{"id":4734,"date":"2017-10-05T18:10:26","date_gmt":"2017-10-05T18:10:26","guid":{"rendered":"http:\/\/gamla.truflun.net\/arngrimurv\/?p=4734"},"modified":"2019-01-01T13:37:19","modified_gmt":"2019-01-01T13:37:19","slug":"heimspeki-eymdarinnar-tilvistarkreppa-og-jadarsetning-i-blau-konnunni","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/2017\/10\/05\/heimspeki-eymdarinnar-tilvistarkreppa-og-jadarsetning-i-blau-konnunni\/","title":{"rendered":"Heimspeki eymdarinnar: tilvistarkreppa og ja\u00f0arsetning \u00ed Bl\u00e1u k\u00f6nnunni"},"content":{"rendered":"<p>S\u00ed\u00f0ast t\u00f3k \u00e9g fyrir <a href=\"http:\/\/gamla.truflun.net\/arngrimurv\/2017\/09\/nidurbrot-andans-tilvistarleg-athugun-a-graena-hattinum\/\" rel=\"noopener\" target=\"_blank\">Gr\u00e6na hattinn<\/a>, sem \u00ed raun er sj\u00e1lfst\u00e6tt framhald \u00e1 fyrri b\u00f3k Alice Williamson um Bl\u00e1u k\u00f6nnuna. Eins skelfileg og Gr\u00e6ni hatturinnn er, \u00fe\u00e1 er lj\u00f3st a\u00f0 Williamson hefur \u00feurft a\u00f0 draga af s\u00e9r \u00fear enda hefur fyrri b\u00f3k hennar \u00fe\u00f3tt einum of \u00f3hugnanleg. \u00cd lok Gr\u00e6na hattsins hefur lesandanum veri\u00f0 fengin \u00f3lj\u00f3s von, en vonleysi einkennir Bl\u00e1u k\u00f6nnuna.<\/p>\n<p>\u00cd upphafi s\u00f6gu er lesandi \u00e1varpa\u00f0ur, \u201eH\u00e9r sj\u00e1i\u00f0 \u00fei\u00f0 litlu, bl\u00e1u k\u00f6nnuna,\u201c svo veggurinn milli s\u00f6guheims og lesanda er rofinn og lesandi ger\u00f0ur \u00fe\u00e1tttakandi \u00ed framvindunni, hann er beinl\u00ednis ger\u00f0ur \u00e1byrgur \u00fev\u00ed hann situr undir atbur\u00f0ar\u00e1sinni og a\u00f0hefst ekkert: \u201eH\u00fan stendur uppi \u00e1 hillu. Henni leiddist og langa\u00f0i ni\u00f0ur.\u201c H\u00e9r er t\u00edma verksins s\u00f6mulei\u00f0is breytt; fyrst er lesanda talin tr\u00fa um a\u00f0 atbur\u00f0ir s\u00f6gunnar eigi s\u00e9r sta\u00f0 frammi fyrir augum hans, en svo er hann sviptur \u00feeirri falsvon \u00feegar lj\u00f3stra\u00f0 er upp um a\u00f0 atbur\u00f0ir s\u00f6gunnar hafa \u00feegar gerst. Raunar er einkennandi fyrir verki\u00f0 hvernig umbroti \u00feess er markvisst beitt til a\u00f0 \u00fdta undir falska von lesandans um \u00farlausn \u00e1 vanda k\u00f6nnunnar en brj\u00f3ta hana jafnhar\u00f0an ni\u00f0ur aftur, \u00e1 me\u00f0an crescendo v\u00e6ntinganna \u00fdfir upp spennu textans uns allt hrynur a\u00f0 lokum. <\/p>\n<figure id=\"attachment_4745\" aria-describedby=\"caption-attachment-4745\" style=\"width: 300px\" class=\"wp-caption aligncenter\"><a href=\"http:\/\/gamla.truflun.net\/arngrimurv\/wp-content\/uploads\/2017\/10\/22290537_10155839875986584_816323783_n.jpg\" rel=\"attachment wp-att-4745\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" src=\"http:\/\/gamla.truflun.net\/arngrimurv\/wp-content\/uploads\/2017\/10\/22290537_10155839875986584_816323783_n-300x300.jpg\" alt=\"Sj\u00e1i\u00f0 bara! Sj\u00e1i\u00f0 \u00feessa k\u00f6nnu hva\u00f0 h\u00fan er lei\u00f0! H\u00fan hef\u00f0i betur bara s\u00e6tt sig vi\u00f0 tilveruna!