{"id":3633,"date":"2011-07-17T23:31:58","date_gmt":"2011-07-17T23:31:58","guid":{"rendered":"http:\/\/kaninka.net\/arngrimurv\/?p=3633"},"modified":"2019-01-01T13:37:06","modified_gmt":"2019-01-01T13:37:06","slug":"greiningardeildin-hefur-svara%c3%b0","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/2011\/07\/17\/greiningardeildin-hefur-svara%c3%b0\/","title":{"rendered":"Greiningardeildin hefur svara\u00f0"},"content":{"rendered":"<p>S\u00e1 m\u00e6ti ma\u00f0ur Kristinn The\u00f3d\u00f3rsson <a href=\"http:\/\/www.andmenning.com\/?p=8863\">tilkynnti \u00e1 vefs\u00ed\u00f0u sinni<\/a> \u00ed g\u00e6rkv\u00f6ld a\u00f0 hann myndi \u00ed dag svara grein minni <i><a href=\"http:\/\/kaninka.net\/arngrimurv\/2011\/07\/12\/en-hun-var-svo-djarflega-kl%c3%a6dd\/\">En h\u00fan var svo djarflega kl\u00e6dd!<\/a><\/i> sem \u00e9g skrifa\u00f0i umbe\u00f0inn fyrir Druslug\u00f6nguna, og \u00fe\u00f3tti hei\u00f0ur a\u00f0. Raunar l\u00edkti hann skrifum m\u00ednum, eftir \u00fev\u00ed sem \u00e9g kemst n\u00e6st, vi\u00f0 t\u00f6lvuleikinn um Mariobr\u00e6\u00f0ur (af gullpeningal\u00edkingu Kristins helgast fyrirs\u00f6gnin h\u00e9r). Ekki st\u00f3\u00f0 \u00e1 efndum og <a href=\"http:\/\/www.andmenning.com\/?p=8871\">gagnr\u00fdnin<\/a> birtist fyrir sk\u00f6mmu. \u00c9g a\u00f0 sj\u00e1lfs\u00f6g\u00f0u fagna \u00feeirri umr\u00e6\u00f0u.<\/p>\n<p>N\u00fa \u00feekki \u00e9g Kristin ekki nema af afspurn, og af p\u00f3stlista f\u00e9lagsskapar sem vi\u00f0 b\u00e1\u00f0ir eitt sinn tilheyr\u00f0um. Af honum hef \u00e9g ekkert nema gott eitt spurt og vefs\u00ed\u00f0a hans hefur m\u00e9r gegnum t\u00ed\u00f0ina \u00fe\u00f3tt sta\u00f0festa allt \u00fea\u00f0 sem \u00e9g hef heyrt og s\u00e9\u00f0, a\u00f0 h\u00e9r s\u00e9 \u00e1 fer\u00f0inni r\u00f6kfastur og m\u00e1lefnalegur ma\u00f0ur me\u00f0 gr\u00ed\u00f0arlega \u00feolinm\u00e6\u00f0i til samr\u00e6\u00f0na, sama hversu galin vi\u00f0horf vi\u00f0m\u00e6lendur hans kunna a\u00f0 hafa. Upp \u00e1 s\u00ed\u00f0kasti\u00f0 hefur Kristinn fjalla\u00f0 talsvert um \u00fea\u00f0 sem honum finnst vera \u201e\u00f6fgafem\u00ednismi\u201c, og skoti\u00f0 v\u00ed\u00f0a \u00ed gagnr\u00fdni sinni. \u00c9g hef veri\u00f0 \u00f3samm\u00e1la Kristni \u00ed flestum atri\u00f0um \u00feeirrar umr\u00e6\u00f0u.<\/p>\n<p>Raunar hafa m\u00e9r \u00fe\u00f3tt allir deilua\u00f0ilar bera skar\u00f0an hlut fr\u00e1 bor\u00f0i, kannski ekki s\u00edst vegna \u00feess a\u00f0 enginn vir\u00f0ist tala sama tungum\u00e1li\u00f0 \u00feegar kemur a\u00f0 fem\u00ednisma, og eil\u00edft er h\u00f6ggvi\u00f0 \u00ed sama kn\u00e9runn. Engin samr\u00e6\u00f0a \u00e1 s\u00e9r sta\u00f0. Gagnr\u00fdni Kristins \u00e1 m\u00edn skrif vir\u00f0ist m\u00e9r vera sama marki brennd a\u00f0 \u00fev\u00ed leyti a\u00f0 \u00e9g tel hana vera \u00e1 misskilningi bygg\u00f0. Kristinn ver\u00f0ur \u00fe\u00f3 fr\u00e1leitt \u00e1saka\u00f0ur um a\u00f0 for\u00f0ast samr\u00e6\u00f0u, \u00fear sem hann sj\u00e1lfur efnir til hennar n\u00fa, en sl\u00edk samr\u00e6\u00f0a sem h\u00e9r er efnt til \u00fer\u00edfst \u00fe\u00e1 og \u00fev\u00ed a\u00f0eins a\u00f0 vilji beggja til a\u00f0 eiga \u00ed henni s\u00e9 til sta\u00f0ar; sl\u00edk samr\u00e6\u00f0a \u00fearf umfram allt a\u00f0 vera m\u00e1lefnaleg og hei\u00f0arleg. \u00c9g geri r\u00e1\u00f0 fyrir a\u00f0 Kristinn s\u00e9 m\u00e9r samm\u00e1la og \u00fev\u00ed getum vi\u00f0 r\u00e6tt \u00feetta \u00e1n upphr\u00f3pana.<\/p>\n<p>Kristni \u00feykir kynjaumr\u00e6\u00f0an \u00e1 \u00cdslandi litu\u00f0 karlfyrirlitningu, og gerir s\u00e9r l\u00edti\u00f0 fyrir og greinir nokkra \u00fer\u00e6\u00f0i hennar sem honum finnst hann sj\u00e1 \u00ed skrifum m\u00ednum. Hann vill karlfyrirlitninguna upp \u00e1 bor\u00f0i\u00f0, a\u00f0 minnsta kosti a\u00f0 h\u00fan s\u00e9 me\u00f0vita\u00f0 tekin me\u00f0 \u00ed reikninginn eigi umr\u00e6\u00f0an a\u00f0 byggja \u00e1 karlfyrirlitningu, svo h\u00e6gt s\u00e9 a\u00f0 r\u00e6\u00f0a kosti hennar og galla. Ekki skil \u00e9g sj\u00e1lfur hva\u00f0a kostir g\u00e6tu m\u00f6gulega f\u00f3lgist \u00ed karlfyrirlitningu, enda hafna \u00e9g henni jafn einar\u00f0lega og kvenfyrirlitningu hva\u00f0 svo sem menn annars vilja lesa milli l\u00ednanna. Haukur M\u00e1r Helgason, heimspekingur og rith\u00f6fundur, benti \u00e1 \u00fea\u00f0 \u00e1 Facebook &#8211; \u00fev\u00ed mi\u00f0ur ekki \u00e1 bloggs\u00ed\u00f0u sinni &#8211; a\u00f0 Gillzenegger \u00e1 fors\u00ed\u00f0u s\u00edmaskr\u00e1rinnar v\u00e6ri jafnvel meiri m\u00f3\u00f0gun vi\u00f0 karlkyni\u00f0. Or\u00f0r\u00e9tt sag\u00f0i Haukur M\u00e1r:<\/p>\n<blockquote><p>\u00c6tli geti veri\u00f0 a\u00f0 fors\u00ed\u00f0uefni s\u00edmaskr\u00e1rinnar s\u00e9 fyrst og fremst ni\u00f0randi fyrir karlmenn, \u00e1 \u00feann m\u00e1ta sem konur mega venjast a\u00f0 augl\u00fdsingamyndir s\u00e9u? \u00dea\u00f0 sem raunverulega komi vi\u00f0 kauninn \u00e1 Dofra, Hj\u00e1lmari, \u00f6llum fem\u00edn\u00edsku k\u00f6rlunum \u2013 og j\u00e1, l\u00edka m\u00e9r \u2013 s\u00e9 kannski ekki kvenfyrirlitningin ein heldur \u00feessi mynd af karlmanninum: karlma\u00f0urinn sem yfirbor\u00f0skennt, sj\u00e1lfsuppteki\u00f0 fl\u00f3n. Og jafnvel fyrst og fremst: karlma\u00f0urinn sem l\u00edkami. Karlma\u00f0urinn sem pr\u00f3letar\u00edan l\u00edkami. Hlutur. Dild\u00f3 allra landsmanna.<\/p><\/blockquote>\n<p>\u00deetta er h\u00e1rr\u00e9tt hj\u00e1 Hauki; au\u00f0vita\u00f0 gengur \u00feetta \u00e1 b\u00e1\u00f0a b\u00f3ga. En ekki hef \u00e9g or\u00f0i\u00f0 var vi\u00f0 a\u00f0 umr\u00e6\u00f0an neiti a\u00f0 horfast \u00ed augu vi\u00f0 karlfyrirlitningu \u00ed samf\u00e9laginu, neiti a\u00f0 vi\u00f0urkenna hana, \u00fev\u00ed h\u00fan er sannarlega til sta\u00f0ar og engan \u00feekki \u00e9g sem ekki getur f\u00faslega vi\u00f0urkennt \u00fea\u00f0 a\u00f0 \u00fea\u00f0 er alveg jafn sl\u00e6mt \u00feegar karlar eru hlutger\u00f0ir, sem \u00f3hj\u00e1kv\u00e6milega felur \u00ed s\u00e9r karlfyrirlitningu, einsog \u00feegar \u00fea\u00f0 hendir konur.