{"id":4666,"date":"2017-07-16T13:29:37","date_gmt":"2017-07-16T13:29:37","guid":{"rendered":"http:\/\/gamla.truflun.net\/arngrimurv\/?p=4666"},"modified":"2019-01-01T13:37:18","modified_gmt":"2019-01-01T13:37:18","slug":"konungsbok-eftir-arnald","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/2017\/07\/16\/konungsbok-eftir-arnald\/","title":{"rendered":"Konungsb\u00f3k eftir Arnald Indri\u00f0ason"},"content":{"rendered":"<p>\u00c1ri\u00f0 2006 r\u00e6ttist gamall draumur \u00feegar \u00e9g h\u00f3f \u00edslenskun\u00e1m \u00ed h\u00e1sk\u00f3lanum. \u00dea\u00f0 var margt sem heilla\u00f0i vi\u00f0 \u00edslenskuna, en Konungsb\u00f3k eddukv\u00e6\u00f0a var \u00fea\u00f0 sem ger\u00f0i \u00fatslagi\u00f0 um \u00feessa \u00e1kv\u00f6r\u00f0un. Sama haust og \u00e9g byrja\u00f0i \u00ed \u00edslenskunni kom \u00fat sk\u00e1ldsaga eftir Arnald Indri\u00f0ason, <em>Konungsb\u00f3k<\/em>. \u00c9g var flj\u00f3tur a\u00f0 n\u00e6la m\u00e9r \u00ed eintak \u00e1 b\u00f3kasafninu og svo h\u00f3fst lestur, en \u00feeim lestri lauk sn\u00f6gglega. \u00dea\u00f0 var eitthva\u00f0 sem m\u00e9r fannst \u00f3fulln\u00e6gjandi vi\u00f0 \u00feessa b\u00f3k en \u00e1tti erfitt me\u00f0 a\u00f0 henda rei\u00f0ur \u00e1.<\/p>\n<p><a href=\"http:\/\/gamla.truflun.net\/arngrimurv\/wp-content\/uploads\/2017\/07\/Screen-Shot-2017-07-16-at-13.26.19.png\" rel=\"attachment wp-att-4667\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" src=\"http:\/\/gamla.truflun.net\/arngrimurv\/wp-content\/uploads\/2017\/07\/Screen-Shot-2017-07-16-at-13.26.19.png\" alt=\"Screen Shot 2017-07-16 at 13.26.19\" width=\"391\" height=\"588\" class=\"aligncenter size-full wp-image-4667\" \/><\/a><\/p>\n<p>Sagan um \u201eunga og bl\u00e1eyga \u00edslenskufr\u00e6\u00f0inginn Valdemar\u201c sem kominn var til Hafnar a\u00f0 l\u00e6ra um handritin hef\u00f0i eins geta\u00f0 veri\u00f0 \u00e9g nokkrum \u00e1rum s\u00ed\u00f0ar, svo forsendur s\u00f6gunnar heillu\u00f0u. \u00dea\u00f0 var l\u00edka eitthva\u00f0 svo st\u00f3rkostleg hugmynd a\u00f0 nasistar ber\u00f0ust vi\u00f0 \u00edslenskufr\u00e6\u00f0inga um yfirr\u00e1\u00f0 yfir Konungsb\u00f3k me\u00f0 sinni dularfullu ey\u00f0u. Hugurinn hvarflar raklei\u00f0is a\u00f0 dulr\u00e6num \u00e1huga nasista, hvort Konungsb\u00f3k g\u00e6ti or\u00f0i\u00f0 vopn \u00ed h\u00f6ndum illra manna ef r\u00e1\u00f0g\u00e1tan um ey\u00f0una yr\u00f0i leyst. Svona eins og Raiders of the Lost Ark. <a href=\"https:\/\/www.warhistoryonline.com\/war-articles\/himmlers-witches-library-discovered-czech-republic.html\" target=\"_blank\">N\u00fdveri\u00f0 fannst b\u00f3kasafn Himmlers um dulr\u00e6n efni<\/a> og a\u00f0 s\u00f6gn gefur safnkosturinn til kynna a\u00f0 \u00e1hugi hans og sumra annarra nasista \u00e1 dulspeki hafi s\u00edst veri\u00f0 \u00fdktur.