{"id":4335,"date":"2014-05-28T11:40:22","date_gmt":"2014-05-28T11:40:22","guid":{"rendered":"http:\/\/gamla.truflun.net\/arngrimurv\/?p=4335"},"modified":"2019-01-01T13:37:17","modified_gmt":"2019-01-01T13:37:17","slug":"meistaraverk-aeskuaranna-iii-shes-all-that","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/2014\/05\/28\/meistaraverk-aeskuaranna-iii-shes-all-that\/","title":{"rendered":"Meistaraverk \u00e6sku\u00e1ranna III: She&#039;s All That"},"content":{"rendered":"<p><em>Sj\u00e1 \u00e1\u00f0ur \u00ed syrpunni:<br \/>\nI. <a href=\"http:\/\/gamla.truflun.net\/arngrimurv\/2014\/05\/meistaraverk-aeskuaranna-i-backdraft\/\" target=\"_blank\">Backdraft er enn\u00fe\u00e1 m\u00e1li\u00f0<\/a><br \/>\nII. <a href=\"http:\/\/gamla.truflun.net\/arngrimurv\/2014\/05\/meistaraverk-aeskuaranna-ii-dyrin-i-halsaskogi\/\" target=\"_blank\">Lilli klifurm\u00fas er sj\u00e1lfselskur k\u00fakalabbi<\/a>.<\/em><\/p>\n<figure id=\"attachment_4336\" aria-describedby=\"caption-attachment-4336\" style=\"width: 332px\" class=\"wp-caption aligncenter\"><a href=\"http:\/\/gamla.truflun.net\/arngrimurv\/wp-content\/uploads\/2014\/05\/BxZnh4OTrreH9UnkCSB09L7qXh8W1qdO_640x360_77793859967.jpg\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\" wp-image-4336    \" alt=\"Paul Walker og Freddie Prinze Jr. beita unga st\u00falku andlegu ofbeldi til a\u00f0 s\u00fdna fram \u00e1 hversu \u00e6\u00f0islegir \u00feeir eru\" src=\"http:\/\/gamla.truflun.net\/arngrimurv\/wp-content\/uploads\/2014\/05\/BxZnh4OTrreH9UnkCSB09L7qXh8W1qdO_640x360_77793859967.jpg\" width=\"332\" height=\"186\" \/><\/a><figcaption id=\"caption-attachment-4336\" class=\"wp-caption-text\">Paul Walker og Freddie Prinze Jr. beita unga st\u00falku andlegu ofbeldi til a\u00f0 s\u00fdna fram \u00e1 hversu \u00e6\u00f0islegir \u00feeir eru<\/figcaption><\/figure>\n<p>Aftur svindla \u00e9g \u00e1 reglunum \u00fear sem aldrei hefur veri\u00f0 h\u00e6gt a\u00f0 halda \u00fev\u00ed fram a\u00f0 <em>She&#8217;s All That<\/em> s\u00e9 meistaraverk \u00fe\u00f3tt m\u00e9r hafi \u00fe\u00f3tt h\u00fan \u00e1horfanleg \u00feegar \u00e9g var \u00e1 fyrsta \u00e1ri \u00ed mennt\u00f3, auk \u00feess a\u00f0 menntask\u00f3la\u00e1rin teljast varla til \u00e6sku\u00e1ranna. \u00deessi mynd f\u00e6r a\u00f0 flj\u00f3ta h\u00e9rna me\u00f0 \u00fev\u00ed \u00e9g f\u00e9kk \u00fe\u00e1 hugmynd \u00e1 d\u00f6gunum a\u00f0 k\u00edkja \u00e1 hana aftur, \u00ed fyrsta sinn s\u00ed\u00f0an \u00e9g var sext\u00e1n \u00e1ra.<\/p>\n<p>H\u00fan hefur ekki elst vel. Raunar hefur aldur ekkert me\u00f0 \u00fea\u00f0 a\u00f0 gera; svona myndir eru aldrei \u00ed lagi.