{"id":4473,"date":"2016-12-13T04:07:49","date_gmt":"2016-12-13T04:07:49","guid":{"rendered":"http:\/\/gamla.truflun.net\/arngrimurv\/?p=4473"},"modified":"2019-01-01T13:37:18","modified_gmt":"2019-01-01T13:37:18","slug":"meistaraverk-aeskuaranna-iv-the-lion-king","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/2016\/12\/13\/meistaraverk-aeskuaranna-iv-the-lion-king\/","title":{"rendered":"Meistaraverk \u00e6sku\u00e1ranna IV: The Lion King"},"content":{"rendered":"<p><em>Sj\u00e1 \u00e1\u00f0ur \u00ed syrpunni:<br \/>\nI. <a href=\"http:\/\/gamla.truflun.net\/arngrimurv\/2014\/05\/meistaraverk-aeskuaranna-i-backdraft\/\" target=\"_blank\">Backdraft er enn\u00fe\u00e1 m\u00e1li\u00f0<\/a><br \/>\nII. <a href=\"http:\/\/gamla.truflun.net\/arngrimurv\/2014\/05\/meistaraverk-aeskuaranna-ii-dyrin-i-halsaskogi\/\" target=\"_blank\">Lilli klifurm\u00fas er sj\u00e1lfselskur k\u00fakalabbi<\/a>.<br \/>\nIII. <a href=\"http:\/\/gamla.truflun.net\/arngrimurv\/2014\/05\/meistaraverk-aeskuaranna-iii-shes-all-that\/\" target=\"_blank\">She&#8217;s All That<\/a>.<\/em><\/p>\n<p>Tveim og h\u00e1lfu \u00e1ri eftir s\u00ed\u00f0ustu umfj\u00f6llun um meistaraverk \u00e6sku\u00e1ranna breg\u00f0ur n\u00fa svo vi\u00f0 a\u00f0 or\u00f0i\u00f0 meistaraverk er ekki nota\u00f0 \u00ed h\u00e1\u00f0i. H\u00e9r er komin mynd sem haf\u00f0i \u00e1hrif \u00e1 mig og sem \u00e9g haf\u00f0i miklar m\u00e6tur \u00e1 \u00ed m\u00f6rg \u00e1r; \u00e9g lenti meira a\u00f0 segja n\u00e6rri \u00fev\u00ed \u00ed handal\u00f6gm\u00e1lum vi\u00f0 leikarann \u00deorvald Dav\u00ed\u00f0 sem f\u00f3r me\u00f0 hlutverk Simba vegna \u00feess a\u00f0 \u00e9g kaus frumm\u00e1li\u00f0 fram yfir talsetninguna og sameiginlegur vinur okkar \u00e1kva\u00f0 a\u00f0 t\u00falka \u00fea\u00f0 \u00e1 sinn h\u00e1tt og etja honum \u00e1 mig (hvorugur okkar er s\u00e9rlega \u00feekktur n\u00faor\u00f0i\u00f0 fyrir a\u00f0 vera \u00e6singamenn, en svona geta menningar\u00e1t\u00f6kin magnast upp).<\/p>\n<p>Hva\u00f0 er h\u00e6gt a\u00f0 segja um Konung lj\u00f3nanna sem ekki hefur veri\u00f0 sagt \u00e1\u00f0ur? \u00c1byggilega \u00fdmislegt en \u00e9g held \u00e9g ver\u00f0i ekkert vo\u00f0alega frumlegur h\u00e9rna. N\u00famer eitt, tv\u00f6 og \u00ferj\u00fa er \u00feetta Hamlet me\u00f0 lj\u00f3num, nokku\u00f0 sem m\u00e9r t\u00f3kst a\u00f0 ergja vel lesna t\u00f3lf \u00e1ra stj\u00fapd\u00f3ttur m\u00edna me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 benda \u00e1, \u00fev\u00ed \u00fea\u00f0 ver\u00f0ur ekki aftur teki\u00f0 \u00feegar ma\u00f0ur veit \u00fea\u00f0 og sumt vill ma\u00f0ur f\u00e1 a\u00f0 hafa \u00ed fri\u00f0i fyrir b\u00f3kmenntafr\u00e6\u00f0ingum. En af \u00fev\u00ed \u00feetta er Disney \u00fe\u00e1 f\u00e1 Hamlet og \u00d3fel\u00eda a\u00f0 lifa og eignast b\u00f6rn sem fengu s\u00ednar eigin beint-\u00e1-vhs-myndir sem best eru gleymdar. Ma\u00f0ur toppar ekkert Shakespeare me\u00f0 soddan gr\u00f3\u00f0ahyggju og sv\u00ednar\u00edi.