{"id":4492,"date":"2016-12-14T22:29:36","date_gmt":"2016-12-14T22:29:36","guid":{"rendered":"http:\/\/gamla.truflun.net\/arngrimurv\/?p=4492"},"modified":"2019-01-01T13:37:18","modified_gmt":"2019-01-01T13:37:18","slug":"meistaraverk-aeskuaranna-v-taningsstulkan-penetrerud-hnifi","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/2016\/12\/14\/meistaraverk-aeskuaranna-v-taningsstulkan-penetrerud-hnifi\/","title":{"rendered":"Meistaraverk \u00e6sku\u00e1ranna V: T\u00e1ningsst\u00falkan penetreru\u00f0 hn\u00edfi"},"content":{"rendered":"<p><em>Sj\u00e1 \u00e1\u00f0ur \u00ed syrpunni:<br \/>\nI. <a href=\"http:\/\/gamla.truflun.net\/arngrimurv\/2014\/05\/meistaraverk-aeskuaranna-i-backdraft\/\" target=\"_blank\">Backdraft er enn\u00fe\u00e1 m\u00e1li\u00f0<\/a><br \/>\nII. <a href=\"http:\/\/gamla.truflun.net\/arngrimurv\/2014\/05\/meistaraverk-aeskuaranna-ii-dyrin-i-halsaskogi\/\" target=\"_blank\">Lilli klifurm\u00fas er sj\u00e1lfselskur k\u00fakalabbi<\/a>.<br \/>\nIII. <a href=\"http:\/\/gamla.truflun.net\/arngrimurv\/2014\/05\/meistaraverk-aeskuaranna-iii-shes-all-that\/\" target=\"_blank\">She&#8217;s All That<\/a>.<br \/>\nIV. <a href=\"http:\/\/gamla.truflun.net\/arngrimurv\/2016\/12\/meistaraverk-aeskuaranna-iv-the-lion-king\/\" target=\"_blank\">The Lion King<\/a> <\/em><\/p>\n<p>\u00c1ri\u00f0 er 1996, st\u00f3rfenglegt \u00e1r \u00e1 (b\u00f3kstaflegu) breytingarskei\u00f0i \u00ed l\u00edfi m\u00ednu, fj\u00f6gur \u00e1r eru li\u00f0in fr\u00e1 \u00fatkomu t\u00edmam\u00f3taritger\u00f0arinnar <em>Men, Women, and Chain Saws: Gender in the Modern Horror Film<\/em> eftir Carol Clover, \u00fear sem h\u00fan l\u00fdsir \u00fev\u00ed yfir a\u00f0 \u201eThe slasher film proper has died down (even the sequel activity has subsided), not least because (as I have suggested) its salient contributions have been absorbed into the mainstream [\u2026] Whatever the cause, the effect is clear: the independent or off-Hollywood horror industry has fallen on hard times. And the effect of that effect seems inevitable. Deprived of the creative wellspring of the low tradition, I suspect, larger studios are more likely than before to imitate their own tried-and-true formulas, and less likely to take a flier on the kind of bizarre and brilliant themes that can bubble up from the bottom.\u201c Og viti menn: Scream kemur \u00ed b\u00ed\u00f3 og breytir \u00f6llu. Wes Craven fann a\u00f0 v\u00edsu ekki upp metahryllingsmyndina, en hann ger\u00f0i hana a\u00f0 \u00fev\u00ed sem h\u00fan er \u00ed dag.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 er ef til vill til marks um \u00e1stand mitt fremur en myndanna sem h\u00e9r ver\u00f0a til umfj\u00f6llunar (Scream 1996; Scream 2 1997; I Know What You Did Last Summer 1997; I Still Know What You Did Last Summer 1998; Urban Legend 1998) a\u00f0 m\u00e9r \u00feykja \u00fe\u00e6r ekki hafa elst h\u00e6tish\u00f3t. Vissulega eru kostuleg \u201egamaldags\u201c atri\u00f0i eins og a\u00f0 \u00feurfa a\u00f0 deila s\u00edmal\u00ednu me\u00f0 herbergisf\u00e9laga sem hangir endalaust \u00e1 netinu yfir m\u00f3dem, nema m\u00e9r finnst \u00fea\u00f0 reyndar ekkert fyndi\u00f0. Svona var \u00feetta n\u00fa bara. Svo m\u00e1 reyndar sumpart hl\u00e6ja a\u00f0 t\u00f3nlistinni, eins og Save Yourself me\u00f0 Stabbing Westward, en aftur er \u00feetta bara til marks um t\u00ed\u00f0arandann sem var.