<\/p>\n<p><em>She&#8217;s All That<\/em> (1999) fjallar um \u00e1tj\u00e1n \u00e1ra h\u00f6nki\u00f0 Zack (Freddie Prinze Jr.) sem er eins n\u00e1l\u00e6gt \u00fev\u00ed a\u00f0 vera gu\u00f0 og h\u00e6gt er \u00ed sk\u00f3lanum s\u00ednum. Alla \u00e6vi hefur hann veri\u00f0 algj\u00f6rlega vammlaus og heyrt til einhverjum \u00e6\u00f0ri klassa af manneskju en sk\u00f3laf\u00e9lagarnir, \u00fear til daginn eftir vorfr\u00ed \u00e1 loka\u00e1rinu \u00ed gaggmennt\u00f3 (high school) a\u00f0 k\u00e6rastan hans Taylor (Jodi Lyn O&#8217;Keefe) \u2014 sem er flottasta stelpan \u00ed sk\u00f3lanum, sem gert er sk\u00fdrt \u00ed myndinni a\u00f0 er hlutverk en ekki hlutl\u00e6gur veruleiki, \u00feannig a\u00f0 h\u00fan er \u00fer\u00e1tt fyrir allt sk\u00f6rinni l\u00e6gra sett en hann sem er f\u00e6ddur fullkominn \u2014 segir honum upp fyrir framan allan sk\u00f3lann, svo a\u00f0 segja, \u00fev\u00ed h\u00fan hefur teki\u00f0 saman vi\u00f0 Matthew Lillard af \u00f6llum m\u00f6nnum.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 a\u00f0 Zack og Taylor eru ekki jafningjar kemur \u00feegar fram \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 hlutverk s\u00e6tustu stelpunnar er a\u00f0 vera vi\u00f0hengi s\u00e6tasta str\u00e1ksins. \u00deegar Taylor hefur d\u00f6mpa\u00f0 Zack gerir hann ve\u00f0m\u00e1l vi\u00f0 ungan Paul Walker (sem ver\u00f0ur a\u00f0 segjast a\u00f0 \u00e1tti eftir a\u00f0 ver\u00f0a myndarlegri me\u00f0 \u00e1runum) um a\u00f0 hann geti gert hva\u00f0a stelpu sem er a\u00f0 heimkv\u00e1mudrottningu sinni \u00e1 lokaballinu (\u00fev\u00ed vita\u00f0 er a\u00f0 hann ver\u00f0ur k\u00f3ngurinn, \u00fea\u00f0 er enginn annar eins og hann \u00ed sk\u00f3lanum). Og \u00feetta tekst! Svona framan af a\u00f0 minnsta kosti. Taylor tapar \u00f6llum vins\u00e6ldum s\u00ednum af \u00fev\u00ed h\u00fan er ekki lengur vi\u00f0lo\u00f0andi Zack, hybris hennar er a\u00f0 telja sig standa honum jafnf\u00e6tis \u00e1 grundvelli fegur\u00f0ar sinnar og vins\u00e6lda og \u00fev\u00ed l\u00e6tur h\u00fan hvarvetna eins og h\u00fan eigi sta\u00f0inn, en tapar fyrir viki\u00f0 vins\u00e6ldum s\u00ednum og vinum. H\u00fan ver\u00f0ur drottning \u00ed lokin en svo er komi\u00f0 fyrir henni \u00fe\u00e1 a\u00f0 \u00feegar h\u00fan heldur bitra heimkv\u00e1mur\u00e6\u00f0una er sl\u00f6kkt \u00e1 m\u00edkr\u00f3f\u00f3ninum svo enginn \u00feurfi a\u00f0 hlusta \u00e1 hana.<\/p>\n<p>St\u00falkan sem Zack \u00e1 a\u00f0 umbreyta \u00far l\u00fa\u00f0a \u00ed l\u00e6\u00f0u er listabrautart\u00fdpan Laney (Rachael Leigh Cook), sem vill \u00ed fyrstu ekkert me\u00f0 hann hafa og s\u00fdnir honum fram \u00e1 me\u00f0 vandl\u00e6tingu sinni \u00e1 honum a\u00f0 enn geti hann b\u00e6tt um betur. \u00de\u00f3 er \u00fea\u00f0 a\u00f0 mestu leyti hann sem m\u00f3tar hana og gott betur en \u00fea\u00f0, \u00ed mynd fyrrverandi k\u00e6rustunnar (\u00feetta s\u00e9st \u00e1 \u00fev\u00ed \u00feegar \u00fe\u00e6r hittast \u00ed fyrsta skipti og hann hefur keypt \u00e1 hana sams konar kj\u00f3l og s\u00fa fyrrverandi er \u00ed), og \u00f6ll \u00feeirra samskipti fara fram meira e\u00f0a minna \u00e1 hans forsendum. Stundum me\u00f0 valdi (ekki l\u00edkamlegu, \u00fe\u00f3).