<\/p>\n<p>Sagan hverfist um hinn unga prins Simba (Hamlet prins) sem f\u00e6\u00f0ist inn \u00ed fullkomna ver\u00f6ld \u00fear sem allt er \u00ed jafnv\u00e6gi (Danm\u00f6rk \u00feykist vera hamingjusamasta land heims um \u00feessar mundir, en h\u00e9r er h\u00fan s\u00fdnd \u00edskyggilega l\u00edk afr\u00edskum sl\u00e9ttum). Upphafsatri\u00f0i myndarinnar er st\u00f3rfenglegt og t\u00f3nlistin \u00f3tr\u00faleg: s\u00f3lin r\u00eds \u00e1 sl\u00e9ttunni og \u00f6ll d\u00fdrin flykkjast af sta\u00f0 til a\u00f0 ver\u00f0a vi\u00f0st\u00f6dd ath\u00f6fnina \u00fear sem framt\u00ed\u00f0arkonungur \u00feeirra er fyrst s\u00fdndur \u00feegnum s\u00ednum (sebrahestar a\u00f0 hylla lj\u00f3n, a\u00f0eins \u00ed Disneymynd).<\/p>\n<figure id=\"attachment_4475\" aria-describedby=\"caption-attachment-4475\" style=\"width: 300px\" class=\"wp-caption aligncenter\"><a href=\"http:\/\/gamla.truflun.net\/arngrimurv\/wp-content\/uploads\/2016\/12\/Presentation5.jpg\" rel=\"attachment wp-att-4475\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"size-medium wp-image-4475\" src=\"http:\/\/gamla.truflun.net\/arngrimurv\/wp-content\/uploads\/2016\/12\/Presentation5-300x214.jpg\" alt=\"\u201e\u00d3, vesalings J\u00f3r\u00edkur, \u00e9g \u00feekkti hann!\u201c\" width=\"300\" height=\"214\" \/><\/a><figcaption id=\"caption-attachment-4475\" class=\"wp-caption-text\">\u201e\u00d3, vesalings J\u00f3r\u00edkur, \u00e9g \u00feekkti hann!\u201c<\/figcaption><\/figure>\n<p>Konungur lj\u00f3nanna, Mufasa (Hamlet konungur), er dyggur fylgjandi Bangsapabbap\u00f3lit\u00edkurinnar a\u00f0 undanskildu \u00fev\u00ed a\u00f0 lj\u00f3nin vir\u00f0ast ein d\u00fdra hafa gu\u00f0sgefinn r\u00e9tt til a\u00f0 vei\u00f0a s\u00e9r \u00f6nnur d\u00fdr til matar, innan h\u00f3flegra marka a\u00f0 v\u00edsu. \u00d6ll d\u00fdr eru j\u00f6fn \u00fe\u00f3tt sum s\u00e9u jafnari en \u00f6nnur, og enn \u00f6nnur d\u00fdr eru \u00fatl\u00e6g ger \u00far konungsr\u00edkinu: h\u00fdenurnar. H\u00fdenur \u00ed raunveruleikanum eru einst\u00e6\u00f0ur og nau\u00f0synlegur \u00fe\u00e1ttur \u00ed vistkerfi Afr\u00edku, en \u00ed Konungi lj\u00f3nanna eru \u00fe\u00e6r \u00farhr\u00f6k; \u00fe\u00e6r eru eiginlega of l\u00edkar lj\u00f3nunum, eins og bj\u00f6gu\u00f0 spegilmynd \u00feeirrar\u00a0hli\u00f0ar sem lj\u00f3nin helst \u00f3ttast \u00ed sj\u00e1lfum s\u00e9r: \u00fe\u00f6rf \u00feeirra fyrir kj\u00f6t sem \u00fearf a\u00f0 beisla til a\u00f0 vi\u00f0halda hinu vi\u00f0kv\u00e6ma jafnv\u00e6gi l\u00edfsins \u00fear sem h\u00fdenurnar eru fulltr\u00faar gr\u00e1\u00f0ugs frumsj\u00e1lfs sem kann s\u00e9r