<\/p>\n<p><iframe loading=\"lazy\" title=\"Stabbing WestWard Save Yourself + lyrics\" width=\"660\" height=\"495\" src=\"https:\/\/www.youtube.com\/embed\/TyLlVClG-hM?feature=oembed\" frameborder=\"0\" allow=\"accelerometer; autoplay; clipboard-write; encrypted-media; gyroscope; picture-in-picture; web-share\" referrerpolicy=\"strict-origin-when-cross-origin\" allowfullscreen><\/iframe><\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 sem er \u00e1hugavert vi\u00f0 bylgjuna sem ver\u00f0ur me\u00f0 tilkomu Scream, sem sj\u00e1lf gengur \u00fat \u00e1 ytri v\u00edsanir \u00ed hryllingsmyndahef\u00f0ina (og sem sl\u00edk bygg\u00f0 \u00e1 \u00feeirri hef\u00f0 sem var\u00f0 til me\u00f0 Halloween t\u00e6pum 20 \u00e1rum fyrr og nefnd er \u201eslasher\u201c \u00e1 ensku \u2013 \u00fe.m.t. eldri mynd fr\u00e1 1981 sem einnig heitir <a href=\"https:\/\/en.wikipedia.org\/wiki\/Scream_(1981_film)\" target=\"_blank\">Scream<\/a> \u2013 en sn\u00fdst \u00ed raun meir um stungur en h\u00f6gg eins og h\u00e9r ver\u00f0a f\u00e6r\u00f0 r\u00f6k fyrir), a\u00f0 s\u00e1 h\u00f3pur mynda sem ver\u00f0ur til fyrir sakir vins\u00e6lda Scream er me\u00f0 t\u00f6luvert af innri v\u00edsunum hver til annarrar. \u00deannig hefst I Know What You Did Last Summer \u00e1 h\u00f3pi ungmenna \u00e1 str\u00f6nd sem heitir Dawson&#8217;s Beach \u00fear sem \u00feau segja hvert \u00f6\u00f0ru draugas\u00f6gur. \u00cd einni \u00feeirra heyrir st\u00falka eins og krafs ofan \u00e1 \u00feaki b\u00edlsins sem h\u00fan situr \u00ed og veit ekki a\u00f0 \u00fea\u00f0 er k\u00e6rasti hennar sem b\u00fai\u00f0 er a\u00f0 hengja \u00far tr\u00e9 fyrir ofan (svo deila ungmennin um hvort sagan s\u00e9 s\u00f6nn). \u00cd myndinni Urban Legend sem kom \u00fat \u00e1ri s\u00ed\u00f0ar fer Damon (leikinn af Joshua Jackson) me\u00f0 a\u00f0alpers\u00f3nunni Natalie (Alicia Witt) \u00fat \u00ed sk\u00f3g. \u00deegar hann r\u00e6sir b\u00edlinn ver\u00f0ur hann vandr\u00e6\u00f0alegur \u00fev\u00ed \u00feemalag s\u00e1pu\u00f3perunnar Dawson&#8217;s Creek spilast af kassettu \u00ed b\u00edlnum, og hann er flj\u00f3tur a\u00f0 sl\u00f6kkva \u00e1 \u00fatvarpinu, og v\u00edsar \u00fe\u00e1 myndin b\u00e6\u00f0i til \u00feess a\u00f0 Joshua Jackson l\u00e9k eitt a\u00f0alhlutverkanna \u00ed Dawson&#8217;s Creek (s\u00farm\u00falinn Pacey, s\u00e6lla minninga), og svo v\u00edsar h\u00fan einnig til I Know What You Did Last Summer me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 benda \u00e1 nafni\u00f0 Dawson og hengja \u00ed n\u00e6stu senu hinn fremur \u00f3vi\u00f0kunnanlega Damon \u00far tr\u00e9 svo f\u00e6turnir r\u00e9tt nema vi\u00f0 \u00feak b\u00edlsins sem Natalie situr \u00ed \u2013 og ekur af sta\u00f0 \u00ed ge\u00f0shr\u00e6ringu.