{"id":4721,"date":"2017-09-23T23:16:52","date_gmt":"2017-09-23T23:16:52","guid":{"rendered":"http:\/\/gamla.truflun.net\/arngrimurv\/?p=4721"},"modified":"2019-01-01T13:37:19","modified_gmt":"2019-01-01T13:37:19","slug":"nidurbrot-andans-tilvistarleg-athugun-a-graena-hattinum","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/2017\/09\/23\/nidurbrot-andans-tilvistarleg-athugun-a-graena-hattinum\/","title":{"rendered":"Ni\u00f0urbrot andans: tilvistarleg athugun \u00e1 Gr\u00e6na hattinum"},"content":{"rendered":"<p>Gr\u00e6ni hatturinn (e. The Little Green Hat) er stutt hryllingssaga eftir Alice Williamson sem kom \u00fat \u00ed b\u00f3kaflokknum Gay Colour Books \u00e1 sj\u00f6unda \u00e1ratugnum. Sagan er s\u00e9rst\u00f6k fyrir \u00fea\u00f0 a\u00f0 h\u00fan er \u00f3r\u00e6\u00f0 vinjetta af sit\u00faasj\u00f3n, nefnilega af hatti sem veit a\u00f0 hann er lifandi en er jafnframt fangi \u00ed hattab\u00fa\u00f0. Hans einasta von um lausn er a\u00f0 einhver kaupi hann, en enginn vill kaupa hann. \u00deannig l\u00ed\u00f0ur tilvist hattsins \u00e1fram \u00ed f\u00e6\u00f0ingu vonar og upplausn hennar aftur. Me\u00f0 \u00fev\u00ed er andi hattsins st\u00f6\u00f0ugt brotinn ni\u00f0ur.<\/p>\n<figure id=\"attachment_4723\" aria-describedby=\"caption-attachment-4723\" style=\"width: 230px\" class=\"wp-caption aligncenter\"><a href=\"http:\/\/gamla.truflun.net\/arngrimurv\/wp-content\/uploads\/2017\/09\/gre.jpg\" rel=\"attachment wp-att-4723\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" src=\"http:\/\/gamla.truflun.net\/arngrimurv\/wp-content\/uploads\/2017\/09\/gre-230x300.jpg\" alt=\"Frum\u00fatg\u00e1fa Gr\u00e6na hattsins\" width=\"230\" height=\"300\" class=\"size-medium wp-image-4723\" \/><\/a><figcaption id=\"caption-attachment-4723\" class=\"wp-caption-text\">Frum\u00fatg\u00e1fa Gr\u00e6na hattsins<\/figcaption><\/figure>\n<p>\u00dea\u00f0 sem fl\u00e6kir m\u00e1lin er a\u00f0 \u00fea\u00f0 er ekki a\u00f0eins hatturinn sem lifir og veit hann lifir, heldur vita \u00fea\u00f0 s\u00f6mulei\u00f0is hinir \u00fdmsu vegfarendur sem eiga lei\u00f0 hj\u00e1 hattab\u00fa\u00f0inni. Hatturinn \u00e1 \u00ed beinum samskiptum vi\u00f0 konur og karla, pilta og st\u00falkur, um vanda sinn: a\u00f0 hann er fastur \u00ed hattab\u00fa\u00f0inni \u00fear til einhver frelsar hann \u00far \u00e1nau\u00f0. \u00der\u00e1tt fyrir a\u00f0 hi\u00f0 vel st\u00e6\u00f0a f\u00f3lk s\u00e9 me\u00f0vita\u00f0 um a\u00f0st\u00e6\u00f0ur hattsins neita \u00feau a\u00f0 kaupa hann: \u201eNei, litli gr\u00e6ni hattur, \u00e9g vil ekki kaupa \u00feig,\u201c hreyta \u00feau framan \u00ed hann sn\u00fa\u00f0ug \u00e1 svip. Hatturinn er \u00feannig t\u00e1knr\u00e6nn fyrir st\u00f6\u00f0u \u00fer\u00e6la \u00e1 \u00e1rum \u00e1\u00f0ur, en ekki s\u00ed\u00f0ur fyrir st\u00f6\u00f0u \u00f3maga og \u00f6reiga andsp\u00e6nis borgarast\u00e9ttinni.