engin m\u00f6rk. Fyrir viki\u00f0 eru \u00fe\u00e6r sveltar og ja\u00f0arsettar og \u00fea\u00f0 gerir \u00fe\u00e6r enn h\u00e6ttulegri, sem f\u00e6rir \u00fe\u00e6r a\u00f0 lokum \u00ed fa\u00f0m hins\u00a0fl\u00e1r\u00e1\u00f0a \u00d6ra (Claudius) e\u00f0a Scar, sem er svo illur a\u00f0 foreldrar hans nefndu hann eftir \u00fatlitsl\u00fdti sem varla er einu sinni m\u00f6gulegt a\u00f0 f\u00e6\u00f0ast me\u00f0, og \u00fear me\u00f0 tilheyrir hann miklu safni einhentra, eineyg\u00f0ra og annarra illmenna hverra fatlanir s\u00fdna innri brenglun\u00a0\u00feeirra (nafni\u00f0 var illa \u00fe\u00fdtt \u00ed \u00edslenskri talsetningu sem \u201eSkari\u201c; \u00fea\u00f0 er ekki eins og illmenni\u00f0 heiti \u00d3skar).<\/p>\n<figure id=\"attachment_4476\" aria-describedby=\"caption-attachment-4476\" style=\"width: 300px\" class=\"wp-caption aligncenter\"><a href=\"http:\/\/gamla.truflun.net\/arngrimurv\/wp-content\/uploads\/2016\/12\/ad_159514378-e1427564720897.jpg\" rel=\"attachment wp-att-4476\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"size-medium wp-image-4476\" src=\"http:\/\/gamla.truflun.net\/arngrimurv\/wp-content\/uploads\/2016\/12\/ad_159514378-e1427564720897-300x176.jpg\" alt=\"\u00d3skar Fri\u00f0bertsson, illmenni.\" width=\"300\" height=\"176\" \/><\/a><figcaption id=\"caption-attachment-4476\" class=\"wp-caption-text\">\u00d3skar Fri\u00f0bertsson, illmenni.<\/figcaption><\/figure>\n<p>Ja\u00f0arsetningin er fullger\u00f0 \u00feannig a\u00f0 lj\u00f3n sj\u00e1st aldrei bor\u00f0a anna\u00f0 en p\u00f6ddur me\u00f0an h\u00fdenurnar sj\u00e1st r\u00edfa \u00ed sig l\u00e6ri af sebrahesti og s\u00ed\u00f0ar heilt lj\u00f3n. A\u00f0 v\u00edsu kemur fram \u00ed m\u00e1li Simba a\u00f0 lj\u00f3n bor\u00f0i antil\u00f3pur og Nala reynir s\u00ed\u00f0ar a\u00f0 \u00e9ta villig\u00f6ltinn Pumba, og jafnvel \u00fe\u00f3tt mark\u00f6tturinn Timon reyni a\u00f0 benda \u00e1 \u00feennan tv\u00edskinnung brei\u00f0ir myndin snyrtilega yfir \u00fe\u00e1 sta\u00f0reynd a\u00f0 lj\u00f3nin \u00e9ta \u00feegna s\u00edna. \u00deegar Claudius hefur me\u00f0 dyggilegri a\u00f0sto\u00f0 h\u00fdena myrt Hamlet konung me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 hrinda honum ofan \u00ed hj\u00f6r\u00f0 af trylltum gn\u00fdjum (\u00fea\u00f0 m\u00e1 sj\u00e1 fyrir s\u00e9r a\u00f0 anna\u00f0 eins gerist reglulega \u00ed Helsing\u00f8r) sannf\u00e6rir hann unga prinsinn Hamlet um a\u00f0 allt s\u00e9 \u00feetta honum a\u00f0 kenna, sigar svo h\u00fdenunum \u00e1 hann \u00fear sem hann fl\u00fdr \u00ed \u00fatleg\u00f0 s\u00edna, en hann kemst undan \u00f3\u00e9tinn (sem fyrr eru h\u00fdenurnar allar \u00ed kjaftinum, \u00ed eiginlegri og \u00f3eiginlegri merkingu).