{"id":605,"date":"2012-06-30T12:05:36","date_gmt":"2012-06-30T12:05:36","guid":{"rendered":"http:\/\/egillo.wordpress.com\/?p=605"},"modified":"2012-06-30T12:05:36","modified_gmt":"2012-06-30T12:05:36","slug":"gerir-grein-fyrir-atkvaedi-sinu","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/truflun.net\/egill\/2012\/06\/30\/gerir-grein-fyrir-atkvaedi-sinu\/","title":{"rendered":"Gerir grein fyrir atkv\u00e6\u00f0i s\u00ednu"},"content":{"rendered":"<p>\u00c9g f\u00f3r og kaus \u00e1\u00f0an. Eins og m\u00e9r var kennt a\u00f0 ma\u00f0ur geri \u00ed l\u00fd\u00f0r\u00e6\u00f0isr\u00edki \u00feegar kosningar eru haldnar. Einhverjir g\u00e6tu reyndar kver\u00falantast me\u00f0 \u00fea\u00f0 or\u00f0alag a\u00f0 \u00e9g hafi \u201ekosi\u00f0\u201c \u00fear sem a\u00f0 kj\u00f6rse\u00f0illinn minn breyttist ekkert fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00e9g f\u00e9kk hann \u00ed hendurnar og \u00fear til \u00e9g setti hann \u00ed kj\u00f6rkassann. \u00c9g skila\u00f0i au\u00f0u.<\/p>\n<p>\u00c9g gat ekki hugsa\u00f0 m\u00e9r a\u00f0 kj\u00f3sa \u00d3laf Ragnar. \u00dea\u00f0 \u00e1 s\u00e9r a\u00f0allega tv\u00e6r \u00e1st\u00e6\u00f0ur. S\u00fa fyrri er s\u00fa a\u00f0 m\u00e9r finnst hann eiginlega fyrst og fremst vera t\u00e6kif\u00e6rissinna\u00f0ur framapotari. \u00c9g hef alltaf haft \u00fea\u00f0 \u00e1 tilfinningunni \u00feegar hann framkv\u00e6mir einhverja gj\u00f6rninga, eins og t.d. a\u00f0 neita a\u00f0 skrifa undir l\u00f6g, a\u00f0 \u00fea\u00f0 sem mest v\u00e6gi hafi \u00ed \u00e1kv\u00f6r\u00f0unum hans s\u00e9 hvernig hann hagnist \u00e1 \u00feeim sj\u00e1lfur.<\/p>\n<p>M\u00e9r er alveg sama hva\u00f0 hann er gamall. \u00c9g bara s\u00e9 ekki hvernig \u00fea\u00f0 kemur m\u00e1linu vi\u00f0. Og m\u00e9r er l\u00edka alveg sama hva\u00f0 hann hefur seti\u00f0 lengi. Hann m\u00e1 sitja eins lengi og hann getur sannf\u00e6rt n\u00f3gu marga kj\u00f3sendur til \u00feess a\u00f0 leyfa s\u00e9r \u00fea\u00f0. \u00a0\u00dea\u00f0 a\u00f0 hann hafi veri\u00f0 \u201een helsta klappst\u00fdra \u00fatr\u00e1sarinnar\u201c finnst m\u00e9r l\u00edka veik r\u00f6k gegn honum. Hann ger\u00f0i vo\u00f0a l\u00edti\u00f0 anna\u00f0 en a\u00f0 feta braut forvera sinna \u00ed \u00feeim m\u00e1lum.<\/p>\n<p>\u00c9g kaus heldur ekki \u00de\u00f3ru. M\u00e9r finnst h\u00fan mj\u00f6g framb\u00e6rileg kona og \u00e9g treysti henni alveg til g\u00f3\u00f0ra verka. H\u00fan n\u00e1\u00f0i hins vegar engan vegin a\u00f0 sannf\u00e6ra mig um a\u00f0 grei\u00f0a s\u00e9r atkv\u00e6\u00f0i. Ef h\u00fan hef\u00f0i gefi\u00f0 upp sk\u00fdrari afst\u00f6\u00f0u \u00ed flestum m\u00e1lum en h\u00fan ger\u00f0i \u00fe\u00e1 hef\u00f0i \u00e9g kannski freistast, mig grunar nefnilega a\u00f0 \u00e9g s\u00e9 samm\u00e1la henni \u00ed m\u00f6rgum m\u00e1lum. Og \u00fea\u00f0 hj\u00e1lpa\u00f0i ekki til \u00feegar h\u00fan sag\u00f0i a\u00f0 h\u00fan teldi ekki r\u00e9tt a\u00f0 a\u00f0skilja r\u00edki og kirkju vegna \u00feess a\u00f0 kirkjan skipti marga svo miklu m\u00e1li. A\u00f0skilna\u00f0urinn er eitt af m\u00ednum hjartans m\u00e1lum og \u00e9g vi\u00f0urkenni \u00fea\u00f0 f\u00faslega a\u00f0 \u00e9g l\u00e6t afst\u00f6\u00f0u f\u00f3lks til hans hafa \u00e1hrif \u00e1 \u00fea\u00f0 hvort a\u00f0 \u00e9g sty\u00f0 \u00fea\u00f0 til emb\u00e6tta. Kosningaherfer\u00f0 \u00de\u00f3ru fannst m\u00e9r einnig ekki n\u00f3gu g\u00f3\u00f0 en \u00fear er kannski ekki eing\u00f6ngu vi\u00f0 hana sj\u00e1lfa a\u00f0 sakast.