Sírópsbrauð Þetta er alveg svakalega gott brauð, sérstaklega með miklu smjöri 300 gr síróp 300 gr sykur 700 gr hveiti 6 dl súrmjólk 1 tsk negull 2 tsk natron Öllu blandað saman og bakað í ofnskúffu við 150°C í um það bil 45 mínútur.