{"id":4296,"date":"2013-12-28T00:46:35","date_gmt":"2013-12-28T00:46:35","guid":{"rendered":"http:\/\/gamla.truflun.net\/arngrimurv\/?p=4296"},"modified":"2019-01-01T13:37:16","modified_gmt":"2019-01-01T13:37:16","slug":"midi-til-kaupmannahafnar","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/2013\/12\/28\/midi-til-kaupmannahafnar\/","title":{"rendered":"Mi\u00f0i til Kaupmannahafnar"},"content":{"rendered":"<p>\u00c9g \u00e1 flugmi\u00f0a til Kaupmannahafnar. Sl\u00edkir flugmi\u00f0ar, \u00fe\u00f3tt \u00feeir kosti ekki (rosalega) miki\u00f0, eru me\u00f0 \u00fev\u00ed d\u00fdrm\u00e6tasta sem \u00e9g veit. Mi\u00f0i til Kaupmannahafnar er ekki a\u00f0eins a\u00f0g\u00f6ngumi\u00f0i a\u00f0 \u00feri\u00f0ja heimalandinu, heldur a\u00f0 vinum, kunningjum og samstarfsf\u00f3lki h\u00e9r og \u00fear \u00ed Danm\u00f6rku sem \u00e9g hitti sjaldnar en \u00e9g vildi.<\/p>\n<p>\u00cd Kaupmannah\u00f6fn ver\u00f0 \u00e9g \u00ed \u00ferj\u00e1 m\u00e1nu\u00f0i a\u00f0 rannsaka mi\u00f0aldahandrit, eitt af \u00feessum sem menntam\u00e1lar\u00e1\u00f0herra man eftir \u00feegar hann \u00fearf a\u00f0 semja r\u00e6\u00f0u en l\u00e6tur \u00feess utan sem hann kannist ekki vi\u00f0. \u00d3tr\u00falegt a\u00f0 honum s\u00e9 enn bo\u00f0i\u00f0 a\u00f0 halda \u00fe\u00e6r.<\/p>\n<p>\u00deeim sem vilja kynna s\u00e9r hva\u00f0a handrit \u00e9g \u00e6tla a\u00f0 rannsaka er bent \u00e1 bls. 92\u201395 \u00ed b\u00f3kinni <em>66 handrit \u00far f\u00f3rum \u00c1rna Magn\u00fassonar<\/em>, einkum \u00e1 fallegu opnumyndina \u00e1 bls. 94\u201395. \u00deetta er (me\u00f0al annars efnis) veraldarsaga fr\u00e1 14. \u00f6ld. \u00dea\u00f0 vita \u00fea\u00f0 f\u00e1ir en veraldars\u00f6gur eru me\u00f0 merkilegustu b\u00f3kum sem til eru. \u00deeir sem vilja vita hva\u00f0 Snorri Stull og h\u00f6fundar \u00cdslendingasagna h\u00e9ldu um heiminn \u00e6ttu a\u00f0 byrja \u00e1 a\u00f0 lesa veraldars\u00f6gu.<\/p>\n<p>\u00deetta er ekki allt sem \u00e9g \u00e6tla a\u00f0 sko\u00f0a, en \u00fea\u00f0 helsta. <\/p>\n<p>\u00cd \u00c1rnasafni \u00fair og gr\u00fair af \u00f3metanlegum g\u00f6mlum b\u00f3kum sem b\u00faa yfir \u00f3tal leyndard\u00f3mum um l\u00f6ngu horfna t\u00ed\u00f0. \u00c9g finn oft fyrir vir\u00f0ingarleysi gagnvart \u00feessum viskuau\u00f0, ekki s\u00edst hj\u00e1 \u00feeim sem fara me\u00f0 \u00e6\u00f0stu yfirstj\u00f3rn menningar- og menntam\u00e1la \u00ed \u00feessu landi. Hef\u00f0i b\u00f3kunum ekki veri\u00f0 bjarga\u00f0 \u00ed brunanum \u00ed Kaupmannah\u00f6fn for\u00f0um m\u00e6tti l\u00edkja missinum vi\u00f0 hi\u00f0 glata\u00f0a b\u00f3kasafn \u00ed Alexandr\u00edu, bara \u00e1 sm\u00e6rri kvar\u00f0a. <\/p>\n<p>\u00cdslendingar komust ansi n\u00e6rri \u00fev\u00ed a\u00f0 ver\u00f0a s\u00f6gulaus \u00fej\u00f3\u00f0. Kannski ekki s\u00edst \u00feess vegna eru \u00cdslendingar margir mj\u00f6g \u00e1hugasamir um eigin s\u00f6gu. Vandinn er kannski helst s\u00e1 a\u00f0 flestir telja sig \u00feekkja hana til hl\u00edtar \u00feegar vi\u00f0 vitum \u00ed raun s\u00e1ral\u00edti\u00f0, a\u00f0 \u00c1rnastofnun s\u00e9 minjasafn en ekki ranns\u00f3knarstofnun, og a\u00f0 \u00f3\u00fearfi s\u00e9 a\u00f0 veita peningum \u00ed handritin \u00fev\u00ed \u00feau ver\u00f0i alltaf til \u2014 sem \u00feau ver\u00f0a einmitt ekki. \u00deekkingin ver\u00f0ur heldur ekki alltaf til. H\u00fan hverfur me\u00f0 v\u00edsindaf\u00f3lkinu. V\u00edsindaf\u00f3lki\u00f0 hverfur \u00feegar peningarnir hverfa.