{"id":1583,"date":"2010-07-18T19:56:00","date_gmt":"2010-07-18T19:56:00","guid":{"rendered":"http:\/\/gamla.truflun.net\/hjorvar\/?p=1583"},"modified":"2010-07-18T19:56:00","modified_gmt":"2010-07-18T19:56:00","slug":"grand-prix-der-volksmusik-sudur-tyrolska","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/truflun.net\/hjorvar\/2010\/07\/18\/grand-prix-der-volksmusik-sudur-tyrolska\/","title":{"rendered":"Grand Prix der Volksmusik 2010: Su\u00f0ur-t\u00fdr\u00f3lska forkeppnin"},"content":{"rendered":"<p>Sv\u00e6\u00f0issj\u00f3nvarp RAI \u00ed Bozen (Bolzano) h\u00e9lt \u00farslitakv\u00f6ld su\u00f0ur-t\u00fdr\u00f3lsku forkeppni <em>Grand Prix der Volksmusik<\/em> \u00feann 21. ma\u00ed s\u00ed\u00f0astli\u00f0inn \u00ed sm\u00e1b\u00e6num <a title=\"Sku\u00f0\" href=\"http:\/\/en.wikipedia.org\/wiki\/Algund\">Algund<\/a>. Bori\u00f0 saman vi\u00f0 svissnesku forkeppnina sem \u00e9g sag\u00f0i fr\u00e1 um daginn var ekki miki\u00f0 um d\u00fdr\u00f0ir \u00ed umb\u00fana\u00f0inum, og ef liti\u00f0 er til fyrri forkeppna RAI \u00ed Su\u00f0ur-T\u00fdr\u00f3l ver\u00f0ur a\u00f0 segjast a\u00f0 n\u00fa er Snorrab\u00fa\u00f0 stekkur: Allt mun sm\u00e6rra \u00ed sni\u00f0um en undanfari\u00f0 og hausinn bitinn af sk\u00f6mminni me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 kynna l\u00f6gin eing\u00f6ngu me\u00f0 forklipptum kynningarmyndb\u00f6ndum og snu\u00f0a \u00feannig \u00e1horfendur um \u00e1n\u00e6gjuna af \u00fev\u00ed a\u00f0 sj\u00e1 listamennina m\u00e6ma undir pleibakki \u00ed sj\u00f3nvarpssal.<\/p>\n<p>En fram f\u00f3r \u00fe\u00f3 keppnin, og var sosum ekki mesta hneisan \u00ed <em>GPdV<\/em> \u00ed \u00e1r. Meira um \u00fea\u00f0 s\u00ed\u00f0ar.<\/p>\n<p>&#8211; &#8211; &#8211;<\/p>\n<p><a title=\"\u00d3sl\u00edpa\u00f0ir demantar\" href=\"http:\/\/www.bergdiamanten.com\/home\">Die Bergdiamanten<\/a> eru engir n\u00fdgr\u00e6\u00f0ingar \u00ed Volksm\u00fas\u00edkinni, \u00feeir n\u00e1\u00f0u til d\u00e6mis alla lei\u00f0 \u00ed \u00farslit <em>GPdV<\/em> \u00e1ri\u00f0 2008 me\u00f0 lagi\u00f0 sitt &#8222;<a title=\"Snorrab\u00fa\u00f0 stekkur\" href=\"http:\/\/www.youtube.com\/watch?v=nGTbYNFfdVU\">Ein bi\u00dfchen Gottvertrauen<\/a>.&#8220;<\/p>\n<p>(\u00c9g hlekki \u00fearna \u00e1 uppt\u00f6ku fr\u00e1 forkv\u00f6ldi RAI Bozen \u00e1ri\u00f0 2008 \u00fear sem afturf\u00f6rin leynir s\u00e9r ekki \u00ed samanbur\u00f0inum: \u00dearna var h\u00e1tt til lofts, v\u00edtt til veggja, og listamennirnir st\u00f3\u00f0u sj\u00e1lfir \u00e1 svi\u00f0inu undir flutningnum og m\u00e6mu\u00f0u \u00ed eigin pers\u00f3nu fyrir \u00e1horfendur \u00ed sj\u00f3nvarpssal. Beri\u00f0 \u00feetta saman vi\u00f0 kjallarakytruna \u00fear sem atbur\u00f0inum var hola\u00f0 ni\u00f0ur \u00ed \u00e1r, og s\u00e1ra v\u00f6ntun \u00e1 alv\u00f6ru l\u00edfl\u00edkisflutningi. Fyrir utan a\u00f0 2008 h\u00f6f\u00f0u \u00feau sj\u00e1lfan <a title=\"Mikill listama\u00f0ur\" href=\"http:\/\/www.youtube.com\/watch?v=op77twoc5hY\">Rudy Giovannini<\/a> til a\u00f0 afkynna herlegheitin.)