<\/p>\n<p>Mig hefur \u00fev\u00ed lengi langa\u00f0 a\u00f0 lesa <em>Konungsb\u00f3k<\/em> vegna hugmyndanna sem \u00e9g haf\u00f0i um hva\u00f0 h\u00fan hlyti a\u00f0 vera, og n\u00fana \u00e1 d\u00f6gunum l\u00e9t \u00e9g loksins ver\u00f0a af \u00fev\u00ed a\u00f0 lesa hana. \u00deannig er au\u00f0vita\u00f0 \u00f3sanngjarnt a\u00f0 n\u00e1lgast listaverk; \u00fea\u00f0 er ekki h\u00e6gt a\u00f0 \u00e1fellast rith\u00f6fundinn fyrir a\u00f0 skrifa a\u00f0ra b\u00f3k en ma\u00f0ur h\u00e9lt sig lesa, heldur \u00fearf ma\u00f0ur a\u00f0 leggja eigin hugmyndir til hli\u00f0ar og leyfa verkinu a\u00f0 tala eigin m\u00e1li. En \u00e9g \u00e1tti svol\u00edti\u00f0 erfitt me\u00f0 \u00fea\u00f0 \u00ed tilviki <em>Konungsb\u00f3kar<\/em>, \u00fev\u00ed h\u00fan fjallar um efni sem \u00e9g \u00feekki vel og hef mikinn \u00e1huga \u00e1. Svo \u00e9g birti \u00feetta me\u00f0 fyrirvara um \u00f3sanngirni.<\/p>\n<p><big>St\u00edll<\/big><br \/>\nB\u00f3kin er endurtekningas\u00f6m. \u00d6ll b\u00f3kin er l\u00f6g\u00f0 \u00ed munn Valdemar sem er flatur og tilger\u00f0arlegur pers\u00f3nuleiki. \u00derisvar \u00ed b\u00f3kinni l\u00fdsir hann andaktugur \u00feessari miklu st\u00f3rborg, Kaupmannah\u00f6fn, og \u00ed hvert einasta sinn l\u00fdsir hann n\u00e1kv\u00e6mlega s\u00f6mu h\u00fasunum. \u00deegar lesandinn s\u00e9r a\u00f0 hann er eina fer\u00f0ina enn farinn a\u00f0 l\u00fdsa S\u00edvalaturni og Fr\u00faarkirkju (sem er ekki s\u00e9rlega imponerandi bygging) fer hann a\u00f0 undrast, \u00fev\u00ed hann er b\u00fainn a\u00f0 lesa \u00feennan kafla ekki einu sinni \u00e1\u00f0ur, heldur tvisvar. Valdemar endurtekur allar hugsanir s\u00ednar fram og aftur um b\u00f3kina, rifjar upp s\u00f6mu atvikin aftur og aftur, svo lesandinn finnur alla lei\u00f0 gegnum b\u00f3kina hversu \u00feunn h\u00fan er. Sem h\u00fan hef\u00f0i ekki \u00feurft a\u00f0 vera, n\u00e6gur er efnivi\u00f0urinn. \u00dea\u00f0 er l\u00edka allt \u00fatsk\u00fdrt svo r\u00e6kilega ofan \u00ed lesandann a\u00f0 ekkert stendur eftir til a\u00f0 velta v\u00f6ngum yfir, engin t\u00falkun m\u00f6guleg \u00f6nnur en s\u00fa sem s\u00f6guma\u00f0ur b\u00fd\u00f0ur upp \u00e1. Kannski hugsa\u00f0i Arnaldur me\u00f0 s\u00e9r a\u00f0 svona \u00edslenskunemi g\u00e6ti vel veri\u00f0 einstaklega lei\u00f0inleg pers\u00f3na og l\u00e9legur penni, og ef svo er \u00fe\u00e1 hefur honum sannarlega tekist vel upp. M\u00e9r er sagt a\u00f0 a\u00f0rar b\u00e6kur Arnaldar s\u00e9u mun betur st\u00edla\u00f0ar, svo sk\u00fdringin er alt\u00e9nt ekki s\u00fa a\u00f0 hann geti ekki gert betur.