<\/p>\n<p>Ekki b\u00e6tir \u00far sk\u00e1k a\u00f0 allir krakkarnir \u00ed myndinni eru \u00f3ge\u00f0slegt Kaliforn\u00eduyfirst\u00e9ttarpakk. \u00deau eiga s\u00e9r engin vandam\u00e1l, sj\u00e1st aldrei l\u00e6ra heima, hanga \u00e1 str\u00f6ndinni, halda part\u00ed \u00ed einb\u00fdlish\u00fasum me\u00f0 innr\u00e9ttu\u00f0um neonlj\u00f3sum \u00e1 fj\u00f3rum h\u00e6\u00f0um, aka um \u00e1 r\u00e1nd\u00fdrum b\u00edlum. \u00dea\u00f0 er einmitt svona f\u00f3lk sem elst upp \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 ni\u00f0url\u00e6gja og r\u00e1\u00f0skast me\u00f0 f\u00f3lk af s\u00e9r l\u00e6gri stigum, eins og Zack s\u00e9st \u00edtreka\u00f0 gera \u00ed myndinni. \u00dea\u00f0 eina sem hann \u00fearf a\u00f0 hafa \u00e1hyggjur af er hvort st\u00falkan vilji samt elska hann \u00fe\u00f3tt hann hafi gert hana a\u00f0 tilraunad\u00fdri \u00ed \u00f3ge\u00f0slegu ve\u00f0m\u00e1li og \u00fea\u00f0 hva\u00f0a ivy league h\u00e1sk\u00f3la hann eigi a\u00f0 velja (Yale, Dartmouth, Harvard \u2026) \u00fev\u00ed \u00feeir hafa allir teki\u00f0 vi\u00f0 honum \u00e1\u00f0ur en lokapr\u00f3fin eru einu sinni hafin, af \u00fev\u00ed efrist\u00e9ttarf\u00f3lk \u00fearf ekki a\u00f0 f\u00e1 einkunnir.<\/p>\n<p>\u00d6ll myndin gerir \u00fat \u00e1 \u00feessa s\u00e9rst\u00f6\u00f0u Zacks. Aldrei ver\u00f0ur hann fyrir neinum neikv\u00e6\u00f0um aflei\u00f0ingum af h\u00e1tterni s\u00ednu, nema \u00fev\u00ed \u00feegar Laney ver\u00f0ur sk\u00faffu\u00f0 \u00fat \u00ed hann \u00ed svona kort\u00e9r fyrir a\u00f0 hafa ve\u00f0ja\u00f0 \u00fatliti hennar og st\u00e9ttarst\u00f6\u00f0u a\u00f0 henni forspur\u00f0ri. Eina \u00f6nnur konfrontasj\u00f3nin er \u00feegar pabbi hans segir honum a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 misskilningur a\u00f0 hann \u00e6tli a\u00f0 stj\u00f3rna \u00fev\u00ed \u00ed hva\u00f0a h\u00e1sk\u00f3la hann fari (me\u00f0 \u00f6\u00f0rum or\u00f0um: \u201e\u00de\u00fa r\u00e6\u00f0ur m\u00e9r ekki pabbi!\u201c \u2014 \u201eUh, \u00e9g er ekkert a\u00f0 reyna a\u00f0 r\u00e1\u00f0a \u00fe\u00e9r.\u201c \u2014 \u201e\u00d3, \u00faps, sorr\u00ed!\u201c), og \u00feegar Paul Walker \u00e1kve\u00f0ur a\u00f0 reyna sj\u00e1lfur vi\u00f0 Laney, me\u00f0 \u00feeim aflei\u00f0ingum raunar a\u00f0 h\u00fan hrekst aftur \u00ed fangi\u00f0 \u00e1 \u00feeim sem minna \u00far\u00fev\u00e6tti\u00f0 er.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 er ekkert gott vi\u00f0 \u00feessa mynd. H\u00fan reynir a\u00f0 vera gagnr\u00fdnin \u00e1 firringu en endar \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 upphefja dramb, ofneyslu, st\u00e9ttskiptingu, andlegt ofbeldi og \u00fe\u00e1 einkum og s\u00e9r \u00ed lagi manip\u00falasj\u00f3n og andlegt ni\u00f0urbrot.