<\/p>\n<figure id=\"attachment_4474\" aria-describedby=\"caption-attachment-4474\" style=\"width: 300px\" class=\"wp-caption aligncenter\"><a href=\"http:\/\/gamla.truflun.net\/arngrimurv\/wp-content\/uploads\/2016\/12\/Mufasa.png\" rel=\"attachment wp-att-4474\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"size-medium wp-image-4474\" src=\"http:\/\/gamla.truflun.net\/arngrimurv\/wp-content\/uploads\/2016\/12\/Mufasa-300x214.png\" alt=\"Svikinn, negldur gegnum loppurnar, n\u00e1nast eins og krossfestur fellur hinn d\u00fdrlingslegi Mufasa\/Hamlet\/Kristur a\u00f0eins til a\u00f0 vitrast arftaka s\u00ednum s\u00ed\u00f0ar\" width=\"300\" height=\"214\" \/><\/a><figcaption id=\"caption-attachment-4474\" class=\"wp-caption-text\">Svikinn, negldur gegnum loppurnar, n\u00e1nast eins og krossfestur, fellur hinn d\u00fdrlingslegi Mufasa\/Hamlet\/Kristur fram af \u00e6tternisstapanum til \u00feess eins a\u00f0 vitrast arftaka s\u00ednum s\u00ed\u00f0ar.<\/figcaption><\/figure>\n<p>\u00c1 me\u00f0an Hamlet (Simba) er \u00ed \u00fatleg\u00f0inni kr\u00fdnir Claudius (Scar) sj\u00e1lfan sig konung og tekur upp einkennilegt samband vi\u00f0 drottninguna Geir\u00fer\u00fa\u00f0i (Sarabi) sem \u00e1horfendum Disneymyndarinnar er blessunarlega hl\u00edft vi\u00f0. \u00deau \u00e1r vex \u00d3fel\u00eda (Nala) \u00far grasi og stundar vei\u00f0ar fyrir konunginn sem s\u00fdnir \u00e1 me\u00f0an aflei\u00f0ingar \u00f3beisla\u00f0rar n\u00fdtingar landkosta; h\u00fdenurnar hafa veri\u00f0 teknar inn \u00ed samf\u00e9lagi\u00f0 og hinu vi\u00f0kv\u00e6ma jafnv\u00e6gi vistkerfisins hefur veri\u00f0 raska\u00f0.\u00a0Jafnvel gr\u00f3\u00f0urinn deyr vegna l\u00e9legrar stj\u00f3rnar konungsins, af alveg \u00f3\u00fatsk\u00fdr\u00f0um ors\u00f6kum (kannski gleymdi hann a\u00f0 v\u00f6kva?).<\/p>\n<figure id=\"attachment_4489\" aria-describedby=\"caption-attachment-4489\" style=\"width: 300px\" class=\"wp-caption aligncenter\"><a href=\"http:\/\/gamla.truflun.net\/arngrimurv\/wp-content\/uploads\/2016\/12\/The-Lion-King-disney-19899399-1280-720.jpg\" rel=\"attachment wp-att-4489\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"size-medium wp-image-4489\" src=\"http:\/\/gamla.truflun.net\/arngrimurv\/wp-content\/uploads\/2016\/12\/The-Lion-King-disney-19899399-1280-720-300x169.jpg\" alt=\"F\u00f6\u00f0urmor\u00f0 og v\u00f6nun Simba \u2013 t\u00e1kn re\u00f0ursins broti\u00f0 \u00ed baks\u00fdn.\" width=\"300\" height=\"169\" \/><\/a><figcaption id=\"caption-attachment-4489\" class=\"wp-caption-text\">F\u00f6\u00f0urmor\u00f0 og v\u00f6nun Simba \u2013 t\u00e1kn re\u00f0ursins broti\u00f0 \u00ed baks\u00fdn.