<\/p>\n<p>Eins og me\u00f0 \u00d3laf Ragnar \u00fe\u00e1 finnst m\u00e9r aldur \u00de\u00f3ru ekkert atri\u00f0i. H\u00fan er til d\u00e6mis miklu eldri en \u00e9g (J\u00da V\u00cdST!). Fj\u00f6lskylda \u00de\u00f3ru fannst m\u00e9r frekar kostur en galli. \u00dea\u00f0 yr\u00f0i ekkert neikv\u00e6tt vi\u00f0 \u00fea\u00f0 a\u00f0 f\u00e1 unga fj\u00f6lskyldu \u00e1 Bessasta\u00f0i, \u00fevert \u00e1 m\u00f3ti eiginlega. Svavar virkar l\u00edka \u00e1 mig sem ma\u00f0ur sem getur vel hugsa\u00f0 um b\u00f6rnin s\u00edn og stutt konuna s\u00edna \u00ed mikilv\u00e6gu emb\u00e6tti. \u00c9g held l\u00edka a\u00f0 e\u00f0li forsetaemb\u00e6ttisins geri \u00fea\u00f0 a\u00f0 verkum a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 ekkert erfi\u00f0ara me\u00f0 tilliti til fj\u00f6lskyldul\u00edfs en t.d. hj\u00e1 fj\u00f6lskyldum \u00fear sem foreldrar vinna reglulegan 8-9 t\u00edma vinnudag.<\/p>\n<p>\u00c9g veit vo\u00f0a l\u00edti\u00f0 um Hannes en m\u00e9r finnst ekki tr\u00faver\u00f0ugt a\u00f0 bj\u00f3\u00f0a sig fram til forseta eftir a\u00f0 hafa b\u00fai\u00f0 erlendis \u00ed fleiri \u00e1r. Herd\u00eds n\u00e1\u00f0i engan vegin a\u00f0 sannf\u00e6ra mig um a\u00f0 h\u00fan \u00e6tti heima \u00e1 Bessast\u00f6\u00f0um og Andrea hefur s\u00fdnt svo fur\u00f0ulegan skilning \u00e1 stj\u00f3rnarskr\u00e1nni a\u00f0 m\u00e9r dytti ekki \u00ed hug a\u00f0 kj\u00f3sa hana, eins \u00e1g\u00e6t og h\u00fan annars er.<\/p>\n<p>\u00c9g var svol\u00edti\u00f0 heitur fyrir Ara Trausta \u00e1 t\u00edmabili. M\u00e9r fannst hann koma s\u00ednum sko\u00f0unum vel \u00e1 framf\u00e6ri og gat teki\u00f0 undir margt af \u00fev\u00ed sem hann haf\u00f0i fram a\u00f0 f\u00e6ra.<\/p>\n<p>En \u00fea\u00f0 a\u00f0 engin af frambj\u00f3\u00f0endunum hafi heilla\u00f0 mig skipti \u00fe\u00f3 ekki mestu m\u00e1li. M\u00e9r finnst \u00feetta emb\u00e6tti nefnilega vera t\u00edmaskekkja og vil einfaldlega leggja \u00fea\u00f0 ni\u00f0ur. \u00c1 me\u00f0an \u00e9g er \u00feeirrar sko\u00f0unar \u00fe\u00e1 finnst m\u00e9r ekki r\u00e9tt a\u00f0 kj\u00f3sa einhvern einstakling til a\u00f0 gegna \u00fev\u00ed. \u00c9g veit ekki hvort a\u00f0 \u00fea\u00f0 megi kalla \u00feetta prinsippafst\u00f6\u00f0u e\u00f0a hvort a\u00f0 \u00feetta s\u00e9 bara minn e\u00f0lisl\u00e6gi kver\u00falantah\u00e1ttur. \u00c9g efast ekki um a\u00f0 \u00feeir sem \u00feekki mig hallist a\u00f0 \u00fev\u00ed s\u00ed\u00f0ara.<\/p>\n<p>En \u00e9g get ekki sleppt \u00fev\u00ed a\u00f0 skrifa a\u00f0eins um kosningabar\u00e1ttuna. Ef \u00fea\u00f0 sem hefur gengi\u00f0 \u00e1 seinustu vikur er \u00fea\u00f0 sem koma skal ef a\u00f0 pers\u00f3nukj\u00f6r ver\u00f0ur almennt teki\u00f0 upp \u00ed kosningum h\u00e9r \u00e1 landi \u00fe\u00e1 er \u00e9g h\u00e9r me\u00f0 or\u00f0in andst\u00e6\u00f0ingur \u00feess. \u00deegar st\u00e6rsti hluti umr\u00e6\u00f0unnar sn\u00fdst um a\u00f0 \u00fea\u00f0 eigi ekki a\u00f0 kj\u00f3sa \u00feennan frambj\u00f3\u00f0anda af \u00fev\u00ed a\u00f0 hann s\u00e9 n\u00fa svona e\u00f0a hinseginn og minnihlutinn um af hverju ma\u00f0ur eigi a\u00f0 kj\u00f3sa vi\u00f0komandi frambj\u00f3\u00f0anda \u00fe\u00e1 finnst m\u00e9r f\u00f3lk veri\u00f0 komi\u00f0 \u00e1 villig\u00f6tur.