\" width=\"300\" height=\"300\" class=\"size-medium wp-image-4745\" \/><\/a><figcaption id=\"caption-attachment-4745\" class=\"wp-caption-text\">Sj\u00e1i\u00f0 bara! Sj\u00e1i\u00f0 \u00feessa k\u00f6nnu hva\u00f0 h\u00fan er lei\u00f0! H\u00fan hef\u00f0i betur bara s\u00e6tt sig vi\u00f0 tilveruna!<\/figcaption><\/figure>\n<p>\u00deannig er lesandi t\u00e6ldur \u00e1fram til \u00fe\u00e1ttt\u00f6ku og fyrr en varir hefur hann gerst me\u00f0sekur \u00ed hatursgl\u00e6p. \u00dea\u00f0 er erfitt a\u00f0 segjast ekki hafa teki\u00f0 \u00fe\u00e1tt \u00ed raun heldur a\u00f0eins unni\u00f0 \u00fearna \u00feegar \u00f6skunni \u00far ofnunum rignir yfir \u00feig, svo \u00feegar kannan liggur brotin a\u00f0 leikslokum er ansi billegt a\u00f0 segjast ekki hafa vita\u00f0 \u00ed hva\u00f0 stefndi. Allt \u00ed b\u00f3kinni stefnir a\u00f0 \u00feessu lokamarki, b\u00e6\u00f0i fyrir atbeina k\u00f6nnunnar og annarra. Heimspeki eymdarinnar \u00ed verkinu er \u00feessi: \u00de\u00e9r l\u00edkar ef til vill ekki sta\u00f0a \u00fe\u00edn \u00ed l\u00edfinu, en h\u00fan getur a\u00f0eins versna\u00f0 \u00fev\u00ed meir sem \u00fe\u00fa reynir a\u00f0 b\u00e6ta hana.<\/p>\n<p>A\u00f0rar pers\u00f3nur s\u00f6gunnar eru ekki kynntar, \u00fe\u00e6r bara eru og \u00fe\u00e6r eru sj\u00e1lfsag\u00f0ar, og \u00fe\u00e6r birtast hver \u00e1 f\u00e6tur annarri \u00e1 einhverjum \u00f3lj\u00f3sum sta\u00f0 \u00fear sem er hilla og bl\u00e1 kanna. Gerist sagan \u00ed verslun? Vi\u00f0 vitum \u00fea\u00f0 ekki. \u00dea\u00f0 eina sem vi\u00f0 vitum er a\u00f0 hillan er notu\u00f0 sem mise-en-sc\u00e8ne fyrir heiminn; hva\u00f0 liggur handan hillunnar er ekkert nema \u00f3skilgreind von, innant\u00f3m hugmynd um ytri ver\u00f6ld.<\/p>\n<p>Von byggist upp: <\/p>\n<blockquote><p>Litla bl\u00e1a kannan sag\u00f0i vi\u00f0 litla, gamla manninn: \u201e\u00c9g er l\u00edtil, bl\u00e1 kanna og m\u00e9r lei\u00f0ist svo miki\u00f0 h\u00e9rna uppi \u00e1 hillunni. Viltu vera svo g\u00f3\u00f0ur a\u00f0 taka mig ni\u00f0ur, \u00fev\u00ed annars hoppa \u00e9g sj\u00e1lf ni\u00f0ur \u00e1 g\u00f3lf?\u201c<\/p><\/blockquote>\n<p>\u00dea\u00f0 er svo margt sem gerist h\u00e9r \u00ed einni sviphendingu og kemur lesandanum a\u00f0 \u00f3v\u00f6rum: kannan getur tala\u00f0! Fr\u00e1 fyrstu s\u00ed\u00f0u vissum vi\u00f0 a\u00f0 h\u00fan v\u00e6ri tilfinningavera sem byggi yfir hugsun. \u00deetta er kanna me\u00f0 andlit, en a\u00f0 v\u00edsu \u00fearf \u00fea\u00f0 ekki a\u00f0 \u00fe\u00fd\u00f0a neitt; amma m\u00edn \u00e1 bl\u00f3mavasa me\u00f0 auga en \u00fe\u00f3 vitum vi\u00f0 ekki til \u00feess a\u00f0 vasinn geti s\u00e9\u00f0. En n\u00fa tekur kannan af allan vafa og talar vi\u00f0 \u201elitla, gamla manninn\u201c eins og vi\u00f0 eigum a\u00f0 vita hver \u00fea\u00f0 er. Kannan finnur sig kn\u00fana til a\u00f0 skilgreina sj\u00e1lfa sig innan tilveru s\u00f6gunnar: h\u00fan er l\u00edtil, bl\u00e1 kanna. \u00deetta \u00e6tti