<\/p>\n<p>\u00c9g hef rannsaka\u00f0 mi\u00f0aldatexta \u00e1 eigin kostna\u00f0 s\u00ed\u00f0ustu \u00e1rin og vari\u00f0 til \u00feeirrar i\u00f0ju fj\u00e1rh\u00e6\u00f0 sem talin ver\u00f0ur \u00ed nokkrum millj\u00f3num kr\u00f3na. \u00c9g hef ekki efni \u00e1 \u00fev\u00ed \u00fat starfsferilinn.<\/p>\n<p>N\u00fa \u00e1 \u00e9g mi\u00f0a til Kaupmannahafnar \u00fear sem m\u00e9r ver\u00f0ur \u00ed fyrsta skipti \u00e1 \u00e6vinni beinl\u00ednis borga\u00f0 fyrir ranns\u00f3knir fremur en a\u00f0 \u00e9g snari \u00fev\u00ed \u00far eigin vasa. \u00dea\u00f0 ver\u00f0ur tilbreyting. Fyrir margt l\u00f6ngu haf\u00f0i \u00e9g or\u00f0i\u00f0 m\u00e9r \u00fati um litla \u00edb\u00fa\u00f0 \u00e1 g\u00f3\u00f0um sta\u00f0 \u00ed borginni. \u00dea\u00f0 ver\u00f0ur einmanalegt \u00e1n Eyju og stelpnanna, en \u00e9g hlakka engu a\u00f0 s\u00ed\u00f0ur til. \u00deeir sem ekki sj\u00e1 spennuna \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 fletta skinnhandriti fr\u00e1 14. \u00f6ld er einfaldlega f\u00f3lk handan m\u00edns skilnings.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00c9g \u00e1 flugmi\u00f0a til Kaupmannahafnar. Sl\u00edkir flugmi\u00f0ar, \u00fe\u00f3tt \u00feeir kosti ekki (rosalega) miki\u00f0, eru me\u00f0 \u00fev\u00ed d\u00fdrm\u00e6tasta sem \u00e9g veit. Mi\u00f0i til Kaupmannahafnar er ekki a\u00f0eins a\u00f0g\u00f6ngumi\u00f0i a\u00f0 \u00feri\u00f0ja heimalandinu, heldur a\u00f0 vinum, kunningjum og samstarfsf\u00f3lki h\u00e9r og \u00fear \u00ed Danm\u00f6rku sem \u00e9g hitti sjaldnar en \u00e9g vildi. \u00cd Kaupmannah\u00f6fn ver\u00f0 \u00e9g \u00ed \u00ferj\u00e1 m\u00e1nu\u00f0i &hellip; <a href=\"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/2013\/12\/28\/midi-til-kaupmannahafnar\/\" class=\"more-link\">Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa: <span class=\"screen-reader-text\">Mi\u00f0i til Kaupmannahafnar<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":3,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[32,6,16,19,22],"tags":[],"class_list":["post-4296","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-bkur","category-feralog","category-midaldir","category-nami","category-saga"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/4296","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/users\/3"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=4296"}],"version-history":[{"count":3,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/4296\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":13943,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/4296\/revisions\/13943"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=4296"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=4296"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=4296"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}