{"id":1211,"date":"2009-06-30T19:35:46","date_gmt":"2009-06-30T19:35:46","guid":{"rendered":"http:\/\/gamla.truflun.net\/hjorvar\/?p=1211"},"modified":"2009-06-30T19:35:46","modified_gmt":"2009-06-30T19:35:46","slug":"landra%c3%b0","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/truflun.net\/hjorvar\/2009\/06\/30\/landra%c3%b0\/","title":{"rendered":"Landr\u00e1\u00f0"},"content":{"rendered":"<p>&#8222;Hristu hana a\u00f0eins,&#8220; sag\u00f0i annar pjakkurinn vi\u00f0 hinn, \u00fear sem \u00feeir g\u00f3ndu \u00e1 tv\u00f6 skri\u00f0kvikindi sem \u00feeir h\u00f6f\u00f0u fanga\u00f0 \u00ed krukku. &#8222;Sj\u00e1um hvort \u00feau r\u00e1\u00f0ist ekki hvort \u00e1 anna\u00f0.&#8220;<\/p>\n<p>\u00dearf \u00e9g a\u00f0 segja meira? M\u00e9r finnst a\u00f0 \u00e9g \u00e6tti ekki a\u00f0 \u00feurfa \u00feess. Legg\u00f0u sn\u00f6ggvast \u00e1 minni\u00f0 hvernig \u00fe\u00fa r\u00e6\u00f0ur \u00ed \u00feetta. \u00c9g kem aftur a\u00f0 \u00feessu seinna.<\/p>\n<p>&#8211; &#8211; &#8211;<\/p>\n<p>M\u00e9r hefur fundist eins og \u00e9g \u00feyrfti a\u00f0 segja eitthva\u00f0 yfir Icesave-m\u00e1lunum. En \u00fea\u00f0 er bara svo \u00f3m\u00f6gulegt a\u00f0 koma inn \u00ed \u00feetta einhvernveginn, h\u00e9\u00f0an utana\u00f0. Inn \u00ed hitann og k\u00f3fi\u00f0.<\/p>\n<p>Landr\u00e1\u00f0!, er hr\u00f3pa\u00f0 innan \u00far k\u00f6sinni. \u00dej\u00f3\u00f0n\u00ed\u00f0! Kvislingar!<\/p>\n<p>Og um hverja? Br\u00e6\u00f0um \u00fea\u00f0 a\u00f0eins me\u00f0 okkur \u00ed hlj\u00f3\u00f0i.<\/p>\n<p>\u00c9g kem aftur a\u00f0 \u00feessu seinna.<\/p>\n<p>&#8211; &#8211; &#8211;<\/p>\n<p>Eitt hefur legi\u00f0 lj\u00f3st fyrir alveg s\u00ed\u00f0an s\u00ed\u00f0asta haust: Vi\u00f0 munum aldrei aftur hafa \u00fea\u00f0 eins gott og vi\u00f0 h\u00f6f\u00f0um \u00fea\u00f0. Og m\u00e9r finnst \u00fea\u00f0 reyndar gott, \u00fataf fyrir sig. Vi\u00f0 h\u00f6f\u00f0um \u00fea\u00f0 aldrei eins gott og vi\u00f0 h\u00f6f\u00f0um \u00fea\u00f0.<\/p>\n<p>\u00c9g endurtek: Vi\u00f0 h\u00f6f\u00f0um \u00fea\u00f0 aldrei eins gott og vi\u00f0 h\u00f6f\u00f0um \u00fea\u00f0.<\/p>\n<p>Og n\u00faor\u00f0i\u00f0 er anna\u00f0 ekki h\u00e6gt en a\u00f0 horfast \u00ed augu vi\u00f0 eftirfarandi: Sama hva\u00f0 ver\u00f0ur gert, hvort sem Icesave samningarnir ver\u00f0a sam\u00feykktir e\u00f0a ekki, me\u00f0 e\u00f0a \u00e1n fyrirvara, \u00fe\u00e1 mun fyrirsj\u00e1anleg framt\u00ed\u00f0 lands og \u00fej\u00f3\u00f0ar ver\u00f0a, fyrir allan prakt\u00edskan samanbur\u00f0 vi\u00f0 n\u00fdli\u00f0na t\u00edma, \u00f6murleg. \u00deetta er ekki svartagall, \u00feetta er sta\u00f0reynd. A\u00f0 \u00e6tla eitthva\u00f0 anna\u00f0 er a\u00f0 berja h\u00f6f\u00f0inu vi\u00f0 steininn. \u00dea\u00f0 er kominn t\u00edmi til a\u00f0 vakna og finna lyktina af forh\u00fa\u00f0arostinum.