{"id":4713,"date":"2017-09-09T18:02:48","date_gmt":"2017-09-09T18:02:48","guid":{"rendered":"http:\/\/gamla.truflun.net\/arngrimurv\/?p=4713"},"modified":"2019-01-01T13:37:19","modified_gmt":"2019-01-01T13:37:19","slug":"joi-og-baunagrasid","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/2017\/09\/09\/joi-og-baunagrasid\/","title":{"rendered":"J\u00f3i og baunagrasi\u00f0"},"content":{"rendered":"<p>B\u00f3kmenntum fylgir visst menningarlegt samhengi sem kalla m\u00e6tti t\u00ed\u00f0aranda. En t\u00ed\u00f0arandinn breytist og \u00fear me\u00f0 t\u00falkun f\u00f3lks \u00e1 b\u00f3kmenntunum. Ef taka \u00e6tti d\u00e6mi um r\u00f3tt\u00e6kar breytingar \u00e1 t\u00falkun b\u00f3kmennta \u00fat fr\u00e1 t\u00ed\u00f0aranda m\u00e6tti nefna T\u00edu litla negrastr\u00e1ka, sem eitt sinn \u00fe\u00f3tti saklaus b\u00f3k en \u00feykir n\u00fa me\u00f0 betri d\u00e6mum um menningarlega vi\u00f0urkennda kyn\u00fe\u00e1ttaford\u00f3ma fyrri t\u00ed\u00f0ar. \u00de\u00e1 m\u00e6tti nefna George \u00far Fimmb\u00f3kum Enid Blyton, sem hefur \u00e1 s\u00ed\u00f0ari \u00e1rum veri\u00f0 t\u00falku\u00f0 \u00e1 forsendum hinsegin fr\u00e6\u00f0a annars vegar sem lesb\u00eda og hins vegar sem transmanneskja (a\u00f0 v\u00edsu \u00fat fr\u00e1 vissum sta\u00f0almyndum sem eiga s\u00e9r raunverulega sto\u00f0 en telja m\u00e6tti varasamar a\u00f0 alh\u00e6fa \u00fat fr\u00e1).<\/p>\n<p>Af \u00fev\u00ed m\u00e9r finnst gaman a\u00f0 rugla \u00ed f\u00f3lki \u00fe\u00e1 vil \u00e9g \u00e1 n\u00e6stunni birta nokkrar greiningar \u00e1 barnab\u00f3kmenntum sem ver\u00f0a a\u00f0eins a\u00f0 hluta settar fram af alv\u00f6ru.<\/p>\n<p><small>J\u00d3I OG BAUNAGRASI\u00d0<\/small><br \/>\n\u00deetta er enskt \u00e6vint\u00fdri sem fyrst var f\u00e6rt \u00ed prent \u00e1 \u00e1tj\u00e1ndu \u00f6ld en, eins og gjarnt er um \u00e6vint\u00fdri, er tali\u00f0 t\u00f6luvert eldra. Freud\u00edsk\/lacan\u00edsk greining \u00e1 \u00feessari s\u00f6gu liggur svo l\u00f3\u00f0beint vi\u00f0 a\u00f0 \u00e9g er hissa \u00e1 a\u00f0 Sigmund hafi ekki sj\u00e1lfur skrifa\u00f0 heila b\u00f3k um efni\u00f0 (ef hann ger\u00f0i \u00fea\u00f0, vinsamlegast l\u00e1ti\u00f0 mig vita).<\/p>\n<p>Sagan fjallar um ungan dreng, J\u00f3a e\u00f0a Jakob, sem b\u00fdr einn me\u00f0 efnal\u00edtilli m\u00f3\u00f0ur sinni. Hann \u00e1 engan f\u00f6\u00f0ur, e\u00f0a \u00fea\u00f0 kemur s\u00f6gunni ekki vi\u00f0. Karlmennska hans veltur \u00fev\u00ed \u00e1 m\u00f3\u00f0urinni. Fyrst um sinn er hann a\u00f0eins drengur og er sendur til drengslegra erinda, a\u00f0 selja mj\u00f3lkurk\u00fa sakir uppskerubrests svo \u00feau geti framfleytt s\u00e9r eitt misseri enn. J\u00f3i rekst \u00e1 undarlegan eldri mann (aldrei gott) sem