<\/p>\n<p>H\u00e9r er \u00fe\u00f3 l\u00edklega um \u00e1herslumun a\u00f0 r\u00e6\u00f0a fremur en v\u00f6ntun \u00e1 a\u00f0 l\u00edta \u00ed eigin barm. J\u00fa, karlar eru l\u00edka f\u00f3rnarl\u00f6mb fyrirlitlegra sta\u00f0almynda, en konur eru \u00fea\u00f0 \u00ed svo miklu meiri m\u00e6li a\u00f0 d\u00e6min ver\u00f0a illsamb\u00e6rileg. Fem\u00ednisma hefur stundum veri\u00f0 legi\u00f0 \u00e1 h\u00e1lsi a\u00f0 vera hugmyndafr\u00e6\u00f0i kvenna, a\u00f0 fem\u00ednistar berjist fyrir auknum r\u00e9ttindum \u00e1 kostna\u00f0 karlmanna, einskonar kvenr\u00e6\u00f0i. \u00dea\u00f0 er ekki r\u00e9tt. Fem\u00ednismi hinsvegar einbl\u00ednir \u00e1 konur sem f\u00e9lagslegt og menningarlegt vi\u00f0fang \u00ed samf\u00e9lagi sem stj\u00f3rna\u00f0 er a\u00f0 st\u00f3rum hluta af k\u00f6rlum. Enda \u00fe\u00f3tt fem\u00ednismi opinberlega sn\u00faist um jafnan r\u00e9tt beggja kynja, \u00fe\u00e1 er \u00ed \u00fev\u00ed lj\u00f3si ekkert \u00f3e\u00f0lilegt vi\u00f0 \u00fea\u00f0 \u00fe\u00f3tt fem\u00ednistar starfi \u00e1 forsendum kvenna.<\/p>\n<p>M\u00e9r \u00feykir undarleg ef sn\u00faa \u00e1 upp \u00e1 mig og a\u00f0ra karlkyns fem\u00ednista sem \u00e9g \u00feekki a\u00f0 vi\u00f0 s\u00e9um haldnir karlfyrirlitningu, me\u00f0vita\u00f0 e\u00f0a \u00f3me\u00f0vita\u00f0, fyrir \u00fea\u00f0 eitt a\u00f0 taka slaginn \u00e1 forsendum kvenna. \u00c9g fullyr\u00f0i a\u00f0 vi\u00f0 gerum okkur \u00f6ll fyllilega grein fyrir a\u00f0 \u00feessu er einnig \u00f6fugt fari\u00f0, og \u00fe\u00e1 er heillav\u00e6nlegra a\u00f0 benda \u00e1 \u00f3r\u00e9ttl\u00e6ti hvar sem \u00fea\u00f0 fyrirfinnst fremur en a\u00f0 benda \u00e1 brotal\u00f6m \u00e1 einum sta\u00f0 a\u00f0 \u00fev\u00ed er vir\u00f0ist til \u00feess eins a\u00f0 gagnr\u00fdna anna\u00f0 &#8211; og kalla \u00fea\u00f0 svo karlfyrirlitningu e\u00f0a, einsog \u00e9g s\u00e1 einhverssta\u00f0ar, \u201esj\u00e1lfmi\u00f0a\u00f0a r\u00f6ras\u00fdn\u201c, jafnvel fasisma. Fem\u00edn\u00edsk bar\u00e1tta \u00e1 \u00cdslandi hefur skila\u00f0 m\u00f6rgum r\u00e9ttarb\u00f3tum til karla einnig, til a\u00f0 mynda r\u00e9tti til fe\u00f0raorlofs, og jafnr\u00e9ttisl\u00f6g tryggja k\u00f6rlum jafnmikinn r\u00e9tt \u00e1 vinnumarka\u00f0i og konum. Gjarnan er horft framhj\u00e1 \u00feessu, og s\u00fa bar\u00e1tta er hvergi n\u00e6rri b\u00fain.<\/p>\n<p>Me\u00f0 enn \u00f6\u00f0rum or\u00f0um eru karlmenn ekki a\u00f0 \u201eleggjast \u00ed \u00fatger\u00f0 vi\u00f0 a\u00f0 ala \u00e1 rei\u00f0i og tortryggni \u00ed gar\u00f0 eigin kyns\u201c og \u00fea\u00f0 er svo fremi \u00e9g f\u00e6 s\u00e9\u00f0 ekki \u201ealgeng aukaverkun af \u00fev\u00ed a\u00f0 gerast fem\u00ednisti\u201c a\u00f0 gera sl\u00edkt. Kristinn segir einnig:<\/p>\n<blockquote><p>N\u00fa \u00e1 d\u00f6gum er b\u00e6\u00f0i d\u00e1l\u00edti\u00f0 \u201cinn\u201d fyrir karlmenn a\u00f0 hatast \u00fat \u00ed fem\u00ednisma og a\u00f0 vera yfirl\u00fdstir fem\u00ednistar. M\u00e9r s\u00fdnist Arngr\u00edmur hafa kosi\u00f0 s\u00ed\u00f0ari kostinn og vi\u00f0 \u00fea\u00f0 er vitaskuld ekkert a\u00f0 athuga.<\/p><\/blockquote>\n<p>M\u00e9r finnst Kristinn h\u00e9r n\u00e1nast l\u00edkja f\u00f3lki vi\u00f0 krakka sem velja s\u00e9r f\u00f3tboltali\u00f0 \u00ed ensku deildinni, svona af \u00fev\u00ed bara, einsog b\u00f6rn gera &#8211; e\u00f0a meting um hlj\u00f3msveitir, \u00e9g barasta tr\u00fai ekki a\u00f0 \u00fe\u00e9r \u00feyki Wham vera betri sveit en Duran Duran. \u00deessu er au\u00f0vita\u00f0 ekki svona fari\u00f0, hvort sem \u00fea\u00f0 er m\u00f3\u00f0ins \u00fdmist a\u00f0 hata fem\u00ednista e\u00f0a vera yfirl\u00fdstur fem\u00ednisti. \u00c9g kaus m\u00e9r ekki s\u00ed\u00f0ari kostinn (\u00feeir eru auk \u00feess fleiri) &#8211; m\u00e9r var einbo\u00f0i\u00f0 \u00fatfr\u00e1 eigin sannf\u00e6ringu a\u00f0 fylgja henni. \u00c9g tek \u00fea\u00f0 ekki n\u00e6rri m\u00e9r \u00fe\u00f3tt m\u00e9r s\u00e9 \u00f3beint l\u00edkt vi\u00f0 kynjafr\u00e6\u00f0inemann H\u00f6gna sem skr\u00e1\u00f0i sig til \u00feess eins \u00ed h\u00e1sk\u00f3la a\u00f0 r\u00ed\u00f0a sem flestum stelpum, en m\u00e9r \u00feykir leitt \u00feegar menn sj\u00e1 ekki handan sl\u00edkra einfaldana \u00e1 fl\u00f3knum, h\u00e1p\u00f3lit\u00edskum kringumst\u00e6\u00f0um.<\/p>\n<p>Ef einhverjir sannarlega kj\u00f3sa s\u00e9r \u00feann kost a\u00f0 gerast fem\u00ednistar \u00ed sl\u00edku skyni, jafnvel bara til a\u00f0 vera m\u00f3\u00f0ins, \u00fe\u00e1 eru \u00feeir allteins fyrirlitlegir og \u00fea\u00f0 sem \u00feeir me\u00f0 \u00edmynda\u00f0ri afst\u00f6\u00f0u sinni berjast gegn. Enginn velur s\u00e9r a\u00f0 gerast fem\u00ednisti &#8211; \u00fea\u00f0 gerir r\u00e9ttl\u00e6tiskennd og sannf\u00e6ring, vilji til a\u00f0 taka \u00fe\u00e1tt og berjast fyrir \u00fev\u00ed sem ma\u00f0ur telur gott og r\u00e9tt. \u00c9g vi\u00f0urkenni strax a\u00f0 \u00e9g les h\u00e9r alltof miki\u00f0 \u00ed or\u00f0 Kristins, enda veit \u00e9g a\u00f0 hann \u00e1tti alls ekki vi\u00f0 neitt \u00ed \u00feessa l\u00edkingu, en \u00feetta liggur engu a\u00f0 s\u00ed\u00f0ur fali\u00f0 milli l\u00ednanna &#8211; \u00fea\u00f0 liggur \u00ed or\u00f0anna hlj\u00f3\u00f0an, a\u00f0 \u00fea\u00f0 liggi m\u00f6gulega eitthva\u00f0 meira a\u00f0 baki \u201e\u00e1kv\u00f6r\u00f0un\u201c karla um a\u00f0 gerast fem\u00ednistar. A\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 m\u00f3\u00f0ins. Ef einhverjum vir\u00f0ist fem\u00ednismi vera or\u00f0inn m\u00f3\u00f0ins (\u00fea\u00f0 vir\u00f0ist m\u00e9r ekki) \u00fe\u00e1 kannski \u00fe\u00fd\u00f0ir \u00fea\u00f0 a\u00f0 vi\u00f0 s\u00e9um a\u00f0 n\u00e1 \u00e1rangri.<\/p>\n<blockquote><p>Fyrst \u00e6tla \u00e9g \u00fe\u00f3 a\u00f0 taka fram a\u00f0 \u00e9g kann vel a\u00f0 meta og sty\u00f0 bar\u00e1ttuna fyrir jafnr\u00e6\u00f0i kynjanna. Fem\u00ednistar hafa gert fr\u00e1b\u00e6ra hluti og eru a\u00f0 gera fr\u00e1b\u00e6ra hluti. \u00deeir hafa lyft grettistaki vi\u00f0 a\u00f0 opna augu heimsins fyrir r\u00f3tgr\u00f3nu fe\u00f0raveldi sem litar afst\u00f6\u00f0u samf\u00e9lagsins til flestra ef ekki allra f\u00e9lagslegra hluta og gr\u00ed\u00f0arlega margt hefur \u00e1unnist. Hreyfingin hefur sannarlega breytt heiminum til hins betra. H\u00fan hefur hinsvegar l\u00edka breytt heiminum til hins verra \u00ed augum einhverra og \u00e9g \u00feekki t.d. sj\u00e1lfur konur sem sj\u00e1 d\u00e1l\u00edti\u00f0 \u00e1 eftir valinu um a\u00f0 vera h\u00fasm\u00f3\u00f0ir og ey\u00f0a meiri t\u00edma me\u00f0 b\u00f6rnunum en n\u00fat\u00edmasamf\u00e9lagi\u00f0 leyfir. Allir hlutir hafa kosti og galla. L\u00edklega eru \u00fe\u00f3 flestir samm\u00e1la um a\u00f0 kostirnir vi\u00f0 kvenr\u00e9ttindabar\u00e1ttuna vegi mun \u00feyngra en \u00f3kostirnir.