<\/p>\n<p><big>Pers\u00f3nur<\/big><br \/>\nValdemar er \u00f3\u00feolandi. Hann er sannarlega bl\u00e1eygur, eins og stendur aftan \u00e1 b\u00f3kinni, og hann malar \u00fat \u00ed eitt einhver banal\u00edtet um menningararf og hinn g\u00f6fuga en brotna pr\u00f3fessor, og er svo teymdur grenjandi eins og r\u00e6fill \u00fat \u00ed gegnum b\u00f3kina fr\u00e1 einum sta\u00f0 til annars.<\/p>\n<p>Pr\u00f3fessorinn er ekki pers\u00f3na heldur samsafn eiginleika. Hann er ofdrykkja, sorg og leyndarm\u00e1l \u00ed akadem\u00edsku starfi. Svo er hann alltaf \u00e6stur, nema \u00ed f\u00e1ein skipti \u00feegar hann talar bl\u00ed\u00f0lega til Valdemars. Lesandinn skilur ekki af hverju pr\u00f3fessornum fer a\u00f0 l\u00edka vi\u00f0 Valdemar, \u00fev\u00ed Valdemar er ekki \u00e1 nokkurn h\u00e1tt \u00e1hugaver\u00f0ur e\u00f0a nytsamlegur. Pr\u00f3fessorinn heitir engu nafni, sem er undarlegt. Hann heitir bara Pr\u00f3fessorinn. Jafnvel hinn illi von Orlepp kallar hann Pr\u00f3fessorinn. Pr\u00f3fessorinn er auglj\u00f3slega pabbi Valdemars en \u00feetta er \u00fea\u00f0 eina sem Arnaldur l\u00e6tur liggja \u00e1 milli hluta \u00ed fr\u00e1s\u00f6gninni. \u00dea\u00f0 var g\u00f3\u00f0 \u00e1kv\u00f6r\u00f0un.<\/p>\n<p>Von Orlepp er vondur nasistaforingi, s\u00e1 helsti \u00ed b\u00f3kinni sem n\u00e6r a\u00f0 vera pers\u00f3na, en \u00fea\u00f0 er l\u00edka vegna \u00feess a\u00f0 vi\u00f0 h\u00f6fum svo sk\u00fdrar hugmyndir um \u00fea\u00f0 hvernig vondir nasistaforingjar eiga a\u00f0 vera.<br \/>\nA\u00f0rar pers\u00f3nur eru ekki \u00feess ver\u00f0ar a\u00f0 nefna.<\/p>\n<p><big>Saga<\/big><br \/>\nValdemar kemur semsagt til Hafnar \u00e1 eftirstr\u00ed\u00f0s\u00e1runum vo\u00f0a bl\u00e1eygur og gapandi yfir s\u00edv\u00f6lum turnum og fr\u00faarkirkjum og hittir fyrir hinn vi\u00f0skotailla pr\u00f3fessor sem nennir ekki a\u00f0 tala vi\u00f0 hann. S\u00ed\u00f0an fara nasistar a\u00f0 angra pr\u00f3fessorinn og \u00ed lj\u00f3s kemur a\u00f0 \u00feeir eru \u00e1 h\u00f6ttunum eftir t\u00fdndu \u00f6rkinni \u00far Konungsb\u00f3k. Pr\u00f3fessorinn teymir Valdemar me\u00f0 s\u00e9r raklei\u00f0is til \u00de\u00fdskalands \u00fear sem \u00feeir finna \u00f6rkina me\u00f0 engri fyrirh\u00f6fn \u00ed einhverjum kirkjugar\u00f0i. \u00de\u00e1 koma nasistarnir og stela \u00f6rkinni og fara hl\u00e6jandi burt af sj\u00f3narsvi\u00f0inu. S\u00ed\u00f0an kemur \u00ed lj\u00f3s a\u00f0 pr\u00f3fessorinn er l\u00edka b\u00fainn a\u00f0 glata Konungsb\u00f3k, hann l\u00e9t hinn illa von Orlepp hafa hana \u00ed str\u00ed\u00f0inu, nau\u00f0beyg\u00f0ur, og bj\u00f3 til mj\u00f6g n\u00e1kv\u00e6ma eftirl\u00edkingu af handritinu einn s\u00edns li\u00f0s me\u00f0 b\u00f3kfelli, jurtableki og kveikjara. Mj\u00f6g sennilegt allt saman. Nema