{"id":1449,"date":"2010-03-03T22:09:22","date_gmt":"2010-03-03T22:09:22","guid":{"rendered":"http:\/\/gamla.truflun.net\/hjorvar\/?p=1449"},"modified":"2010-03-03T22:09:22","modified_gmt":"2010-03-03T22:09:22","slug":"tvaer-mogulegar-astaedur-fyrir-ad-segja-ja-i-kosningunum-a-laugardaginn-kemur","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/truflun.net\/hjorvar\/2010\/03\/03\/tvaer-mogulegar-astaedur-fyrir-ad-segja-ja-i-kosningunum-a-laugardaginn-kemur\/","title":{"rendered":"Tv\u00e6r m\u00f6gulegar \u00e1st\u00e6\u00f0ur fyrir a\u00f0 segja &#8222;J\u00e1&#8220; \u00ed kosningunum \u00e1 laugardaginn kemur"},"content":{"rendered":"<p>\u00c9g, eins og margir, hef sveiflast p\u00f3lanna \u00e1 milli \u00ed Icesave m\u00e1linu s\u00ed\u00f0ustu m\u00e1nu\u00f0i. <a title=\"Meee\" href=\"http:\/\/gamla.truflun.net\/hjorvar\/2010\/01\/04\/1398\/\">S\u00ed\u00f0ast \u00feegar \u00e9g tj\u00e1\u00f0i mig<\/a> (daginn fyrir ekki-undirskriftina hans \u00d3lafs Ragnars) vona\u00f0i \u00e9g h\u00e1lfpartinn a\u00f0 forsetinn myndi neita a\u00f0 skrifa undir og samningurinn f\u00e6ri \u00ed \u00fej\u00f3\u00f0aratkv\u00e6\u00f0i. Bara svo hinum almenna kj\u00f3sanda yr\u00f0i \u00fer\u00f6ngva\u00f0 til a\u00f0 taka s\u00edna eigin \u00e1byrg\u00f0 \u00e1 f\u00edask\u00f3inu.<\/p>\n<p>Svo f\u00f3r \u00fea\u00f0 n\u00e1tt\u00farulega svolei\u00f0is, og \u00ed einhvern t\u00edma fannst m\u00e9r \u00feetta alveg vo\u00f0alegt. Svo fannst m\u00e9r \u00fea\u00f0 \u00e1g\u00e6tt. Svo fannst m\u00e9r \u00feetta bara f\u00e1r\u00e1nlegur sirkus og tilgangslaus vitleysa. Svo fannst m\u00e9r \u00feetta aftur \u00e1g\u00e6tt. Og finnst enn, \u00e1 s\u00f6mu forsendum og \u00e1\u00f0ur.<\/p>\n<p>M\u00e9r finnst \u00feetta samt enn allt vera hinn f\u00e1r\u00e1nlegasti sirkus.<\/p>\n<p>&#8211; &#8211; &#8211;<\/p>\n<p>\u00c9g tv\u00edst\u00e9 lengi lengi og vissi ekkert hva\u00f0 \u00e9g \u00e6tti a\u00f0 kj\u00f3sa: nei e\u00f0a j\u00e1, skila au\u00f0u e\u00f0a sitja heima. Var \u00ed s\u00ed\u00f0ustu viku kominn ni\u00f0ur\u00e1 a\u00f0 gera upp \u00e1 milli tveggja seinni kostanna. Og \u00fea\u00f0 a\u00f0 \u00e9g skyldi vera h\u00e9rna \u00fati \u00ed \u00de\u00fdskalandi, \u00ed klukkut\u00edma fjarl\u00e6g\u00f0 fr\u00e1 kons\u00falnum og auk \u00feess me\u00f0 eigin \u00e1byrg\u00f0 \u00e1 a\u00f0 koma m\u00ednu (l\u00edkastil au\u00f0a) atkv\u00e6\u00f0i upp\u00e1 skeri\u00f0 ger\u00f0i vali\u00f0 \u00ed raun au\u00f0velt.<\/p>\n<p>Svo var \u00fea\u00f0 bara \u00ed g\u00e6r e\u00f0a fyrradag a\u00f0 \u00fea\u00f0 small hj\u00e1 m\u00e9r d\u00e1l\u00edti\u00f0 svakaleg sta\u00f0reynd. Og \u00f6nnur \u00ed dag, kannski ekki alveg eins svakaleg, en \u00fe\u00f3 allrar athygli ver\u00f0.