<\/p><\/blockquote>\n<p>H\u00e9r erum vi\u00f0 Kristinn alveg hjartanlega samm\u00e1la, a\u00f0 \u00fev\u00ed undanskildu a\u00f0 \u00e9g skil ekki alveg klausuna um konur sem sj\u00e1 eftir \u00fev\u00ed vali a\u00f0 vera heimavinnandi h\u00fasm\u00e6\u00f0ur. Ekki vissi \u00e9g a\u00f0 n\u00fat\u00edmasamf\u00e9lagi\u00f0 ford\u00e6mdi \u00fe\u00e6r konur, en \u00fea\u00f0 kann svosem vel a\u00f0 vera a\u00f0 \u00e9g hafi ekki or\u00f0i\u00f0 var vi\u00f0 \u00fea\u00f0. \u00c1 hinn b\u00f3ginn er \u00fea\u00f0 einmitt <i>fr\u00e1b\u00e6rt<\/i> a\u00f0 makar geti \u00ed samr\u00e1\u00f0i hvort vi\u00f0 anna\u00f0 teki\u00f0 um \u00feessi m\u00e1l me\u00f0vita\u00f0a \u00e1kv\u00f6r\u00f0un. \u00dev\u00ed var ekki a\u00f0 heilsa fyrir \u00f6rf\u00e1um \u00e1ratugum og s\u00fdnir \u00fea\u00f0 best hversu langt vi\u00f0 h\u00f6fum komist af litlum efnum og endalausum m\u00f3tbyr.<\/p>\n<p>Kristni gremjast vi\u00f0br\u00f6g\u00f0 sumra fem\u00ednista sem hann hefur, einsog \u00e1\u00f0ur var nefnt, \u00e1tt gagnr\u00fdnin samskipti vi\u00f0 \u00e1 netinu. Ekki get \u00e9g svara\u00f0 fyrir \u00fe\u00e1 fem\u00ednista nema a\u00f0 \u00fev\u00ed leyti sem \u00e9g hef fylgst &#8211; l\u00edtillega vel a\u00f0 merkja &#8211; me\u00f0 t\u00e9\u00f0um samskiptum, og einsog \u00e1\u00f0ur sag\u00f0i hefur m\u00e9r virst sem Kristinn og <a href=\"http:\/\/kaninka.net\/snilldur\">Hildur vinkona m\u00edn Lilliendahl<\/a>, svo d\u00e6mi s\u00e9 nefnt, tali hreinlega ekki sama tungum\u00e1l \u00feegar a\u00f0 \u00feessum m\u00e1lum kemur. Ekki nenni \u00e9g a\u00f0 rifja upp hvert umr\u00e6\u00f0uefni\u00f0 n\u00e1kv\u00e6mlega var til a\u00f0 a\u00f0g\u00e6ta hvort \u00e9g muni \u00feetta r\u00e9tt, en forsendur beggja til samr\u00e6\u00f0nanna voru svo \u00f3l\u00edkar a\u00f0 m\u00e9r fannst \u00e9g sj\u00e1 strax \u00ed upphafi a\u00f0 \u00fe\u00e6r yr\u00f0u d\u00e6mdar til a\u00f0 enda \u00e1 a\u00f0eins einn veg. \u00dea\u00f0 held \u00e9g fremur a\u00f0 s\u00e9 r\u00f3t vandans en a\u00f0 fem\u00ednistar (hva\u00f0 \u00fe\u00e1 upp til h\u00f3pa, einsog m\u00e9r vir\u00f0ist gefi\u00f0 \u00ed skyn) fyllist heilagri vandl\u00e6tingu um lei\u00f0 og \u00e1 \u00fe\u00e1 er halla\u00f0. En einsog segir get \u00e9g ekki tala\u00f0 m\u00e1li allra fem\u00ednista h\u00e9r, e\u00f0a Hildar hva\u00f0 \u00fea\u00f0 var\u00f0ar, n\u00e9 heldur \u00e6tti \u00e9g a\u00f0 gera \u00fea\u00f0. \u00c9g get a\u00f0eins svara\u00f0 fyrir sj\u00e1lfan mig.<\/p>\n<p>Til \u00feess a\u00f0 um \u00fea\u00f0 megi deila \u00fearf a\u00f0 vera h\u00e6gt a\u00f0 r\u00e6\u00f0a m\u00e1lin segir Kristinn, og til \u00feess er \u00e9g einbo\u00f0inn.<\/p>\n<blockquote><p>Jafnr\u00e9tti milli kynjanna er auglj\u00f3slega gr\u00ed\u00f0arlega margbroti\u00f0 og fl\u00f3ki\u00f0 fyrirbrig\u00f0i. Kynin eru l\u00edkamlega \u00f3l\u00edk og margt bendir til \u00feess a\u00f0 \u00feau s\u00e9u einnig me\u00f0 t\u00f6luvert \u00f3l\u00edka hugsun. \u00dea\u00f0 ver\u00f0ur \u00fev\u00ed aldrei \u00feannig a\u00f0 allir karlmenn og allar konur s\u00e9u samm\u00e1la um a\u00f0 janfr\u00e9tti s\u00e9 n\u00e1\u00f0 \u2013 leyfi \u00e9g m\u00e9r a\u00f0 fullyr\u00f0a. Til \u00feess er heimurinn of fl\u00f3kinn. Og \u00fea\u00f0 a\u00f0 deilur standi um \u00fea\u00f0 hvort orsakasamhengi s\u00e9 milli kynjabundins ofbeldis og \u00feess hvernig konur kl\u00e6\u00f0a sig er varla atri\u00f0i sem vegur mj\u00f6g \u00feungt \u00e1 vogask\u00e1lunum. \u00dea\u00f0 sem hinsvegar \u00feykir vega \u00feungt er s\u00fa hugmynd a\u00f0 orsakasamhengi\u00f0 s\u00e9 ekkert og a\u00f0 \u00fe\u00e6r \u00e1hyggjur s\u00e9u dulin tilraun til a\u00f0 st\u00fdra konum og kenna \u00feeim sj\u00e1lfum um ofbeldi gegn s\u00e9r.<\/p><\/blockquote>\n<p>H\u00e9r tel \u00e9g a\u00f0 Kristinn misskilji mig. \u00c9g segi a\u00f0 vi\u00f0tekinn skilningur margra s\u00e9 a\u00f0 jafnr\u00e9tti hafi \u00feegar veri\u00f0 n\u00e1\u00f0. \u00c9g segi ekki a\u00f0 svo s\u00e9 e\u00f0a a\u00f0 um \u00fea\u00f0 r\u00edki almenn s\u00e1tt me\u00f0al f\u00f3lks. Kristinn klykkir svo \u00fat me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 gefa \u00ed skyn a\u00f0 \u00fea\u00f0 hlj\u00f3ti n\u00fa samt a\u00f0 vera orsakasamhengi milli kl\u00e6\u00f0abur\u00f0ar kvenna og nau\u00f0gana, \u00fe\u00f3tt \u00e9g haldi \u00f6\u00f0ru fram. \u00c9g hinsvegar held ekki \u00f6\u00f0ru fram: \u201e\u2026 samt \u00feurfa konur s\u00e9rstaklega a\u00f0 m\u00f3tm\u00e6la \u00fev\u00ed a\u00f0 orsakasamhengi s\u00e9 milli kynbundins ofbeldis og \u00feess hvernig \u00fe\u00e6r kl\u00e6\u00f0a sig,\u201c segi \u00e9g &#8211; \u00ed vi\u00f0tengingarh\u00e6tti. \u00dea\u00f0 er kl\u00e1rt orsakasamhengi sem sk\u00fdrist af r\u00f3tgr\u00f3inni kvenfyrirlitningu \u00ed samf\u00e9laginu. En \u00fea\u00f0 er ekki e\u00f0lilegt a\u00f0 svo s\u00e9, \u00fea\u00f0 er ekki e\u00f0lilegt a\u00f0 konur \u00feurfi a\u00f0 gefa \u00fev\u00ed gaum hvort \u00fe\u00e6r s\u00e9u nokku\u00f0 berskjalda\u00f0ar gegn nau\u00f0gunum kl\u00e6ddar svona e\u00f0a hinsegin.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 er samf\u00e9lagslegt vandam\u00e1l a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 orsakasamhengi, og \u00fea\u00f0 er samf\u00e9lagslegt vandam\u00e1l \u00feegar fj\u00f6lmi\u00f0lar og l\u00f6gregla l\u00fdsa yfir &#8211; einsog ger\u00f0ist \u00ed tilviki \u00feriggja erlendra, einsog s\u00e9rstaklega var teki\u00f0 fram a\u00f0 \u00e1st\u00e6\u00f0ulausu, manna sem nau\u00f0gu\u00f0u konu \u00ed Hafnarstr\u00e6ti fyrir 2-3 \u00e1rum. \u00de\u00e1 kom \u00fea\u00f0 fram a\u00f0 h\u00fan hef\u00f0i veri\u00f0 \u00feannig kl\u00e6dd. \u00dea\u00f0 er ekki e\u00f0lilegt. \u00dea\u00f0 er \u00fea\u00f0 sem \u00e9g gagnr\u00fdni, s\u00fa botnlausa, r\u00f3tgr\u00f3na kvenfyrirlitning sem finnst \u00ed \u00fev\u00ed samf\u00e9lagi \u00fear sem s\u00e9rstaklega \u00fearf a\u00f0 vara konur vi\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 kl\u00e6\u00f0a sig ekki \u00e1 \u201e\u00f6grandi\u201c h\u00e1tt.