Fólkið í 6til7

Mér finnst Ágústa Johnson alltaf svolítið sjarmerandi. Ég er einmitt að spá í að kaupa mér kort í Hreyfingu þegar ég klára námskeiðið sem ég er á núna. Er ekki gott að æfa í Hreyfingu, Eva?
Aftur á móti finnst mér Guðlaugur, maðurinn hennar Ágústu, ekkert sérstaklega sjarmerandi.

Mér finnst Katrín Jakobs alltaf svolítið sjarmerandi. Ég er einmitt að spá í að ganga í flokkinn sem hún er varaformaður í.
Aftur á móti finnst mér Illugi Gunnars, sem situr við hliðina á henni, ekkert sérstaklega sjarmerandi.

Það skal tekið fram að Guðlaugur og Illugi er báðir í framboði til prófkjörs Sjálfsstæðisflokksins.