\u00edn; ma\u00f0ur sem stingur upp \u00e1 a\u00f0 nau\u00f0ga fem\u00ednistum er ekki \u00ferepi lakari \u00e1 menningarkvar\u00f0anum en s\u00e1 sem stingur upp \u00e1 \u00e1starleik me\u00f0 k\u00e6rustunni, einsog einskonar R\u00f3me\u00f3 f\u00e1t\u00e6ka mannsins. Hann er \u00fevert \u00e1 m\u00f3ti pers\u00f3na sem endurspeglar viss vi\u00f0horf \u00ed samf\u00e9laginu \u00e1 sl\u00edkan h\u00e1tt sem ekki m\u00e1 gagnr\u00fdna \u00e1n \u00feess a\u00f0 vekja upp \u00falf\u00fa\u00f0 hj\u00e1 \u00feeim sem \u00f3ttast p\u00f3lit\u00edska r\u00e9tthugsun meir en nokku\u00f0 anna\u00f0. \u201e\u00deetta er n\u00fa meiri p\u00f3lit\u00edska r\u00e9tthugsunin, s\u00e9r\u00f0u ekki a\u00f0 Gillzenegger er par\u00f3d\u00eda?\u201c er gjarnan sagt. En \u00feau vi\u00f0horf sem Gillzenegger endurspeglar eru raunveruleg, og \u00feau eru alvarleg. \u00deau birtast me\u00f0al annars \u00ed fr\u00e9ttaflutningi DV af J\u00f3ni st\u00f3ra, sem komst svo a\u00f0 or\u00f0i \u00e1 Facebooks\u00ed\u00f0u sinni:<\/p>\n<p> &#8222;er \u00fea\u00f0 a\u00f0 gefa manni sm\u00e1 clue a\u00f0 k\u00e6rastan s\u00e9 of ung ef h\u00fan tekur nammi\u00f0 \u00fat \u00far s\u00e9r og geymir \u00e1 maganum \u00e1 manni me\u00f0an h\u00fan gefur manni blowjob??:D&#8220;<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 er f\u00f3lk til sem heldur \u00ed hei\u00f0ri s\u00f6mu vi\u00f0horf og Gillzenegger setur fram, hvort sem \u00fea\u00f0 er gert \u00ed gr\u00edni e\u00f0a ekki, og fyrir viki\u00f0 ver\u00f0ur hann sem fj\u00f6lmi\u00f0laf\u00edg\u00fara ekki a\u00f0eins fyrirmynd \u00feeirra, heldur einnig \u00feeirra \u00f3h\u00f6r\u00f0nu\u00f0u ungmenna sem hann helst vill h\u00f6f\u00f0a til \u2013 a\u00f0 eigin s\u00f6gn me\u00f0 r\u00e1\u00f0leggingum um hollan l\u00edfst\u00edl (nokku\u00f0 sem vekur upp fur\u00f0u \u00ed m\u00ednu p\u00f3lit\u00edskt r\u00e9tt\u00feenkjandi brj\u00f3sti). Ef r\u00e9tt v\u00e6ri me\u00f0 fari\u00f0 v\u00e6ri \u00feetta kannski \u00ed einhverjum skilningi fyndi\u00f0, en a\u00f0 tileinka s\u00e9r n\u00e1kv\u00e6mlega s\u00f6mu or\u00f0r\u00e6\u00f0u \u2013 ef \u00fea\u00f0 er \u00fe\u00e1 yfirh\u00f6fu\u00f0 tilfelli\u00f0 a\u00f0 \u00feetta eigi a\u00f0 vera fyndi\u00f0 \u2013 er \u00fea\u00f0 ekki.<\/p>\n<p>\u00c1 d\u00f6gunum rifja\u00f0i Dr\u00edfa Sn\u00e6dal <a href=\"http:\/\/www.kaninka.net\/drifa\/?p=114\">upp gamla bloggf\u00e6rslu eftir Gillzenegger<\/a> \u00fear sem hann segir a\u00f0:<\/p>\n<blockquote><p>&#8222;\u00deegar feministar ver\u00f0a of \u00e1berandi \u00ed fj\u00f6lmi\u00f0lum hefur \u00e1vallt virka\u00f0 a\u00f0 kalla til \u00c1sgeir Kolbeinsson til \u00feess a\u00f0 gefa \u00feessum lei\u00f0inda rau\u00f0sokkum einn gran\u00edthar\u00f0an \u00ed h\u00e1ruga b\u00edlsk\u00farinn til \u00feess a\u00f0 \u00feagga ni\u00f0ur \u00ed \u00feeim.