{"id":4438,"date":"2015-11-20T13:39:39","date_gmt":"2015-11-20T13:39:39","guid":{"rendered":"http:\/\/gamla.truflun.net\/arngrimurv\/?p=4438"},"modified":"2019-01-01T13:37:18","modified_gmt":"2019-01-01T13:37:18","slug":"gulloldin-var-aldrei-til","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/2015\/11\/20\/gulloldin-var-aldrei-til\/","title":{"rendered":"Gull\u00f6ldin var aldrei til"},"content":{"rendered":"<p>\u00c9g heyri reglulega tala\u00f0 um \u00fea\u00f0 sem ekki er kennt \u00ed \u00edslenskum sk\u00f3lum. \u00dea\u00f0 er mun sjaldnar a\u00f0 m\u00e9r hlotnast nokkur inns\u00fdn \u00ed \u00fea\u00f0 hva\u00f0 sannarlega <em>er<\/em> kennt \u00ed \u00edslenskum sk\u00f3lum. En \u00fea\u00f0 sem vantar er jafnan \u00fea\u00f0 sama: b\u00f6rn \u00ed dag \u00feekkja ekki s\u00f6gu landsins, enda er h\u00fan ekki kennd \u00ed sk\u00f3lum. B\u00f6rn n\u00faor\u00f0i\u00f0 kunna ekki n\u00e6gileg skil \u00e1 beygingu sterkra sagna, \u00feau \u00fej\u00e1st af \u00fe\u00e1gufallss\u00fdki, m\u00e1l \u00feeirra er gegns\u00fdrt af undarlegu slangri. \u00dea\u00f0 er \u00e1 \u00e1byrg\u00f0 sk\u00f3lanna a\u00f0 r\u00e1\u00f0a b\u00f3t \u00e1 \u00feessu. Allt yr\u00f0i betra ef Bj\u00f6rn Gu\u00f0finnsson gengi aftur og ef \u00cdslandssaga J\u00f3nasar fr\u00e1 Hriflu yr\u00f0i kennd \u00e1 n\u00fdjan leik. B\u00f6rn h\u00e9r kunna ekki st\u00e6r\u00f0fr\u00e6\u00f0i, og sk\u00fdrir \u00fea\u00f0 a\u00f0 nokkru leyti tilur\u00f0 \u00edslenska hagkerfisins. \u00deau \u00feurfa a\u00f0 nema vi\u00f0 f\u00f3tsk\u00f6r k\u00ednverskra talnaspekinga. Lestrarkunn\u00e1tta \u00edslenskra barna er svo hrikaleg a\u00f0 f\u00e6rustu s\u00e9rfr\u00e6\u00f0ingar efast um a\u00f0 \u00feau einu sinni kunni a\u00f0 fletta, og Barnaverndarnefnd OECD berjandi utan dyrnar eins og skessa. Raungreinal\u00e6si er s\u00f6mulei\u00f0is ekkert me\u00f0al \u00edslenskra barna, enda er n\u00e1msefninu st\u00fdrt af r\u00e1\u00f0herra sem heldur a\u00f0 leysa megi \u00f6ll vandam\u00e1l me\u00f0 \u00e1lbr\u00e6\u00f0slum og uppist\u00f6\u00f0ul\u00f3num s\u00ed\u00f0an hann sj\u00e1lfur var forheimska\u00f0ur \u00ed sk\u00f3la.<\/p>\n<p>Svona hefur \u00feetta raunar alltaf veri\u00f0. Hverjum \u00feykir sinn fugl snoturri en n\u00e6sta manns illfygli.<\/p>\n<p>\u00c9g held a\u00f0 tvennt liggi h\u00e9r a\u00f0 baki sem hefur minna me\u00f0 menntakerfi\u00f0 sj\u00e1lft a\u00f0 gera en r\u00e1\u00f0a m\u00e6tti af umr\u00e6\u00f0unni: annars vegar eru \u00fea\u00f0 \u00e1hugam\u00e1l \u00feeirra sem kvarta undan \u00e1herslum \u00ed menntakerfinu, hins vegar eru \u00fea\u00f0 \u00e1hugaefni nemendanna sj\u00e1lfra. Ef vi\u00f0 k\u00f6nnum fyrra atri\u00f0i\u00f0 \u00fe\u00e1 kemur \u00ed lj\u00f3s a\u00f0 flestum finnst halla \u00e1 \u00feann hlut menntunar sem \u00feeim sj\u00e1lfum er hva\u00f0 helst hugleikinn. Margur heldur mig sig eins og sagt er og s\u00e9st \u00fea\u00f0 best \u00e1 \u00fev\u00ed hva\u00f0 f\u00f3lk er gjarnt \u00e1 a\u00f0 kvarta undan \u00fev\u00ed a\u00f0 nemendur n\u00fatildags kunni ekki skil \u00e1 s\u00f6mu hlutum og \u00fea\u00f0 sj\u00e1lft haf\u00f0i \u00e1 takteinum \u00e1 sama aldri \u2013 sem \u00fea\u00f0 haf\u00f0i \u00e1 takteinum sakir \u00e1huga \u00e1 efninu, ekki vegna \u00feess eins a\u00f0 t\u00e9\u00f0u efni og \u00f6llum heimsins v\u00edsindum \u00f6\u00f0rum var haldi\u00f0 a\u00f0 \u00fev\u00ed \u00ed sk\u00f3la. \u00deeir sem kvarta undan skorti \u00e1 s\u00f6gukunn\u00e1ttu hafa sj\u00e1lfir haft \u00e1huga \u00e1 s\u00f6gu \u00ed barn\u00e6sku og jafnvel lesi\u00f0 s\u00e9r til utan sk\u00f3la alls kyns fr\u00f3\u00f0leik til vi\u00f0b\u00f3tar vi\u00f0 formlega n\u00e1mi\u00f0. \u00deeim sem gekk vel \u00ed tilteknu fagi eiga kannski erfi\u00f0ast me\u00f0 a\u00f0 skilja hvers vegna \u00f6\u00f0rum gengur verr \u00ed \u00fev\u00ed. <\/p>\n<p>\u00dear komum vi\u00f0 einmitt a\u00f0 \u00e1huga einstakra nemenda. \u00c9g var svona nemandi sem \u00fereifst \u00e1 s\u00f6gulegum fr\u00f3\u00f0leik og kemur \u00fea\u00f0 v\u00e6ntanlega engum \u00e1 \u00f3vart sem \u00feekkir mig n\u00fana. \u00de\u00e6r kennslub\u00e6kur sem \u00e9g haf\u00f0i hafa ekki yfir s\u00e9r sama d\u00fdr\u00f0arlj\u00f3ma og \u00cdslandssaga J\u00f3nasar fr\u00e1 Hriflu, en \u00fe\u00e6r h\u00f6f\u00f0u\u00f0u til \u00feess \u00e1huga sem \u00e9g \u00feegar haf\u00f0i. \u00cd sk\u00f3la las \u00e9g \u00cdslandss\u00f6gu Gunnars Karlssonar fr\u00e1 landn\u00e1mi og eitthva\u00f0 fram um st\u00f3rub\u00f3lu. \u00deegar \u00e9g l\u00e6r\u00f0i um Sturlunga\u00f6ldina \u00ed grunnsk\u00f3la teikna\u00f0i \u00e9g umfangsmikla teiknimyndaser\u00edu um atbur\u00f0i hennar, og f\u00f3r a\u00f0 v\u00edsu nokku\u00f0 frj\u00e1lslega me\u00f0 efni\u00f0. \u00c9g l\u00e6r\u00f0i um sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0isbar\u00e1ttuna, l\u00fd\u00f0veldisstofnunina og um \u00fer\u00edskiptingu valdsins \u00ed fj\u00f3r\u00f0a bekk. \u00deegar \u00e9g l\u00e6r\u00f0i um eitthva\u00f0 \u00e1hugavert \u00ed samf\u00e9lagsfr\u00e6\u00f0i leita\u00f0i \u00e9g m\u00e9r aukauppl\u00fdsinga \u00ed \u00feeim b\u00f3kum sem til voru heima (me\u00f0 umbe\u00f0inni a\u00f0sto\u00f0 foreldra minna, a\u00f0 sj\u00e1lfs\u00f6g\u00f0u). Sama \u00feegar kennarinn minn \u00ed \u00feri\u00f0ja bekk sag\u00f0i okkur af dj\u00e1knanum \u00e1 Myrk\u00e1. \u00de\u00e1 spur\u00f0i \u00e9g heima hvort vi\u00f0 \u00e6ttum \u00fej\u00f3\u00f0s\u00f6gur \u00e1 b\u00f3k. Sj\u00e1lfur \u00e1tti \u00e9g alfr\u00e6\u00f0ib\u00e6kur fyrir b\u00f6rn