<\/p>\n<p>T\u00f6kum \u00fe\u00e6r \u00ed \u00f6fugri r\u00f6\u00f0.<\/p>\n<p>&#8211; &#8211; &#8211;<\/p>\n<p>(\u00dea\u00f0 eru svo enn a\u00f0rar \u00e1st\u00e6\u00f0ur sem a\u00f0rir hafa nefnt, fyrir sitt leyti, fyrir hverjum af kostunum fj\u00f3rum. \u00c9g s\u00e9 enga \u00e1st\u00e6\u00f0u til a\u00f0 rekja \u00fe\u00e6r h\u00e9r &#8211; \u00e9g er ekki a\u00f0 gefa t\u00e6mandi yfirlit, bara benda \u00e1 tvo punkta sem m\u00e9r s\u00fdnist hafa or\u00f0i\u00f0 \u00fatundan \u00ed umr\u00e6\u00f0unni.)<\/p>\n<p>&#8211; &#8211; &#8211;<\/p>\n<p>Hver s\u00e1 sem eitthva\u00f0 veit, veit a\u00f0 ef n\u00fagildandi l\u00f6gum um grei\u00f0slur vegna Icesave-skuldbindinga gamla Landsbankans ver\u00f0i hafna\u00f0 \u00ed \u00fej\u00f3\u00f0aratkv\u00e6\u00f0agrei\u00f0slu, \u00fe\u00e1 taka gildi \u00feau g\u00f6mlu fr\u00e1 s\u00ed\u00f0asta sumri, \u00feessi me\u00f0 skilm\u00e1lum og l\u00e1nakj\u00f6rum \u00feess sumars fr\u00e1 Bretum og Hollendingum (hvernig var \u00fea\u00f0, voru \u00feeir ekki eitthva\u00f0 verri en \u00feeir sem veri\u00f0 er a\u00f0 fara a\u00f0 kj\u00f3sa um \u00e1 laugardaginn? \u00c9g man \u00fea\u00f0 ekki fyrir v\u00edst&#8230;) og tilsvarandi fyrirv\u00f6rum sem al\u00feingi setti eftir\u00e1. Og Bretar og Hollendingar vildu ekki gangast undir \u00e1 s\u00ednum t\u00edma.<\/p>\n<p>\u00deessi l\u00f6g voru sam\u00feykkt, fr\u00e1 hendi \u00edslenska r\u00edkisins. Og \u00ed raun er Bretum og Hollendingum enn \u00ed l\u00f3fa lagi\u00f0 a\u00f0 sam\u00feykkja \u00feau skilst m\u00e9r, eins og t.d. <a title=\"M\u00f6guleiki\" href=\"http:\/\/omarragnarsson.blog.is\/blog\/omarragnarsson\/entry\/1025227\/\">\u00d3mar Ragnarsson benti \u00e1<\/a> \u00ed bloggi \u00ed dag.<\/p>\n<p>Kannski ekki l\u00edklegt. En ekki \u00fatiloka\u00f0.<\/p>\n<p>Eins og sta\u00f0an er \u00ed dag er \u00e9g ekkert svo viss a\u00f0 me\u00f0alkj\u00f3sandinn vilji \u00feau frekar en \u00fea\u00f0 sem fyrir liggur \u00ed dag. \u00c9g bara veit \u00fea\u00f0 ekki &#8211; hefur einhver vegi\u00f0 \u00fea\u00f0 og meti\u00f0?<\/p>\n<p>En \u00fea\u00f0 yr\u00f0i a\u00f0 minnsta kosti alltaf s\u00ed\u00f0ra en \u00fea\u00f0 sem l\u00e1 \u00e1 bor\u00f0inu og bei\u00f0 eftir undirskrift fyrr \u00ed vikunni.<\/p>\n<p>&#8211; &#8211; &#8211;<\/p>\n<p>\u00c9g vek athygli \u00e1 a\u00f0 \u00fea\u00f0 er ekki h\u00e6gt a\u00f0 velja \u00fea\u00f0 sem okkur langar. \u00dea\u00f0 er ekki \u00ed bo\u00f0i. \u00dea\u00f0 bj\u00f3\u00f0ast tveir kostir (e\u00f0a fj\u00f3rir, vilji ma\u00f0ur telja svolei\u00f0is), og ekki n\u00f3g me\u00f0 a\u00f0 b\u00e1\u00f0ir s\u00e9u afleitir, heldur er ekki h\u00e6gt a\u00f0 sj\u00e1 fyrir hverjar aflei\u00f0ingarnar ver\u00f0a af hvorum fyrir sig.