<\/p>\n<p>&#8211; &#8211; &#8211;<\/p>\n<p>Bara svo \u00fea\u00f0 s\u00e9 \u00e1 t\u00e6ru: \u00c9g er rei\u00f0ur. \u00c9g er alveghreint bandhoppandi brj\u00e1la\u00f0ur. En \u00feetta er ekki s\u00fa heift\u00ferungna, stefnulausa rei\u00f0i sem fyllti svo marga (\u00fear\u00e1me\u00f0al mig) s\u00ed\u00f0asta okt\u00f3ber, og svo aftur \u00ed jan\u00faar.<\/p>\n<p>Einusinni fyrir \u00f3ram\u00f6rgum \u00e1rum var \u00e9g a\u00f0 keyra fr\u00e1 H\u00f3lum \u00ed Hjaltadal ni\u00f0ur \u00e1 Sau\u00f0\u00e1rkr\u00f3k seint um kv\u00f6ld. \u00c9g var me\u00f0 b\u00edlfylli af kr\u00f6kkum \u00e1 svipu\u00f0u reki og \u00e9g og vi\u00f0 \u00e6tlu\u00f0um a\u00f0eins a\u00f0 skreppa ni\u00f0ur \u00ed \u00c1b\u00e6 fyrir lokun. St\u00falkan s\u00fa sem \u00e9g elska\u00f0i \u00fe\u00e1 sat \u00ed far\u00feegas\u00e6tinu.<\/p>\n<p>\u00c9g var enn a\u00f0 gefa inn upp a\u00f0 einbrei\u00f0u br\u00fanni sem l\u00e1 yfir V\u00ed\u00f0ines\u00e1na \u00e1 blindh\u00e6\u00f0inni r\u00e9tt utan vi\u00f0 H\u00f3lasta\u00f0 \u00feegar \u00e9g s\u00e1 a\u00f0 \u00fea\u00f0 var ekki allt me\u00f0 felldu; \u00fea\u00f0 var eitthva\u00f0 \u00ed veginum. \u00deegar \u00e9g ger\u00f0i m\u00e9r lj\u00f3st a\u00f0 \u00feetta var kindarskrokkur sem l\u00e1 \u00e1 mi\u00f0ju br\u00faarg\u00f3lfinu var or\u00f0i\u00f0 of seint a\u00f0 negla \u00e1 bremsurnar, en \u00fea\u00f0 var ekkert anna\u00f0 a\u00f0 gera. M\u00e9r t\u00f3kst a\u00f0 st\u00fdra me\u00f0 v\u00e6landi dekkjum og \u00f6skrandi far\u00feegum \u00e1 milli br\u00faarst\u00f3lpanna, fann skepnuna skella \u00e1 h\u00e6gra framhj\u00f3linu og dragast undir b\u00edlnum \u00fat\u00e1 br\u00faarendann hinumegin \u00e1\u00f0ur en h\u00fan losna\u00f0i aftur. Svo n\u00e1mum vi\u00f0 sta\u00f0ar.<\/p>\n<p>\u00cd \u00fe\u00f6gninni \u00e1 eftir ger\u00f0i \u00e9g m\u00e9r nokkra hluti lj\u00f3sa:<\/p>\n<ol>\n<li>\u00c9g var ekki fyrstur til a\u00f0 keyra yfir kindina.<\/li>\n<li>S\u00e1 sem var \u00e1 undan m\u00e9r haf\u00f0i skili\u00f0 hr\u00e6i\u00f0 eftir \u00fearna og eki\u00f0 \u00ed burtu.<\/li>\n<li>Kindin var enn uppi \u00e1 mi\u00f0jum veginum.<\/li>\n<\/ol>\n<p>Og n\u00f6trandi af adrenal\u00ednsjokki og hamslausri br\u00e6\u00f0i yfir hugsunarleysi \u00feess sem f\u00f3r \u00e1 undan m\u00e9r rauk \u00e9g \u00fat, \u00fereif um lappirnar \u00e1 skepnunni \u00fear sem h\u00fan l\u00e1 \u00ed malbikinu me\u00f0 i\u00f0rin \u00fati, dr\u00f3 hana \u00fat \u00ed kant og fleyg\u00f0i upp fyrir veg af meira afli en \u00e9g \u00e1tti til.<\/p>\n<p>\u00deetta var \u00f6murlegt verk. En \u00e9g var\u00f0 a\u00f0 gera \u00fea\u00f0. \u00dea\u00f0 var\u00f0 bara andskotakorni\u00f0 a\u00f0 gera \u00feetta.<\/p>\n<p>Eitthva\u00f0 \u00feessu l\u00edk er s\u00fa rei\u00f0i sem fyllir mig \u00ed dag.