sem h\u00e9tu Heimur \u00ed hnotskurn, Heimur v\u00edsindanna, og s\u00fa allra besta h\u00e9t \u00fev\u00ed l\u00fdsandi heiti Hvers vegna, hven\u00e6r, hvernig, hvar? A\u00f0ra \u00e1tti \u00e9g um sj\u00f6 undur veraldar. \u00deetta var \u00fea\u00f0 sem h\u00f6f\u00f0a\u00f0i til m\u00edn. <\/p>\n<p>M\u00e1lfr\u00e6\u00f0i og r\u00e9ttritun \u00feurfti \u00e9g ekki a\u00f0 hafa fyrir vegna \u00feess a\u00f0 \u00e9g haf\u00f0i heilmiki\u00f0 sj\u00f3nminni og vissi einfaldlega hvernig r\u00e9tt m\u00e1l \u00e6tti a\u00f0 l\u00edta \u00fat, \u00e9g fann \u00fea\u00f0 \u00e1 m\u00e9r. \u00deess vegna gekk m\u00e9r vel \u00ed \u00edslensku, en \u00fea\u00f0 a\u00f0 hafa ekki lagt \u00e1 mig neinn formlegan m\u00e1lfr\u00e6\u00f0il\u00e6rd\u00f3m fyrr en \u00ed framhaldssk\u00f3la hefur aftur \u00e1 m\u00f3ti h\u00e1\u00f0 m\u00e9r s\u00ed\u00f0an; \u00e9g hef veri\u00f0 seinn a\u00f0 tileinka m\u00e9r m\u00e1lfr\u00e6\u00f0ihugt\u00f6k og beita \u00feeim. \u00dea\u00f0 er kannski a\u00f0 hluta vegna \u00feess a\u00f0 \u00e9g skildi ekki tilganginn me\u00f0 m\u00e1lfr\u00e6\u00f0ireglum sem barn, a\u00f0 allir g\u00e6tu ekki bara s\u00e9\u00f0 \u00feetta \u00ed hendi s\u00e9r, alveg eins og st\u00e6r\u00f0fr\u00e6\u00f0is\u00e9n\u00edin skildu ekki hvert vandam\u00e1l annarra var. Allt sk\u00fdrist \u00feetta af upplagi og \u00e1huga.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 eiga ekki \u00f6ll b\u00f6rn jafnau\u00f0velt me\u00f0 m\u00e1li\u00f0 og \u00e9g \u00e1tti, alveg eins og \u00fea\u00f0 eiga ekki \u00f6ll b\u00f6rn eins au\u00f0velt me\u00f0 a\u00f0 l\u00e6ra st\u00e6r\u00f0fr\u00e6\u00f0i. \u00deannig er \u00fea\u00f0 bara. \u00deeirra \u00e1hugasvi\u00f0 liggja \u00fe\u00e1 annars sta\u00f0ar en \u00ed b\u00f3klestri. Sum \u00feeirra g\u00e6tu eins veri\u00f0 efni \u00ed st\u00e6r\u00f0fr\u00e6\u00f0inga, sem er fag sem m\u00e9r t\u00f3kst aldrei a\u00f0 skilja. Sj\u00e1lfur l\u00e6r\u00f0i \u00e9g \u00fea\u00f0 sem \u00e9g haf\u00f0i \u00e1huga \u00e1 af brennandi \u00e1str\u00ed\u00f0u en \u00f6\u00f0ru t\u00f3k \u00e9g sem hverju \u00f6\u00f0ru hundsbiti og b\u00f6\u00f0la\u00f0ist gegnum \u00fea\u00f0, og \u00feetta sama hef \u00e9g s\u00e9\u00f0 einnig \u00ed \u00f6llum b\u00f6rnum sem \u00e9g hef nokkru sinni haft kynni af, \u00fe\u00f3tt \u00fea\u00f0 kunni a\u00f0 vera a\u00f0rir hlutir sem \u00feau hafa \u00e1huga \u00e1 en \u00e9g. \u00dea\u00f0 er nefnilega \u00feannig a\u00f0 b\u00f6rn eiga \u00fea\u00f0 til a\u00f0 \u00ferj\u00f3skast \u00e1 m\u00f3ti \u00fev\u00ed a\u00f0 l\u00e6ra \u00fea\u00f0 sem \u00feeim \u00feykir l\u00edti\u00f0 spennandi, og \u00fea\u00f0 ver\u00f0ur erfi\u00f0ara a\u00f0 tileinka s\u00e9r efni sem manni \u00feykir lei\u00f0inlegt \u00fev\u00ed meira sem ma\u00f0ur