<\/p>\n<figure id=\"attachment_4499\" aria-describedby=\"caption-attachment-4499\" style=\"width: 440px\" class=\"wp-caption aligncenter\"><a href=\"http:\/\/gamla.truflun.net\/arngrimurv\/wp-content\/uploads\/2016\/12\/vlcsnap-2011-04-22-22h14m49s247.png\" rel=\"attachment wp-att-4499\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\" wp-image-4499\" src=\"http:\/\/gamla.truflun.net\/arngrimurv\/wp-content\/uploads\/2016\/12\/vlcsnap-2011-04-22-22h14m49s247-300x126.png\" alt=\"Vesalings drengurinn\" width=\"440\" height=\"185\" \/><\/a><figcaption id=\"caption-attachment-4499\" class=\"wp-caption-text\">Vesalings drengurinn<\/figcaption><\/figure>\n<p>Munurinn er \u00fe\u00f3 s\u00e1 a\u00f0 Natalie er ekki k\u00e6rasta Damons, sem beitir \u00f3hei\u00f0arlegum me\u00f0ulum \u00ed tilraun til a\u00f0 s\u00e6nga hj\u00e1 henni. \u00cd myndum sem \u00feessum er penetrasj\u00f3n st\u00falkunnar af v\u00f6ldum karls jafnan undanfari \u00feess a\u00f0 h\u00fan er penetreru\u00f0 me\u00f0 hn\u00edf af \u00f6\u00f0rum \u2013 stundum sama \u2013 karli, og \u00feannig m\u00e1 \u00feekkja s\u00f6guhetjuna a\u00f0 h\u00fan hleypir ekki hverjum sem er upp \u00e1 sig. A\u00f0 v\u00edsu er Damon annar til a\u00f0 deyja \u00ed Urban Legend (\u00e1 eftir st\u00falku sem er afh\u00f6f\u00f0u\u00f0 \u00far afturs\u00e6ti b\u00edls), en hann er kvenger\u00f0ur \u00feannig a\u00f0 hann er sag\u00f0ur hafa l\u00e9legt skegg (\u00e1horfandinn ver\u00f0ur \u00feess t\u00e6plega var a\u00f0 hann hafi nokkurt skegg) og hann bregst vi\u00f0 me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 l\u00fdsa \u00fev\u00ed yfir a\u00f0 \u00fea\u00f0 hafi teki\u00f0 hann heila \u00e1tta m\u00e1nu\u00f0i a\u00f0 safna \u00fev\u00ed. Ennfremur leggur hann allt \u00ed s\u00f6lurnar til a\u00f0 f\u00e1 sofi\u00f0 hj\u00e1 Natalie og uppfyllir \u00fear me\u00f0 anna\u00f0 skilyr\u00f0i \u00feess a\u00f0 deyja: lausl\u00e6ti. Honum ver\u00f0a einnig \u00e1 \u00feau mist\u00f6k a\u00f0 fara \u00far b\u00edlnum til a\u00f0 skvetta \u00far skinnsokknum \u00fati \u00ed sk\u00f3gi, me\u00f0 or\u00f0unum \u201e\u00c9g kem strax aftur,\u201c sem allir vita a\u00f0 merkja a\u00f0 hann komi aldrei aftur. \u00cd Urban Legend fer a\u00f0 v\u00edsu l\u00edti\u00f0 fyrir penetrasj\u00f3n me\u00f0 hn\u00edf enda mor\u00f0ingi hennar, \u00f3l\u00edkt hef\u00f0inni, kona. \u00c1st\u00e6\u00f0a \u00feess a\u00f0 mor\u00f0inginn\u00a0gengur berserksgang um h\u00e1sk\u00f3lasv\u00e6\u00f0i\u00f0 og myr\u00f0ir \u00fe\u00e1 sem ver\u00f0a fyrir henni er s\u00fa a\u00f0 h\u00fan \u00e6tlar a\u00f0 drepa \u00fe\u00e6r st\u00falkur sem ur\u00f0u valdur a\u00f0 dau\u00f0a unnusta hennar me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 leika eftir fl\u00f6kkus\u00f6gu um h\u00e6ttulega \u00f6ku\u00fe\u00f3ra og blikka st\u00f6\u00f0ugt \u00e1 hann h\u00e1u lj\u00f3sunum uns hann missir stj\u00f3rn \u00e1 b\u00edlnum og ekur \u00fat af veginum, en sj\u00e1lf myr\u00f0ir h\u00fan einatt me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 l\u00edkja eftir samb\u00e6rilegum fl\u00f6kkus\u00f6gum (anna\u00f0 d\u00e6mi er sagan um k\u00f6ttinn \u00ed \u00f6rbylgjuofninum). \u00deannig tengist myndin aftur I Know What You Did Last Summer og framhaldsmynd hennar I Still Know\u00a0What You Did Last Summer (sem \u00e6tti a\u00f0 vera \u201ethe summer before last,\u201c en l\u00e1tum \u00fea\u00f0 eiga sig), sem b\u00e1\u00f0ar hefjast \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 Freddie Prinze Jr. \u00ed hlutverki hins flata og \u00f3\u00e1hugaver\u00f0a Ray ekur \u00e1 e\u00f0a fram \u00e1 mor\u00f0ingjann (\u00ed seinna tilfellinu er mor\u00f0inginn \u00e1 BMW, alveg eins og \u00feeim sem Ray ekur upphaflega \u00e1 mor\u00f0ingjann me\u00f0, sem endurspeglar vi\u00f0sn\u00faninginn \u00e1 a\u00f0st\u00e6\u00f0um \u00feeirra \u2013 og \u00ed \u00feetta sinn er \u00fea\u00f0 Ray sem skilinn er eftir til a\u00f0 deyja).<\/p>\n<figure id=\"attachment_4493\" aria-describedby=\"caption-attachment-4493\" style=\"width: 570px\" class=\"wp-caption aligncenter\"><a href=\"http:\/\/gamla.truflun.net\/arngrimurv\/wp-content\/uploads\/2016\/12\/I-KNOW-WHAT-YOU-DID-LAST-SUMMER-570.jpg\" rel=\"attachment wp-att-4493\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"wp-image-4493 size-full\" src=\"http:\/\/gamla.truflun.net\/arngrimurv\/wp-content\/uploads\/2016\/12\/I-KNOW-WHAT-YOU-DID-LAST-SUMMER-570.jpg\" alt=\"Ef einhver \u00e6tti aldrei a\u00f0 keyra, \u00fe\u00e1 v\u00e6ri \u00fea\u00f0 Ray.\" width=\"570\" height=\"237\" \/><\/a><figcaption id=\"caption-attachment-4493\" class=\"wp-caption-text\">Ef einhver \u00e6tti aldrei a\u00f0 keyra, \u00fe\u00e1 v\u00e6ri \u00fea\u00f0 Ray.<\/figcaption><\/figure>\n<p>L\u00edkt og Julie (Jennifer Love Hewitt) bendir \u00e1 \u00ed upphafi fyrri sumarsmellsins, \u00fe\u00e1 eru hryllingss\u00f6gur af ofs\u00f3ttum t\u00e1ningsst\u00falkum ekkert anna\u00f0 en a\u00f0v\u00f6run til ungra st\u00falkna a\u00f0 stunda ekki kynl\u00edf fyrir hj\u00f3naband, og kr\u00f3kurinn sem nota\u00f0ur er sem mor\u00f0vopn \u00ed einni af s\u00f6gum \u00feeirra segir h\u00fan a\u00f0 s\u00e9 hreint og kl\u00e1rt re\u00f0urt\u00e1kn \u2013 og h\u00e9r v\u00edsar myndin til forvera sinnar Scream og \u00edtarlegrar hryllingsm\u00fdt\u00f3l\u00f3g\u00edu hennar sem \u00e1rei\u00f0anlega \u00feiggur \u00fdmislegt fr\u00e1 fyrrnefndri b\u00f3k Clover. Julie\u00a0er ekki hj\u00e1tr\u00faarfyllri en svo a\u00f0 h\u00fan leggst me\u00f0 Ray af \u00f6llum m\u00f6nnum \u00e1 Dawson&#8217;s Beach og \u00ed beinu framhaldi aka \u00feau ni\u00f0ur manninn sem mun hundelta \u00feau allar g\u00f6tur s\u00ed\u00f0an, symb\u00f3l\u00edskt vanar hinn karlmennskulega Barry (Ryan Philippe) fyrir framan k\u00e6rustu hans Helen (Sarah Michelle Gellar, \u00f6\u00f0ru nafni Buffy vamp\u00edrubani) \u00e1\u00f0ur en hann penetrerar systur hennar og loks hana sj\u00e1lfa \u00ed s\u00e9rlega \u00f3hugnanlegri senu \u00ed h\u00fasasundi, en \u00e1\u00f0ur hefur hann svipt hana kvenleikanum me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 klippa af henni h\u00e1ri\u00f0 me\u00f0an h\u00fan svaf (og h\u00e9r er \u00e1g\u00e6tis v\u00edsun \u00ed fyrstu myndina um Gu\u00f0f\u00f6\u00f0urinn, \u00fear sem kvikmyndaleikstj\u00f3ri vaknar og finnur stolt l\u00edfs s\u00edns afh\u00f6f\u00f0a\u00f0 \u00ed r\u00fami s\u00ednu), og hann\u00a0h\u00e6ttir ekki fyrr en hann hefur sj\u00e1lfur veri\u00f0 aflima\u00f0ur af Ray.<\/p>\n<p>\u00cd framhaldsmyndinni m\u00e6tir hann svo me\u00f0 kr\u00f3k \u00ed sta\u00f0 handarinnar sem hann missti (\u201eGimme a hand!