Íslandsferðin tók enda allt of fljótt, þó alltaf sé gott að koma heim í sitt rúm og sæng. Á mánudegi ókum við austur fyrir fjall og allt að Skógafossi, það var mikil aska í loftinu og sérkennilegt að upplifa þetta ástand í augnablik. Merkilegt að moka ösku úr grassverðinum í krukku til að gefa vinum …
Category Archives: Ferðalög
Fleiri Íslandsmyndir
Áfram Ísland
Áfram heldur Íslandsdvölin, á þriðjudegi brá frúin ásamt börnum undir sig betri fætinum og ók austur fyrir fjall í heimsókn til nöfnu og barna hennar. Ákaflega skemmtilegir endurfundir og ný frænka á þeim bæ. Þegar við komum aftur til Reykjavíkur var ein vinkona þeirrar sveimhuga sótt og skroppið í Húsdýragarðinn. Á miðvikudegi fóru systur í …
Íslandsmyndir, hestar og fleira
Gleði og sorgir á Íslandi
Á mánudaginn kom fyrrverandi nágranninn í heimsókn eftir skóla og leikskóla og miklar vangaveltur voru hvort byrja ætti að pakka niður fyrir Íslandsferðina eða ekki. Á þriðjudegi var pakkað – frúin skaust til Holzgerlingen og sótti sér stígvél sem hún hafði pantað frá Amríkunni sem verðlaun fyrir kláruðu áskorunina, þau eru flott! Á miðvikudegi rann …
Zwiefalten og fleiri myndir
Rigningarvika
Ekki stóð vorblíðan lengi, þessa vikuna hefur rignt á hverjum degi og verið frekar svalt – eiginlega kalt suma morgnana, en það er víst að breytast. 🙂 Á mánudaginn gekk allt sinn vanagang, nema hvað óvanalega lítið heimanám var hjá þeirri sveimhuga. Á þriðjudegi skrapp öll fjölskyldan saman í matvörubúð, nokkuð sem gerist varla – …
Parísarmyndir
París – varúð, löng færsla.
Á annan í páskum var haldið áfram að japla á súkkulaði og pakka niður fyrir Parísarferðina miklu. Á þriðjudagsmorgninum tókum við strætó niður að lestarstöð og lest þaðan til Stuttgart. Þar skiptum við um lest og fórum í hraðlest sem átti að skila okkur til Parísar á þremur og hálfum tíma. Það tókst ekki alveg, …