hva\u00f0, svo flakka \u00feeir einhverjar erindisleysur um Amsterdam og Hamborg uns \u00feeir loks finna Konungsb\u00f3k um bor\u00f0 \u00ed Gullfossi. \u00dea\u00f0 babb kemur \u00ed \u00feann b\u00e1t a\u00f0 nasistarnir eru l\u00edka um bor\u00f0, svo pr\u00f3fessorinn l\u00e6tur Halld\u00f3r Laxness f\u00e1 Konungsb\u00f3k, en svo hafna \u00feeir von Orlepp \u00ed sj\u00f3num \u00e1samt t\u00fdndu \u00f6rkinni og deyja en Valdemar getur \u00fe\u00f3 allavega endurheimt Konungsb\u00f3k fr\u00e1 N\u00f3belsk\u00e1ldinu.<\/p>\n<p>Og til hvers var \u00feetta \u00fe\u00e1 allt saman? J\u00fa, nasistarnir vildu nota Konungsb\u00f3k \u00e1 einhvern \u00f3tilgreindan h\u00e1tt til a\u00f0 skapa sj\u00e1lfum s\u00e9r og \u00feeirra kyn\u00fe\u00e1ttabulli einhverja \u00edmynd um fors\u00f6gu. \u00deetta kemur \u00ed lj\u00f3s \u00e1 s\u00ed\u00f0ustu bla\u00f0s\u00ed\u00f0um b\u00f3karinnar. Var \u00fea\u00f0 \u00fe\u00e1 allt og sumt? Manni finnst \u00fea\u00f0 n\u00fa heldur sakleysislegt fyrir nasista, og ef eitthva\u00f0 er frekar kl\u00e9nt og \u00f3l\u00edklegt til \u00e1rangurs. Engin dulspeki kemur vi\u00f0 s\u00f6gu. Sagan endar \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 Konungsb\u00f3k og Flateyjarb\u00f3k koma \u00ed land a\u00f0 lokum sem r\u00e9ttm\u00e6t eign \u00cdslendinga, \u00e1n \u00feess a\u00f0 nokkur viti hva\u00f0 hefur gengi\u00f0 \u00e1 \u00e1 undan e\u00f0a hva\u00f0 or\u00f0i\u00f0 er um pr\u00f3fessorinn. \u00cd raun m\u00e6tti draga s\u00f6guna saman \u00ed eina setningu: h\u00fan fjallar um menn sem b\u00edtast um eina b\u00f3k af \u00fev\u00ed \u00feeir halda a\u00f0 h\u00fan geti leyst \u00far \u00fej\u00f3\u00f0ernislegri sj\u00e1lfsmyndarkr\u00edsu \u00feeirra. Og \u00fea\u00f0 er bara ekki s\u00e9rlega skemmtileg saga.<\/p>\n<p><big>Eftir\u00feankar<\/big><br \/>\n\u00c9g veit a\u00f0 Arnaldi er annt um s\u00f6guefni\u00f0 eins og m\u00e9r. Hann h\u00e9lt <a href=\"http:\/\/www.arnastofnun.is\/page\/frettasafn_frett&#038;detail=1028242#erindid_i_heild\" target=\"_blank\">d\u00e1samlegt erindi<\/a> \u00e1 r\u00e1\u00f0stefnu sem haldin var \u00e1 vegum \u00c1rnastofnunar \u00ed tilefni af 350 \u00e1ra afm\u00e6lis\u00e1ri \u00c1rna Magn\u00fassonar, og \u00fear segir hann um \u00feessa s\u00f6gu s\u00edna:<\/p>\n<blockquote><p>\u201eEinhvern veginn \u00feannig er saga handritanna \u00ed hugum okkar sem horfum \u00e1 \u00feau utan fr\u00e1 og erum ekki innm\u00faru\u00f0 \u00ed fr\u00e6\u00f0in. \u00dea\u00f0 liggur alltaf einhver hr\u00e6\u00f0ilegur vo\u00f0i yfir \u00feeim. \u00deau finnast \u00ed aumustu moldarkofum, t\u00fdnast og brenna og s\u00f6kkva \u00ed hafi\u00f0 og eru eins konar muna\u00f0arleysingjar sem f\u00e1 ekki einu