{"id":3904,"date":"2012-10-06T01:42:32","date_gmt":"2012-10-06T01:42:32","guid":{"rendered":"http:\/\/kaninka.net\/arngrimurv\/?p=3904"},"modified":"2019-01-01T13:37:10","modified_gmt":"2019-01-01T13:37:10","slug":"a-game-of-thrones","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/2012\/10\/06\/a-game-of-thrones\/","title":{"rendered":"A game of thrones"},"content":{"rendered":"<p><a href=\"http:\/\/gamla.truflun.net\/arngrimurv\/wp-content\/uploads\/2012\/10\/IMG_2194.jpg\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" src=\"http:\/\/gamla.truflun.net\/arngrimurv\/wp-content\/uploads\/2012\/10\/IMG_2194-300x300.jpg\" alt=\"\" title=\"IMG_2194\" width=\"250\" height=\"250\" class=\"alignleft size-medium wp-image-3905\" \/><\/a>\u00c9g \u00fereytist ekki \u00e1 a\u00f0 \u00feakka fyrir \u00fe\u00e1 \u00fej\u00f3nustu sem H\u00e1sk\u00f3li \u00cdslands b\u00fd\u00f0ur nemendum s\u00ednum (muni\u00f0 \u00fea\u00f0 n\u00e6st \u00feegar \u00fei\u00f0 kvarti\u00f0 a\u00f0 ekkert er sj\u00e1lfsagt). Eftir a\u00f0 hafa skrifa\u00f0 meistararitger\u00f0 \u00ed svefnherberginu heima a\u00f0 mestu (vi\u00f0 misg\u00f3\u00f0ar a\u00f0st\u00e6\u00f0ur) og sumpart \u00e1 Kringlusafni (t\u00f6lum ekki um \u00fea\u00f0) \u00fe\u00e1 f\u00f3r \u00e9g a\u00f0 hugsa m\u00e9r til hreyfings. Eftir a\u00f0 hafa sko\u00f0a\u00f0 helstu m\u00f6guleikana sem ekki eru Reykjav\u00edkurAkadem\u00edan \u00fear sem \u00e9g \u00e1\u00f0ur vann \u2013 \u00fea\u00f0 eru \u00fe\u00e1 bor\u00f0 \u00e1 \u00c1rnastofnun, skrifstofa \u00e1 Landsb\u00f3kasafni e\u00f0a skilr\u00fdmi (e. cubicle) \u00ed Gimli \u2013 \u00fe\u00e1 s\u00f3tti \u00e9g um a\u00f0st\u00f6\u00f0u \u00e1 s\u00ed\u00f0astnefnda sta\u00f0num um lei\u00f0 og \u00e9g haf\u00f0i borga\u00f0 sk\u00f3lagj\u00f6ldin.<\/p>\n<p>Og n\u00fa \u00ed vikunni var m\u00e9r \u00fathluta\u00f0 bor\u00f0i \u00fear, sem l\u00f6g gera r\u00e1\u00f0 fyrir a\u00f0 fylgi b\u00f3kahilla, l\u00e6sanlegur sk\u00e1pur og hirsla \u00e1 hj\u00f3lum. Nema l\u00f6g gera n\u00e1tt\u00farlega ekki r\u00e1\u00f0 fyrir fyrri bor\u00f0b\u00faa sem ekki hefur formlega yfirgefi\u00f0 a\u00f0st\u00f6\u00f0una. B\u00f3kahillan er full af m\u00f6ppum og \u00f6\u00f0ru drasli, sk\u00e1purinn er l\u00e6stur (og fullur) og hirslan er l\u00e6st (og full). Fyrri bor\u00f0b\u00fai skrapp til \u00fatlanda \u00ed einsog eitt \u00e1r og t\u00f3k a\u00f0st\u00f6\u00f0una svona l\u00edka hressilega \u00ed g\u00edslingu, \u00ed \u00feeirri von a\u00f0 hann h\u00e9ldi henni \u00e1 me\u00f0an einsog einhver Kjartan \u00d3lafsson (helst \u00feekktur fyrir a\u00f0 fara \u00ed f\u00fdlu \u00feegar hann kom aftur fr\u00e1 \u00fatl\u00f6ndum og fann a\u00f0 Bolli f\u00f3stbr\u00f3\u00f0ir hans haf\u00f0i fastna\u00f0 s\u00e9r unnustu hans. Bolli neyddist loks til a\u00f0 p\u00fanktera hann me\u00f0 sver\u00f0i svo hann d\u00f3, svo freklega l\u00e9t hann me\u00f0 \u00feetta. \u00dea\u00f0 lei\u00f0ir \u00fev\u00ed bers\u00fdnilega af hef\u00f0un fyrri bor\u00f0b\u00faa a\u00f0 hann hefur ekki lesi\u00f0 Laxd\u00e6lu).