ginnir hann til a\u00f0 skipta \u00e1 k\u00fanni \u00ed sta\u00f0 \u00feriggja bauna sem hann kve\u00f0ur g\u00f6ldr\u00f3ttar, baunagrasi\u00f0 muni n\u00e1 alla lei\u00f0 til himnanna, hann skuli sko bara sj\u00e1! <\/p>\n<p>J\u00f3i gengst vi\u00f0 \u00feessu og m\u00e6tir keikur heim til m\u00f3\u00f0urinnar me\u00f0 baunirnar (sem \u00e9g k\u00fds, fyrir sakir groddaskaps, a\u00f0 l\u00edta \u00e1 sem t\u00e1knr\u00e6nar hre\u00f0jar). M\u00f3\u00f0irin bregst \u00f3kv\u00e6\u00f0a vi\u00f0, hafandi sent dreng \u00ed karlmannsverk, og fleygir afrakstri fer\u00f0ar hans \u00fat um gluggann, \u00fear sem baunirnar n\u00e1 a\u00f0 festa r\u00e6tur \u00ed foldinni. Hin fall\u00edska m\u00f3\u00f0ir getur ekki komi\u00f0 \u00ed veg fyrir l\u00edkamlegan \u00feroska sonarins, \u00fev\u00ed upp af hre\u00f0jum hans vex hinn gr\u00ed\u00f0arlegi re\u00f0ur sem er lei\u00f0 hins unga manns til \u00feroska.<\/p>\n<p>J\u00f3i kl\u00edfur eigin re\u00f0ur til hans \u00f3hj\u00e1kv\u00e6milegu ni\u00f0urst\u00f6\u00f0u, sem er risakona sem b\u00fdr \u00ed h\u00f6ll uppi \u00ed sk\u00fdjunum (\u00ed sumum ger\u00f0um s\u00f6gunnar er engin kona, en vi\u00f0 skulum ekki l\u00e1ta \u00fea\u00f0 skemma fyrir okkur). St\u00e6r\u00f0 konunnar er t\u00e1knr\u00e6n, \u00fev\u00ed fyrir ungan mann sem r\u00e9tt svo er a\u00f0 komast \u00ed bl\u00f3ma kynfer\u00f0isvitundar vir\u00f0ist engin hindrun svo st\u00f3r eins og s\u00fa a\u00f0 missa sveind\u00f3minn. En konan f\u00f3\u00f0rar hann samt sem \u00e1\u00f0ur \u00e1 \u00feeim mat sem h\u00fan haf\u00f0i \u00e1\u00f0ur \u00e6tla\u00f0 manni s\u00ednum. \u00dear me\u00f0 kemur J\u00f3i \u00e1 milli manns og konu, og \u00feegar risinn kemur heim \u00fe\u00e1 bregst risakonan \u00feannig vi\u00f0 a\u00f0 h\u00fan felur hann \u00ed t\u00e1kngervingu sj\u00e1lfs legsins: st\u00f3rum potti sem situr vi\u00f0 hli\u00f0 hl\u00f3\u00f0anna. J\u00f3i er ekki enn ma\u00f0ur, hann getur enn ekki tekist \u00e1 vi\u00f0 hinn t\u00e1knr\u00e6na f\u00f6\u00f0ur og or\u00f0i\u00f0 a\u00f0 manni sj\u00e1lfur. \u00dev\u00ed er legi\u00f0 hinn eini \u00f6ruggi sta\u00f0ur.<\/p>\n<p>Risinn \u00e1 h\u00e6nu sem verpir gulleggjum og h\u00f6rpu \u00far sk\u00edragulli sem getur sungi\u00f0 og spila\u00f0 eftir skipun. J\u00f3i hnuplar \u00feessum kostum, b\u00e6\u00f0i menningarkap\u00edtali og au\u00f0magni. Me\u00f0 \u00feetta tvennt getur hann or\u00f0i\u00f0 meiri ma\u00f0ur en hann n\u00fa er. En risinn ver\u00f0ur \u00feessa var og \u00e6\u00f0ir \u00e1 eftir J\u00f3a. Risinn \u00e1ttar sig \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feessi patti hefur noti\u00f0 konu hans \u00e1 sama h\u00e1tt og hann sj\u00e1lfur (\u00e1stin vir\u00f0ist b\u00faa \u00ed maganum \u00ed \u00feessari s\u00f6gu).