<\/p>\n<p>Au\u00f0vita\u00f0 voru \u00fea\u00f0 fyrst og fremst stu\u00f0ningsmenn frambj\u00f3\u00f0enda sem t\u00f6lu\u00f0u \u00e1 \u00feessum n\u00f3tum (me\u00f0 nokkrum undantekningum) og \u00fea\u00f0 ver\u00f0ur kannski seint h\u00e6gt a\u00f0 koma \u00ed veg fyrir a\u00f0 ofurkappsamir stu\u00f0ningsmenn fari fram me\u00f0 meiri lei\u00f0indum en gott m\u00e1 teljast en \u00feeir sem a\u00f0 st\u00fdra frambo\u00f0um geta \u00fe\u00f3 haft \u00e1hrif. \u00c9g t\u00f3k aldrei eftir \u00fev\u00ed a\u00f0 frambj\u00f3\u00f0endurnir sj\u00e1lfir e\u00f0a f\u00f3lk \u00ed kosningastj\u00f3rnum \u00feeirra reyndi a\u00f0 f\u00e1 f\u00f3lk til a\u00f0 halda aftur af s\u00e9r \u00ed blammeringum \u00e1 andst\u00e6\u00f0inga.\u00a0 \u00dea\u00f0 hef\u00f0i veri\u00f0 vel s\u00e9\u00f0.<\/p>\n<p>&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;<\/p>\n<p>En \u00e9g vakna\u00f0i semsagt snemma \u00ed morgun, kl\u00e6ddi mig \u00ed f\u00edn f\u00f6t og bursta\u00f0i \u00ed m\u00e9r tennurnar. \u00dea\u00f0 voru eftir \u00e1 a\u00f0 hyggja mist\u00f6k, \u00e9g hef\u00f0i \u00e1tt a\u00f0 byrja \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 tannbursta mig og koma \u00feannig \u00ed veg fyrir a\u00f0 \u00e9g \u00feyrfti a\u00f0 skipta um bol. En \u00feegar \u00fev\u00ed var loki\u00f0 skunda\u00f0i \u00e9g \u00e1 kj\u00f6rsta\u00f0 og inn \u00ed kj\u00f6rklefa, horf\u00f0i \u00e1 kj\u00f6rse\u00f0ilinn minn \u00ed nokkrar sek\u00fandur og skila\u00f0i honum svo \u00f3snertum.<\/p>\n<p>Og n\u00fa er bara a\u00f0 b\u00ed\u00f0a eftir kosningav\u00f6kunni. \u00c1fram Au\u00f0ur!<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00c9g f\u00f3r og kaus \u00e1\u00f0an. Eins og m\u00e9r var kennt a\u00f0 ma\u00f0ur geri \u00ed l\u00fd\u00f0r\u00e6\u00f0isr\u00edki \u00feegar kosningar eru haldnar. Einhverjir g\u00e6tu reyndar kver\u00falantast me\u00f0 \u00fea\u00f0 or\u00f0alag a\u00f0 \u00e9g hafi \u201ekosi\u00f0\u201c \u00fear sem a\u00f0 kj\u00f6rse\u00f0illinn minn breyttist ekkert fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00e9g f\u00e9kk hann \u00ed hendurnar og \u00fear til \u00e9g setti hann \u00ed kj\u00f6rkassann. \u00c9g skila\u00f0i [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":5,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[11],"tags":[],"class_list":["post-605","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-politik"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/egill\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/605","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/egill\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/egill\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/egill\/wp-json\/wp\/v2\/users\/5"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/egill\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=605"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/truflun.net\/egill\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/605\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/egill\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=605"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/egill\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=605"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/egill\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=605"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}