{"id":4654,"date":"2017-07-15T14:32:26","date_gmt":"2017-07-15T14:32:26","guid":{"rendered":"http:\/\/gamla.truflun.net\/arngrimurv\/?p=4654"},"modified":"2019-01-01T13:37:18","modified_gmt":"2019-01-01T13:37:18","slug":"hvenaer-drepur-madur-ekki-mann-american-psycho-og-framhald-hennar","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/2017\/07\/15\/hvenaer-drepur-madur-ekki-mann-american-psycho-og-framhald-hennar\/","title":{"rendered":"Hven\u00e6r drepur ma\u00f0ur ekki mann? American Psycho og framhald hennar"},"content":{"rendered":"<p>\u00c9g f\u00f3r mj\u00f6g geist \u00ed lokasprettinum \u00e1 doktorsritger\u00f0arskrifunum svo \u00e9g hef ekki haft mikla orku til menningarr\u00fdni s\u00ed\u00f0an \u00ed apr\u00edl. N\u00fana langar mig a\u00f0 b\u00e6ta \u00far \u00feessu og fjalla s\u00f6mulei\u00f0is meira um b\u00e6kur. Hinga\u00f0 til hef \u00e9g helst nennt a\u00f0 blogga um kvikmyndir og \u00fea\u00f0 ver\u00f0ur s\u00f6mulei\u00f0is gert h\u00e9r \u00fe\u00f3tt efnivi\u00f0ur myndanna sem sko\u00f0a skyldi s\u00e9 sk\u00e1ldsaga Brets Easton Ellis, American Psycho, sem \u00e9g hef ekki lesi\u00f0.<\/p>\n<p>Titill s\u00f6gunnar er afar l\u00fdsandi fyrir efnivi\u00f0inn. H\u00fan gerist \u00ed New York \u00e1 n\u00edunda \u00e1ratugnum og fjallar um uppa innan vi\u00f0 \u00fer\u00edtugt, Patrick Bateman, sem vinnur vi\u00f0 eitthva\u00f0 \u00f3lj\u00f3st \u2014 sennilega vi\u00f0skipti. Hann hefur ekki unni\u00f0 s\u00e9r inn fyrir starfinu, heldur hefur hann f\u00e6\u00f0st til \u00feess. Hi\u00f0 sama gildir um alla kollega hans. \u00cd raun og veru gerir hann ekkert \u00ed vinnunni. Vinnan felst \u00ed a\u00f0 sitja vi\u00f0 skrifbor\u00f0 \u00ed kl\u00e6\u00f0skerasni\u00f0num jakkaf\u00f6tum og \u00feykjast vera mikilv\u00e6gur. \u00c1horfandinn f\u00e6r \u00feegar a\u00f0 vita a\u00f0 honum \u00feykir \u00feetta allt innant\u00f3mt. Allir \u00ed kringum hann eru n\u00e1kv\u00e6mlega eins og hann, fullir af yfirbor\u00f0shluttekningu hver me\u00f0 \u00f6\u00f0rum, svo snobba\u00f0ir a\u00f0 l\u00edfi\u00f0 sn\u00fdst um hver f\u00e6r bor\u00f0 \u00e1 hva\u00f0a veitingasta\u00f0 og hver \u00e1 flottasta nafnspjaldi\u00f0. <\/p>\n<p><iframe loading=\"lazy\" width=\"560\" height=\"315\" src=\"https:\/\/www.youtube.com\/embed\/cISYzA36-ZY\" frameborder=\"0\" allowfullscreen><\/iframe><\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 sem er einna helst \u00e1berandi er fullkomi\u00f0 sinnuleysi allra \u00ed gar\u00f0 hver annars. Allir \u00feykjast \u00feekkjast, en pers\u00f3nur myndarinnar fara t\u00ed\u00f0um mannavillt af \u00fev\u00ed \u00feeir \u00feekkja hver annan ekki \u00ed sj\u00f3n. \u00deannig n\u00e6r Bateman f\u00e6ri \u00e1 vinnuf\u00e9laga s\u00ednum Paul Allen sem heldur a\u00f0 hann s\u00e9 annar vinnuf\u00e9lagi sinn, Halberstram. Bateman