<\/figcaption><\/figure>\n<p>\u00dear kemur til kasta \u00d3fel\u00edu (sem undir venjulegum sjeiksp\u00edrskum kringumst\u00e6\u00f0um v\u00e6ri drukknu\u00f0) og bav\u00edanans Rafiki (sem hefur lengi vanta\u00f0 \u00ed svi\u00f0suppf\u00e6rslur \u00e1 Hamlet, grunsamlegt sem \u00fea\u00f0 er) a\u00f0 f\u00e1 Hamlet til a\u00f0 sn\u00faa aftur \u00far \u00fatleg\u00f0inni og f\u00f3\u00f0ra Whoopi Goldberg og fleiri h\u00fdenur \u00e1 illa fr\u00e6ndanum sem myrti f\u00f6\u00f0urinn, t\u00e1knr\u00e6nt vana\u00f0i soninn og ger\u00f0i sig brei\u00f0an vi\u00f0 m\u00f3\u00f0urina, en \u00fea\u00f0 er h\u00e6gara sagt en gert \u00fear sem hann telur sj\u00e1lfan sig hafa myrt f\u00f6\u00f0urinn og \u00f3ttast \u00fea\u00f0 sem hann er or\u00f0inn: mor\u00f0ingi, engu betri en h\u00fdena. A\u00f0 vera, e\u00f0a ekki? \u00dear er efinn (e\u00f0a \u201ehakuna matata\u201c eins og \u00fea\u00f0 er kalla\u00f0 h\u00e9r).<\/p>\n<figure id=\"attachment_4477\" aria-describedby=\"caption-attachment-4477\" style=\"width: 300px\" class=\"wp-caption aligncenter\"><a href=\"http:\/\/gamla.truflun.net\/arngrimurv\/wp-content\/uploads\/2016\/12\/MufasasGhost2.jpg\" rel=\"attachment wp-att-4477\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"size-medium wp-image-4477\" src=\"http:\/\/gamla.truflun.net\/arngrimurv\/wp-content\/uploads\/2016\/12\/MufasasGhost2-300x169.jpg\" alt=\"Kristur\/Mufasa vitrast l\u00e6risveini s\u00ednum r\u00e9tt \u00e1\u00f0ur en hann talar tungum.\" width=\"300\" height=\"169\" \/><\/a><figcaption id=\"caption-attachment-4477\" class=\"wp-caption-text\">Kristur\/Mufasa vitrast l\u00e6risveini s\u00ednum r\u00e9tt \u00e1\u00f0ur en hann talar tungum.<\/figcaption><\/figure>\n<p>\u00de\u00e1 gr\u00edpur draugur f\u00f6\u00f0urins \u00ed taumana og eggjar soninn \u00e1fram og \u00e1horfandinn sannf\u00e6rist um \u00e1g\u00e6ti \u00feessarar r\u00e1\u00f0ager\u00f0ar vegna \u00feess hva\u00f0 t\u00f3nlistin er fr\u00e1b\u00e6r. \u00deetta getur ekki klikka\u00f0. Enda er ekki fyrr b\u00fai\u00f0 a\u00f0 \u00e9ta fr\u00e6ndann en hellidemba skellur \u00e1 Helsing\u00f8rkletti, sem einhverra hluta vegna logar allur \u00f3l\u00edkt \u00fev\u00ed hvernig grj\u00f3t heg\u00f0ar s\u00e9r \u00ed raunveruleikanum, og n\u00e1lega\u00a0kort\u00e9ri seinna er landi\u00f0 allt gr\u00f3i\u00f0 og d\u00fdrin \u00f6ll sn\u00fain aftur og allt er or\u00f0i\u00f0 fr\u00e1b\u00e6rt. \u00deannig hverfist myndin um h\u00e6\u00f0ir: \u00ed upphafi er prinsinum haldi\u00f0 h\u00e1tt uppi yfir \u00f6\u00f0rum d\u00fdrum \u00e1 konungsklettinum, n\u00e6st fellur konungurinn ni\u00f0ur \u00ed glj\u00fafur og deyr, og \u00ed lokin tekur prinsinn aftur v\u00f6ldin af illa fr\u00e6ndanum og varpar honum fram af konungsklettinum en tekur s\u00e9r \u00fear st\u00f6\u00f0u sj\u00e1lfur.