{"id":1882,"date":"2010-11-11T01:27:36","date_gmt":"2010-11-11T00:27:36","guid":{"rendered":"http:\/\/gamla.truflun.net\/hjorvar\/?p=1882"},"modified":"2010-11-11T01:27:36","modified_gmt":"2010-11-11T00:27:36","slug":"opi%c3%b0-bref-til-biskupsstofu-og-adskilna%c3%b0ar-rikis-og-kirkju","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/truflun.net\/hjorvar\/2010\/11\/11\/opi%c3%b0-bref-til-biskupsstofu-og-adskilna%c3%b0ar-rikis-og-kirkju\/","title":{"rendered":"Opi\u00f0 br\u00e9f til Biskupsstofu og A\u00f0skilna\u00f0ar r\u00edkis og kirkju"},"content":{"rendered":"<p>\u00c1g\u00e6tu vi\u00f0takendur.<\/p>\n<p>N\u00fa fyrr \u00ed dag b\u00e1rust m\u00e9r tv\u00f6 br\u00e9f me\u00f0 stuttu millibili, eitt fr\u00e1 Biskupsstofu og anna\u00f0 gegnum s\u00ed\u00f0u og p\u00f3stlista sem \u00e9g er \u201el\u00e6kari\u201d og \u00e1skrifandi a\u00f0 \u00e1 Fasb\u00f3k, um <a title=\"A\u00f0ger\u00f0ir til a\u00f0skilna\u00f0ar r\u00edkis og kirkju\" href=\"http:\/\/www.facebook.com\/group.php?gid=114986448027\">A\u00f0ger\u00f0ir til a\u00f0skilna\u00f0ar r\u00edkis og kirkju<\/a>.<\/p>\n<p>\u00cd br\u00e9finu fr\u00e1 Biskupsstofu sag\u00f0i eftirfarandi:<\/p>\n<blockquote><p>\u201eK\u00e6ri frambj\u00f3\u00f0andi til stj\u00f3rnlaga\u00feings,<\/p>\n<p>Biskupsstofa vill stu\u00f0la a\u00f0 uppl\u00fdstri umr\u00e6\u00f0u um skipan kirkjum\u00e1la \u00ed  stj\u00f3rnarskr\u00e1 \u00cdslands en ein grein hennar fjallar s\u00e9rstaklega um  \u00fej\u00f3\u00f0kirkjuna.<\/p>\n<p>Frambj\u00f3\u00f0endur til stj\u00f3rnlaga\u00feings, sem \u00e6tla\u00f0 er a\u00f0 a\u00f0 endursko\u00f0a  stj\u00f3rnarsk\u00e1na, hafa gefi\u00f0 mismiklar uppl\u00fdsingar um stefnum\u00e1l s\u00edn og  \u00e1herslur svo sem um afst\u00f6\u00f0u s\u00edna til sambands r\u00edkis og \u00fej\u00f3\u00f0kirkju.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 hl\u00fdtur \u00fev\u00ed a\u00f0 skipta kirkjuna og s\u00f6fnu\u00f0i landsins m\u00e1li hver afsta\u00f0a  einstakra frambj\u00f3\u00f0enda er til \u00feessarar greinar og eins hvernig \u00feeir  vilja a\u00f0 sambandi r\u00edkis og \u00fej\u00f3\u00f0kirkju s\u00e9 h\u00e1tta\u00f0. \u00dea\u00f0 skiptir raunar m\u00e1li  fyrir \u00f6ll tr\u00faf\u00e9l\u00f6g \u00ed landinu.