er \u00e1kve\u00f0inn \u00ed a\u00f0 \u00fea\u00f0 h\u00f6f\u00f0i ekki til manns. \u00c9g f\u00e9ll \u00ed st\u00e6r\u00f0fr\u00e6\u00f0i n\u00edu \u00e1r \u00ed r\u00f6\u00f0, fr\u00e1 \u00e1ttunda bekk og \u00f6ll m\u00edn sex \u00e1r \u00ed menntask\u00f3la, eftir a\u00f0 hafa sta\u00f0i\u00f0 mig \u00ed me\u00f0allagi fyrstu sj\u00f6 \u00e1r sk\u00f3lag\u00f6ngunnar. Kannski er sk\u00f3lakerfinu um a\u00f0 kenna a\u00f0 einhverju leyti \u2013 \u00fea\u00f0 hefur a\u00f0 v\u00edsu aldrei neinn Hriflu-J\u00f3nas sami\u00f0 go\u00f0sagnakennda st\u00e6r\u00f0fr\u00e6\u00f0ib\u00f3k \u2013 en gleymum \u00fev\u00ed ekki a\u00f0 langflestir st\u00f3\u00f0u sig \u00e1g\u00e6tlega. \u00c9g haf\u00f0i bara ekki \u00e1huga. <\/p>\n<p>Og \u00e9g var heldur ekkert s\u00edtalandi um \u00fea\u00f0 sem \u00e9g \u00fe\u00f3 haf\u00f0i \u00e1huga \u00e1, af \u00fev\u00ed \u00e9g haf\u00f0i \u00e1huga \u00e1 \u00f3teljandi \u00f6\u00f0rum hlutum. \u00c9g var s\u00e9rviturt barn sem gat vitna\u00f0 \u00ed Grettis s\u00f6gu og kunni skil \u00e1 \u00f6rl\u00f6gum Reynista\u00f0abr\u00e6\u00f0ra en \u00e9g gekk ekki um g\u00f3lf talandi um \u00feetta, e\u00f0a p\u00ednlegan dau\u00f0a Snorra Sturlusonar sem hefur alla \u00e6vi veri\u00f0 m\u00e9r hugleikinn. \u00c9g d\u00e1\u00f0i l\u00edka Dav\u00ed\u00f0 Stef\u00e1nsson fr\u00e1 Fagrask\u00f3gi og langa\u00f0i a\u00f0 geta ort eins og hann. Mig grunar a\u00f0 n\u00e6r enginn hafi vita\u00f0 af \u00feessum \u00e1huga m\u00ednum. \u00c9g var nefnilega eins og a\u00f0rir krakkar og tala\u00f0i um t\u00f6lvuleiki og b\u00ed\u00f3myndir, \u00e6f\u00f0i handbolta og var \u00ed sk\u00e1tunum, \u00e1tti m\u00e9r anna\u00f0 heimili \u00ed Vatnask\u00f3gi og \u00ed H\u00fasd\u00fdragar\u00f0inum \u00e1 sumrin, safna\u00f0i k\u00f6rfuboltamyndum og pogsi, \u00e9g eyddi d\u00f6gunum kubbandi \u00far Leg\u00f3 og teiknandi myndas\u00f6gur, allir h\u00e9ldu a\u00f0 \u00e9g yr\u00f0i arkitekt e\u00f0a listama\u00f0ur. Svo var\u00f0 \u00e9g b\u00f3kmennta- og mi\u00f0aldafr\u00e6\u00f0ingur, \u00fej\u00f3\u00f0fr\u00e6\u00f0i\u00e1hugama\u00f0ur og lj\u00f3\u00f0sk\u00e1ld \u00f6llum a\u00f0 \u00f3v\u00f6rum nema sj\u00e1lfum m\u00e9r.<\/p>\n<p>Er endilega v\u00edst a\u00f0 \u00cdslandssagan s\u00e9 ekki n\u00e6gilega vel kennd lengur? Er \u00fea\u00f0 \u00feess vegna sem \u201eb\u00f6rn vita ekki einu sinni hver J\u00f3n Sigur\u00f0sson var\u201c? Gleymum \u00ed bili sj\u00e1lfs\u00f6g\u00f0um breytum eins og fj\u00f6lbreyttara \u00farvali n\u00e1msgreina, fj\u00f6lbreyttara \u00farvali af\u00fereyingarefnis, gj\u00f6rbreyttum heimilisa\u00f0st\u00e6\u00f0um, fj\u00f6lda grunnsk\u00f3labarna sem hefur margfaldast me\u00f0 \u00f3sk\u00f6pum s\u00ed\u00f0an \u00e1 mi\u00f0ri s\u00ed\u00f0ustu \u00f6ld, \u00f3teljandi framfarir \u00ed menntunarfr\u00e6\u00f0um: Hefur s\u00e1 sem \u00feannig spyr spurt b\u00f6rn upp til h\u00f3pa, e\u00f0a a\u00f0eins eitt barn, e\u00f0a f\u00e1ein, hvort \u00fea\u00f0 viti hver J\u00f3n Sigur\u00f0sson var? Veist \u00fe\u00fa hver Adele er? <\/p>\n<p>Er \u00edslenskukennslu um a\u00f0 kenna \u00fe\u00f3tt b\u00f6rn tali \u00f6\u00f0ruv\u00edsi en J\u00f3nas fr\u00e1 Hriflu, e\u00f0a hefur ekki interneti\u00f0 s\u00fdnt a\u00f0 f\u00f3lk af \u00f6llum kynsl\u00f3\u00f0um skrifar misjafnlega, og mun \u00fea\u00f0 ekki \u00e6t\u00ed\u00f0 hafa veri\u00f0 \u00feannig me\u00f0al \u00feeirra sem \u00e1 anna\u00f0 bor\u00f0 g\u00e1tu skrifa\u00f0? Vi\u00f0 \u00fatr\u00fdmdum \u00f3l\u00e6si og kv\u00f6rtum svo undan \u00fev\u00ed a\u00f0 f\u00f3lk skuli skrifa, en \u00e9g ver\u00f0 a\u00f0 j\u00e1ta a\u00f0 \u00e9g \u00e1tta mig ekki alveg \u00e1 vandam\u00e1linu. Hvernig er \u00fea\u00f0, vita b\u00f6rn ekki skil \u00e1 kjarna, m\u00f6ttli og jar\u00f0skorpu e\u00f0a kunna \u00feau ekki mun \u00e1 fl\u00f3\u00f0i og fj\u00f6ru vegna \u00feess a\u00f0 \u00feetta er ekki kennt, e\u00f0a gleymdist kannski a\u00f0 spyrja \u00feau? Er tilhneigingin kannski helst s\u00fa a\u00f0 alh\u00e6fa um sk\u00f3lakerfi\u00f0 \u00fat fr\u00e1 f\u00e1um samr\u00e6\u00f0um vi\u00f0 b\u00f6rn sem auk \u00feess var stj\u00f3rna\u00f0 af manneskju me\u00f0 tiltekin \u00e1hugam\u00e1l, sem vill forvitnast um framgang \u00feessara \u00e1hugam\u00e1la \u00ed sk\u00f3lakerfinu? <\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 held \u00e9g a\u00f0 s\u00e9 sk\u00fdringin \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 sumum finnst b\u00f6rn ekki vita rass um skrei\u00f0ar\u00fatflutning, um sp\u00e1nsku veikina, um muninn \u00e1 togi og \u00feeli, um framr\u00e6slu votlendis, lotukerfi\u00f0 og h\u00e6\u00f0 Hvannadalshnj\u00faks (sem \u00e9g hef aldrei geta\u00f0 muna\u00f0, fyrir e\u00f0a eftir breytingu). \u00c1st\u00e6\u00f0an er einfaldlega s\u00fa a\u00f0 b\u00f6rn hafa ekki endilega \u00e1huga \u00e1 \u00fev\u00ed sama og nostalg\u00edskir foreldrar \u00feeirra, og menntakerfi\u00f0 virkar ekki \u00feannig a\u00f0 \u00fea\u00f0 d\u00e6li uppl\u00fdsingum \u00ed heilab\u00fa barna sem upp fr\u00e1 \u00fev\u00ed hafi brennandi \u00e1huga \u00e1 landi, s\u00f6gu og \u00fej\u00f3\u00f0, m\u00e1li og samf\u00e9lagi, virkni jar\u00f0skorpunnar og gangi himintunglanna. Samhengi allra \u00feessara hluta ver\u00f0ur fyrst lj\u00f3st me\u00f0 aldri og reynslu.