<\/p>\n<figure id=\"attachment_4482\" aria-describedby=\"caption-attachment-4482\" style=\"width: 300px\" class=\"wp-caption aligncenter\"><a href=\"http:\/\/gamla.truflun.net\/arngrimurv\/wp-content\/uploads\/2016\/12\/31.jpg\" rel=\"attachment wp-att-4482\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"size-medium wp-image-4482\" src=\"http:\/\/gamla.truflun.net\/arngrimurv\/wp-content\/uploads\/2016\/12\/31-300x169.jpg\" alt=\"R\u00f3a sig\" width=\"300\" height=\"169\" \/><\/a><figcaption id=\"caption-attachment-4482\" class=\"wp-caption-text\">R\u00f3a sig<\/figcaption><\/figure>\n<p>Enginn getur or\u00f0i\u00f0 konungur, heldur f\u00e6\u00f0ist lj\u00f3n konungur. A\u00f0eins hi\u00f0 r\u00e9tta lj\u00f3n getur vammlaust tro\u00f0i\u00f0 hi\u00f0 torrata\u00f0a einstigi milli \u00feess a\u00f0 \u00e9ta \u00feegna s\u00edna og \u00fej\u00f3na \u00feeim, gert brottr\u00e6k hin \u00f3\u00e6skilegu d\u00fdr og geti\u00f0 afkv\u00e6mi sem h\u00e6gt er a\u00f0 gera l\u00e9legar framhaldsmyndir um sem \u00ed hr\u00e6sni sinni fjalla um ford\u00f3ma. Stemningin kringum Simbahamlet er eins \u00ed r\u00edkisstj\u00f3rn leiddri af Dansk folkeparti; hin \u00f3\u00e6skilegu b\u00ed\u00f0a \u00e1 landam\u00e6runum tilb\u00fain a\u00f0 t\u00e6ta sundur \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9lagi\u00f0 \u00ed einni sviphendingu og \u00f3gna \u00fear me\u00f0 valdajafnv\u00e6gi hinna H.C. Andersen hv\u00edtu fyrir innan. T\u00f6kum hva\u00f0a ja\u00f0arh\u00f3p sem er: m\u00faslima, gy\u00f0inga, svarta, Fl\u00e6mingja, l\u00e6mingja, snorkstelpur og hem\u00fala, og Konungur lj\u00f3nanna s\u00fdnir okkur hva\u00f0 gerist ef vi\u00f0 hleypum \u00feeim inn. Myndin lofar \u00fe\u00e1 sem f\u00e6ddir eru til forr\u00e9ttinda og fer hvergi \u00ed grafg\u00f6tur me\u00f0 \u00fea\u00f0 a\u00f0 a\u00f0rir megi \u00feakka fyrir a\u00f0 f\u00e1 a\u00f0 heyra undir samf\u00e9lag \u00feeirra. \u00dea\u00f0 m\u00e1 \u00e9ta hva\u00f0a sv\u00edn sem er svo lengi sem \u00fea\u00f0 er ekki vinur konungsins, og\u00a0h\u00fdenur, \u00fe\u00e6r mega bara hoppa upp \u00ed rassgati\u00f0 \u00e1 s\u00e9r.<\/p>\n<figure id=\"attachment_4478\" aria-describedby=\"caption-attachment-4478\" style=\"width: 350px\" class=\"wp-caption aligncenter\"><a href=\"http:\/\/gamla.truflun.net\/arngrimurv\/wp-content\/uploads\/2016\/12\/Pride_Rock_Before_and_After_5903.png\" rel=\"attachment wp-att-4478\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"size-full wp-image-4478\" src=\"http:\/\/gamla.truflun.net\/arngrimurv\/wp-content\/uploads\/2016\/12\/Pride_Rock_Before_and_After_5903.png\" alt=\"Danm\u00f6rk, fyrir og eftir innflytjendastrauminn.\" width=\"350\" height=\"394\" \/><\/a><figcaption id=\"caption-attachment-4478\" class=\"wp-caption-text\">Danm\u00f6rk, fyrir og eftir innflytjendastrauminn.