<\/p>\n<p>Biskupsstofa fer \u00feess visamlegast \u00e1 leit vi\u00f0 \u00feig a\u00f0 \u00fe\u00fa gerir \u00ed stuttu  m\u00e1li grein fyrir afst\u00f6\u00f0u \u00feinni til 62. gr. stj\u00f3rnarskr\u00e1rinnar sem  hlj\u00f3\u00f0ar svo:<\/p>\n<p>\u201eHin evangeliska l\u00faterska kirkja skal vera \u00fej\u00f3\u00f0kirkja \u00e1 \u00cdslandi, og skal  r\u00edkisvaldi\u00f0 a\u00f0 \u00fev\u00ed leyti sty\u00f0ja hana og vernda. Breyta m\u00e1 \u00feessu me\u00f0  l\u00f6gum.\u201d<\/p>\n<p>1. Telur \u00fe\u00fa \u00fe\u00f6rf \u00e1 a\u00f0 breyta \u00feessari grein? Ef svo er hvernig?<br \/>\n2. Hver er afsta\u00f0a \u00fe\u00edn til n\u00faverandi sambands r\u00edkis og \u00fej\u00f3\u00f0kirkju?<\/p>\n<p>Sv\u00f6r frambj\u00f3\u00f0enda ver\u00f0a birt \u00e1 vef \u00fej\u00f3\u00f0kirkjunnar, <a href=\"http:\/\/kirkjan.is\/\" target=\"_blank\">kirkjan.is<\/a>, eftir \u00fev\u00ed sem \u00feau berast og kynnt fj\u00f6lmi\u00f0lum.<\/p>\n<p>K\u00f6nnuninni er svara\u00f0 \u00e1 vefnum og vi\u00f0 munum senda hana \u00fat \u00e1 morgun. Ef \u00fe\u00fa hefur frekari spurningar um \u00feetta, vilt ekki svara k\u00f6nnuninni  e\u00f0a f\u00e1 frekari skeyti fr\u00e1 okkur bi\u00f0jum vi\u00f0 \u00feig a\u00f0 l\u00e1ta okkur vita me\u00f0  t\u00f6lvup\u00f3sti &#8230;\u201c<\/p><\/blockquote>\n<p>Sko\u00f0anir m\u00ednar \u00e1 \u00fev\u00ed hvort skilja eigi a\u00f0 r\u00edki og kirkju eru \u00ed sj\u00e1lfu s\u00e9r ekkert leyndarm\u00e1l. \u00de\u00e6r m\u00e1 me\u00f0al annars sj\u00e1 \u00e1<a title=\"Uppl\u00fdsingar \u00e1 kosningavef d\u00f3msm\u00e1lar\u00e1\u00f0uneytis\" href=\"http:\/\/www.kosning.is\/stjornlagathing\/frambjodendur\/#q=3502\"> kosningavef d\u00f3msm\u00e1lar\u00e1\u00f0uneytisins<\/a> (\u201e\u00c9g er hlynntur a\u00f0skilna\u00f0i r\u00edkis og kirkju\u2026\u201c), \u00e1 <a title=\"Kosningavefur Svipunnar\" href=\"http:\/\/www.svipan.is\/?p=13965\">kosningavef Svipunnar<\/a> (\u201e\u00c9g er hlynntur a\u00f0skilna\u00f0i r\u00edkis og kirkju\u2026\u201c), \u00e1 <a title=\"K\u00f6nnun DV\" href=\"http:\/\/www.dv.is\/stjornlagathing\/hjorvar-petursson\/konnun\">kosningavef DV<\/a> (\u201eSp: Ertu hlynnt(ur) e\u00f0a andv\u00edg(ur) \u00fev\u00ed a\u00f0 hafa \u00e1kv\u00e6\u00f0i um \u00fej\u00f3\u00f0kirkju         \u00e1 \u00cdslandi \u00ed stj\u00f3rnarskr\u00e1nni? &#8211; Sv: Frekar andv\u00edg(ur)\u201c) og \u00ed bloggi sem birtist \u00feann \u00e1ttunda n\u00f3vember s\u00ed\u00f0astli\u00f0inn, \u201e<a