<\/p>\n<p>Dr\u00edfa Sn\u00e6dal f\u00f3r mikinn \u00ed Kastlj\u00f3sinu \u00e1 d\u00f6gunum \u00fear sem h\u00fan sat \u00e1 m\u00f3ti Agli Helgasyni og reyndi a\u00f0 r\u00edfa kjaft. Aldrei hefur kvenma\u00f0ur misst jafn miki\u00f0 magn af saur \u00ed Kastlj\u00f3sinu \u00e1\u00f0ur.<\/p>\n<p>Kolbr\u00fan [Halld\u00f3rsd\u00f3ttir] hefur aldrei fengi\u00f0 stifan lim og \u00fev\u00ed hefur Fr\u00e9ttastofan \u00e1kve\u00f0i\u00f0 a\u00f0 senda \u00c1sgeir, Jamal, Buka og Yao alla \u00ed \u00feetta verkefni. Kolbr\u00fan toppa\u00f0i sj\u00e1lfa sig \u00ed lei\u00f0indum \u00feegar h\u00fan stakk upp \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 n\u00fdf\u00e6dd b\u00f6rn yr\u00f0u ekki sett \u00ed bl\u00e1 e\u00f0a bleik f\u00f6t. Kolbr\u00fan er \u00ed fullri vinnu vi\u00f0 a\u00f0 vera \u00f3\u00feolandi og tala me\u00f0 rassgatinu og \u00fea\u00f0 er kominn t\u00edmi til a\u00f0 \u00feagga ni\u00f0ur \u00ed henni endanlega og munu \u00feessir herramenn sem Fr\u00e9ttastofan taldi upp \u00e1\u00f0an fylla hana eins og h\u00e1t\u00ed\u00f0arkalk\u00fan. \u00dea\u00f0 mun vonandi vera til \u00feess a\u00f0 h\u00fan steingrj\u00f3thaldikjafti og fari a\u00f0 haga s\u00e9r.<\/p>\n<p>Steinunn [Vald\u00eds \u00d3skarsd\u00f3ttir] er portkonan sem vildi breyta or\u00f0inu r\u00e1\u00f0herra \u00ed r\u00e1\u00f0fr\u00fa fyrir konur. Steinunn \u00fearf lim og \u00fea\u00f0 strax. \u00c1 hana Steinunni Vald\u00edsi dugar ekkert anna\u00f0 en l\u00e1gmark tveir har\u00f0ir og munu Buka og Yao taka \u00feetta verkefni a\u00f0 s\u00e9r. Fr\u00e9ttastofan \u00e1kva\u00f0 a\u00f0 gefa \u00c1sgeiri Kolbeinssyni fr\u00ed \u00ed \u00feetta skipti\u00f0, en Fr\u00e9ttastofan vill ekki hafa \u00fea\u00f0 \u00e1 samviskunni a\u00f0 \u00c1sgeir finnist hangandi \u00ed lj\u00f3sakr\u00f3nu \u00ed vesturb\u00e6num.&#8220;<\/p>\n<p>Heimildarma\u00f0ur Fr\u00e9ttastofunnar vildi ekki koma undir nafni en hann haf\u00f0i \u00feetta a\u00f0 segja: \u201c\u00c9g hef aldrei s\u00e9\u00f0 anna\u00f0 eins, h\u00fan [Anna Margr\u00e9t Bj\u00f6rnsd\u00f3ttir] gengur um fyrirt\u00e6ki\u00f0 eins og mennsk Nilfisk ryksuga. H\u00fan er duglegri a\u00f0 ryksuga inni hj\u00e1 yfirm\u00f6nnunum en af og til ver\u00f0um vi\u00f0 str\u00e1karnir ni\u00f0ri lucky og h\u00fan \u201cryksugar\u201d okkur ef \u00fe\u00fa veist hva\u00f0 \u00e9g \u00e1 vi\u00f0.