<\/p>\n<p>Ef \u00fea\u00f0 er raunverulega fylgni \u00fearna \u00e1 milli sem ekki m\u00f3tast af fe\u00f0raveldinu, en ekki bara fyrirlitleg \u00e1tylla til a\u00f0 afsaka \u201emeinta\u201c kynfer\u00f0isbrotamenn, sem \u00e6t\u00ed\u00f0 eru meintir \u00feegar a\u00f0rir eru \u00fea\u00f0 ekki, og br\u00fdna fyrir ungum st\u00falkum a\u00f0 kl\u00e6\u00f0a sig heldur \u00e1 hinn veginn en \u00feennan, \u00fe\u00e1 afskar \u00fea\u00f0 samt ekki nokkurn skapa\u00f0an hlut einsog Kristinn segir sj\u00e1lfur. En burts\u00e9\u00f0 fr\u00e1 m\u00f6gulegri fylgni af \u00feeirri sort \u00fe\u00e1 eru nau\u00f0ganir flestar ofbeldisverk framin \u00e1n kynfer\u00f0islegrar \u00e1tyllu einsog \u00feeirrar a\u00f0 kona hafi veri\u00f0 \u00ed svo flegnum kj\u00f3l. F\u00f3rnarl\u00f6mb kynfer\u00f0isbrota geta af s\u00e9r kynfer\u00f0isbrotamenn, og \u00fear er \u00e1rei\u00f0anleg fylgni. \u00deetta er ofbeldishneig\u00f0 getin af \u00e1unninni og\/e\u00f0a me\u00f0f\u00e6ddri ge\u00f0r\u00f6skun sem hefur l\u00edti\u00f0 me\u00f0 kynfer\u00f0islega fulln\u00e6gju a\u00f0 gera. \u00cd \u00fev\u00ed lj\u00f3si hafa eftirfarandi r\u00f6k l\u00edtil \u00e1hrif \u00e1 afst\u00f6\u00f0u m\u00edna:<\/p>\n<blockquote><p>Spurningin er hvort afsta\u00f0a kvenna myndi eitthva\u00f0 breytast ef t\u00f6lfr\u00e6\u00f0i s\u00fdndi \u00fea\u00f0, a\u00f0 \u00ed n\u00e6turl\u00edfinu s\u00e9 umr\u00e6dd fylgni raunveruleg. M\u00e9r hefur s\u00fdnst a\u00f0 g\u00f6gnin bendi beinl\u00ednis til \u00feess a\u00f0 svo s\u00e9 \u00feegar mengi\u00f0 er afmarka\u00f0 vi\u00f0 ungar konur \u00e1 djamminu*, og brj\u00f3stvit mitt segir m\u00e9r a\u00f0 h\u00e1lfnakin \u00f6rend kona muni vekja meiri athygli fullra d\u00f3lga en kona sem er \u00f6\u00f0ruv\u00edsi kl\u00e6dd.<\/p><\/blockquote>\n<p>Kristinn segir a\u00f0 var\u00fa\u00f0aror\u00f0 og tilm\u00e6li af \u00feessu tagi s\u00e9u ekki k\u00fagun. Ekki minnist \u00e9g \u00feess a\u00f0 hafa haldi\u00f0 \u00fev\u00ed fram \u00fe\u00f3tt \u00fea\u00f0 fari n\u00fa raunar eftir forsendum hvort \u00e9g geti talist samm\u00e1la honum. \u00deetta hefur bara ekkert me\u00f0 \u00fea\u00f0 a\u00f0 gera svo fremi \u00e9g f\u00e6 s\u00e9\u00f0. Konur eiga ekki a\u00f0 \u00feurfa a\u00f0 \u00f3ttast \u00fea\u00f0 a\u00f0 ganga \u00fati \u00e1 g\u00f6tu, burts\u00e9\u00f0 fr\u00e1 \u00fev\u00ed hvernig \u00fe\u00e6r kj\u00f3sa a\u00f0 kl\u00e6\u00f0a sig. Um \u00fea\u00f0 sn\u00fdst n\u00fa heila m\u00e1li\u00f0, og \u00fea\u00f0 l\u00fdsir einv\u00f6r\u00f0ungu gamaldags vi\u00f0horfum a\u00f0 m\u00ednu mati, einsog \u00feeim nau\u00f0gunark\u00falt\u00far sem vi\u00f0gekkst \u00ed Vestmannaeyjum fyrir \u00fe\u00f3 ekki nema 20-30 \u00e1rum og \u00e9g geri a\u00f0 umtalsefni \u00ed grein minni, a\u00f0 meira\u00f0segja l\u00f6greglan t\u00edni s\u00e9r til einhverjar utana\u00f0komandi forsendur kynfer\u00f0isofbeldis einsog \u00fea\u00f0 f\u00e6ri \u00e1byrg\u00f0ina a\u00f0 einhverju leyti, hve litlu sem \u00fea\u00f0 er, yfir \u00e1 brota\u00feola.<\/p>\n<p>\u00c1 alveg sama h\u00e1tt er s\u00e1 ekki \u00e1byrgur \u00e1 neinn h\u00e1tt fyrir eigin mor\u00f0i sem h\u00e6ttir s\u00e9r \u00fat \u00far h\u00fasi eftir mi\u00f0n\u00e6tti. Sl\u00edk umr\u00e6\u00f0a finnst m\u00e9r algj\u00f6rlega \u00f3t\u00e6k, og \u00e9g j\u00e1ta \u00fea\u00f0 h\u00e9r og n\u00fa a\u00f0 \u00e9g \u00e1 afskaplega b\u00e1gt me\u00f0 a\u00f0 skilja \u00fea\u00f0 sj\u00f3narmi\u00f0 a\u00f0 s\u00fa umr\u00e6\u00f0a s\u00e9 \u00e1 nokkurn h\u00e1tt relevant. Til \u00feess er bar\u00e1ttan me\u00f0al annars a\u00f0 svona r\u00f6k heyrist ekki framar. Til \u00feess er bar\u00e1ttan a\u00f0 dey\u00f0a kvenfyrirlitningu \u00ed samf\u00e9laginu hvort sem h\u00fan er undirliggjandi e\u00f0a \u00e1 yfirbor\u00f0inu.<\/p>\n<blockquote><p>    Arngr\u00edmur einfaldar m\u00e1lin gl\u00e6psamlega og gefur s\u00e9r allt of miki\u00f0 af vins\u00e6lum forsendum fem\u00ednista (r\u00e9tthugsun?)<\/p>\n<p>    Arngr\u00edmur l\u00e6tur eins og \u00fea\u00f0 s\u00e9 vi\u00f0horf margra karlmanna a\u00f0 konur \u201ckalli eftir \u00fev\u00ed sj\u00e1lfar a\u00f0 \u00feeim s\u00e9 nau\u00f0ga\u00f0\u201d og \u00fea\u00f0 s\u00e9 \u00fea\u00f0 sem \u00feeir seru a\u00f0 segja \u00feegar \u00feeir minnast \u00e1 kl\u00e6\u00f0na\u00f0 fyrir e\u00f0a eftir a\u00f0 eitthva\u00f0 sl\u00edkt \u00e1 s\u00e9r sta\u00f0. H\u00e9r er veri\u00f0 a\u00f0 leika s\u00e9r a\u00f0 bl\u00e6brig\u00f0um or\u00f0anna til a\u00f0 m\u00e1la mun lj\u00f3tari mynd af afst\u00f6\u00f0u karla en \u00fe\u00f6rf er \u00e1 (einkenni karlfyrirlitningar?)<\/p><\/blockquote>\n<p>H\u00e9rna tapa \u00e9g \u00fer\u00e6\u00f0inum a\u00f0eins. Stuttir pistlar kalla \u00e1 einf\u00f6ldun. Ef \u00e9g \u00e6tti a\u00f0 sk\u00fdra m\u00e1lin n\u00e6gilega vandlega til a\u00f0 skilja ekki eftir eina einustu snur\u00f0u \u00feyrfti \u00e9g a\u00f0 skrifa ansi veglega b\u00f3k, og samt yr\u00f0u margir til a\u00f0 gagnr\u00fdna mig. Hvort einfaldanir m\u00ednar eru gl\u00e6psamlegar er \u00e9g varla d\u00f3mb\u00e6r \u00e1, en til \u00feess voru \u00fe\u00e6r ger\u00f0ar a\u00f0 sm\u00e6tta fl\u00f3kna umr\u00e6\u00f0u ni\u00f0ur \u00ed stuttan pistil sem t\u00e6ki \u00e1 helstu selvf\u00f8lgelighedunum einsog \u00e9g s\u00e9 \u00feau:<\/p>\n<p><strong>1.<\/strong> \u00dea\u00f0 er sj\u00fakt a\u00f0 taka \u00feurfi \u00feessa umr\u00e6\u00f0u \u00e1 21. \u00f6ldinni. Nau\u00f0ganir eru samf\u00e9lagsmein sem allir \u00e6ttu a\u00f0 vera viljugir til a\u00f0 berjast gegn.<\/p>\n<p><strong>2.