<\/p>\n<p>J\u00f3i kemst ni\u00f0ur baunagrasi\u00f0 \u00e1 fl\u00f3tta, me\u00f0 au\u00f0magni\u00f0 \u00e1 bakinu, og hr\u00f3par til m\u00f3\u00f0urinnar a\u00f0 f\u00e6ra s\u00e9r karlmennskuna: \u00f6xi. M\u00f3\u00f0irin gerir \u00fea\u00f0 me\u00f0 semingi, en J\u00f3i \u00fer\u00edfur til axarinnar og heggur ni\u00f0ur baunagrasi\u00f0, sem n\u00fa er hin einasta festa risans \u00ed heiminum, og t\u00e1knr\u00e6nt vanar risann \u2013 f\u00f6\u00f0ur\u00edmyndina. N\u00fa er hinn t\u00e1knr\u00e6ni fa\u00f0ir dau\u00f0ur, J\u00f3i hefur \u00f6ll efnahagsleg t\u00f6gl og hagldir, og m\u00f3\u00f0irin hefur gefi\u00f0 eftir s\u00edna fall\u00edsku stj\u00f3rn. N\u00fa er J\u00f3i or\u00f0inn fullsigldur ma\u00f0ur.<\/p>\n<p>Kannski ekki s\u00fa \u00feroskasaga sem vi\u00f0 \u00e1ttum skili\u00f0, svo v\u00edsa\u00f0 s\u00e9 \u00ed Batman Begins, en s\u00fa \u00feroskasaga sem vi\u00f0 fengum.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>B\u00f3kmenntum fylgir visst menningarlegt samhengi sem kalla m\u00e6tti t\u00ed\u00f0aranda. En t\u00ed\u00f0arandinn breytist og \u00fear me\u00f0 t\u00falkun f\u00f3lks \u00e1 b\u00f3kmenntunum. Ef taka \u00e6tti d\u00e6mi um r\u00f3tt\u00e6kar breytingar \u00e1 t\u00falkun b\u00f3kmennta \u00fat fr\u00e1 t\u00ed\u00f0aranda m\u00e6tti nefna T\u00edu litla negrastr\u00e1ka, sem eitt sinn \u00fe\u00f3tti saklaus b\u00f3k en \u00feykir n\u00fa me\u00f0 betri d\u00e6mum um menningarlega vi\u00f0urkennda kyn\u00fe\u00e1ttaford\u00f3ma fyrri t\u00ed\u00f0ar. &hellip; <a href=\"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/2017\/09\/09\/joi-og-baunagrasid\/\" class=\"more-link\">Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa: <span class=\"screen-reader-text\">J\u00f3i og baunagrasi\u00f0<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":3,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[32,15,30],"tags":[],"class_list":["post-4713","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-bkur","category-menningoglistir","category-thjodsogur"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/4713","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/users\/3"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=4713"}],"version-history":[{"count":3,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/4713\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":13972,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/4713\/revisions\/13972"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=4713"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=4713"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=4713"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}