\u201d<\/p><\/blockquote>\n<p>\u00deessar athugasemdir eru allar skrifa\u00f0ar af sama manni og stakk upp \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 S\u00f3ley T\u00f3masd\u00f3ttir \u00feyrfti \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 halda a\u00f0 henni yr\u00f0i nau\u00f0ga\u00f0 duglega svo h\u00fan t\u00e6ki s\u00f6nsum og h\u00e6tti a\u00f0 vera svona bein\u00feurr kerling. \u00c1 s\u00f6mu n\u00f3tum eru athugasemdir kennara vi\u00f0 Flensborg, Baldurs Hermannssonar, \u00feegar hann sag\u00f0i \u00e1 bloggs\u00ed\u00f0u sinni a\u00f0 konur \u00fer\u00e1\u00f0u innst inni a\u00f0 l\u00e1ta nau\u00f0ga s\u00e9r. Hj\u00e1lmar Sveinsson vakti athygli \u00e1 \u00feessum <a href=\"http:\/\/blog.eyjan.is\/hjalmarsveinsson\/2011\/07\/01\/ofstaekisfull-kvenfyrirlitning\/\">s\u00f6mu umm\u00e6lum Gillzeneggers<\/a> \u00ed kj\u00f6lfar umfj\u00f6llunar Smugunnar um upprifjun Dr\u00edfu og <a href=\"http:\/\/www.smugan.is\/pistlar\/fastir-pennar\/nr\/6293\">opins br\u00e9fs Einars \u00d3lafssonar<\/a> til fyrirt\u00e6kisins J\u00e1 s\u00f6kum upphafningar \u00feeirra \u00e1 \u00feessum manni og \u00fearme\u00f0 \u00f3hj\u00e1kv\u00e6milega \u00e1 hans m\u00e1lflutningi, og uppskar gr\u00e1tk\u00f3r f\u00f3lks sem v\u00e6ndi hann um p\u00f3lit\u00edska r\u00e9tthugsun, vinstrimennsku og \u00fe\u00f6ggun \u2013 og enn a\u00f0rir s\u00f6g\u00f0u a\u00f0 hann v\u00e6ri l\u00e9legur borgarfulltr\u00fai \u2013 einsog nokku\u00f0 af \u00feessu k\u00e6mi m\u00e1linu vi\u00f0.<\/p>\n<p>\u00deegar menn einsog Gillzenegger hafa uppi vi\u00f0l\u00edka munns\u00f6fnu\u00f0 endurspegla \u00feeir raunveruleg vi\u00f0horf, til d\u00e6mis manna einsog Baldurs Hermannssonar, og \u00feegar svo er komi\u00f0 \u00fe\u00e1 er skammur vegur milli gr\u00edns og alv\u00f6ru. Fyrrum r\u00edkissaks\u00f3knari, Valt\u00fdr Sigur\u00f0sson, endur\u00f3ma\u00f0i \u00feessi vi\u00f0horf \u00ed fyrrahaust \u00feegar hann kenndi \u00e1fengisdrykkju brota\u00feola nau\u00f0gana um m\u00f6rg \u00feeirra tilfella sem k\u00e6r\u00f0 v\u00e6ru til l\u00f6greglu \u2013 \u00fev\u00ed \u00fea\u00f0 er einmitt algj\u00f6rlega \u00ed lagi a\u00f0 nau\u00f0ga konu ef h\u00fan er of drukkin til a\u00f0 verja sig, ef marka m\u00e1 m\u00e1lflutning hans. \u00c1 bloggs\u00ed\u00f0u einni skrifa\u00f0i svo s\u00ed\u00f0uhaldari um a\u00f0 \u00fea\u00f0 v\u00e6ri af sem \u00e1\u00f0ur var \u00feegar \u00dej\u00f3\u00f0h\u00e1t\u00ed\u00f0 \u00ed Eyjum snerist a\u00f0allega um a\u00f0 r\u00ed\u00f0a eins m\u00f6rgum konum og fundust dau\u00f0ar \u00e1 v\u00ed\u00f0avangi e\u00f0a \u00ed tj\u00f6ldum og unnt v\u00e6ri. Brandarinn er b\u00fainn. \u00deessi vi\u00f0horf eru raunveruleg, og \u00fea\u00f0 s\u00ed\u00f0asta sem umr\u00e6\u00f0an um jafnan r\u00e9tt kynjanna \u00fearf er fj\u00f6lmi\u00f0laf\u00edg\u00fara sem bergm\u00e1lar \u00feessi s\u00f6mu vi\u00f0horf einsog \u00feau s\u00e9u e\u00f0lileg.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 er \u00feess vegna sem bar\u00e1ttan er ekki b\u00fain. Jafnr\u00e9tti er hvergi n\u00e6rri n\u00e1\u00f0 me\u00f0an kvenfyrirlitning geisar um \u00ed samf\u00e9laginu einsog engisprettufaraldur og einasta bar\u00e1ttuf\u00f3lk fyrir j\u00f6fnum r\u00e9ttindum kynjanna er sm\u00e6tta\u00f0 ni\u00f0ur \u00f3m\u00e1lefnalega og tilraun er ger\u00f0 til a\u00f0 koma \u00feeim fyrir \u00e1 \u00feeirra r\u00e9tta sta\u00f0 \u2013 sj\u00e1lfsagt framan vi\u00f0 eldav\u00e9lina e\u00f0a \u00e1 framanver\u00f0um enda v\u00f6\u00f0vast\u00e6lts valmennis sem veit hva\u00f0 konum er fyrir bestu. Gillzenegger kann a\u00f0 vera par\u00f3d\u00eda, en hann stendur sig \u00f6llu betur \u00ed forystu fyrir \u00feann mi\u00f0aldahugsanah\u00e1tt sem r\u00e9ttl\u00e6tir misr\u00e9tti, kvenfyrirlitningu og nau\u00f0ganir \u2013 ekki einasta s\u00f6kum kl\u00e6\u00f0abur\u00f0ar \u2013 heldur fyrir sakir sko\u00f0ana einna saman.<\/p>\n<p>\u00c1 me\u00f0an konur geta ekki gengi\u00f0 um g\u00f6tur \u00f3hultar fyrir brj\u00e1l\u00e6\u00f0ingum sem halda a\u00f0 l\u00edkami \u00feeirra s\u00e9 musteri eigin karlmennsku er ekki unnt a\u00f0 taka sl\u00edkum m\u00e1lflutningi l\u00e9ttilega. \u00c1 me\u00f0an \u00feau vi\u00f0horf vi\u00f0gangast a\u00f0 konur s\u00e9u \u00e1 einhvern h\u00e1tt lakari en karlar, a\u00f0 \u00fe\u00e6r \u00feurfi bara \u201eeinn st\u00edfan\u201c ef \u00fe\u00e6r voga s\u00e9r a\u00f0 vera me\u00f0 kjaft, a\u00f0 kl\u00e6\u00f0abur\u00f0ur \u00feeirra \u201ekalli hreinlega \u00e1 nau\u00f0gun\u201c, \u00fe\u00e1 \u00e1 bar\u00e1ttan fyrir jafnr\u00e9tti enn langt \u00ed land a\u00f0 n\u00e1. \u00deess vegna er Druslugangan nau\u00f0synleg. Druslugangan er and\u00f3f gegn \u00feessum vi\u00f0teknu hugmyndum um konur sem leikfang til karlmannlegs br\u00faks eftir hentisemi.