<\/strong> Samt eru \u00f3tr\u00falega margir sem setja ofan \u00ed vi\u00f0 okkur sem finnst umr\u00e6\u00f0an bera blak af k\u00f6rlum \u00e1 kostna\u00f0 kvenna, s\u00e9r \u00ed lagi \u00feegar h\u00fan einkennist &#8211; einsog Kristinn \u00e1rei\u00f0anlega hefur teki\u00f0 eftir &#8211; af dj\u00fapst\u00e6\u00f0u hatri \u00e1 okkur sem l\u00e1tum okkur m\u00e1li\u00f0 var\u00f0a. Um daginn var \u00e9g kalla\u00f0ur \u00f6fgakenndur, fas\u00edskur h\u00e1lfviti sem vildi \u00feagga ni\u00f0ur umr\u00e6\u00f0u fyrir a\u00f0 finnast \u00f3e\u00f0lilegt a\u00f0 f\u00f3lk ger\u00f0i gr\u00edn a\u00f0 nau\u00f0gunum og tj\u00e1 \u00fe\u00e1 sko\u00f0un.<\/p>\n<p><strong>3.<\/strong> Konur og \u00feeir sem \u00fe\u00e6r sty\u00f0ja fylkja senn li\u00f0i \u00ed g\u00f6ngu til a\u00f0 krefjast r\u00e9ttar s\u00edns til a\u00f0 vera ekki nau\u00f0ga\u00f0. \u00dea\u00f0 er m\u00e1lefni sem \u00e9g sty\u00f0 og \u00fev\u00ed greip \u00e9g til einfaldana til a\u00f0 skrifa l\u00e6silegan pistil.<\/p>\n<p>Kristinn spyr hvort fyrsta atri\u00f0i\u00f0 sem hann nefnir sk\u00fdrist kannski af \u201efemin\u00edskri r\u00e9tthugsun\u201c &#8211; hva\u00f0 svosem \u00fea\u00f0 er. \u00c9g spyr \u00e1 m\u00f3ti hvar megi finna r\u00e9tthugsun innan \u00feessa m\u00e1lefnis, og hva\u00f0 s\u00e9 \u00fe\u00e1 ranghugsun. \u00c9g kem n\u00e1nar a\u00f0 \u00fev\u00ed h\u00e9r \u00e1 eftir.<\/p>\n<p>Hva\u00f0 var\u00f0ar seinna atri\u00f0i\u00f0 \u00fe\u00e1 er engu logi\u00f0 upp \u00e1 karlmenn \u00feegar \u00e9g segi a\u00f0 margir \u00feeirra s\u00e9u haldnir undarlegum \u00f3rum um kvenf\u00f3lk, og a\u00f0 \u00fea\u00f0 vi\u00f0horf s\u00e9 til a\u00f0 kl\u00e6\u00f0abur\u00f0ur kvenna kalli \u00e1 nau\u00f0gun. \u00dea\u00f0 vi\u00f0urkennir Kristinn meira\u00f0segja sj\u00e1lfur fyrr \u00ed gagnr\u00fdni sinni. Aldrei sag\u00f0i \u00e9g a\u00f0 \u00fea\u00f0 v\u00e6ri st\u00f3r hluti, en \u00fea\u00f0 eru sannarlega margir. \u00c9g t\u00f3k d\u00e6mi af Baldri Hermannssyni framhaldssk\u00f3lakennara, sem opinberlega sag\u00f0i a\u00f0 stelpur v\u00e6ru a\u00f0 \u201ebi\u00f0ja um a\u00f0 vera nau\u00f0ga\u00f0\u201c, \u00dej\u00f3\u00f0h\u00e1t\u00ed\u00f0 \u00ed Eyjum \u00e1 \u00e1rum \u00e1\u00f0ur \u00fear sem \u00fea\u00f0 var \u00fej\u00f3\u00f0arsport a\u00f0 nau\u00f0ga sem flestum dau\u00f0adrukknum st\u00falkum og svo Gillzenegger og vi\u00f0hl\u00e6jendum hans. Kristinn spyr sig hvort \u00feetta s\u00e9u einkenni karlfyrirlitningar. \u00c9g tel mig hafa svara\u00f0 \u00fev\u00ed h\u00e9r a\u00f0 ofan.<\/p>\n<p>Kristinn \u00e1sakar mig um einf\u00f6ldun en gerist sj\u00e1lfur sekur um a\u00f0 ofureinfalda afskaplega fl\u00f3ki\u00f0 og alvarlegt mein \u00ed samf\u00e9lagsvitundinni. Au\u00f0vita\u00f0 er greinin einf\u00f6ldun. \u00dea\u00f0 liggur j\u00fa \u00ed hlutarins e\u00f0li. R\u00e9tt einsog \u00feetta \u00edvi\u00f0 lengra svar er einf\u00f6ldun \u00e1 langtum st\u00e6rri umr\u00e6\u00f0u. \u00deegar Gillzenegger gr\u00ednast me\u00f0 nau\u00f0ganir (sem Kristinn andm\u00e6lir), \u00fe\u00e1 eru \u00f3tal manns \u00fati \u00ed \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9lagi sem raunverulega hugsar \u00feannig og svo a\u00f0rir sem eru svo trufla\u00f0ir \u00e1 ge\u00f0i a\u00f0 \u00feeir gera ekki greinarmun \u00e1 r\u00e9ttu og r\u00f6ngu. Gillzenegger, hvort sem hann sj\u00e1lfur er haldinn kvenfyrirlitningu e\u00f0a ekki, \u00fdtti undir hana me\u00f0 skrifum s\u00ednum, og opinberlega hvatti til \u00feess a\u00f0 S\u00f3leyju T\u00f3masd\u00f3ttur yr\u00f0i nau\u00f0ga\u00f0. \u00dea\u00f0 var ekki hluti af \u00feeim bloggf\u00e6rslum sem Dr\u00edfa Sn\u00e6dal endurbirti \u00e1 d\u00f6gunum, enda eyddi Gillzenegger henni undir eins og m\u00e1li\u00f0 barst til fj\u00f6lmi\u00f0la. Ekki \u00e6tla \u00e9g a\u00f0 hafa fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 reyna a\u00f0 leita uppi afrit af umr\u00e6ddri f\u00e6rslu, en h\u00fan var vi\u00f0urstyggileg, og h\u00e9rumbil or\u00f0r\u00e9tt sag\u00f0i Gillz a\u00f0 \u00fea\u00f0 v\u00e6ri r\u00e9ttast a\u00f0 nau\u00f0ga S\u00f3leyju duglega. Hann nota\u00f0i or\u00f0i\u00f0 <i>nau\u00f0ga<\/i>, svo sannarlega. Kristni finnst \u00feau skrif sem Dr\u00edfa endurbirti ekki gefa neitt svipa\u00f0 \u00ed skyn, en \u00fea\u00f0 finnst m\u00e9r \u00e1 hinn b\u00f3ginn, me\u00f0 tilliti til fyrri skrifa hans um S\u00f3leyju T\u00f3masd\u00f3ttur.<\/p>\n<blockquote><p>\u00dea\u00f0 er einfaldlega magna\u00f0 a\u00f0 svona vel skrifandi og hugsandi ma\u00f0ur skuli leyfa s\u00e9r a\u00f0 skrifa \u00feessi undarlegu or\u00f0. \u201cA\u00f0 vilja ekki veri\u00f0 nau\u00f0ga\u00f0..\u201d. Til hvers a\u00f0 l\u00e1ta eins og \u00fea\u00f0 s\u00e9 afsta\u00f0a nokkurs manns a\u00f0 \u00fea\u00f0 \u00ed sj\u00e1lfu s\u00e9r a\u00f0 vilja ekki vera nau\u00f0ga\u00f0 s\u00e9 einhverskonar r\u00e9tthugsun? R\u00e9tthugsunin er f\u00f3lgin \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00e9ta \u00e1lyktanir um gang \u00feessara m\u00e1la alfari\u00f0 og eing\u00f6ngu upp eftir fem\u00ednistum og d\u00e6ma allar a\u00f0rar vangaveltur sem tilraunir til a\u00f0 draga \u00far bar\u00e1ttu kvenna vi\u00f0 kynjabundi\u00f0 ofbeldi. M\u00e1li\u00f0 er einmitt a\u00f0 hugsanlega er h\u00e6gt a\u00f0 gera \u00fdmislegt anna\u00f0 til a\u00f0 draga \u00far sl\u00edku ofbeldi en a\u00f0 d\u00e1sama or\u00f0r\u00e6\u00f0u sem m\u00f6rgum karlm\u00f6nnum \u00feykir l\u00edtill\u00e6kkandi og \u00f3sanngj\u00f6rn og hreinlega betur til \u00feess fallin a\u00f0 skapa and\u00fa\u00f0 \u00e1 hreyfingunni en a\u00f0 styrkja hana.