myr\u00f0ir Allen, a\u00f0 \u00fev\u00ed er vir\u00f0ist af \u00f6fund, og \u00fea\u00f0 sem eftir lifir myndar myr\u00f0ir hann enn fleiri. \u00cd lokin j\u00e1tar hann allt saman en vinnuf\u00e9lagarnir hl\u00e6ja a\u00f0 honum. \u00deegar Bateman segist hafa myrt Paul Allen segir annar vinnuf\u00e9lagi a\u00f0 \u00fea\u00f0 geti ekki veri\u00f0 \u00fev\u00ed hann hafi bor\u00f0a\u00f0 me\u00f0 Allen \u00ed London nokkrum d\u00f6gum fyrr.<\/p>\n<p>H\u00e9rna liggur galdurinn. \u00cd myndinni er nefnilega alveg \u00f3lj\u00f3st hvort Bateman hefur yfirleitt drepi\u00f0 nokkurn og \u00fea\u00f0 m\u00e1 skilja myndina \u00e1 hvorn veginn sem er. S\u00e1 kvittur barst m\u00e9r \u00ed eyru eftir a\u00f0 \u00e9g haf\u00f0i s\u00e9\u00f0 myndina \u00ed b\u00ed\u00f3 \u00e1 s\u00ednum t\u00edma a\u00f0 \u00ed b\u00f3kinni v\u00e6ri alveg lj\u00f3st a\u00f0 Bateman hef\u00f0i engan myrt, \u00feetta hef\u00f0i allt veri\u00f0 \u00edmyndun. Og flestir vinir m\u00ednir hafa vilja\u00f0 t\u00falka myndina \u00feannig s\u00f6mulei\u00f0is. M\u00e9r finnst \u00fea\u00f0 bara ekkert skemmtileg t\u00falkun svo \u00e9g f\u00f3r a\u00f0 kanna m\u00e1li\u00f0 og \u00fea\u00f0 kemur \u00ed lj\u00f3s a\u00f0 \u00feessi endalok eru s\u00f6mulei\u00f0is opin \u00ed b\u00f3kinni. \u00de\u00e1 hefur Ellis skrifa\u00f0 fleiri b\u00e6kur \u00fear sem Bateman kemur vi\u00f0 s\u00f6gu \u00fear sem s\u00f6mulei\u00f0is er gefi\u00f0 \u00ed skyn a\u00f0 hann s\u00e9 fj\u00f6ldamor\u00f0ingi. Og er \u00feetta ekki fullkominn endir? Bateman myr\u00f0ir Paul Allen en \u00fea\u00f0 er ekki teki\u00f0 mark \u00e1 \u00fev\u00ed, af \u00fev\u00ed einhver sem \u00feekkir heldur ekki vinnuf\u00e9laga s\u00edna \u00ed sundur heldur sig hafa bor\u00f0a\u00f0 me\u00f0 honum \u00ed London. A\u00f0 lokum skipta \u00f6rl\u00f6g Allens engu m\u00e1li, \u00fev\u00ed \u00feessir menn sinna engum raunverulegum skyldum \u00f6\u00f0rum en a\u00f0 tro\u00f0a \u00ed sig mat og \u00e1fengi, bera saman nafnspj\u00f6ld og \u00feykjast \u00feekkja hverjir a\u00f0ra. \u00deannig eru \u00feeir allir amer\u00edskir s\u00fdk\u00f3patar, allir jafn si\u00f0blindir og veruleikafirrtir.<\/p>\n<p>Svo kom reyndar \u00fat kvikmynd, sem h\u00e6gt er a\u00f0 taka mark \u00e1 e\u00f0a ekki eftir behag, sem gj\u00f6rbreytir s\u00f6guheimi myndarinnar. H\u00e6gt v\u00e6ri a\u00f0 hafna alveg gildi American Psycho 2 fyrir fyrri myndina. \u00dea\u00f0 hafa b\u00e6\u00f0i Bret Easton Ellis gert og a\u00f0alleikkonan Mila Kunis, sem segir a\u00f0 upphaflega hafi \u00feetta \u00e1tt a\u00f0 vera allt \u00f6nnur mynd en svo hafi handritinu veri\u00f0 breytt \u00ed mi\u00f0jum t\u00f6kum. \u00dea\u00f0 s\u00e9st l\u00edka langar lei\u00f0ir a\u00f0 myndirnar eru fullkomlega \u00f3skyldar fyrir utan vi\u00f0b\u00f3tina um Patrick Bateman. American