litli, gamli ma\u00f0urinn a\u00f0 geta sagt s\u00e9r sj\u00e1lfur, en \u00edtreka\u00f0ar tilraunir k\u00f6nnunnar til a\u00f0 skilgreina st\u00f6\u00f0u s\u00edna \u00ed heiminum benda einmitt til \u00feess a\u00f0 \u00fe\u00e6r s\u00e9u mikilv\u00e6gar: sta\u00f0a hennar er ekki vi\u00f0urkennd, tilvist hennar er hafna\u00f0. Ennfremur birtist aflei\u00f0ing \u00feessarar ja\u00f0arsetningar k\u00f6nnunnar \u00ed h\u00f3tun hennar um a\u00f0 fremja sj\u00e1lfsv\u00edg \u00e1 sta\u00f0num ef litli, gamli ma\u00f0urinn hj\u00e1lpar henni ekki ni\u00f0ur \u00feanga\u00f0 sem henni vir\u00f0ist tilveran gr\u00e6nni. \u00d3hugna\u00f0urinn r\u00edfur \u00ed lesandann fr\u00e1 fyrstu sit\u00faasj\u00f3n. Upplausn er \u00ed v\u00e6ndum, \u00f3gnin er komin \u00ed spili\u00f0.<\/p>\n<figure id=\"attachment_4746\" aria-describedby=\"caption-attachment-4746\" style=\"width: 300px\" class=\"wp-caption aligncenter\"><a href=\"http:\/\/gamla.truflun.net\/arngrimurv\/wp-content\/uploads\/2017\/10\/22278541_10155839875931584_1131491773_n.jpg\" rel=\"attachment wp-att-4746\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" src=\"http:\/\/gamla.truflun.net\/arngrimurv\/wp-content\/uploads\/2017\/10\/22278541_10155839875931584_1131491773_n-300x300.jpg\" alt=\"Litli, gamli ma\u00f0urinn veitir k\u00f6nnunni falsvon.\" width=\"300\" height=\"300\" class=\"size-medium wp-image-4746\" \/><\/a><figcaption id=\"caption-attachment-4746\" class=\"wp-caption-text\">Litli, gamli ma\u00f0urinn veitir k\u00f6nnunni falsvon.<\/figcaption><\/figure>\n<blockquote><p>\u201eNei,\u201c sag\u00f0i litli, gamli ma\u00f0urinn.<br \/>\n\u201e\u00c9g vil ekki hj\u00e1lpa \u00fe\u00e9r ni\u00f0ur, litla bl\u00e1a kanna.\u201c<\/p><\/blockquote>\n<p>NEI? Hva\u00f0 er a\u00f0? Kannan h\u00f3ta\u00f0i r\u00e9tt \u00ed \u00feessu a\u00f0 svipta sig l\u00edfi og litli, gamli ma\u00f0urinn l\u00e6tur eins og \u00fea\u00f0 a\u00f0 r\u00e9tta fram litla fingur s\u00e9 til merkis um me\u00f0virkni. Hann <strong>vill ekki<\/strong> hj\u00e1lpa henni. Hann hafnar k\u00f6nnunni um \u00fe\u00e1ttt\u00f6ku \u00ed heiminum. Heimur k\u00f6nnunnar er hilla, og ver\u00f0ur hilla, og fyrr m\u00e1 kannan deyja \u00e1 g\u00f3lfinu en a\u00f0 hann hj\u00e1lpi henni. Hann reynir a\u00f0 firra sj\u00e1lfan sig \u00e1byrg\u00f0, en er \u00ed raun \u00e1byrgur me\u00f0 a\u00f0ger\u00f0aleysi s\u00ednu, r\u00e9tt eins og lesandinn: eins og vi\u00f0 \u00f6ll sem skellum skollaeyrum vi\u00f0 \u00feegar ja\u00f0arsetning f\u00f3lks \u00e1 s\u00e9r sta\u00f0 frammi fyrir augum okkar. \u00deessi kanna <strong>tala\u00f0i vi\u00f0 hann<\/strong>, en hann vi\u00f0urkennir ekki a\u00f0 h\u00fan s\u00e9 f\u00f3lk, hann s\u00e9r a\u00f0eins <strong>k\u00f6nnu<\/strong>.