<\/p>\n<p>&#8211; &#8211; &#8211;<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 ver\u00f0ur andskotakorni\u00f0 a\u00f0 gera \u00feetta. \u00deannig blasir \u00feetta vi\u00f0 m\u00e9r. Og m\u00e9r s\u00fdnist \u00far fjarl\u00e6g\u00f0 sem \u00feeim r\u00f6ddum fari fj\u00f6lgandi sem segja \u00fea\u00f0 sama. \u00deetta er spurningin um a\u00f0 gera eins og ma\u00f0ur hefur lofa\u00f0, a\u00f0 gera \u00fea\u00f0 sem ma\u00f0ur er skuldbundinn (b\u00f3kstaflega) til a\u00f0 gera. \u00deetta sn\u00fdst um a\u00f0 halda \u00ed einhvern snefil af sj\u00e1lfsvir\u00f0ingu, ef ekki vir\u00f0ingu annarra.<\/p>\n<p>Hei\u00f0ur. Er ekki tala\u00f0 um eitthva\u00f0 svolei\u00f0is \u00ed \u00cdslendingas\u00f6gunum?<\/p>\n<p>&#8211; &#8211; &#8211;<\/p>\n<p>Ha? Hva\u00f0 segir\u00f0u? Hlj\u00f3mar \u00feetta einsog eitthva\u00f0 \u00fat\u00far Bjarti \u00ed Sumarh\u00fasum? \u00c9g er bara alveg samm\u00e1la \u00fev\u00ed. \u00deetta eru <span style=\"text-decoration: line-through\">600<\/span> 1800 milljar\u00f0ar (<em>and counting<\/em>) sem \u00feessi Bjartur sem vi\u00f0 erum \u00fearf a\u00f0 &#8222;s\u00e1 \u00ed akur \u00f3vinar s\u00edns,&#8220; ef allt er tali\u00f0. Og \u00e9g er, satt best a\u00f0 segja, ekki sannf\u00e6r\u00f0ur um a\u00f0 vi\u00f0 h\u00f6fum efni \u00e1 \u00feessu. Og ef svo er, \u00fe\u00e1 ver\u00f0ur bara a\u00f0 horfast \u00ed augu vi\u00f0 \u00fea\u00f0.<\/p>\n<p>S\u00f3 b\u00ed itt.<\/p>\n<p>Kannski mun \u00feetta sliga okkur \u00f6ll \u00ed gr\u00f6fina. Kannski endar \u00feetta me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00edslenska \u00fej\u00f3\u00f0arb\u00fai\u00f0 ver\u00f0ur teki\u00f0 upp\u00ed skuld. Kannski munum vi\u00f0 ney\u00f0ast til a\u00f0 ganga Noregskonungi \u00e1 h\u00f6nd. E\u00f0a Englandsdrottningu.<\/p>\n<p>(og \u00e9g minni \u00e1: \u00f3h\u00e1\u00f0 \u00fev\u00ed hvort samningurinn ver\u00f0ur sam\u00feykktur e\u00f0a ekki).<\/p>\n<p>Vi\u00f0 g\u00e6tum veri\u00f0 me\u00f0 dau\u00f0a \u00edslensks lands, \u00fej\u00f3\u00f0ar og tungu \u00ed spilunum.<\/p>\n<p>\u00deetta er ekki svartagall. \u00deetta er raunverulegur m\u00f6guleiki \u00ed st\u00f6\u00f0unni.<\/p>\n<p>Kannski ekki st\u00f3r. En til sta\u00f0ar.<\/p>\n<p>En <em>nota bene<\/em>: \u00dea\u00f0 er \u00fe\u00e1 ekki atbur\u00f0ar\u00e1s sem er hrundi\u00f0 af sta\u00f0 me\u00f0 sam\u00feykkt e\u00f0a h\u00f6fnun Icesave-samninganna. \u00dea\u00f0 er ekki einusinni atbur\u00f0ar\u00e1s sem h\u00f3fst me\u00f0 hruninu \u00ed okt\u00f3ber s\u00ed\u00f0astli\u00f0num. \u00deetta er eitthva\u00f0 sem f\u00f3r af sta\u00f0 enn fyrr en \u00fea\u00f0.<\/p>\n<p>&#8211; &#8211; &#8211;<\/p>\n<p>Oj\u00e6ja. Ef ekki vill betur til, \u00fe\u00e1 hefur \u00fej\u00f3\u00f0in h\u00e9r allavega sitt t\u00e6kif\u00e6ri til a\u00f0 deyja hetjudau\u00f0a, frekar en sem l\u00edtilsvirtur sv\u00ed\u00f0ingur og varmenni me\u00f0al \u00fej\u00f3\u00f0a. \u00dea\u00f0 er m\u00edn pers\u00f3nulega afsta\u00f0a.<\/p>\n<p>Hetjudau\u00f0i. Er ekki tala\u00f0 um eitthva\u00f0 svolei\u00f0is \u00ed \u00cdslendingas\u00f6gunum? Einhvernveginn finnst m\u00e9r \u00feeir sem s\u00f3ttu hva\u00f0 grimmast \u00ed arfinn s\u00ed\u00f0ustu \u00e1rin hafa n\u00e1\u00f0 a\u00f0 lei\u00f0a \u00feetta hugtak \u00fe\u00e6gilega hj\u00e1 s\u00e9r.