<\/p><\/blockquote>\n<p>R\u00e9tthugsun er \u00fatvatna\u00f0 og gagnslaust hugtak \u00feegar allt sem fellur manni ekki \u00ed ge\u00f0 m\u00e1 stimpla sem r\u00e9tthugsun. Ekki tel \u00e9g mig sekan um a\u00f0 \u00e9ta allt upp eing\u00f6ngu eftir fem\u00ednistum, hva\u00f0 \u00fe\u00e1 heldur a\u00f0 \u00e9g vilji d\u00e6ma hugmyndir sem koma annarssta\u00f0ar fr\u00e1 \u00far leik. M\u00e9r \u00feykir Kristinn gefa s\u00e9r helst til miki\u00f0 um mitt lundarfar h\u00e9rna. Ekki s\u00e9 \u00e9g \u00e1 pistli m\u00ednum heldur a\u00f0 \u00e9g d\u00e1sami or\u00f0r\u00e6\u00f0u sem er karlm\u00f6nnum l\u00edtill\u00e6kkandi &#8211; \u00fevert \u00e1 m\u00f3ti hrauna \u00e9g yfir \u00fe\u00e1 or\u00f0r\u00e6\u00f0u sem er karlm\u00f6nnum til mestrar minnkunar, nefnilega \u00feeirrar sem Baldur og Egill st\u00f3\u00f0u fyrir. Gengisfelli \u00e9g karlmenn almennt einhverssta\u00f0ar \u00ed pistlinum, e\u00f0a r\u00e6\u00f0st \u00e9g gegn \u00feeim \u00e1 einhvern h\u00e1tt? ekki \u00feykir m\u00e9r \u00fea\u00f0. Pistlinum var \u00f6\u00f0ru n\u00e6r \u00e6tla\u00f0 a\u00f0 vera hugvekja um raunveruleg vi\u00f0horf sem finnast \u00e1 me\u00f0al karlmanna \u00ed \u00edslensku samf\u00e9lagi. Ef karlm\u00f6nnum finnst \u00f3\u00fe\u00e6gilegt e\u00f0a l\u00edtill\u00e6kkandi a\u00f0 kynbr\u00e6\u00f0ur \u00feeirra geti hugsa\u00f0 \u00e1 \u00feann m\u00e1ta er \u00feeim sj\u00e1lfum \u00ed l\u00f3fa lagi\u00f0 a\u00f0 berjast gegn \u00fev\u00ed. Ekki a\u00f0 \u00feessi vi\u00f0horf einskor\u00f0ist vi\u00f0 \u00cdsland nema s\u00ed\u00f0ur s\u00e9. M\u00e9r var bent \u00e1 eftirfarandi tilvitnun sem finna m\u00e1 \u00e1 <a href=\"http:\/\/commonsenseatheism.com\/?p=9727\">Common Sense Atheism<\/a>:<\/p>\n<blockquote><p>My concern for level of pain of rape would be greater if it weren\u2019t for the fact that most American women deserve to raped because they oppose prostitution as a sexual outlet for men. Since they deserve to raped, I cannot concern myself with the pain rape causes them.<\/p><\/blockquote>\n<p>Hversu margir \u00e1 \u00cdslandi \u00e6tli hugsi svona? \u00c1rei\u00f0anlega fleiri en vi\u00f0 Kristinn \u00feorum a\u00f0 \u00edmynda okkur.<\/p>\n<blockquote><p>Fem\u00ednistar eru mj\u00f6g gjarnir \u00e1 a\u00f0 v\u00edsa \u00f6\u00f0rum tegundum hugsunar en \u00feeirra eigin fr\u00e1. Til \u00feess hafa or\u00f0i\u00f0 til hugt\u00f6k eins og a\u00f0 hr\u00fatsk\u00fdra (e. mansplaining) og eru menn s\u00ed\u00f0an gjarnan saka\u00f0ir um a\u00f0 vera vond fyrirmynd fyrir d\u00e6tur s\u00ednar ef \u00feeir leyfa s\u00e9r a\u00f0 impra \u00e1 \u00f6\u00f0rum sj\u00f3narmi\u00f0um en \u00feeim sem hreyfingin er b\u00fain a\u00f0 leggja blessun s\u00edna yfir [\u2026] Sta\u00f0an er hinsvegar mun s\u00ed\u00f0ur \u00feannig \u00ed dag, og er \u00feetta \u00ed anna\u00f0 sinn sem \u00e9g bendi \u00e1 \u00fe\u00e1 kenningu m\u00edna a\u00f0 ofst\u00e6kisfullur fem\u00ednismi s\u00e9 ekki eins au\u00f0varinn og hann hefur veri\u00f0 fyrir nokkrum \u00e1ratugum. Forsendur hafa breyst. \u00dea\u00f0 m\u00e1 deila um hversu miki\u00f0 \u00fe\u00e6r hafa breyst, en \u00fea\u00f0 er einmitt umr\u00e6\u00f0a fyrir b\u00e6\u00f0i kynin til a\u00f0 taka \u00fe\u00e1tt \u00ed, en ekki kvenna einna a\u00f0 skera \u00far um, \u00e1 hvern \u00feann h\u00e1tt sem \u00feeim \u00feykir henta \u2013 e\u00f0a \u00fea\u00f0 hef\u00f0i \u00e9g a.m.k. haldi\u00f0 a\u00f0 v\u00e6ri fremur jafnr\u00e9ttissinnu\u00f0 afsta\u00f0a.<\/p><\/blockquote>\n<p>Hva\u00f0a fem\u00ednistar eru mj\u00f6g gjarnir \u00e1 a\u00f0 v\u00edsa \u00f6\u00f0rum hugmyndum en \u00feeirra eigin fr\u00e1? Ekki \u00feekki \u00e9g \u00fe\u00e1 fem\u00ednista. M\u00e9r \u00feykir alh\u00e6fingin lei\u00f0inleg og tilgangslaus. Hver \u00e1sakar menn um a\u00f0 vera vondar fyrirmyndir ef \u00feeir impra \u00e1 \u00f6\u00f0rum sj\u00f3narhornum en \u00feeim sem \u201ehreyfingin\u201c hefur lagt \u201eblessun s\u00edna yfir\u201c? Kristinn vir\u00f0ist halda a\u00f0 fem\u00ednismi s\u00e9 ein hreyfing, en h\u00fan er hundra\u00f0falt klofin r\u00e9tt einsog a\u00f0rar p\u00f3lit\u00edskar hreyfingar. \u00deetta er einsog a\u00f0 segja a\u00f0 h\u00e6gri s\u00e9 svona og vinstri hinsegin. Sl\u00edk sko\u00f0un heldur ekki vatni.<\/p>\n<p>A\u00f0 sj\u00e1lfs\u00f6g\u00f0u er \u00fea\u00f0 jafnr\u00e9ttissinnu\u00f0 afsta\u00f0a a\u00f0 b\u00e6\u00f0i kynin taki \u00fe\u00e1tt \u00ed umr\u00e6\u00f0unni, en \u00e9g \u00e1 b\u00e1gt me\u00f0 a\u00f0 skilja hva\u00f0 \u00fea\u00f0 er sem Kristni \u00feykir vera ofst\u00e6kisfullur fem\u00ednismi. Hugt\u00f6kin eru hreinar andst\u00e6\u00f0ur. En gefum okkur a\u00f0 til s\u00e9 ofst\u00e6kisfullur fem\u00ednismi, \u00fe\u00e1 \u00fe\u00fdddi \u00fea\u00f0 v\u00e6ntanlega a\u00f0 fem\u00ednistar v\u00e6ru ekki a\u00f0 berjast fyrir jafnr\u00e9tti lengur, heldur kvenr\u00e9ttindum. \u00c9g veit ekki um neina sl\u00edka fem\u00ednista \u00e1 \u00cdslandi, hva\u00f0 \u00fe\u00e1 annarssta\u00f0ar, og Fem\u00ednistaf\u00e9lag \u00cdslands leg\u00f0i ekki blessun s\u00edna yfir sl\u00edka hugmyndafr\u00e6\u00f0i &#8211; ef \u00fea\u00f0 er s\u00fa hreyfing sem Kristinn \u00e1 vi\u00f0. \u00c9g er rei\u00f0ub\u00fainn a\u00f0 hlusta \u00e1 hva\u00f0 Kristinn \u00e1 vi\u00f0 me\u00f0 \u00feessu ef hann er rei\u00f0ub\u00fainn til a\u00f0 sk\u00fdra \u00fea\u00f0 fyrir m\u00e9r \u00ed lengra m\u00e1li. Annars er h\u00e6tt vi\u00f0 a\u00f0 vi\u00f0 skiljum ekki hvor annan.<\/p>\n<blockquote><p>En a\u00f0 segja Gillzenegger hafa veri\u00f0 a\u00f0 tala um a\u00f0 nau\u00f0ga \u00feurfii fem\u00ednistum er gott d\u00e6mi um \u00f3hefla\u00f0a t\u00falkunar\u00e1r\u00e1ttu. Ef Gillzenegger hef\u00f0i veri\u00f0 a\u00f0 tala um a\u00f0 \u201csenda\u201d tv\u00e6r til \u00ferj\u00e1r konur \u00e1 einhvern karlmann sem hann teldi \u00feurfa \u00e1 v\u00e6num skammti af kynl\u00edfi a\u00f0 halda, v\u00e6ri hann \u00fe\u00e1 a\u00f0 tala um nau\u00f0gun? Nei, hann v\u00e6ri bara af heimskulegu k\u00e6ruleysi a\u00f0 tala um a\u00f0 konurnar \u00e6ttu m\u00f6k vi\u00f0 karlmanninn, \u00e1n \u00feess a\u00f0 gefi\u00f0 s\u00e9 a\u00f0 ofbeldi komi \u00fear nokku\u00f0 vi\u00f0 s\u00f6gu. En vegna \u00feess a\u00f0 Gillzenegger tala\u00f0i um a\u00f0 senda karla \u00e1 konu, hafa margir teki\u00f0 s\u00e9r \u00fea\u00f0 sk\u00e1ldaleyfi a\u00f0 \u00e6tla honum a\u00f0 vera a\u00f0 tala um naug\u00f0un, og \u00ed grein Arngr\u00edms er \u00feess ekki einu sinni g\u00e6tt a\u00f0 tala um a\u00f0 Egill hafi etv. gefi\u00f0 \u00ed skyn a\u00f0 \u00feessum konum eigi a\u00f0 nau\u00f0ga, heldur er \u00fea\u00f0 einfaldlega fullyrt.<\/p><\/blockquote>\n<p>\u00c9g var b\u00fainn a\u00f0 svara \u00feessu \u00e1\u00f0ur en \u00e1kva\u00f0 a\u00f0 leyfa tilvitnunni a\u00f0 flj\u00f3ta me\u00f0 af einni \u00e1st\u00e6\u00f0u: Egill gaf svo sannarlega \u00ed skyn a\u00f0 \u00fea\u00f0 \u00e6tti a\u00f0 nau\u00f0ga vissum nafngreindum fem\u00ednistum. Ef \u00feessu hef\u00f0i veri\u00f0 \u00f6fugt fari\u00f0, hef\u00f0i m\u00e9r \u00fe\u00f3tt \u00fea\u00f0 eins \u00f3ge\u00f0fellt, ef senda \u00e6tti nokkrar konur til a\u00f0 losa brundi\u00f0 \u00far vatnsmel\u00f3nust\u00e6r\u00f0arpungnum \u00e1 einhverjum aumingjans akt\u00edvista sem \u00feyrfti bara duglega a\u00f0 f\u00e1 \u00e1 broddinn? Gu\u00f0 minn g\u00f3\u00f0ur, j\u00e1!