Psycho 2 er nefnilega hef\u00f0bundin unglingasl\u00f3gmynd \u00ed anda Urban Legend og annarra sl\u00edkra mynda sem einkum fjalla um kynl\u00edf og sl\u00e6g\u00f0a unglinga, en fyrri myndin er t\u00f6luvert langt fr\u00e1 \u00feeirri stemningu. Sj\u00e1lfur hef \u00e9g n\u00fa samt sem \u00e1\u00f0ur \u00fea\u00f0 prins\u00edp a\u00f0 s\u00e9 William Shatner \u00ed kvikmynd, \u00fe\u00e1 s\u00e9 h\u00fan kan\u00f3na. Svo er leikstj\u00f3ri myndarinnar Morgan J. Freeman, sem hlj\u00f3mar n\u00e6stum \u00fev\u00ed eins og annar fremur vir\u00f0ulegur n\u00e1ungi, svo \u00fea\u00f0 gefur myndinni auki\u00f0 gravitas. Svo vi\u00f0 skulum taka mark \u00e1 myndinni.<\/p>\n<p>\u00cd American Psycho 2 er \u00fea\u00f0 lj\u00f3st fr\u00e1 upphafi a\u00f0 Patrick Bateman er einn \u00feekktasti fj\u00f6ldamor\u00f0ingi s\u00f6gunnar og a\u00f0 a\u00f0alpers\u00f3nan, Rachael Newman, var eitt ver\u00f0andi f\u00f3rnarlamba hans \u00fear til h\u00fan t\u00f3k m\u00e1lin \u00ed eigin hendur og drap hann. \u00cd kj\u00f6lfari\u00f0 \u00e1kve\u00f0ur h\u00fan a\u00f0 gerast fj\u00f6ldamor\u00f0ingjamor\u00f0ingi og a\u00f0 besti farvegur \u00feeirrar l\u00edfsk\u00f6llunar s\u00e9 hj\u00e1 FBI. Vi\u00f0 fyrstu s\u00fdn eru margir gallar \u00e1 \u00feessari r\u00e1\u00f0ager\u00f0, en myndinni er alveg sama. Rachael s\u00e6kir n\u00e1m \u00ed Western Washington University \u00fear sem fyrrum FBI-kempan William Shatner kennir handah\u00f3fskenndar uppl\u00fdsingar um fj\u00f6ldamor\u00f0ingja. Allir nemendur hans vilja f\u00e1 a\u00f0 ver\u00f0a a\u00f0sto\u00f0arkennari hans n\u00e6sta misseri, \u00fev\u00ed \u00fea\u00f0 a\u00f0 ver\u00f0a a\u00f0sto\u00f0arkennari Williams Shatner jafngildir \u00fev\u00ed a\u00f0 f\u00e1 a\u00f0 fara \u00ed FBI-sk\u00f3lann \u00ed Quantico (allir sem \u00feekkja til h\u00e1sk\u00f3la vita hverslags \u00fev\u00e6la \u00fea\u00f0 er, og pers\u00f3na Shatners \u00ed myndinni fur\u00f0ar sig einmitt \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 nemendur haldi a\u00f0 \u00fea\u00f0 a\u00f0 vera a\u00f0sto\u00f0arkennari sinn komi \u00feeim \u00e1 einhverja framabraut). Rachael drepur \u00fev\u00ed helstu keppinauta s\u00edna um hina eftirs\u00f3ttu st\u00f6\u00f0u. Einn \u00feeirra kyrkir h\u00fan me\u00f0 smokki eftir a\u00f0 hafa ginnt hann \u00ed herbergi sitt undir yfirskini um \u00f6llu hef\u00f0bundnari notkun getna\u00f0arvarna.