<\/p>\n<p>\u00cd lok myndarinnar fara Laney og Zack \u00ed sleik eins og ekkert hafi \u00ed skorist (en \u00fe\u00e1 er Paul Walker n\u00fdb\u00fainn a\u00f0 reyna a\u00f0 nau\u00f0ga henni \u00ed afviknu h\u00f3telherbergi) og Zack l\u00fdsir \u00fev\u00ed yfir a\u00f0 kannski \u00e6tli hann bara a\u00f0 slaufa h\u00e1sk\u00f3la og gerast gj\u00f6rningalistama\u00f0ur (sbr. hin eftirminnilega hakk\u00edsekkssena, sem reynist vera gr\u00fatl\u00e9leg \u00feegar ma\u00f0ur s\u00e9r myndina aftur). \u00deetta getur hann \u00fev\u00ed sk\u00f3linn er n\u00fana eiginlega b\u00fainn og a\u00f0 honum loknum er enginn eftir til a\u00f0 tilbi\u00f0ja hann. Hann, sem er algj\u00f6rlega h\u00e6fileikalaus \u00e1 svi\u00f0i lista, getur samt sem \u00e1\u00f0ur stigi\u00f0 ni\u00f0ur \u00e1 plan konunnar sem hefur ekki lagt stund \u00e1 myndlist nema lungann \u00far stuttri \u00e6vi sinni. N\u00fa eru \u00feau j\u00f6fn, reynir myndin a\u00f0 segja okkur. Nei. \u00dea\u00f0 eru \u00feau ekki. Vi\u00f0 vitum nefnilega a\u00f0 \u00ed raun \u00e6tti myndin a\u00f0 heita <em>He&#8217;s All That<\/em>.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Sj\u00e1 \u00e1\u00f0ur \u00ed syrpunni: I. Backdraft er enn\u00fe\u00e1 m\u00e1li\u00f0 II. Lilli klifurm\u00fas er sj\u00e1lfselskur k\u00fakalabbi. Aftur svindla \u00e9g \u00e1 reglunum \u00fear sem aldrei hefur veri\u00f0 h\u00e6gt a\u00f0 halda \u00fev\u00ed fram a\u00f0 She&#8217;s All That s\u00e9 meistaraverk \u00fe\u00f3tt m\u00e9r hafi \u00fe\u00f3tt h\u00fan \u00e1horfanleg \u00feegar \u00e9g var \u00e1 fyrsta \u00e1ri \u00ed mennt\u00f3, auk \u00feess a\u00f0 menntask\u00f3la\u00e1rin teljast &hellip; <a href=\"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/2014\/05\/28\/meistaraverk-aeskuaranna-iii-shes-all-that\/\" class=\"more-link\">Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa: <span class=\"screen-reader-text\">Meistaraverk \u00e6sku\u00e1ranna III: She&#039;s All That<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":3,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[36],"tags":[],"class_list":["post-4335","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-kvikmyndir"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/4335","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/users\/3"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=4335"}],"version-history":[{"count":3,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/4335\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":13949,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/4335\/revisions\/13949"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=4335"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=4335"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=4335"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}