<\/p>\n<p>Og undir eins og \u00e9g m\u00e6ti \u00e1 sv\u00e6\u00f0i\u00f0 stendur var\u00f0hundur upp af bor\u00f0i hinumegin \u00feils og tj\u00e1ir m\u00e9r a\u00f0 fyrri bor\u00f0b\u00fai s\u00e9 v\u00e6ntanlegur innan loka annarinnar. Honum var\u00f0 ekki k\u00e1pan \u00far \u00fev\u00ed kl\u00e6\u00f0inu; seint um aftan eftir a\u00f0 allir h\u00f6f\u00f0u yfirgefi\u00f0 sv\u00e6\u00f0i\u00f0, a\u00f0 undanskildum m\u00ednum gamla bekkjarf\u00e9laga Haraldi Hreinssyni, \u00fe\u00e1 m\u00e6tti \u00e9g og planta\u00f0i bor\u00f0t\u00f6lvu, papp\u00edrshr\u00fagu og gommu af b\u00f3kum \u00e1 bor\u00f0i\u00f0. Daginn eftir var einsog \u00e9g hef\u00f0i alltaf veri\u00f0 \u00fearna. \u00c9g hef a\u00f0 v\u00edsu ekki sk\u00e1pana (og fyrir viki\u00f0 eru flestar b\u00e6kurnar m\u00ednar enn\u00fe\u00e1 heima), en \u00ed trausti \u00feess a\u00f0 \u00feau m\u00e1l leysist sem allra fyrst (\u00fe.e. \u00e1 \u00feessu \u00e1ri) \u00fe\u00e1 uni \u00e9g gla\u00f0ur vi\u00f0 mitt. N\u00e6gilega kembdi \u00e9g h\u00e6rurnar vi\u00f0 var\u00f0hundinn (af \u00e6rnu tilefni) \u00e1n \u00feess \u00e9g fari sj\u00e1lfur a\u00f0 pakka ni\u00f0ur m\u00f6ppum fyrri bor\u00f0b\u00faa. \u00dea\u00f0 v\u00e6ri hybris, enda er \u00e9g a\u00f0 v\u00edsu umkringdur kollegum hennar \u00e1 alla kanta. \u00dea\u00f0 \u00e6tti \u00fe\u00f3 varla a\u00f0 ver\u00f0a alvarlegri sit\u00faasj\u00f3n en svo a\u00f0 staka bitsjslapp gangi \u00e1 milli bor\u00f0a.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00c9g \u00fereytist ekki \u00e1 a\u00f0 \u00feakka fyrir \u00fe\u00e1 \u00fej\u00f3nustu sem H\u00e1sk\u00f3li \u00cdslands b\u00fd\u00f0ur nemendum s\u00ednum (muni\u00f0 \u00fea\u00f0 n\u00e6st \u00feegar \u00fei\u00f0 kvarti\u00f0 a\u00f0 ekkert er sj\u00e1lfsagt). Eftir a\u00f0 hafa skrifa\u00f0 meistararitger\u00f0 \u00ed svefnherberginu heima a\u00f0 mestu (vi\u00f0 misg\u00f3\u00f0ar a\u00f0st\u00e6\u00f0ur) og sumpart \u00e1 Kringlusafni (t\u00f6lum ekki um \u00fea\u00f0) \u00fe\u00e1 f\u00f3r \u00e9g a\u00f0 hugsa m\u00e9r til hreyfings. Eftir &hellip; <a href=\"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/2012\/10\/06\/a-game-of-thrones\/\" class=\"more-link\">Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa: <span class=\"screen-reader-text\">A game of thrones<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":3,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[19,28],"tags":[],"class_list":["post-3904","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-nami","category-ur-daglega-lifinu"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/3904","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/users\/3"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3904"}],"version-history":[{"count":3,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/3904\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":13885,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/3904\/revisions\/13885"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3904"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=3904"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=3904"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}