sinni a\u00f0 koma heim en kveljast \u00ed \u00e1rhundru\u00f0 hj\u00e1 vondu stj\u00fapm\u00f3\u00f0ur okkar allra, D\u00f6num. \u00dea\u00f0 er aldrei h\u00e1tt til lofts og v\u00edtt til veggja \u00fear sem \u00feau dvelja. A\u00f0 \u00feeim var lengst af jafn f\u00e1t\u00e6klega b\u00fai\u00f0 og \u00fej\u00f3\u00f0inni \u00e1 sinni t\u00ed\u00f0. L\u00edklega er \u00fea\u00f0 einnig fyrir \u00fe\u00e1 s\u00f6k sem \u00feau eiga svo tryggan sta\u00f0 \u00ed hjarta okkar. B\u00fasta\u00f0ir \u00feeirra voru ekki skrauthallir veraldar heldur \u00f6rreytiskot vi\u00f0 myrkasta \u00fatja\u00f0ar heimsins, \u00fear sem \u00feau hafa legi\u00f0 undir skemmdum \u00ed reyk og s\u00f3ti og sk\u00edt. \u00deau bera \u00feess l\u00edka f\u00f6gur merki a\u00f0 hafa lifa\u00f0 me\u00f0 \u00fej\u00f3\u00f0inni eins og Konungsb\u00f3k getur best vitna\u00f0 um. H\u00fan er me\u00f0 \u00f6llu skrautlaust ritverk sett \u00ed \u00f3d\u00fdrasta vasabrot eins og verstu sjoppub\u00f3kmenntir dagsins og laus vi\u00f0 listfengi og \u00f3\u00fearfa prj\u00e1l \u00ed ytri b\u00fana\u00f0i. \u00devert \u00e1 m\u00f3ti er h\u00fan t\u00f6trum kl\u00e6dd b\u00f3kardrusla, s\u00f3tug upp fyrir haus, sk\u00edtug og t\u00e6tt, sj\u00e1lf f\u00e1t\u00e6ktin og \u00fatjaska\u00f0 allsleysi landsmanna lifandi komi\u00f0. \u00dea\u00f0 er au\u00f0s\u00e6tt \u00e1 henni a\u00f0 h\u00fan hefur lifa\u00f0 me\u00f0 s\u00ednu f\u00f3lki og upp \u00e1 \u00feess kj\u00f6r og, eins og stundum m\u00e1 segja um \u00fej\u00f3\u00f0ina sem bj\u00f3 hana til, \u00fe\u00e1 vantar \u00ed hana nokkrar bla\u00f0s\u00ed\u00f0ur. Konungsb\u00f3k er af \u00feeim s\u00f6kum ekki endilega r\u00e9tt nafngift. \u00dea\u00f0 er ekkert konunglegt vi\u00f0 hana. H\u00fan er \u00fevert \u00e1 m\u00f3ti andst\u00e6\u00f0a alls \u00feess sem kallast m\u00e1 konunglegt. H\u00fan hef\u00f0i me\u00f0 r\u00e9ttu m\u00e1tt heita Al\u00fe\u00fd\u00f0ub\u00f3kin.<\/p>\n<p>En l\u00edkt og er me\u00f0 \u00f6nnur \u00edslensk handrit og handritsslitur skyldu menn vara sig \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 d\u00e6ma verk eins og Konungsb\u00f3k eftir \u00e1s\u00fdndinni. \u00de\u00f3tt vi\u00f0 \u00e6ttum a\u00f0eins hana eina v\u00e6rum vi\u00f0 r\u00edk a\u00f0 b\u00f3kmenntum og hef\u00f0um lagt st\u00f3ran skerf til heimsmenningarinnar. H\u00fan geymir \u00f3metanlegar heimsb\u00f3kmenntir og \u00feegar vi\u00f0 skiljum ekkert lengur \u00ed \u00fev\u00ed hvert \u00cdsland stefnir er gott a\u00f0 eiga hana a\u00f0, vegna \u00feess a\u00f0 h\u00fan minnir okkur \u00e1 a\u00f0 okkar fegursta og d\u00fdrm\u00e6tasta eign er \u00fatslitin, ves\u00e6l b\u00f3kardrusla. Ekki risavaxnar bankastofnanir sem st\u00f3\u00f0u \u00e1 