<\/p>\n<p>Og svona gengur sagan me\u00f0 risi og hnigi \u00e1 v\u00edxl, \u00fear sem ein opna birtir von um \u00farlausn en s\u00fa n\u00e6sta k\u00e6fir ni\u00f0ur vonina: Litla, gamla konan er be\u00f0in um a\u00f0sto\u00f0, en h\u00fan neitar a\u00f0 hj\u00e1lpa k\u00f6nnunni. Litli drengurinn er be\u00f0inn um a\u00f0sto\u00f0, en hann neitar a\u00f0 hj\u00e1lpa k\u00f6nnunni. Litla st\u00falkan er be\u00f0in um a\u00f0sto\u00f0, og allir sem hafa \u00e1\u00f0ur lesi\u00f0 Gr\u00e6na hattinn fyllast n\u00fa von \u00fev\u00ed \u00fea\u00f0 var litla st\u00falkan sem keypti hann, en nei: <strong>litla st\u00falkan neitar a\u00f0 hj\u00e1lpa bl\u00e1u k\u00f6nnunni<\/strong>.<\/p>\n<p>N\u00e6st birtist litli svarti k\u00f6tturinn, sem er einnig pers\u00f3na \u00ed sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0u verki eftir Alice Williamson, Sv\u00f6rtu kisu.<\/p>\n<blockquote><p>\u201eMj\u00e1, mj\u00e1,\u201c sag\u00f0i litli svarti k\u00f6tturinn.<br \/>\n\u201e\u00c9g skal hj\u00e1lpa \u00fe\u00e9r ni\u00f0ur, litla, bl\u00e1a kanna.\u201c<\/p><\/blockquote>\n<p>Kannan er \u00f3menntu\u00f0 og hefur ekki \u00e1tta\u00f0 sig \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 kettir hafa ekki \u00feumla, svo \u00fea\u00f0 er \u00f3gj\u00f6rningur fyrir sv\u00f6rtu kisu a\u00f0 hj\u00e1lpa k\u00f6nnunni ni\u00f0ur. Hvort er h\u00fan samt \u00f6ll af vilja ger\u00f0, e\u00f0a hreinlega full af illsku og hatri \u00ed gar\u00f0 myndhverf\u00f0ra ja\u00f0arh\u00f3pa? \u00dea\u00f0 er \u00f3v\u00edst. \u00de\u00f3 m\u00e1 draga v\u00edsbendingar af hr\u00e6\u00f0ilegum svip kattarins, rau\u00f0gl\u00f3andi glyrnum hans, \u00feegar hann hrindir k\u00f6nnunni fram af hillunni.<\/p>\n<figure id=\"attachment_4737\" aria-describedby=\"caption-attachment-4737\" style=\"width: 300px\" class=\"wp-caption aligncenter\"><a href=\"http:\/\/gamla.truflun.net\/arngrimurv\/wp-content\/uploads\/2017\/10\/22323148_10155839852206584_1489724002_n.jpg\" rel=\"attachment wp-att-4737\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" src=\"http:\/\/gamla.truflun.net\/arngrimurv\/wp-content\/uploads\/2017\/10\/22323148_10155839852206584_1489724002_n-300x300.jpg\" alt=\"Svarta kisa myr\u00f0ir bl\u00e1u k\u00f6nnuna\" width=\"300\" height=\"300\" class=\"size-medium wp-image-4737\" \/><\/a><figcaption id=\"caption-attachment-4737\" class=\"wp-caption-text\">Svarta kisa myr\u00f0ir bl\u00e1u k\u00f6nnuna<\/figcaption><\/figure>\n<blockquote><p>Svo litla, bl\u00e1a kannan f\u00e9ll ni\u00f0ur \u00e1 g\u00f3lf.<br \/>\nH\u00fan brotna\u00f0i \u00ed \u00fe\u00fasund mola.<\/p><\/blockquote>\n<p>Og g\u00f3lfi\u00f0 ni\u00f0ri er alveg eins og hillan: gl\u00f3andi rautt, rautt eins og bl\u00f3\u00f0 k\u00f6nnunnar; \u00ed senn t\u00e1kn um a\u00f0 dau\u00f0inn er ekki a\u00f0eins \u00f3hj\u00e1kv\u00e6milegur n\u00fa, heldur a\u00f0 hann hafi alltaf veri\u00f0 \u00ed n\u00e1nd, jafnvel uppi \u00e1 hillunni; t\u00e1knr\u00e6nt s\u00f6mulei\u00f0is fyrir \u00fea\u00f0 a\u00f0 tilveran var eftir allt saman engu sk\u00e1rri \u00feegar af hillunni var komi\u00f0. H\u00fan var eins. Allt er eins. Eins og \u00fea\u00f0 \u00e1 a\u00f0 vera. Kannan hef\u00f0i betur s\u00e6tt sig vi\u00f0 \u00fea\u00f0.