<\/p>\n<p>Ef \u00fe\u00fa aftur \u00e1 m\u00f3ti spyr\u00f0 b\u00f6rn hva\u00f0 \u00feau l\u00e6r\u00f0u skemmtilegt \u00ed sk\u00f3lanum \u00ed dag, \u00fe\u00e1 kannski kemstu a\u00f0 raun um hva\u00f0 <em>er<\/em> kennt \u00ed sk\u00f3lanum. Allt hitt sem \u00fe\u00fa vilt a\u00f0 barni\u00f0 \u00feitt kunni skil \u00e1 er sennilega kennt l\u00edka. \u00dea\u00f0 hefur bara ekki s\u00e9rstakan \u00e1huga \u00e1 \u00fev\u00ed. Barni\u00f0 \u00feitt er barn en ekki v\u00e9l. A\u00f0 hneykslast \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 barni\u00f0 \u00feitt s\u00e9 ekki s\u00edmalandi um sk\u00fatu\u00f6ldina eins og \u00feegar \u00fe\u00fa varst hnokki dragandi marhn\u00fata \u00e1 eyrinni er eins og a\u00f0 tu\u00f0a undan \u00fev\u00ed a\u00f0 d\u00f3ttir \u00fe\u00edn hafi meiri \u00e1huga \u00e1 Monster High en Hjaltab\u00f3kunum. Kynsl\u00f3\u00f0ir eru \u00f3l\u00edkar, \u00feannig er \u00fea\u00f0 bara, og allt \u00feetta sem sumir halda a\u00f0 sk\u00f3lar kenni ekki lengur, \u00fea\u00f0 er v\u00edst kennt og l\u00e6rist samt. Vandinn er ekki sk\u00f3lakerfi\u00f0 heldur \u00feessi \u00edmynda\u00f0a gull\u00f6ld \u00edslensks sk\u00f3lakerfis sem aldrei var til frekar en gull\u00f6ld \u00edslenskrar menningar. Menningin er s\u00edbreytileg og f\u00f3lk \u00fearf bara a\u00f0 l\u00e6ra a\u00f0 d\u00edla vi\u00f0 \u00fea\u00f0.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00c9g heyri reglulega tala\u00f0 um \u00fea\u00f0 sem ekki er kennt \u00ed \u00edslenskum sk\u00f3lum. \u00dea\u00f0 er mun sjaldnar a\u00f0 m\u00e9r hlotnast nokkur inns\u00fdn \u00ed \u00fea\u00f0 hva\u00f0 sannarlega er kennt \u00ed \u00edslenskum sk\u00f3lum. En \u00fea\u00f0 sem vantar er jafnan \u00fea\u00f0 sama: b\u00f6rn \u00ed dag \u00feekkja ekki s\u00f6gu landsins, enda er h\u00fan ekki kennd \u00ed sk\u00f3lum. B\u00f6rn n\u00faor\u00f0i\u00f0 &hellip; <a href=\"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/2015\/11\/20\/gulloldin-var-aldrei-til\/\" class=\"more-link\">Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa: <span class=\"screen-reader-text\">Gull\u00f6ldin var aldrei til<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":3,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[26],"tags":[],"class_list":["post-4438","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-uncategorized"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/4438","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/users\/3"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=4438"}],"version-history":[{"count":3,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/4438\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":13955,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/4438\/revisions\/13955"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=4438"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=4438"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=4438"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}