<\/p>\n<p>En h\u00e9r ver\u00f0ur \u00fe\u00f3 a\u00f0 g\u00e6ta \u00feess einnig sem \u00e9g sag\u00f0i um fem\u00ednisma h\u00e9r a\u00f0 framan, a\u00f0 hann er hugmyndafr\u00e6\u00f0i \u00fatfr\u00e1 sj\u00f3narh\u00f3li konunnar sem vi\u00f0fangs fe\u00f0raveldisins. Og enda \u00fe\u00f3tt konur nau\u00f0gi l\u00edka, \u00fe\u00e1 getur Kristinn s\u00e9\u00f0 \u00ed hendi s\u00e9r hvernig hlutf\u00f6llin \u00fearna \u00e1 milli standa. \u00de\u00f3tt nau\u00f0ganir s\u00e9u alltaf jafn alvarlegar, \u00fe\u00e1 hallar gr\u00ed\u00f0arlega \u00e1 konur \u00feegar kemur a\u00f0 kynbundnu ofbeldi, og \u00fev\u00ed er ekki skr\u00fdti\u00f0 \u00fe\u00f3tt allt ver\u00f0i vitlaust \u00feegar stungi\u00f0 er upp \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 nau\u00f0ga konum einsog \u00fea\u00f0 s\u00e9 einhver brandari. D\u00e6mi um hi\u00f0 gagnst\u00e6\u00f0a, til a\u00f0 g\u00e6ta sanngirni, er til d\u00e6mis n\u00fdleg fr\u00e9tt sem Pressan birti um konu sem st\u00f6\u00f0va\u00f0i r\u00e6ningja og h\u00e9lt honum f\u00f6ngnum sem kynl\u00edfs\u00fer\u00e6l \u00ed 3-4 daga. Framsetningin var allt \u00f6nnur en um nau\u00f0gun hef\u00f0i veri\u00f0 a\u00f0 r\u00e6\u00f0a, og \u00fea\u00f0 er alveg eins vi\u00f0bj\u00f3\u00f0slegur og fyrirlitlegur fr\u00e9ttaflutningur \u00ed m\u00ednum augum einsog \u00feegar gert er l\u00edti\u00f0 \u00far nau\u00f0gun kvenna.<\/p>\n<blockquote><p>\nSvona t\u00falkunargle\u00f0i \u00e1 or\u00f0um fem\u00ednista myndu \u00feeir sj\u00e1lfir kalla rembu og fyrirlitningu, \u00fev\u00ed f\u00f3lki eru ger\u00f0ar upp verri sko\u00f0anir en \u00fea\u00f0 hefur. Samf\u00e9lagi\u00f0 er hinsvegar svo uppteki\u00f0 af \u00fev\u00ed \u00feessa dagana a\u00f0 ford\u00e6ma hverskyns kvenfyrirlitningu, a\u00f0 sanngirni til handa karlm\u00f6nnum er ekki orfarlega \u00e1 baugi \u2026<\/p><\/blockquote>\n<p>\u00deetta er einfaldlega rangt. Samf\u00e9lagi\u00f0 er alls ekkert uppteki\u00f0 af \u00fev\u00ed a\u00f0 ford\u00e6ma kvenfyrirlitningu, ekki frekar en \u00fea\u00f0 er uppteki\u00f0 af \u00fev\u00ed a\u00f0 ford\u00e6ma karlfyrirlitningu. Ef eitthva\u00f0 er \u00fe\u00e1 erum vi\u00f0 sem ford\u00e6mum kvenfyrirlitningu \u00ed ritu\u00f0u m\u00e1li \u00fdmist r\u00f6kku\u00f0 ni\u00f0ur e\u00f0a v\u00e6nd um a\u00f0 l\u00edta framhj\u00e1 karlfyrirlitningu, og fyrir hvert eitt okkar eru svona sj\u00f6 a\u00f0rir \u00e1 m\u00f3ti. Svo skal b\u00f6l b\u00e6ta a\u00f0 benda \u00e1 anna\u00f0 e\u00f0a hva\u00f0. \u00c1standi\u00f0 er alveg jafn \u00f3\u00feolandi \u00e1 b\u00e1\u00f0a b\u00f3ga og \u00fea\u00f0 \u00e6tti Kristinn sj\u00e1lfur a\u00f0 geta s\u00e9\u00f0.<\/p>\n<blockquote><p>\nTaki\u00f0 eftir \u00fev\u00ed a\u00f0 Arngr\u00edmur er n\u00fdb\u00fainn a\u00f0 lesa mj\u00f6g sterkt \u00ed or\u00f0 Egils, \u00e6tla honum a\u00f0 m\u00e6la me\u00f0 nau\u00f0gunum, og n\u00fa fullyr\u00f0ir hann a\u00f0 \u00feessi vi\u00f0horf s\u00e9u \u201craunveruleg\u201d. Hva\u00f0a vi\u00f0horf?<\/p>\n<p>\u00deessir menn sem Arngr\u00edmur fjallar um eru sannarlega a\u00f0 leyfa s\u00e9r algj\u00f6rlega \u00f3beisla\u00f0an ruddaskap. \u00dea\u00f0 er hinsvegar auglj\u00f3slega um ruddalegan g\u00e1lgah\u00famor a\u00f0 r\u00e6\u00f0a og \u00fea\u00f0 segja \u00feeir sj\u00e1lfir \u00feegar \u00feeir eru spur\u00f0ir \u00fat \u00ed \u00feetta. \u00dea\u00f0 afsakar heg\u00f0un \u00feeirra vitaskuld ekki fyrir fimm aura, en \u00feegar tala\u00f0 er um a\u00f0 \u00feetta s\u00e9u raunveruleg vi\u00f0horf, og lesi\u00f0 er nokkrum n\u00famerum harkalegar \u00ed or\u00f0in heldur en lj\u00f3st er a\u00f0 eigi a\u00f0 gera, er ekki lengur lj\u00f3st hver \u00feau raunverulegu vi\u00f0horf eru. Auglj\u00f3slega er \u00fe\u00f3 a.m.k. um \u00fea\u00f0 vi\u00f0horf a\u00f0 r\u00e6\u00f0a a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 \u00ed lagi a\u00f0 tala mj\u00f6g ruddalega um konur, en \u00fea\u00f0 er eina vi\u00f0horfi\u00f0 sem Arngr\u00edmur getur gefi\u00f0 s\u00e9r a\u00f0 s\u00e9 raunverulegt og \u00fea\u00f0 er alveg n\u00f3gu sl\u00e6mt, \u00e1n \u00feess a\u00f0 krydda\u00f0 s\u00e9 hressilega.<\/p><\/blockquote>\n<p>Ef Kristni n\u00e6gja ekki d\u00e6min m\u00edn um kvenfyrirlitningu og \u00f3ge\u00f0felld vi\u00f0horf til nau\u00f0gana \u00fe\u00e1 veit \u00e9g ekki hva\u00f0 \u00e9g \u00e1 a\u00f0 gera meira, nema einhver s\u00e9 rei\u00f0ub\u00fainn a\u00f0 borga m\u00e9r laun fyrir a\u00f0 vera \u00ed fullri vinnu vi\u00f0 a\u00f0 safna umm\u00e6lum sem sta\u00f0festa allt \u00fea\u00f0 sem \u00e9g hef sagt hinga\u00f0 til. Efast Kristinn um a\u00f0 til s\u00e9u menn sem finnast nau\u00f0ganir e\u00f0lilegasti hlutur \u00ed heimi? \u00de\u00e1 m\u00e1 nefna t\u00edttnefnt moggablogg mannsins sem tala\u00f0i um a\u00f0 af v\u00e6ri sem \u00e1\u00f0ur var \u00feegar menn g\u00e1tu ri\u00f0i\u00f0 \u00f6llu dau\u00f0u \u00e1 Heimaey \u00e1 \u00fej\u00f3\u00f0h\u00e1t\u00ed\u00f0. \u00de\u00e1 m\u00e1 aftur nefna Baldur Hermannsson. \u00dearf Kristinn frekari vitnanna vi\u00f0, \u00ed alv\u00f6ru? Hva\u00f0 um \u00fe\u00e1 statist\u00edk a\u00f0 fj\u00f3r\u00f0u hverri konu er nau\u00f0ga\u00f0 \u00e1 l\u00edfslei\u00f0inni?<\/p>\n<p>Athugasemdum Kristins um fyrrum r\u00edkissaks\u00f3knara hef \u00e9g \u00feegar svara\u00f0 h\u00e9r a\u00f0 ofan a\u00f0 flestu leyti. Umm\u00e6li m\u00ednu voru ekki a\u00f0 svo miklu leyti hugsu\u00f0 sem svo a\u00f0 Valt\u00fd \u00fe\u00e6tti r\u00e9ttl\u00e6tanlegt a\u00f0 nau\u00f0ga konum, heldur a\u00f0 honum \u00fe\u00e6tti e\u00f0lilegt a\u00f0 samf\u00e9lagi\u00f0 v\u00e6ri \u00feannig gert a\u00f0 konur m\u00e6ttu ekki kl\u00e6\u00f0a sig hvernig svo sem \u00feeim s\u00fdndist \u00e1n \u00feess a\u00f0 vera nau\u00f0ga\u00f0. \u00dea\u00f0 er grafalvarlegt a\u00f0 helsti talsma\u00f0ur \u00e1k\u00e6ruvaldsins tj\u00e1i sig me\u00f0 \u00feeim h\u00e6tti, og \u00fea\u00f0 stend \u00e9g vi\u00f0.