<\/p>\n<p>\u00deann 23. j\u00fal\u00ed n\u00e6stkomandi munu allir sem l\u00e1ta sig m\u00e1li\u00f0 var\u00f0a  m\u00f3tm\u00e6la \u00fev\u00ed a\u00f0 konur s\u00e9u hlutger\u00f0ar, ekki a\u00f0eins s\u00f6kum kl\u00e6\u00f0abur\u00f0ar sem gjarnan er or\u00f0a\u00f0 vi\u00f0 \u201edruslur\u201c \u2013 \u00fe\u00f3tt \u00fea\u00f0 s\u00e9 \u00fea\u00f0 sem s\u00e9rstaklega er bent \u00e1 h\u00e9r \u2013 heldur almennt og yfirh\u00f6fu\u00f0. \u00dea\u00f0 a\u00f0 enn s\u00e9 til f\u00f3lk sem r\u00e9ttl\u00e6tir nau\u00f0ganir og kynbundi\u00f0 ofbeldi, meira\u00f0segja innan r\u00e9ttarkerfisins, er n\u00e6gileg \u00e1st\u00e6\u00f0a til a\u00f0 spyrna f\u00f3tum vi\u00f0 og storka \u00fev\u00ed rotna hugarfari sem gegnums\u00fdrir \u00edslenskt \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9lag. Af \u00fev\u00ed tilefni munu \u00f6ll sem l\u00e1ta sig m\u00e1lefni\u00f0 var\u00f0a fylkja li\u00f0i \u201edruslulega kl\u00e6dd\u201c og ganga ni\u00f0ur Sk\u00f3lav\u00f6r\u00f0ust\u00edg, Bankastr\u00e6ti og Austurstr\u00e6ti, og hvet \u00e9g allar konur og karla til a\u00f0 taka s\u00e9r st\u00f6\u00f0u samhli\u00f0a og m\u00f3tm\u00e6la \u00f3jafnr\u00e9ttinu \u00ed samf\u00e9laginu me\u00f0 \u00feeim.<\/p>\n<p>\u00cd andm\u00e6lum vi\u00f0 \u00fe\u00e1 p\u00f3lit\u00edsku r\u00e9tthugsun hlj\u00f3tum \u00f6ll a\u00f0 v\u00e6nta \u00feess a\u00f0 Gillzenegger og f\u00e9lagar b\u00ed\u00f0i \u00e1 hli\u00f0arl\u00ednunni, tilb\u00fanir til a\u00f0 nau\u00f0ga \u00f6llu klabbinu svo \u00feeir f\u00e1i kv\u00f6ldmatinn sinn og daglega fulln\u00e6gju. M\u00e6tum \u00fev\u00ed \u00f6ll til a\u00f0 s\u00fdna \u00feeim a\u00f0 \u00feeirra vi\u00f0horf eiga ekki upp \u00e1 pallbor\u00f0i\u00f0 lengur. Nau\u00f0ganir eru gl\u00e6pur sem snertir okkur \u00f6ll, ekki a\u00f0eins konur, og hvernig f\u00f3lk kl\u00e6\u00f0ist er ekki afs\u00f6kun fyrir ofbeldi. Jafnr\u00e9tti ver\u00f0ur aldrei n\u00e1\u00f0 fyrren vi\u00f0 \u00fatr\u00fdmum \u00feeirri hugsun.<\/p>\n<p><em>&#8211; Birtist fyrst \u00e1 vefs\u00ed\u00f0u <a href=\"http:\/\/drusluganga.org\/index.php\/adsendar-greinar\/en-hun-var-svo-djarflega-klaedd\/\">Druslug\u00f6ngunnar \u00ed Reykjav\u00edk<\/a> \u00feann 3. j\u00fal\u00ed 2011.<\/em><\/p>\n<p>__________________________________<br \/>\n<small>Fleiri skrif hafa birst um efni\u00f0 \u00ed kj\u00f6lfar upprifjunar Dr\u00edfu:<\/p>\n<p>* Gu\u00f0mundur Andri Thorsson: <a href=\"http:\/\/www.visir.is\/ithrottasjalfurinn\/article\/2011707049973\">\u00cd\u00fer\u00f3ttasj\u00e1lfurinn<\/a>.<\/p>\n<p>* Yrsa \u00de\u00f6ll Gylfad\u00f3ttir: <a href=\"http:\/\/www.smugan.is\/pistlar\/adsendar-greinar\/nr\/6299\">Um h\u00famor, \u00edr\u00f3n\u00edu og fyrirb\u00e6ri\u00f0 Egil\/Gillz<\/a>.