\u201c segir hafnarstj\u00f3ri og er penetrera\u00f0ur me\u00f0 fall\u00edskum kr\u00f3k sem \u00e1\u00f0ur var h\u00f6nd), og h\u00e9r kemur sonur hans vi\u00f0 s\u00f6gu einnig sem framlenging \u00e1 sad\u00edskum vilja f\u00f6\u00f0urins, en fa\u00f0irinn hefur geti\u00f0 hann vi\u00f0 konu sinni sem hann myrti vegna gruns um framhj\u00e1hald og sonurinn \u00fev\u00ed \u00ed senn afsprengi tv\u00f6faldrar penetrasj\u00f3nar kr\u00f3ks og lims. Allt er \u00feetta myndm\u00e1l sem myndin gengst bl\u00e1kalt vi\u00f0 me\u00f0 fullyr\u00f0ingu Julie \u00ed upphafi: kr\u00f3kurinn er re\u00f0ur, hann er gjaldi\u00f0 sem grei\u00f0a \u00fearf fyrir kynl\u00edf utan hj\u00f3nabands \u2013 e\u00f0a til hli\u00f0ar vi\u00f0 \u00fea\u00f0 (ekki s\u00ed\u00f0ur en gjaldi\u00f0 fyrir a\u00f0 vera l\u00e9legur \u00ed landafr\u00e6\u00f0i, en s\u00f6guhetjurnar vinna fer\u00f0 til Bahama \u2013 fyrir tilstu\u00f0lan mor\u00f0ingjans \u2013 me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 giska rangt \u00e1 h\u00f6fu\u00f0borg Brasil\u00edu). Ekki s\u00ed\u00f0ur er \u00e1hugaver\u00f0 sena \u00ed framhaldsmyndinni \u00feegar karl fellur ofan \u00e1 konu me\u00f0 skutul \u00ed bakinu; konan kemst ekki undan honum og mor\u00f0inginn gr\u00edpur um skutulinn og rekur alla lei\u00f0 \u00ed gegnum karlinn og inn \u00ed konuna. Aftur birtist h\u00e9r myndm\u00e1l nau\u00f0gunar, eins og senan \u00ed h\u00fasasundinu \u00ed fyrri myndinni \u00fear sem Helen er \u00fevingu\u00f0 bak vi\u00f0 dekkjast\u00e6\u00f0ur me\u00f0an heil skr\u00fa\u00f0ganga fer hj\u00e1 \u00e1n \u00feess a\u00f0 ver\u00f0a neins v\u00f6r.<\/p>\n<p><a href=\"http:\/\/gamla.truflun.net\/arngrimurv\/wp-content\/uploads\/2016\/12\/Helen-s-death-helen-shivers-22335006-852-480.jpg\" rel=\"attachment wp-att-4500\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"aligncenter wp-image-4500\" src=\"http:\/\/gamla.truflun.net\/arngrimurv\/wp-content\/uploads\/2016\/12\/Helen-s-death-helen-shivers-22335006-852-480-300x123.jpg\" alt=\"helen-s-death-helen-shivers-22335006-852-480\" width=\"461\" height=\"189\" \/><\/a><\/p>\n<p>Allt eru \u00feetta \u00fe\u00f3 pers\u00f3nur sem \u00e1horfandinn hefur litla \u00e1st\u00e6\u00f0u til a\u00f0 hafa sam\u00fa\u00f0 me\u00f0, og engin \u00feessara mynda n\u00e6r \u00ed raun \u00feeim \u00e1hrifum sem Scream setur \u00ed \u00f6ndvegi, en \u00fear er lykillinn dramat\u00edsk fj\u00f6lskyldusaga\u00a0sem vir\u00f0ist h\u00e1lfs\u00f3tt \u00ed harmleikinn um \u00d6dipus konung en hinn helmingurinn \u00far Halloween \u2013 sem ungmennin sj\u00e1st horfa \u00e1 \u00ed myndinni, \u00e1 me\u00f0an \u00feau fara yfir reglur um hvernig eigi a\u00f0 heg\u00f0a s\u00e9r \u00ed hryllingsmynd, vitandi \u00fea\u00f0 a\u00f0 reglur hryllingsmyndarinnar gilda n\u00fa einnig um raunverulegt l\u00edf \u00feeirra. \u00dear eru illmennin tv\u00f6, annars vegar \u00f3sk\u00f6p venjulegur l\u00fa\u00f0i sem hefur s\u00e9\u00f0 of margar hryllingsmyndir (Matthew Lillard), hins vegar hinn sj\u00e1lfselski Billy Loomis (Skeet Ulrich, \u00f3j\u00e1) sem er k\u00e6rasti s\u00f6guhetjunnar Sidney Prescott (Neve Campbell).