<\/p>\n<figure id=\"attachment_4739\" aria-describedby=\"caption-attachment-4739\" style=\"width: 300px\" class=\"wp-caption aligncenter\"><a href=\"http:\/\/gamla.truflun.net\/arngrimurv\/wp-content\/uploads\/2017\/10\/blue-jug-2.jpg\" rel=\"attachment wp-att-4739\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" src=\"http:\/\/gamla.truflun.net\/arngrimurv\/wp-content\/uploads\/2017\/10\/blue-jug-2-300x198.jpg\" alt=\"\u201eOg \u00fear me\u00f0 endar sagan af litlu, bl\u00e1u k\u00f6nnunni.\u201c\" width=\"300\" height=\"198\" class=\"size-medium wp-image-4739\" \/><\/a><figcaption id=\"caption-attachment-4739\" class=\"wp-caption-text\">\u201eOg \u00fear me\u00f0 endar sagan af litlu, bl\u00e1u k\u00f6nnunni.\u201c<\/figcaption><\/figure>\n<p>E\u00f0a svo segir sagan, en b\u00f3kin heldur samt \u00e1fram \u00e1 \u00ferem \u00f6\u00f0rum t\u00f6lusettum bla\u00f0s\u00ed\u00f0um. \u00c1 s\u00ed\u00f0u 29 er bl\u00e1a kannan brotin, en \u00e1 n\u00e6stu s\u00ed\u00f0u er h\u00fan heil!<\/p>\n<p><a href=\"http:\/\/gamla.truflun.net\/arngrimurv\/wp-content\/uploads\/2017\/10\/22264663_10155839864441584_308765065_n.jpg\" rel=\"attachment wp-att-4742\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" src=\"http:\/\/gamla.truflun.net\/arngrimurv\/wp-content\/uploads\/2017\/10\/22264663_10155839864441584_308765065_n-225x300.jpg\" alt=\"22264663_10155839864441584_308765065_n\" width=\"225\" height=\"300\" class=\"aligncenter size-medium wp-image-4742\" \/><\/a><\/p>\n<p>H\u00e9r er freistandi a\u00f0 t\u00falka k\u00f6nnuna sem eins konar kristsmynd: fyrst er bo\u00f0skap hennar teki\u00f0 f\u00e1lega me\u00f0al \u00feeirra sem valdi\u00f0 hafa til a\u00f0 breyta heiminum (sem \u00ed \u00feessu tilviki er hilla), s\u00ed\u00f0an er kannan svikin og tekin af l\u00edfi, loks r\u00eds kannan aftur upp fr\u00e1 dau\u00f0um. \u00c1 n\u00e6stu s\u00ed\u00f0u hefur kannan veri\u00f0 hrifin upp til \u00e6\u00f0ri tilveru:<\/p>\n<p><a href=\"http:\/\/gamla.truflun.net\/arngrimurv\/wp-content\/uploads\/2017\/10\/22264606_10155839864796584_1092579487_n.jpg\" rel=\"attachment wp-att-4741\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" src=\"http:\/\/gamla.truflun.net\/arngrimurv\/wp-content\/uploads\/2017\/10\/22264606_10155839864796584_1092579487_n-225x300.jpg\" alt=\"22264606_10155839864796584_1092579487_n\" width=\"225\" height=\"300\" class=\"aligncenter size-medium wp-image-4741\" \/><\/a><\/p>\n<p>Og vi\u00f0 erum skilin eftir ein \u00ed tilverunni:<\/p>\n<p><a href=\"http:\/\/gamla.truflun.net\/arngrimurv\/wp-content\/uploads\/2017\/10\/22291930_10155839864991584_934266636_n.jpg\" rel=\"attachment wp-att-4740\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" src=\"http:\/\/gamla.truflun.net\/arngrimurv\/wp-content\/uploads\/2017\/10\/22291930_10155839864991584_934266636_n-225x300.jpg\" alt=\"22291930_10155839864991584_934266636_n\" width=\"225\" height=\"300\" class=\"aligncenter size-medium wp-image-4740\" \/><\/a><\/p>\n<p>Hins vegar er \u00f6llu sennilegri t\u00falkun a\u00f0 \u00feetta s\u00e9u hinstu hugrenningar hinnar deyjandi bl\u00e1u k\u00f6nnu, \u00fear sem h\u00fan \u00f3skar s\u00e9r burt \u00e1 einhvern annan og betri sta\u00f0. Sennilega hefur Terry Gilliam haft \u00feessi endalok Bl\u00e1u k\u00f6nnunnar \u00ed huga \u00feegar hann a\u00f0laga\u00f0i s\u00f6guna \u00ed kvikmyndina Brazil. T\u00f3mhyggja s\u00f6gunnar bendir til \u00feess a\u00f0 h\u00e9r s\u00e9 \u00e1 fer\u00f0inni enn ein falsvonin um einhvers konar upprisu, en t\u00f3mu s\u00ed\u00f0urnar \u00ed lokin s\u00fdna lesandanum a\u00f0 \u00ed heimi s\u00f6gunnar er ekki sm\u00e6sta tangarhald hafandi \u00e1 voninni: speranza del mondo s\u00f6gunnar er a\u00f0 allir haldi sig vi\u00f0 \u00fe\u00e1 hillu sem \u00feeim hefur veri\u00f0 \u00fathluta\u00f0, ellegar fari illa fyrir \u00feeim. Dantel\u00f6gm\u00e1li\u00f0 og Jantel\u00f6gm\u00e1li\u00f0 sameinast \u00ed eitt: l\u00e1ti\u00f0 af allri von \u00feegar \u00ed sta\u00f0, \u00fev\u00ed \u00fei\u00f0 eru\u00f0 ekki neitt. Hv\u00edtu s\u00ed\u00f0urnar eru t\u00f3mi\u00f0 og dau\u00f0inn. Litla, bl\u00e1a kannan er ei meir og ver\u00f0ur aldrei aftur. Vi\u00f0 dr\u00e1pum hana.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>S\u00ed\u00f0ast t\u00f3k \u00e9g fyrir Gr\u00e6na hattinn, sem \u00ed raun er sj\u00e1lfst\u00e6tt framhald \u00e1 fyrri b\u00f3k Alice Williamson um Bl\u00e1u k\u00f6nnuna. Eins skelfileg og Gr\u00e6ni hatturinnn er, \u00fe\u00e1 er lj\u00f3st a\u00f0 Williamson hefur \u00feurft a\u00f0 draga af s\u00e9r \u00fear enda hefur fyrri b\u00f3k hennar \u00fe\u00f3tt einum of \u00f3hugnanleg. \u00cd lok Gr\u00e6na hattsins hefur lesandanum veri\u00f0 fengin &hellip; <a href=\"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/2017\/10\/05\/heimspeki-eymdarinnar-tilvistarkreppa-og-jadarsetning-i-blau-konnunni\/\" class=\"more-link\">Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa: <span class=\"screen-reader-text\">Heimspeki eymdarinnar: tilvistarkreppa og ja\u00f0arsetning \u00ed Bl\u00e1u k\u00f6nnunni<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":3,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[26],"tags":[],"class_list":["post-4734","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-uncategorized"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/4734","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/users\/3"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=4734"}],"version-history":[{"count":3,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/4734\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":13974,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/4734\/revisions\/13974"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=4734"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=4734"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/arngrimurv\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=4734"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}