Davíð Oddsson hættir störfum

Er að skemmta mér við að skoða gamla pappíra. Fann þar m.a. blað sem við Hrönn gáfum út 24. ágúst 1994. Við vorum ansi forspáar þegar við skrifuðum greinina „Davíð Oddsson hættir störfum“

Af hverju hættirðu störfum Davíð?
Þetta er ansi erfið spurning svarar Davíð. Ég var orðin leiður á þingstörfum.

Af hverju leiðinlegt?
Nú auðvitað þingmennirnir, allavega Jón Baldvin og Jóhanna Sigurðar svarar Davíð æstur.

En er ekki einum of að hætta alveg þingstörfum?
Nei, ég ræð því sjálfur svarar hann enn æstari.

Nú ljúkum við þessu viðtali við Davíð Oddsson.

Með greininni er þessi fína mynd af Davíð þar sem hann segir Ég hætti störfum og fólkið í kring klappar.

Í litlum ramma á síðunni er svo mynd af Loka sem segir En Dabbi minn er óþarfi að vera svona æstur.