<\/p>\n<p>Eftir nokkrar tilraunir tekst honum a\u00f0 vekja upp \u00ed henni n\u00e6gilegt samviskubit gagnvart sambandi \u00feeirra til a\u00f0 h\u00fan sofi hj\u00e1 honum, og litlu s\u00ed\u00f0ar kemur hinn hr\u00e6\u00f0ilegi sannleikur \u00ed lj\u00f3s a\u00f0 hann er ors\u00f6k allrar angistar hennar: hann er stj\u00fapbr\u00f3\u00f0ir hennar! Og hann nau\u00f0ga\u00f0i og myrti m\u00f3\u00f0ur hennar, vegna \u00feess a\u00f0 fa\u00f0ir hans h\u00e9lt vi\u00f0 hana og hrakti hina raunverulega m\u00f3\u00f0ur \u00ed burtu, sem bj\u00f3 til \u00f6fund \u00ed hjarta hans. \u00cd framhaldsmyndinni er \u00fea\u00f0 m\u00f3\u00f0ir Billys sem er (aftur) annar tveggja mor\u00f0ingja, en hinn er (aftur) l\u00fa\u00f0i sem hefur s\u00e9\u00f0 alltof margar b\u00ed\u00f3myndir. \u00cd s\u00f6guheimi annarrar myndarinnar er veri\u00f0 a\u00f0 kvikmynda atbur\u00f0i fyrri myndarinnar eftir s\u00f6gu fr\u00e9ttakonunnar Gale Weathers (Courteney Cox, sem er st\u00f3rfenglega vanmetin dramat\u00edsk leikkona, \u00fe\u00f6kk s\u00e9 Friends), og \u00fear s\u00e9st Luke Wilson leika Billy Loomis og Tori Spelling Sidney \u00ed sprenghl\u00e6gilegri senu.<\/p>\n<figure id=\"attachment_4501\" aria-describedby=\"caption-attachment-4501\" style=\"width: 335px\" class=\"wp-caption aligncenter\"><a href=\"http:\/\/gamla.truflun.net\/arngrimurv\/wp-content\/uploads\/2016\/12\/Od8EyHuG6TVl.jpg\" rel=\"attachment wp-att-4501\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\" wp-image-4501\" src=\"http:\/\/gamla.truflun.net\/arngrimurv\/wp-content\/uploads\/2016\/12\/Od8EyHuG6TVl-300x213.jpg\" alt=\"Billy Loomis mundar framlengingu karlmennsku sinnar framan \u00ed stj\u00fapsystur s\u00edna\" width=\"335\" height=\"238\" \/><\/a><figcaption id=\"caption-attachment-4501\" class=\"wp-caption-text\">Billy Loomis mundar framlengingu karlmennsku sinnar framan \u00ed stj\u00fapsystur s\u00edna<\/figcaption><\/figure>\n<p>\u00cd \u00feri\u00f0ju myndinni sem best v\u00e6ri gleymd, eins og oft vill vera um \u00feri\u00f0ju myndir, er mor\u00f0inginn br\u00f3\u00f0ir Sidney, og \u00fea\u00f0 ver\u00f0ur n\u00e1nast hall\u00e6rislega lj\u00f3st a\u00f0 r\u00fdtingur\/re\u00f0ur mor\u00f0ingjans sn\u00fdst \u00ed raun ekki um hreinl\u00e6ti \u00e6skunnar og spillingu \u00feess heldur er hann t\u00e1kn fyrir sifjaspell, og \u00fear eru tengsl m\u00e6\u00f0ra og sona s\u00fdnu brenglu\u00f0ust. \u00de\u00f3 er brug\u00f0i\u00f0 \u00e1 leik me\u00f0 re\u00f0urt\u00e1kni\u00f0; \u00ed annarri myndinni leggur ma\u00f0ur eyra vi\u00f0 svonefnt gloryhole (gat \u00ed vegg sem h\u00e6gt er a\u00f0 \u00feiggja munnm\u00f6k \u00ed gegnum) \u00e1 salerni kvikmyndah\u00fass (\u00fear sem hann horfir \u00e1 myndina um atbur\u00f0i fyrri myndarinnar) og f\u00e6r r\u00fdting inn \u00ed eyra\u00f0 \u2013 re\u00f0ur \u00ed n\u00e6sta op\u00a0\u00ed h\u00f6f\u00f0inu. \u00deetta er hl\u00e6gilegt og \u00e1 a\u00f0 vera \u00fea\u00f0. \u00cd hall\u00e6rislegu gr\u00ednmyndinni Scary Movie fr\u00e1 \u00e1rinu 2000 er \u00fea\u00f0 einmitt ekki hn\u00edfur sem penetrerar eyra mannsins \u00e1 salerninu, heldur re\u00f0ur. \u00de\u00e1 m\u00e1 velta fyrir s\u00e9r merkingu senunnar \u00ed fyrstu myndinni \u00feegar mor\u00f0ingjarnir tveir Billy og Stu stinga hvorn annan til skiptis til a\u00f0 l\u00edta \u00fat eins og f\u00f3rnarl\u00f6mb en ekki gerendur, og Stu fer a\u00f0 sundla og telur sig hafa veri\u00f0 stunginn of oft, hann s\u00e9 a\u00f0 deyja, og gr\u00e6tur s\u00e1ran.