<\/p>\n<p><iframe loading=\"lazy\" width=\"560\" height=\"315\" src=\"https:\/\/www.youtube.com\/embed\/BrcfleOJ7pY\" frameborder=\"0\" allowfullscreen><\/iframe><\/p>\n<p>\u00deetta er au\u00f0vita\u00f0 hla\u00f0i\u00f0 alls konar merkingu. \u00dea\u00f0 sem hef\u00f0i fari\u00f0 utan um har\u00f0an lim hans er hi\u00f0 lina sem drepur hann, svo stungi\u00f0 er upp \u00e1 t\u00e1knr\u00e6nni v\u00f6nun; hann f\u00e6r heldur ekki hin holdlegu kynni sem hann s\u00f3ttist eftir. \u00de\u00e1 er \u00feetta \u00e1bending um a\u00f0 myndin s\u00e9 me\u00f0vitu\u00f0 um st\u00f6\u00f0u s\u00edna me\u00f0al sl\u00f3gmynda sem mj\u00f6g eru uppteknar af kynl\u00edfi og v\u00f6nun. A\u00f0ra karla drepur h\u00fan me\u00f0 penetrasj\u00f3n: samnemanda me\u00f0 \u00edsn\u00e1l \u00ed hnakkann (r\u00e9tt eins og Bateman), r\u00e6stingakarl myr\u00f0ir h\u00fan me\u00f0 k\u00fastskafti upp \u00ed munn og \u00fat um hnakka, sem er ekki smuga a\u00f0 framkv\u00e6ma \u00ed alv\u00f6runni. Og undir \u00f6llum \u00feessum mor\u00f0um er svo kankv\u00eds og gla\u00f0leg t\u00f3nlist a\u00f0 \u00fea\u00f0 ver\u00f0ur \u00f3b\u00e6rilegt. Er \u00feetta gamanmynd? \u00c9g hallast a\u00f0 \u00fev\u00ed. <\/p>\n<p>S\u00ed\u00f0an drepur h\u00fan William Shatner ooog \u2026 h\u00e9rna vir\u00f0ist r\u00e1\u00f0ager\u00f0in \u00f6ll vera farin \u00fat um gluggann, b\u00f3kstaflega, \u00fev\u00ed William Shatner dettur \u00fat um glugga. William Shatner vir\u00f0ist me\u00f0 \u00f6llu \u00f3f\u00e6rt a\u00f0 deyja vir\u00f0ulega \u00ed kvikmyndum. Hann haf\u00f0i lifa\u00f0 \u00f3tal Star Trek myndir \u00e1\u00f0ur en hann var\u00f0 undir stillansa. Hva\u00f0 um \u00fea\u00f0, Rachael drepur svo bara a\u00f0sto\u00f0arkennarann hans og \u00feykist vera h\u00fan. Og kemst upp me\u00f0 \u00fea\u00f0. Og fer til Quantico. Myndin b\u00fain. \u00c9g hef ekki haft fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 nefna s\u00e1lfr\u00e6\u00f0inginn einu sinni, \u00fev\u00ed ef hann er klipptur \u00far myndinni \u00fe\u00e1 breytist framvinda hennar ekki neitt.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 er engin f\u00e1gun yfir \u00feessu. \u00d6llu er slengt framan \u00ed \u00e1horfandann eins og dau\u00f0um skunki og hin \u00f3v\u00e6ntu s\u00f6gulok eru hvorki \u00f3v\u00e6nt n\u00e9 s\u00f6gulok. \u00dea\u00f0 er engin saga. American Psycho 2 vir\u00f0ist helst tj\u00e1 \u00fe\u00e1 hugmynd a\u00f0 of efna\u00f0ir h\u00e1sk\u00f3lanemar s\u00e9u \u00f3ttalegt pakk (m\u00e1 e.t.v. til sanns vegar f\u00e6ra) og a\u00f0 fj\u00f6ldamor\u00f0ingjum s\u00e9 ekki treystandi til a\u00f0 myr\u00f0a eing\u00f6ngu til g\u00f3\u00f0s. American Psycho er \u00e1 hinn b\u00f3ginn afskaplega f\u00e1gu\u00f0 athugun \u00e1 \u00fdmsum svi\u00f0um mannlegs samf\u00e9lags. H\u00fan fjallar um st\u00e9ttskiptingu, firringu hinna efna\u00f0ri, \u00f3j\u00f6fn valdahlutf\u00f6ll \u00fear sem hinir \u00fatv\u00f6ldu geta frami\u00f0 hvers konar myrkraverk \u00e1n aflei\u00f0inga \u00ed krafti st\u00f6\u00f0u sinnar, en \u00fe\u00f3tt h\u00fan s\u00fdni \u00feann heim fr\u00e1 sj\u00f3narh\u00f3li innherja \u00fe\u00e1 er myndin sem dregin er upp svo framandi \u00e1horfandanum a\u00f0 sj\u00f3narhorni\u00f0 er samt sem \u00e1\u00f0ur upp og utan fr\u00e1. \u00deannig dregur h\u00fan \u00e1horfandann inn \u00ed \u00f3hugnanlegan heim \u00fear sem f\u00f3lki er meira annt um nafnspj\u00f6ld en anna\u00f0 f\u00f3lk, veit ekki hva\u00f0 anna\u00f0 f\u00f3lk heitir, skilur ekki mannleg samskipti. Hin r\u00e1\u00f0andi st\u00e9tt er afmennsku\u00f0 \u00e1 sama t\u00edma og fulltr\u00fai hennar, Bateman, afmennskar \u00fe\u00e1 sem eru undir hann settir og ry\u00f0ur \u00f6\u00f0rum \u00far vegi \u2014 \u00e1n nokkurra aflei\u00f0inga. <\/p>\n<p>Athafnir Batemans eru t\u00e1knr\u00e6nar fyrir \u00fe\u00e1 vi\u00f0skiptah\u00e6tti sem hann myndi stunda ef hann raunverulega sinnti starfinu s\u00ednu. Ef hann v\u00e6ri ekki b\u00f3kstaflegur mor\u00f0ingi, \u00fe\u00e1 v\u00e6ri hann \u00fea\u00f0 \u00f3beint. Hven\u00e6r myr\u00f0ir \u00fe\u00e1 Bateman mann og hven\u00e6r ekki? \u00dea\u00f0 er hvers og eins a\u00f0 svara. En for\u00f0umst fyrir alla muni \u00fe\u00e1 hugmynd a\u00f0 a\u00f0eins s\u00e9 eitt svar vi\u00f0 \u00feeirri spurningu.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00c9g f\u00f3r mj\u00f6g geist \u00ed lokasprettinum \u00e1 doktorsritger\u00f0arskrifunum svo \u00e9g hef ekki haft mikla orku til menningarr\u00fdni s\u00ed\u00f0an \u00ed apr\u00edl. N\u00fana langar mig a\u00f0 b\u00e6ta \u00far \u00feessu og fjalla s\u00f6mulei\u00f0is meira um b\u00e6kur. Hinga\u00f0 til hef \u00e9g helst nennt a\u00f0 blogga um kvikmyndir og \u00fea\u00f0 ver\u00f0ur s\u00f6mulei\u00f0is gert h\u00e9r \u00fe\u00f3tt efnivi\u00f0ur myndanna sem sko\u00f0a skyldi &hellip; <a href=\"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/2017\/07\/15\/hvenaer-drepur-madur-ekki-mann-american-psycho-og-framhald-hennar\/\" class=\"more-link\">Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa: <span class=\"screen-reader-text\">Hven\u00e6r drepur ma\u00f0ur ekki mann? American Psycho og framhald hennar<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":3,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[32,36,26],"tags":[],"class_list":["post-4654","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-bkur","category-kvikmyndir","category-uncategorized"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/4654","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/users\/3"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=4654"}],"version-history":[{"count":3,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/4654\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":13968,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/4654\/revisions\/13968"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=4654"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=4654"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=4654"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}