<\/figcaption><\/figure>\n<p>\u00de\u00f3tt undarlegt s\u00e9 brag\u00f0i\u00f0 sem tv\u00edhyggjuheimsmynd Disney skilur jafnan eftir, \u00fear sem allt er gott e\u00f0a illt og p\u00f3lit\u00edskur undirt\u00f3nn vir\u00f0ist eftir \u00e1 a\u00f0 hyggja yfirleitt alvarlega vanhugsa\u00f0ur ef ekki meira, \u00fe\u00e1 er ekki h\u00e6gt anna\u00f0 en a\u00f0 d\u00e1st a\u00f0 Konungi lj\u00f3nanna, st\u00f3rbrotinni hreyfilist hennar og \u00f3vi\u00f0jafnanlegri t\u00f3nlist sem er sennilega me\u00f0 \u00fev\u00ed betra sem nokkru sinni hefur veri\u00f0 sami\u00f0 fyrir kvikmynd. \u00de\u00e1 hverfur seint s\u00e1 r\u00fdtingur sem myndin stakk \u00ed hjarta barna \u00e1ri\u00f0 1994 \u00feegar vi\u00f0 uppg\u00f6tvu\u00f0um \u00f6ll sem eitt a\u00f0 \u00f6r\u00f3tt illmenni g\u00e6ti fyrirvaral\u00edti\u00f0 myrt pabba okkar, sem er litlu sk\u00e1rra en s\u00fa vitneskja sem Bambi f\u00e6r\u00f0i okkur a\u00f0 m\u00e6\u00f0ur okkar g\u00e6tu fyrirvaralaust veri\u00f0 skotnar \u00ed mi\u00f0jum lautart\u00far, og hvorki bav\u00edanar\u00a0sem kunna kung fu n\u00e9 fuglar sem l\u00edta \u00fat eins og Rowan Atkinson\u00a0geta f\u00e6rt neina huggun vi\u00f0 \u00fev\u00ed. En miki\u00f0 er myndin \u00f3skaplega g\u00f3\u00f0 fyrir \u00fev\u00ed.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Sj\u00e1 \u00e1\u00f0ur \u00ed syrpunni: I. Backdraft er enn\u00fe\u00e1 m\u00e1li\u00f0 II. Lilli klifurm\u00fas er sj\u00e1lfselskur k\u00fakalabbi. III. She&#8217;s All That. Tveim og h\u00e1lfu \u00e1ri eftir s\u00ed\u00f0ustu umfj\u00f6llun um meistaraverk \u00e6sku\u00e1ranna breg\u00f0ur n\u00fa svo vi\u00f0 a\u00f0 or\u00f0i\u00f0 meistaraverk er ekki nota\u00f0 \u00ed h\u00e1\u00f0i. H\u00e9r er komin mynd sem haf\u00f0i \u00e1hrif \u00e1 mig og sem \u00e9g haf\u00f0i miklar &hellip; <a href=\"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/2016\/12\/13\/meistaraverk-aeskuaranna-iv-the-lion-king\/\" class=\"more-link\">Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa: <span class=\"screen-reader-text\">Meistaraverk \u00e6sku\u00e1ranna IV: The Lion King<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":3,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[36],"tags":[],"class_list":["post-4473","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-kvikmyndir"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/4473","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/users\/3"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=4473"}],"version-history":[{"count":3,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/4473\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":13961,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/4473\/revisions\/13961"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=4473"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=4473"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=4473"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}