<\/p>\n<figure id=\"attachment_4497\" aria-describedby=\"caption-attachment-4497\" style=\"width: 400px\" class=\"wp-caption aligncenter\"><a href=\"http:\/\/gamla.truflun.net\/arngrimurv\/wp-content\/uploads\/2016\/12\/scream_465.jpg\" rel=\"attachment wp-att-4497\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"wp-image-4497\" src=\"http:\/\/gamla.truflun.net\/arngrimurv\/wp-content\/uploads\/2016\/12\/scream_465-300x127.jpg\" alt=\"Piltar stinga hvorn annan\" width=\"400\" height=\"169\" \/><\/a><figcaption id=\"caption-attachment-4497\" class=\"wp-caption-text\">Piltar stinga hvorn annan<\/figcaption><\/figure>\n<p>\u00deessar myndir innihalda h\u00e9r um bil allt fallega f\u00f3lki\u00f0 af X-kynsl\u00f3\u00f0inni sem \u00fe\u00e1 var mest \u00e1berandi og sum \u00feeirra leika \u00ed fleiri en einni syrpu (t.d. Sarah Michelle Gellar sem b\u00e6\u00f0i er \u00ed Scream 2 og I Know What You Did Last Summer); eina \u00e1st\u00e6\u00f0a \u00feess a\u00f0 Joshua Jackson er me\u00f0 aflita\u00f0 h\u00e1r \u00ed Urban Legend, svo d\u00e6mi s\u00e9 nefnt, er s\u00fa a\u00f0 hann l\u00e9k n\u00e1unga me\u00f0 aflita\u00f0 h\u00e1r \u00ed Cruel Intentions. Samanlagt eru \u00feessar myndir framlag Dawson&#8217;s Creek kynsl\u00f3\u00f0arinnar til hryllingsmyndageirans (gleymum \u00fe\u00f3 ekki hli\u00f0r\u00e6num myndum \u00e1 vi\u00f0 The Skulls, Gossip e\u00f0a spin-off draslinu American Psycho 2, allar fr\u00e1 \u00e1rinu 2000) og n\u00fdlundan vi\u00f0 \u00feessar myndir er \u00ed raun s\u00fa a\u00f0 \u00fe\u00e6r i\u00f0ka b\u00f3kmenntafr\u00e6\u00f0i hikstalaust \u2013 \u00fe\u00e6r eru su\u00f0upottur t\u00e1kna og sj\u00e1lfsv\u00edsana og d\u00fdrkunar \u00e1 hef\u00f0 og formger\u00f0 sagna. Allar byggja \u00fe\u00e6r \u00e1 s\u00f6mu forsendum og hafa samb\u00e6rilega lausn. \u00cd heimi \u00feeirra er engin undankomulei\u00f0 fr\u00e1 \u00f3\u00f0um m\u00f6nnum sem vilja brj\u00f3ta \u00e1 ungum st\u00falkum.<\/p>\n<p><a href=\"http:\/\/gamla.truflun.net\/arngrimurv\/wp-content\/uploads\/2016\/12\/ae6b378f6421410f6259df6162c204ea.jpg\" rel=\"attachment wp-att-4496\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"aligncenter size-medium wp-image-4496\" src=\"http:\/\/gamla.truflun.net\/arngrimurv\/wp-content\/uploads\/2016\/12\/ae6b378f6421410f6259df6162c204ea-205x300.jpg\" alt=\"ae6b378f6421410f6259df6162c204ea\" width=\"205\" height=\"300\" \/><\/a><\/p>\n<p>\u00cd I Still Know What You Did Last Summer er l\u00f6ng lokasena \u00fear sem Ray \u00fej\u00f3nustar munninn me\u00f0 rafmagnstannbursta me\u00f0an eiginkona hans Julie eigrar ein og yfirgefin um efri h\u00e6\u00f0 h\u00fass \u00feeirra og \u00f3ttast um l\u00edf sitt. \u00c1 s\u00f6mu stundu og Ray kl\u00e1rar a\u00f0 bursta \u00ed s\u00e9r tennurnar me\u00f0 hinu langa t\u00e1kni og hr\u00f3par upp yfir sig \u201eI love this thing!