brau\u00f0f\u00f3tum. Ekki \u00edslenska fj\u00e1rm\u00e1lasnilldin sem a\u00f0rar \u00fej\u00f3\u00f0ir \u00e1ttu a\u00f0 taka s\u00e9r til fyrirmyndar. Ekki K\u00e1rahnj\u00fakavirkjun og \u00fatlensk \u00e1lfyrirt\u00e6ki. Ekki frystigeymslur austur \u00ed K\u00edna. Ekki ol\u00eduau\u00f0lindir \u00e1 Drekasv\u00e6\u00f0inu. \u00deegar vi\u00f0 viljum hugsa til raunverulegra ver\u00f0m\u00e6ta sem aldrei l\u00e1ta sig var\u00f0a neitt um b\u00f3lu\u00e1hrif e\u00f0a hagv\u00f6xt e\u00f0a galdeyrish\u00f6ft e\u00f0a efnahagshrun og al\u00fej\u00f3\u00f0abanka, \u00fe\u00e1 er gott a\u00f0 hugsa til Konungsb\u00f3kar.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 rann upp fyrir m\u00e9r \u00feegar \u00e9g leita\u00f0i a\u00f0 einhverju sem f\u00f3l \u00ed s\u00e9r s\u00f6nn ver\u00f0m\u00e6ti andst\u00e6tt fro\u00f0uver\u00f0m\u00e6tunum og skrifa\u00f0i litla \u00e6vint\u00fdras\u00f6gu um \u00edslenskan pr\u00f3fessor \u00ed Kaupmannah\u00f6fn \u00e1 sj\u00f6tta \u00e1ratugnum sem misst haf\u00f0i okkar d\u00fdrm\u00e6tu Konungsb\u00f3k \u00far h\u00f6ndum s\u00e9r og reyndi a\u00f0 n\u00e1 henni til baka. \u00deegar sagan kom \u00fat \u00e1ri\u00f0 2006 haf\u00f0i b\u00f3ka\u00fej\u00f3\u00f0in \u00e1 f\u00e1einum \u00e1rum st\u00f6kkbreyst \u00ed banka\u00fej\u00f3\u00f0 og sagan af pr\u00f3fessornum \u00e1tti a\u00f0 vera einhvers konar andm\u00e6li gegn \u00feeirri vissu sem \u00fe\u00e1 r\u00edkti, a\u00f0 peningar einir skiptu m\u00e1li \u00ed l\u00edfinu. \u00c1minning um a\u00f0 vi\u00f0 hef\u00f0um me\u00f0 einhverjum h\u00e6tti glata\u00f0 \u00fev\u00ed sem meiru skipti, glata\u00f0 uppruna okkar, glata\u00f0 Konungsb\u00f3k. \u00de\u00e1 flugu au\u00f0menn h\u00e9r um loftin bl\u00e1 \u00e1 einka\u00feotum svo varla s\u00e1st til s\u00f3lar. Litlar kammersveitir l\u00e9ku undir bor\u00f0um hinna n\u00fdr\u00edku. Manngildi\u00f0 var meti\u00f0 \u00ed himinh\u00e1um k\u00falueignum og \u00f3skiljanlegum k\u00falul\u00e1num. Og menn bor\u00f0u\u00f0u gull su\u00f0ur undir d\u00f3mkirkjunni f\u00f6gru \u00ed M\u00edlan\u00f3.\u201c<\/p><\/blockquote>\n<p>M\u00e9r finnst svo \u00f3l\u00edku saman a\u00f0 jafna milli s\u00f6gunnar og \u00feessarar l\u00fdsingar \u00e1 kjarna hennar. H\u00e9r skrifar Arnaldur af tilfinningu sem alveg skortir \u00ed b\u00f3kina, st\u00edllinn rennur \u00e1kve\u00f0inn og bl\u00e1tt \u00e1fram, n\u00e6mur en samt k\u00edminn. \u00cd b\u00f3kinni ver\u00f0ur sama meining hins vegar fl\u00f6t, endurtekningas\u00f6m og einhvern veginn tilfinningasnau\u00f0. Konungsb\u00f3k er t\u00e1kn um eitthva\u00f0 meira en a\u00f0eins sj\u00e1lfa sig sem pr\u00f3fessorinn er tilb\u00fainn a\u00f0 deyja fyrir, en samt tr\u00fair lesandinn ekki