<\/p>\n<p>Hatturinn er a\u00f0eins til sem einhvers konar \u00f3frj\u00e1lst \u00edtem, skraut fyrir hina efnameiri, sem skuld vi\u00f0 einhvern \u00f3nefndan yfirbo\u00f0ara sem \u00fearf a\u00f0 rei\u00f0a af hendi svo hann geti lifa\u00f0 frj\u00e1ls. Hvernig hatturinn komst \u00ed \u00feessar a\u00f0st\u00e6\u00f0ur er \u00f3sagt; hva\u00f0 hattab\u00fa\u00f0 merkir \u00ed \u00feessu samhengi er einnig \u00f3r\u00e6tt og s\u00e9rstaklega \u00f3hugnanlegt. Hugurinn hvarflar \u00f3sj\u00e1lfr\u00e1tt til fangab\u00fa\u00f0a, jafnvel \u00fatr\u00fdmingarb\u00fa\u00f0a, \u00fev\u00ed \u00feegar n\u00e1nar er a\u00f0 g\u00e6tt eru fleiri hattar \u00ed b\u00fa\u00f0inni, en \u00feeir eru ekki lifandi. \u00deeir eru anna\u00f0 hvort l\u00e1tnir e\u00f0a \u00fe\u00e1 a\u00f0 \u00feeir hafa aldrei lifa\u00f0.<\/p>\n<p>Fyrra tilfelli\u00f0 gerir ney\u00f0 gr\u00e6na hattsins \u00feeim mun meiri: hr\u00f3p hans \u00e1 hj\u00e1lp fara sem vindur um eyru vegfarenda \u00feegar hann einn er eftir \u00e1 l\u00edfi. Hinn m\u00f6guleikinn eykur enn \u00e1 \u00fe\u00e6r tilvistarlegu spurningar sem textinn vekur: ef gr\u00e6ni hatturinn er s\u00e1 eini sem hefur veri\u00f0 \u00e1 l\u00edfi, \u00fe\u00e1 er hann einstakur. \u00dev\u00ed s\u00ed\u00f0ur er skiljanlegt a\u00f0 f\u00f3lk l\u00e1ti sem ekkert s\u00e9 \u00feegar hatturinn \u00e1varpar \u00fea\u00f0. \u00dea\u00f0 gefur til kynna a\u00f0 s\u00ed\u00f0ari m\u00f6guleikinn s\u00e9 \u00f3l\u00edklegur; f\u00f3lk er vant \u00fev\u00ed a\u00f0 tala vi\u00f0 hatta \u00ed s\u00f6guheimi b\u00f3karinnar. Hattar eru hugsandi verur, geymdar \u00ed hattab\u00fa\u00f0um, og ganga kaupum og s\u00f6lum sem h\u00f6fu\u00f0skraut fyrir hinar r\u00e1\u00f0andi st\u00e9ttir.<\/p>\n<figure id=\"attachment_4722\" aria-describedby=\"caption-attachment-4722\" style=\"width: 300px\" class=\"wp-caption aligncenter\"><a href=\"http:\/\/gamla.truflun.net\/arngrimurv\/wp-content\/uploads\/2017\/09\/gr\u00e6.jpg\" rel=\"attachment wp-att-4722\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"size-medium wp-image-4722\" src=\"http:\/\/gamla.truflun.net\/arngrimurv\/wp-content\/uploads\/2017\/09\/gr\u00e6-300x225.jpg\" alt=\"Telpan kaupir gr\u00e6na hattinn \u2014 stjaksett l\u00edk annarra hatta hv\u00edla \u00e1 afgrei\u00f0slubor\u00f0inu \u00f6\u00f0rum h\u00f6ttum til a\u00f0v\u00f6runar\" width=\"300\" height=\"225\" \/><\/a><figcaption id=\"caption-attachment-4722\" class=\"wp-caption-text\">Telpan kaupir gr\u00e6na hattinn \u2014 stjaksett l\u00edk annarra hatta hv\u00edla \u00e1 afgrei\u00f0slubor\u00f0inu \u00f6\u00f0rum h\u00f6ttum til a\u00f0v\u00f6runar<\/figcaption><\/figure>\n<p>Loks bi\u00f0lar gr\u00e6ni hatturinn til st\u00falku sem \u00e1 lei\u00f0 hj\u00e1 b\u00fa\u00f0inni, hvort h\u00fan vilji vinsamlegast kaupa sig. \u00deessi st\u00falka vill \u00fea\u00f0 gjarnan og rei\u00f0ir af hendi skilding \u00far buddu sinni til \u00f3nefndrar konu sem vir\u00f0ist hafa \u00f6ll t\u00f6gl og hagldir \u00ed hattab\u00fa\u00f0inni. \u00dear blasir vi\u00f0 hin \u00f3hugnanlega sj\u00f3n, tveir stjaksettir hattar sem \u00e1\u00f0ur hafa