\u201c birtist kr\u00f3kur undan hj\u00f3nar\u00fami \u00feeirra og kippir Julie \u00e1 n\u00e1ttkj\u00f3lnum undir r\u00fami\u00f0, \u00fear sem mor\u00f0inginn b\u00ed\u00f0ur \u00ed leyni. \u00d3brag\u00f0i\u00f0 sem \u00feetta skilur eftir er tilgangur s\u00f6gunnar: konur skulu ekki halda a\u00f0 \u00feeim leyfist sama frj\u00e1lsr\u00e6\u00f0i og k\u00f6rlum, \u00feeim skal refsa\u00f0 fyrir \u00fea\u00f0 sem \u00fe\u00e6r gera, og \u00feeim skal refsa\u00f0 fyrir ger\u00f0ir karlanna l\u00edka, \u00fe\u00e6r eru einar og yfirgefnar \u00ed heimi sem stj\u00f3rna\u00f0 er af hinu fall\u00edska, hi\u00f0 kvenlega er vi\u00f0fang g\u00f3ns og kynfer\u00f0islegra \u00f3ra. Hitt \u00feema myndanna er svonefnt \u201egaslighting\u201c \u2013 a\u00f0 rengja s\u00edfellt upplifun kvenpers\u00f3nanna af veruleikanum, a\u00f0 hafna sk\u00fdringum \u00feeirra og spyrja hvort \u00fe\u00e6r s\u00e9u ekki bara a\u00f0 \u00edmynda s\u00e9r \u00f3gn hins penetrerandi manns sem aldrei er h\u00e6gt a\u00f0 festa hendur \u00e1. Framlag X-kynsl\u00f3\u00f0arinnar er a\u00f0 draga \u00feetta upp \u00e1 yfirbor\u00f0i\u00f0 og \u00e6pa \u00fea\u00f0 framan \u00ed \u00e1horfandann. En \u00e9g er ekki viss um a\u00f0 vi\u00f0 h\u00f6fum endilega skili\u00f0 bo\u00f0skapinn. Yfirgengilega l\u00edkingam\u00e1li\u00f0 \u00feegar Julie syngur \u201eI Will Survive\u201c \u00ed kar\u00f3k\u00ed andsp\u00e6nis endalokum myndarinnar skilur nefnilega eftir \u00fe\u00e1 spurningu hvort konur geti yfirleitt lifa\u00f0 af \u00ed \u00feessum heimi.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Sj\u00e1 \u00e1\u00f0ur \u00ed syrpunni: I. Backdraft er enn\u00fe\u00e1 m\u00e1li\u00f0 II. Lilli klifurm\u00fas er sj\u00e1lfselskur k\u00fakalabbi. III. She&#8217;s All That. IV. The Lion King \u00c1ri\u00f0 er 1996, st\u00f3rfenglegt \u00e1r \u00e1 (b\u00f3kstaflegu) breytingarskei\u00f0i \u00ed l\u00edfi m\u00ednu, fj\u00f6gur \u00e1r eru li\u00f0in fr\u00e1 \u00fatkomu t\u00edmam\u00f3taritger\u00f0arinnar Men, Women, and Chain Saws: Gender in the Modern Horror Film eftir Carol Clover, &hellip; <a href=\"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/2016\/12\/14\/meistaraverk-aeskuaranna-v-taningsstulkan-penetrerud-hnifi\/\" class=\"more-link\">Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa: <span class=\"screen-reader-text\">Meistaraverk \u00e6sku\u00e1ranna V: T\u00e1ningsst\u00falkan penetreru\u00f0 hn\u00edfi<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":3,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[36],"tags":[],"class_list":["post-4492","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-kvikmyndir"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/4492","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/users\/3"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=4492"}],"version-history":[{"count":3,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/4492\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":13962,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/4492\/revisions\/13962"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=4492"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=4492"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=4492"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}