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 er ekki n\u00f3g me\u00f0 a\u00f0 \u00feetta s\u00e9 r\u00fassnesk r\u00falletta. \u00deetta er r\u00fassnesk r\u00falletta \u00fear sem hvert einasta h\u00f3lf getur veri\u00f0 hla\u00f0i\u00f0, e\u00f0a \u00f6ll t\u00f3m,  e\u00f0a hva\u00f0 sem er \u00fear \u00e1 milli.<\/p>\n<p>M\u00e9r dettur \u00ed hug spurningin sem hann Harr\u00fd hreinl\u00e6tisskerti sag\u00f0i a\u00f0 ma\u00f0ur \u00feyrfti a\u00f0 spyrja sig: &#8222;Do I feel lucky?&#8220;<\/p>\n<p>&#8211; &#8211; &#8211;<\/p>\n<p>Hin \u00e1st\u00e6\u00f0an er \u00f3sk\u00f6p einf\u00f6ld. Og hr\u00e6\u00f0ir mig h\u00e1lfu meir.<\/p>\n<p>Setjum sem svo a\u00f0 Hollendingar og Bretar s\u00fdni \u00fea\u00f0 langlundarge\u00f0 a\u00f0 setjast aftur a\u00f0 samningabor\u00f0i eftir a\u00f0 l\u00f6gin ver\u00f0a felld \u00ed atkv\u00e6\u00f0agrei\u00f0slunni \u00e1 laugardaginn. Enn \u00feess krafist a\u00f0 \u00edslenska samninganefndin hafi umbo\u00f0 fr\u00e1 \u00f6llum flokkum \u00e1 al\u00feingi.<\/p>\n<p>\u00deetta gefur strax augalei\u00f0, er \u00fea\u00f0 ekki?<\/p>\n<p>Ef tekur a\u00f0 n\u00e1lgast lendingu \u00ed m\u00e1linu \u00fearsem reynt er a\u00f0 l\u00e1gmarka ska\u00f0ann beggja vegna bor\u00f0s, \u00fearsem Bretum og Hollendingum er b\u00e6ttur ska\u00f0inn \u00e1n \u00feess a\u00f0 \u00feeir hagnist \u00e1 sj\u00e1lfum vaxtapr\u00f3sentunum, \u00fe\u00e1 veit \u00e9g hvar \u00e9g hef fulltr\u00faa r\u00edkisstj\u00f3rnarflokkanna: \u00deeir hafa vilja\u00f0 koma \u00feessu \u00fataf bor\u00f0inu m\u00e1nu\u00f0um saman. \u00c9g er til \u00ed a\u00f0 tr\u00faa \u00fev\u00ed a\u00f0 Hreyfingarli\u00f0i\u00f0 \u00feekki vitjunart\u00edmann. Og anskotakorni\u00f0, einverra hluta vegna held \u00e9g meira\u00f0segja a\u00f0 Sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0ismenn undir forystu Bjarna Ben myndu \u00e1 endanum gera s\u00e9r lj\u00f3st mikilv\u00e6gi \u00feess a\u00f0 f\u00e1 l\u00fakningu \u00e1 m\u00e1li\u00f0.<\/p>\n<p>En frams\u00f3knarmenn undir forystu Sigmundar Dav\u00ed\u00f0s get \u00e9g bara ekki s\u00e9\u00f0 fyrir m\u00e9r gera neitt anna\u00f0 en a\u00f0 sl\u00e1 hendinni \u00e1 m\u00f3ti hverju sem b\u00fd\u00f0st. Allt til a\u00f0 geta slegi\u00f0 s\u00e9r upp\u00e1 \u00fev\u00ed heimafyrir. \u00dea\u00f0 er ekkert fl\u00f3knara: \u00dea\u00f0 er s\u00fa strateg\u00eda sem felur \u00ed s\u00e9r mesta p\u00f3p\u00fal\u00edska skammt\u00edmagr\u00f3\u00f0ann.