veri\u00f0 lifandi en hefur n\u00fa veri\u00f0 refsa\u00f0 fyrir a\u00f0 hafa ekki geta\u00f0 sannf\u00e6rt vegfarendur um a\u00f0 skilja kap\u00edtal sitt eftir \u00ed versluninni. \u00deannig m\u00e6tti jafnframt lesa s\u00f6guna sem l\u00edkingu yfir hi\u00f0 kap\u00edtal\u00edska hagkerfi, \u00fear sem millist\u00e9ttin afhendir au\u00f0st\u00e9ttinni fj\u00e1rmuni s\u00edna \u00ed skiptum fyrir stolin g\u00e6\u00f0i sem h\u00fan hefur ekki \u00fe\u00f6rf fyrir, \u00e1 me\u00f0an \u00f6reigast\u00e9ttin (hattarnir) tre\u00f0st undir. Beinast liggur \u00fe\u00f3 vi\u00f0 a\u00f0 lesa s\u00f6guna sem l\u00edkingu annars vegar fyrir \u00fer\u00e6lahald og \u00feannig m\u00e6tti t\u00falka hattana sem svarta \u00fer\u00e6la, hins vegar fyrir \u00fatr\u00fdmingarb\u00fa\u00f0ir \u00fear sem hattarnir eru gy\u00f0ingar.<\/p>\n<p>Gr\u00e6ni hatturinn er \u00fev\u00ed mj\u00f6g p\u00f3lit\u00edskt hla\u00f0in saga og alls ekki vi\u00f0 h\u00e6fi barna. \u00c1 \u00cdslandi hefur h\u00fan veri\u00f0 prentu\u00f0 oft \u00ed ritr\u00f6\u00f0inni Skemmtilegu sm\u00e1barnab\u00e6kurnar, sem er eins miki\u00f0 rangnefni og hugsast g\u00e6ti: h\u00fan er hvorki skemmtileg n\u00e9 er s\u00e9ns a\u00f0 sm\u00e1b\u00f6rn f\u00e1i nokkru sinni skili\u00f0 hana. \u00dea\u00f0 v\u00e6ri enda ekki \u00e6skilegt.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Gr\u00e6ni hatturinn (e. The Little Green Hat) er stutt hryllingssaga eftir Alice Williamson sem kom \u00fat \u00ed b\u00f3kaflokknum Gay Colour Books \u00e1 sj\u00f6unda \u00e1ratugnum. Sagan er s\u00e9rst\u00f6k fyrir \u00fea\u00f0 a\u00f0 h\u00fan er \u00f3r\u00e6\u00f0 vinjetta af sit\u00faasj\u00f3n, nefnilega af hatti sem veit a\u00f0 hann er lifandi en er jafnframt fangi \u00ed hattab\u00fa\u00f0. Hans einasta von um &hellip; <a href=\"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/2017\/09\/23\/nidurbrot-andans-tilvistarleg-athugun-a-graena-hattinum\/\" class=\"more-link\">Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa: <span class=\"screen-reader-text\">Ni\u00f0urbrot andans: tilvistarleg athugun \u00e1 Gr\u00e6na hattinum<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":3,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[32,15],"tags":[],"class_list":["post-4721","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-bkur","category-menningoglistir"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/4721","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/users\/3"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=4721"}],"version-history":[{"count":3,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/4721\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":13973,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/4721\/revisions\/13973"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=4721"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=4721"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=4721"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}