<\/p>\n<p>&#8211; &#8211; &#8211;<\/p>\n<p>A\u00f0 lokum: Manstu eftir pj\u00f6kkunum tveimur \u00ed upphafinu? Reyndir\u00f0u a\u00f0 r\u00e1\u00f0a \u00ed t\u00e1knmyndina?<\/p>\n<p>Ef \u00fe\u00fa settir Breta og Hollendinga \u00ed hlutverk \u00feeirra ertu fallinn \u00e1 myndm\u00e1lspr\u00f3finu. L\u00edka ef \u00fe\u00fa settir Steingr\u00edm J, Samfylkinguna, InDefence-h\u00f3pinn e\u00f0a hvern annan \u00feann sem af sinni eigin \u00f3s\u00e9rpl\u00e6gni vill reyna a\u00f0 gera \u00fea\u00f0 sk\u00e1sta sem m\u00f6gulegt er \u00far \u00feeirri \u00f3m\u00f6gulegu st\u00f6\u00f0u sem upp er komin.<\/p>\n<p>En hverja \u00fe\u00e1? Af hverra v\u00f6ldum erum vi\u00f0 loku\u00f0 h\u00e9rna ofan\u00ed til a\u00f0 klj\u00e1st hvert vi\u00f0 anna\u00f0? Saka hvert anna\u00f0 um kvislingsh\u00e1tt og \u00fej\u00f3\u00f0n\u00ed\u00f0?<\/p>\n<p>\u00deeir standa \u00fearna enn og skemmta s\u00e9r vi\u00f0 a\u00f0 hrista krukkuna.<\/p>\n<p>Hvern \u00e6tlar \u00fe\u00fa a\u00f0 kalla landr\u00e1\u00f0amann \u00ed dag?<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>&#8222;Hristu hana a\u00f0eins,&#8220; sag\u00f0i annar pjakkurinn vi\u00f0 hinn, \u00fear sem \u00feeir g\u00f3ndu \u00e1 tv\u00f6 skri\u00f0kvikindi sem \u00feeir h\u00f6f\u00f0u fanga\u00f0 \u00ed krukku. &#8222;Sj\u00e1um hvort \u00feau r\u00e1\u00f0ist ekki hvort \u00e1 anna\u00f0.&#8220; \u00dearf \u00e9g a\u00f0 segja meira? M\u00e9r finnst a\u00f0 \u00e9g \u00e6tti ekki a\u00f0 \u00feurfa \u00feess. Legg\u00f0u sn\u00f6ggvast \u00e1 minni\u00f0 hvernig \u00fe\u00fa r\u00e6\u00f0ur \u00ed \u00feetta. \u00c9g kem aftur [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":6,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[5,7,15],"tags":[],"class_list":["post-1211","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-dylgjur","category-heimsmalin","category-jomalin"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/hjorvar\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1211","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/hjorvar\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/hjorvar\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/hjorvar\/wp-json\/wp\/v2\/users\/6"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/hjorvar\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=1211"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/truflun.net\/hjorvar\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1211\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/hjorvar\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=1211"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/hjorvar\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=1211"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/hjorvar\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=1211"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}