<\/p>\n<p>* Magn\u00fas Sveinn Helgason: <a href=\"http:\/\/blog.eyjan.is\/freedomfries\/2011\/07\/04\/af-andlegum-sjukleika-gillzenegger\/\">Af andlegum sj\u00fakleika Gillzenegger<\/a>.<\/p>\n<p>* Magn\u00fas Sveinn Helgason: <a href=\"http:\/\/blog.eyjan.is\/freedomfries\/2011\/07\/05\/naudganarorar-og-grin-gillzenegger\/\">Nau\u00f0gana\u00f3rar og gr\u00edn Gillzenegger<\/a>.<\/p>\n<p>* Magn\u00fas Sveinn Helgason: <a href=\"http:\/\/blog.eyjan.is\/freedomfries\/2011\/07\/09\/gillzeneggering-islenskra-karlmanna\/\">Gillzeneggering \u00edslenskra karlmanna<\/a>.<\/p>\n<p>* Sigurbj\u00f6rn: <a href=\"http:\/\/drusluganga.org\/index.php\/adsendar-greinar\/hraeddir-karlar-grinast\/\">Hr\u00e6ddir karlar gr\u00ednast<\/a>.<\/small><\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00dea\u00f0 er vi\u00f0tekinn skilningur margra a\u00f0 jafnr\u00e9tti hafi veri\u00f0 n\u00e1\u00f0 milli kynjanna, og \u00fev\u00ed s\u00e9 bar\u00e1tta fyrir jafnr\u00e9tti or\u00f0in a\u00f0 t\u00edmaskekkju \u2013 a\u00f0 sumar konur vilji \u201emeira jafnr\u00e9tti\u201c en a\u00f0rir eiga a\u00f0 nj\u00f3ta, einsog sv\u00ednin \u00e1 D\u00fdrab\u00e6; eiginleg kvenr\u00e9ttindi \u00ed sta\u00f0 mannr\u00e9ttinda \u2013 og svo \u00fatbreiddur er \u00feessi skilningur a\u00f0 upphafleg \u00feverst\u00e6\u00f0a Orwells hefur tapast &hellip; <a href=\"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/2011\/07\/12\/en-hun-var-svo-djarflega-kl%c3%a6dd\/\" class=\"more-link\">Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa: <span class=\"screen-reader-text\">En h\u00fan var svo djarflega kl\u00e6dd!<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":3,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[33,7,9,21],"tags":[],"class_list":["post-3627","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-feminismi","category-fjolmilar","category-greinar","category-politik"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/3627","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/users\/3"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3627"}],"version-history":[{"count":3,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/3627\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":13842,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/3627\/revisions\/13842"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3627"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=3627"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=3627"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}