<\/p>\n<p>Fjallademantarnir koma \u00far afdalnum Gsiesertal sem er lengst upp\u00ed uppsveitum Su\u00f0ur-T\u00fdr\u00f3ls. Allir sinna \u00feeir t\u00f3nlistinni \u00ed hj\u00e1verkum: Rafvirkinn Werner syngur og spilar \u00e1 g\u00edtar, p\u00edpulagningama\u00f0urinn J\u00f3akim \u00feenur dragspil og syngur me\u00f0, og rafmagnsverkfr\u00e6\u00f0ingurinn Erwin bl\u00e6s \u00ed l\u00fa\u00f0ra. En \u00feeir eru l\u00edka duglegir a\u00f0 tro\u00f0a upp vi\u00f0 hin \u00fdmsustu t\u00e6kif\u00e6ri og bj\u00f3\u00f0a ekki einungis upp\u00e1 b\u00e6\u00f0i <em>Volksmusik<\/em> og <em>Schlager<\/em>, heldur l\u00edka \u00edtalska standarda og popp og rokk \u00far al\u00fej\u00f3\u00f0legu deildinni. \u00deeir n\u00e1\u00f0u fj\u00f3r\u00f0a s\u00e6tinu me\u00f0 9,72% greiddra atkv\u00e6\u00f0a me\u00f0 laginu &#8222;Teures Heimatland,&#8220; sem \u00feeir segja a\u00f0 s\u00e9 ekki a\u00f0eins &#8222;ein Heimatverbundenes Lied,&#8220; heldur l\u00edka &#8222;ein Bodenst\u00e4ndiger Marsch,&#8220; hvorki meira n\u00e9 minna. \u00deeir r\u00e1\u00f0ast sko ekki \u00e1 gar\u00f0inn \u00fear sem hann er l\u00e6gstur, Fjallademantarnir:<\/p>\n<p>&#8211; &#8211; &#8211;<\/p>\n<p>\u00cd \u00feri\u00f0ja s\u00e6ti lenti einn af m\u00ednum upp\u00e1halds Volksm\u00fas\u00edkurlistam\u00f6nnum. Hann <a title=\"Bjartasta vonin\" href=\"http:\/\/www.alex-pezzei.com\/cms\/\">Alex Pezzei<\/a> l\u00edtur einhvernveginn alltaf \u00fat eins og hann s\u00e9 me\u00f0 eitthva\u00f0 syndr\u00f3m, greyi\u00f0, en \u00fea\u00f0 er n\u00fa ekki honum a\u00f0 kenna. Eins og \u00e9g rakti \u00ed <a title=\"Su\u00f0ur-t\u00fdr\u00f3lska forkeppnin 2009\" href=\"http:\/\/gamla.truflun.net\/hjorvar\/2009\/08\/05\/gpdv-2009-su%C3%B0ur-tyrol\/\">pistli \u00e1 s\u00ed\u00f0asta \u00e1ri<\/a> er hann borinn og barnf\u00e6ddur Su\u00f0ur-T\u00fdr\u00f3li sem hefur veri\u00f0 \u00e1 fullu \u00ed t\u00f3nlistinni fr\u00e1 \u00fev\u00ed \u00e1 leiksk\u00f3laaldri. Hann er fr\u00e1 litlu sv\u00e6\u00f0i \u00ed grennd vi\u00f0 D\u00f3l\u00f3m\u00edtana \u00fear sem t\u00f6lu\u00f0 er <a title=\"Lad\u00edna\" href=\"http:\/\/en.wikipedia.org\/wiki\/Ladin\">lad\u00edna<\/a> (fornt tungum\u00e1l skylt ret\u00f3r\u00f3m\u00f6nsku), en hann er einnig altalandi \u00e1 \u00fe\u00fdsku, \u00edt\u00f6lsku, ensku og sp\u00e6nsku. \u00c1 lei\u00f0 okkar fj\u00f6lskyldunnar um Su\u00f0ur-T\u00fdr\u00f3l s\u00ed\u00f0asta sumar \u00f3kum vi\u00f0 gegnum heima\u00feorpi\u00f0 hans \u00ed Gr\u00f6dnerdalnum, \u00fear h\u00e9ngu bor\u00f0ar yfir a\u00f0alstr\u00e6tum honum til stu\u00f0nings og allir greinilega yfir sig stoltir af str\u00e1knum. Sem m\u00e1 alveg vera.<\/p>\n<p>\u00c9g er ekki fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 hann Alex s\u00e9 minn keppandi \u00ed \u00e1r. H\u00e9r er hann m\u00e6ttur me\u00f0 lag sem er jafnvel enn betra heldur en lagi\u00f0 hans \u00ed fyrra (svo \u00e9g kve\u00f0i n\u00fa ekki fastar a\u00f0 or\u00f0i) og heitir &#8222;A Narrischer, a Boarischer,&#8220; sem \u00e9g hef ekki hugmynd um hva\u00f0 \u00fe\u00fd\u00f0ir og get varla \u00edmynda\u00f0 m\u00e9r, \u00fe\u00f3tt m\u00e9r heyrist hann n\u00fa vera a\u00f0 syngja \u00e1 einhvunnlags \u00fe\u00fdsku. Hitt get \u00e9g