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 \u00e6tti a\u00f0 vera n\u00f3g fyrir \u00fe\u00e1 a\u00f0 \u00ferj\u00f3skast vi\u00f0 \u00fat \u00e1ri\u00f0 2011, fram yfir st\u00f3ru gjalddagana sem b\u00ed\u00f0a okkar \u00fe\u00e1 og gera allar m\u00f6gulegar Icesave grei\u00f0slur \u00e1ri\u00f0 2016 b\u00fdsna saklausar \u00ed samanbur\u00f0inum.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 er mun au\u00f0veldara a\u00f0 digta upp \u00e1t\u00f3r\u00edtet til a\u00f0 sl\u00e1 sj\u00e1lfan sig til riddara \u00feegar r\u00edki\u00f0 er hruni\u00f0 og landi\u00f0 stj\u00f3rnlaust.<\/p>\n<p>&#8211; &#8211; &#8211;<\/p>\n<p>(&#8222;Well, do ya, punk?&#8220;)<\/p>\n<p>&#8211; &#8211; &#8211;<\/p>\n<p>(P.S. Lenti \u00ed \u00feeirri innsl\u00e1ttarvillu vi\u00f0 ritunina a\u00f0 k\u00e1i\u00f0 datt \u00far nafni Landsbankans. \u00dea\u00f0 var d\u00e1l\u00edti\u00f0 sp\u00fak\u00ed.)<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00c9g, eins og margir, hef sveiflast p\u00f3lanna \u00e1 milli \u00ed Icesave m\u00e1linu s\u00ed\u00f0ustu m\u00e1nu\u00f0i. S\u00ed\u00f0ast \u00feegar \u00e9g tj\u00e1\u00f0i mig (daginn fyrir ekki-undirskriftina hans \u00d3lafs Ragnars) vona\u00f0i \u00e9g h\u00e1lfpartinn a\u00f0 forsetinn myndi neita a\u00f0 skrifa undir og samningurinn f\u00e6ri \u00ed \u00fej\u00f3\u00f0aratkv\u00e6\u00f0i. Bara svo hinum almenna kj\u00f3sanda yr\u00f0i \u00fer\u00f6ngva\u00f0 til a\u00f0 taka s\u00edna eigin \u00e1byrg\u00f0 \u00e1 f\u00edask\u00f3inu. [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":6,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[2,15],"tags":[],"class_list":["post-1449","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-almennt","category-jomalin"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/hjorvar\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1449","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/hjorvar\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/hjorvar\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/hjorvar\/wp-json\/wp\/v2\/users\/6"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/hjorvar\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=1449"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/truflun.net\/hjorvar\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1449\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/hjorvar\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=1449"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/hjorvar\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=1449"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/hjorvar\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=1449"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}