Eygló og Óli – RIP

Kannski er bara best að blogga um það. Við Óli erum hætt saman, eftir 7 ára og 7 mánaða samband. Við hættum saman 1. desember. Ég ætla ekki að tíunda ástæðurnar hér, þær eru ýmsar. Við búum ennþá saman en förum í sitthvora áttina um jólin og eyðum þeim með fjölskyldum okkar. Eftir jólin flytur Óli út úr íbúðinni okkar.
Okkur Óla kemur samt ágætlega saman og vonandi getum við verið vinir áfram. Ég vona líka að allir sameiginlegu vinir okkar geti haldið áfram að vera vinir okkar beggja.
Og þar hafiði það…