uppl\u00fdst a\u00f0 hann lenti \u00ed \u00feri\u00f0ja s\u00e6ti me\u00f0 10,36% greiddra atkv\u00e6\u00f0a. Og ekki skemma Alpahornabl\u00e1sararnir \u00far Gr\u00f6dnerdal fyrir:<\/p>\n<p>&#8211; &#8211; &#8211;<\/p>\n<p>\u00c9g veit ekki miki\u00f0 um <a title=\"T\u00f3nelsk fj\u00f6lskylda\" href=\"http:\/\/www.geschwister-niederbacher.com\/\">Niederbachersystkinin<\/a>. En vel taka \u00feau sig \u00fat saman eins og sj\u00e1 m\u00e1 \u00ed uppstillingu fyrir framan n\u00e1kv\u00e6mlega sama r\u00fami\u00f0 \u00fear sem Fjallademantarnir sungu \u00e1\u00f0an um \u00e1tthagana d\u00fdru:<\/p>\n<div style=\"width: 458px\" class=\"wp-caption alignnone\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\" \" title=\"Niederbachersystkinin\" src=\"http:\/\/www.geschwister-niederbacher.com\/images\/phocagallery\/VorausscheidungGPV2010\/thumbs\/phoca_thumb_l_geschwister%20niederbacher%20dreharbeiten2.jpg\" alt=\"Niederbachersystkinin\" width=\"448\" height=\"298\" \/><p class=\"wp-caption-text\">Niederbachersystkinin<\/p><\/div>\n<p>\u00deau eru af annarri kynsl\u00f3\u00f0 t\u00f3nlistarf\u00f3lks \u00ed Niederbacherfj\u00f6lskyldunni: Hans fa\u00f0ir \u00feeirra byrja\u00f0i a\u00f0 spila og syngja me\u00f0 Walter br\u00f3\u00f0ur s\u00ednum fyrir allm\u00f6rgum \u00e1ratugum og \u00fea\u00f0 leynir s\u00e9r ekki a\u00f0 \u00e1stin \u00e1 fagurri t\u00f3nlist hefur gengi\u00f0 \u00ed arf til barnanna. \u00dea\u00f0 fer f\u00e1um s\u00f6gum af t\u00f3nlistarh\u00e6fileikum m\u00f3\u00f0ur \u00feeirra, en h\u00fan hefur a\u00f0 minnsta kosti veitt \u00feeim innbl\u00e1stur til lagsins sem \u00feau n\u00e1\u00f0u \u00feri\u00f0ja s\u00e6tinu (me\u00f0 11.63% atkv\u00e6\u00f0a) me\u00f0 \u00ed \u00e1r: &#8222;Ein Lied f\u00fcr Mama.&#8220; \u00dev\u00ed mi\u00f0ur er hvorki h\u00e6gt a\u00f0 finna myndbands- n\u00e9 hlj\u00f3\u00f0uppt\u00f6ku af laginu \u00ed fullri lengd, en \u00e1 heimas\u00ed\u00f0u <em>GPdV<\/em> m\u00e1 \u00fe\u00f3 hlusta \u00e1 \u00ferj\u00e1t\u00edu sek\u00fandna b\u00fat til a\u00f0 finna nasa\u00feefinn af \u00fev\u00ed. Til a\u00f0 b\u00e6ta upp fyrir myndbandsleysi\u00f0 er h\u00e9rna \u00f6nnur svona l\u00edka afskaplega falleg mynd af \u00feeim systkinum:<\/p>\n<div style=\"width: 458px\" class=\"wp-caption alignnone\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\" \" title=\"Geschwister Niederbacher\" src=\"http:\/\/www.geschwister-niederbacher.com\/images\/phocagallery\/Verschiedenes\/thumbs\/phoca_thumb_l_geschwister%20niederbacher%202.jpg\" alt=\"Geschwister Niederbacher\" width=\"448\" height=\"298\" \/><p class=\"wp-caption-text\">Geschwister Niederbacher<\/p><\/div>\n<p><a href=\"http:\/\/www.gpvolksmusik.at\/Musik\/sued\/Ein%20Lied%20fuer%20Mama.mp3\">Geschwister Niederbacher &#8211; Ein Lied f\u00fcr Mama<\/a><\/p>\n<p>&#8211; &#8211; &#8211;<\/p>\n<p>Sigurvegarar su\u00f0ur-t\u00fdr\u00f3lsku forkeppninnar \u00ed \u00e1r voru \u00feeir s\u00f6mu og <a title=\"\u00cd fyrra\" href=\"http:\/\/gamla.truflun.net\/hjorvar\/2009\/08\/05\/gpdv-2009-su%C3%B0ur-tyrol\/\">\u00ed fyrra<\/a>: Hressu str\u00e1karnir \u00ed <a title=\"Ferskir, ungir og flippa\u00f0ir\" href=\"http:\/\/www.volxrock.com\/volxrock\/index.php?lang=dialekt\">Volxrock<\/a> t\u00f3ku sig til og rokku\u00f0u keppnina upp\u00far sk\u00f3num anna\u00f0 \u00e1ri\u00f0 \u00ed r\u00f6\u00f0 me\u00f0 laginu\u00a0 &#8222;Was macht das Edelwei\u00df in meiner Supp\u2019n,&#8220; e\u00f0a &#8222;\u00dej\u00f3nn, \u00fea\u00f0 er Alpar\u00f3s \u00ed s\u00fapunni minni.