<\/p>\n<blockquote><p>Og n\u00fa geta konur s.s. gla\u00f0st yfir \u00fev\u00ed a\u00f0 afar vel skrifandi karlma\u00f0ur hafi teki\u00f0 sig til og sam\u00feykkt \u00fe\u00e1 t\u00falkun af miklum myndarskap \u2013 \u00fea\u00f0 hj\u00e1lpar kannski d\u00e1l\u00edti\u00f0 vi\u00f0 a\u00f0 b\u00e6gja fr\u00e1 \u00f6llum efasemdum um a\u00f0 r\u00edkissaks\u00f3knarinn fyrrverandi hafi virkilega veri\u00f0 svo l\u00e1gk\u00farulegur \u00ed hugsun.<\/p><\/blockquote>\n<p>\u00deetta \u00feykir m\u00e9r \u00f3vanalega \u00f3m\u00e1lefnaleg athugasemd hj\u00e1 Kristni. Hann getur sj\u00e1lfur d\u00e6mt um \u00fea\u00f0 eftir lestur \u00feessa svars m\u00edns hvort \u00e9g s\u00e9 s\u00fa t\u00fdpa sem hann l\u00fdsir \u00fearna, fem\u00ednisti by fashion, hylli allra pop\u00fal\u00edskra kvenna. \u00c9g l\u00e6t \u00feessu \u00f3svara\u00f0.<\/p>\n<blockquote><p>Arngr\u00edmur er b\u00fainn a\u00f0 ey\u00f0a \u00f6llu p\u00fa\u00f0rinu \u00ed a\u00f0 fjalla losaralega um ruddaleg vi\u00f0br\u00f6g\u00f0 nokkurra bj\u00e1na vi\u00f0 d\u00e1l\u00edti\u00f0 ofst\u00e6kisfullum umm\u00e6lum f\u00e1einna fem\u00edniskra stj\u00f3rnm\u00e1lamanna<\/p><\/blockquote>\n<p>Hva\u00f0a ofst\u00e6kisfullu umm\u00e6li voru \u00fea\u00f0 ef m\u00e9r leyfist a\u00f0 spyrja?<\/p>\n<blockquote><p>og \u00ed a\u00f0 gera fyrrum r\u00edkissaks\u00f3knara upp hugsun sem \u00e9g get lofa\u00f0 ykkur a\u00f0 hefur aldrei hvarla\u00f0 a\u00f0 honum. \u00cd<\/p><\/blockquote>\n<p>Fyrrum r\u00edkissaks\u00f3knari er einfaldlega bj\u00e1ni ef \u00fea\u00f0 hvarfla\u00f0i ekki a\u00f0 honum a\u00f0 \u00feessi umm\u00e6li hans v\u00e6ru \u00e1m\u00e6lisver\u00f0. Svo tilgreinir Kristinn einhver komment af Wikipediu sem \u00e9g var l\u00edka b\u00fainn a\u00f0 svara h\u00e9r a\u00f0 ofan.<\/p>\n<blockquote><p>Arngr\u00edmur er einfadlega \u00ed grein sinni b\u00fainn a\u00f0 gera skr\u00edpamynd \u00far afst\u00f6\u00f0u \u00feeirra sem telja umr\u00e6\u00f0u um risk management ekki f\u00e6ra \u00e1byrg\u00f0ina yfir \u00e1 \u00feolanda gl\u00e6ps. Hann hefur gengi\u00f0 svo langt, a\u00f0 sn\u00faa afst\u00f6\u00f0unni fullkomlega \u00e1 haus og l\u00edtur \u00e1 hana sem yfirl\u00fdsingu um a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 \u00ed lagi a\u00f0 nau\u00f0ga druslulega kl\u00e6ddum konum og fyrir \u00feann v\u00edtaver\u00f0a \u00fat\u00farsn\u00faning f\u00e6r hann lof \u00ed l\u00f3fa \u00e1 heimas\u00ed\u00f0u g\u00f6ngunnar.<\/p><\/blockquote>\n<p>A\u00f0 \u00f6llu ofangreindu s\u00f6g\u00f0u er \u00feetta einfaldlega \u00fat\u00farsn\u00faningur \u00e1 m\u00ednum meinta \u00fat\u00farsn\u00faningi.<\/p>\n<p>N\u00fa vona \u00e9g a\u00f0 Kristinn taki s\u00e9r t\u00edma til a\u00f0 lesa \u00feetta alltsaman \u00ed \u00feaula og taka til \u00feess \u00f6gn m\u00e1lefnalegri afst\u00f6\u00f0u en m\u00e9r \u00fe\u00f3tti hann gera \u00ed svargrein sinni. \u00c1 engan h\u00e1tt ber honum a\u00f0 skilja mitt andsvar sem svo a\u00f0 m\u00e9r \u00feyki hann ekki \u00feess ver\u00f0ur a\u00f0 eiga \u00ed \u00feessari umr\u00e6\u00f0u, s\u00ed\u00f0ur en svo. M\u00e9r \u00feykir hinsvegar mikilv\u00e6gt a\u00f0 \u00fatsk\u00fdra betur hva\u00f0an m\u00edn vi\u00f0horf spretta, og \u00fear af lei\u00f0andi af hva\u00f0a hugarfari greinin m\u00edn m\u00f3tast af.<\/p>\n<p>\u00c9g fyrirver\u00f0 mig \u00e1s\u00f6kunum um \u00f6fgar, fem\u00edn\u00edska e\u00f0a p\u00f3lit\u00edska r\u00e9tthugsun og karlfyrirlitningu. \u00dea\u00f0 eru engar \u00f6fgar \u00ed \u00fev\u00ed sem \u00e9g skrifa\u00f0i. \u00c1 hinn b\u00f3ginn er sl\u00edkt samf\u00e9lag \u00f6fgafullt \u00fear sem \u00fearf s\u00e9rstaklega a\u00f0 berjast gegn nau\u00f0gunum, og svara fyrir \u00fe\u00e1 bar\u00e1ttu. \u00c1 m\u00f3ti kemur er Kristinn The\u00f3d\u00f3rsson s\u00e1 m\u00e1lefnalegasti sem hinga\u00f0 til hefur s\u00e9\u00f0 s\u00e9r \u00e1st\u00e6\u00f0u til a\u00f0 svara m\u00e9r, og \u00fea\u00f0 er vitaskuld mikilv\u00e6gt a\u00f0 samr\u00e6\u00f0a geti or\u00f0i\u00f0 milli \u00f3l\u00edkra sj\u00f3narmi\u00f0a. \u00dev\u00ed fagna \u00e9g \u00fev\u00ed a\u00f0 hann hafi teki\u00f0 s\u00e9r t\u00edma til a\u00f0 svara greininni minni, sem sj\u00e1lfan mig \u00f3ra\u00f0i raunar aldrei fyrir a\u00f0 fengi vi\u00f0l\u00edka \u00fatbrei\u00f0slu og athygli og raun ber vitni.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>S\u00e1 m\u00e6ti ma\u00f0ur Kristinn The\u00f3d\u00f3rsson tilkynnti \u00e1 vefs\u00ed\u00f0u sinni \u00ed g\u00e6rkv\u00f6ld a\u00f0 hann myndi \u00ed dag svara grein minni En h\u00fan var svo djarflega kl\u00e6dd! sem \u00e9g skrifa\u00f0i umbe\u00f0inn fyrir Druslug\u00f6nguna, og \u00fe\u00f3tti hei\u00f0ur a\u00f0. Raunar l\u00edkti hann skrifum m\u00ednum, eftir \u00fev\u00ed sem \u00e9g kemst n\u00e6st, vi\u00f0 t\u00f6lvuleikinn um Mariobr\u00e6\u00f0ur (af gullpeningal\u00edkingu Kristins helgast fyrirs\u00f6gnin &hellip; <a href=\"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/2011\/07\/17\/greiningardeildin-hefur-svara%c3%b0\/\" class=\"more-link\">Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa: <span class=\"screen-reader-text\">Greiningardeildin hefur svara\u00f0<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":3,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[33,9,21],"tags":[],"class_list":["post-3633","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-feminismi","category-greinar","category-politik"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/3633","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/users\/3"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3633"}],"version-history":[{"count":3,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/3633\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":13843,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/3633\/revisions\/13843"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3633"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=3633"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=3633"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}