l\u00f6ngum einr\u00e6\u00f0um um gildi hennar. Slagsm\u00e1lin um bor\u00f0 \u00ed Gullfossi \u00ed lokin vir\u00f0ast frekar ni\u00f0ursta\u00f0a flumbrugangs og kj\u00e1naskapar en einhver mikilv\u00e6g bar\u00e1tta um sj\u00e1lfsmynd og menningu. \u00dea\u00f0 er eins og langar r\u00e6\u00f0ur um b\u00f3kina \u00fear sem h\u00fan er sk\u00fdr\u00f0 eins og fyrir barni s\u00e9u hugsa\u00f0ar fyrir erlenda lesendur \u00ed \u00fev\u00ed tilfelli a\u00f0 b\u00f3kin yr\u00f0i \u00fe\u00fddd, en mikilv\u00e6gi Konungsb\u00f3kar ver\u00f0ur \u00fer\u00e1tt fyrir \u00fea\u00f0 aldrei s\u00e6milega sk\u00fdrt. \u00dea\u00f0 er \u00feess vegna sem s\u00fa <em>Konungsb\u00f3k<\/em> sem Arnaldur \u00e6tla\u00f0i s\u00e9r a\u00f0 skrifa klikkar, ef m\u00e9r leyfist. S\u00fa <em>Konungsb\u00f3k<\/em> sem \u00e9g hef\u00f0i vilja\u00f0 lesa aftur \u00e1 m\u00f3ti, yfirgengilegt nazisploitation me\u00f0 kukli og hva\u00f0eina, \u00e9g skal reyna a\u00f0 syrgja hana \u00ed hlj\u00f3\u00f0i.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00c1ri\u00f0 2006 r\u00e6ttist gamall draumur \u00feegar \u00e9g h\u00f3f \u00edslenskun\u00e1m \u00ed h\u00e1sk\u00f3lanum. \u00dea\u00f0 var margt sem heilla\u00f0i vi\u00f0 \u00edslenskuna, en Konungsb\u00f3k eddukv\u00e6\u00f0a var \u00fea\u00f0 sem ger\u00f0i \u00fatslagi\u00f0 um \u00feessa \u00e1kv\u00f6r\u00f0un. Sama haust og \u00e9g byrja\u00f0i \u00ed \u00edslenskunni kom \u00fat sk\u00e1ldsaga eftir Arnald Indri\u00f0ason, Konungsb\u00f3k. \u00c9g var flj\u00f3tur a\u00f0 n\u00e6la m\u00e9r \u00ed eintak \u00e1 b\u00f3kasafninu og svo &hellip; <a href=\"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/2017\/07\/16\/konungsbok-eftir-arnald\/\" class=\"more-link\">Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa: <span class=\"screen-reader-text\">Konungsb\u00f3k eftir Arnald Indri\u00f0ason<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":3,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[32],"tags":[],"class_list":["post-4666","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-bkur"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/4666","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/users\/3"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=4666"}],"version-history":[{"count":3,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/4666\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":13969,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/4666\/revisions\/13969"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=4666"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=4666"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=4666"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}