&#8220; \u00deeir aldeilis burstu\u00f0u \u00feetta me\u00f0 12,89% greiddra atkv\u00e6\u00f0a, og m\u00e1 telja n\u00e6sta v\u00edst a\u00f0 unga f\u00f3lki\u00f0 af su\u00f0ur-t\u00fdr\u00f3lsku kl\u00e1mkynsl\u00f3\u00f0inni hafi veri\u00f0 duglegt a\u00f0 smassa \u00e1 Handy-s\u00edmana s\u00edna, enda allt yfirfullt af kynfer\u00f0islegum v\u00edsunum \u00ed b\u00e6\u00f0i texta og v\u00edde\u00f3i. \u00dea\u00f0 \u00e1 \u00fe\u00f3 eftir a\u00f0 koma \u00ed lj\u00f3s hvort \u00feetta falli \u00ed krami\u00f0 hj\u00e1 hinni innhringjandi eldri kynsl\u00f3\u00f0 \u00e1 st\u00f3r-\u00fe\u00fdska menningarsv\u00e6\u00f0inu \u00e1 \u00farslitakv\u00f6ldinu \u00ed V\u00edn, e\u00f0a hvort eitthva\u00f0 meira \u00ed \u00e6tt vi\u00f0 m\u00f3\u00f0ur\u00e1star\u00f3\u00f0 Niederbachersystkinanna eigi eftir a\u00f0 gera meiri lukku. Og allir syngja me\u00f0 n\u00fana: &#8222;<em>Wos mocht des Edelwei\u00df&#8230;<\/em>&#8220;<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Sv\u00e6\u00f0issj\u00f3nvarp RAI \u00ed Bozen (Bolzano) h\u00e9lt \u00farslitakv\u00f6ld su\u00f0ur-t\u00fdr\u00f3lsku forkeppni Grand Prix der Volksmusik \u00feann 21. ma\u00ed s\u00ed\u00f0astli\u00f0inn \u00ed sm\u00e1b\u00e6num Algund. Bori\u00f0 saman vi\u00f0 svissnesku forkeppnina sem \u00e9g sag\u00f0i fr\u00e1 um daginn var ekki miki\u00f0 um d\u00fdr\u00f0ir \u00ed umb\u00fana\u00f0inum, og ef liti\u00f0 er til fyrri forkeppna RAI \u00ed Su\u00f0ur-T\u00fdr\u00f3l ver\u00f0ur a\u00f0 segjast a\u00f0 n\u00fa er Snorrab\u00fa\u00f0 [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":6,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[14],"tags":[],"class_list":["post-1583","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-volksmusik"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/hjorvar\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1583","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/hjorvar\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/hjorvar\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/hjorvar\/wp-json\/wp\/v2\/users\/6"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/hjorvar\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=1583"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/truflun.net\/hjorvar\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1583\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/hjorvar\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=1583"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/hjorvar\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=1583"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/hjorvar\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=1583"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}