title=\"Var\u00fa\u00f0 h\u00f3fsemi\" href=\"http:\/\/gamla.truflun.net\/hjorvar\/2010\/11\/08\/um-thjodfund-kirkjumal-og-sitthvad-smalegt\/\">Um \u00fej\u00f3\u00f0fund, kirkjum\u00e1l og sitthva\u00f0 sm\u00e1legt<\/a>\u201c \u00fear sem \u00e9g sag\u00f0i me\u00f0al annars:<\/p>\n<blockquote><p>\u201e&#8230; \u00e9g er hlynntur a\u00f0skilna\u00f0i r\u00edkis og kirkju. En \u00fer\u00e1tt fyrir \u00fea\u00f0 \u2013 og  \u00fer\u00e1tt fyrir a\u00f0 \u00dej\u00f3\u00f0fundur vir\u00f0ist hafa sent ansi sk\u00fdr skilabo\u00f0 um hi\u00f0  sama \u2013 \u00fe\u00e1 er \u00feetta ekkert sem \u00e9g set \u00e1 oddinn.Ef f\u00f3lki finnst mj\u00f6g mikilv\u00e6gt a\u00f0 r\u00edki og kirkja ver\u00f0i a\u00f0skilin \u00ed  stj\u00f3rnarskr\u00e1, \u00fe\u00e1 \u00e1 \u00fea\u00f0 a\u00f0 kj\u00f3sa einstaklinga sem finnst \u00fea\u00f0 mikilv\u00e6gt.  Einnig, \u00feeir sem vilja vinna allt hva\u00f0 \u00feeir geta til a\u00f0 halda \u00ed s\u00edna  g\u00f6mlu g\u00f3\u00f0u \u00fej\u00f3\u00f0kirkju ver\u00f0a a\u00f0 kj\u00f3sa s\u00e9r fulltr\u00faa til a\u00f0 gera akk\u00farat  \u00fea\u00f0. Sj\u00e1lfum finnst m\u00e9r mikilv\u00e6gast a\u00f0 s\u00e1tt n\u00e1ist um m\u00e1li\u00f0 \u2013 a\u00f0 \u00feetta  m\u00e1l ver\u00f0i ekki \u00e1steytingarsteinninn fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 allt fari \u00ed vaskinn.<\/p>\n<p>Ef ekki n\u00e6st brei\u00f0 s\u00e1tt um afn\u00e1m \u00e1kv\u00e6\u00f0a um \u00fej\u00f3\u00f0kirkju \u00far  stj\u00f3rnarskr\u00e1, \u00fe\u00e1 \u00e6tti a\u00f0 vera h\u00e6gt a\u00f0 setja \u00e1kv\u00e6\u00f0i sem seg\u00f0i eitthva\u00f0 \u00e1  \u00fe\u00e1 lei\u00f0 a\u00f0 al\u00feingi s\u00e9 heimilt a\u00f0 setja l\u00f6g um \u00fej\u00f3\u00f0kirkju \u2013 a\u00f0 leyfilegt  s\u00e9 a\u00f0 hafa hana samkv\u00e6mt stj\u00f3rnarskr\u00e1, \u00fe\u00f3tt \u00fatf\u00e6rsla hennar s\u00e9 ekki  bundin \u00ed stj\u00f3rnarskr\u00e1na sj\u00e1lfa.<\/p>\n<p>Sj\u00e1lfur held \u00e9g a\u00f0 a\u00f0skilna\u00f0urinn muni ver\u00f0a, einhvernt\u00edma. En \u00feetta by\u00f0i \u00fe\u00e1 upp \u00e1 meira \u00ferepaskipt a\u00f0l\u00f6gunarferli.\u201c<\/p><\/blockquote>\n<p>Gl\u00f6ggur lesandi hn\u00fdtti \u00fat\u00ed or\u00f0alag mitt um a\u00f0 setja \u201e\u00e1 oddinn,\u201c og r\u00e9ttilega. \u00dea\u00f0 var kau\u00f0slega or\u00f0a\u00f0 hj\u00e1 m\u00e9r (m\u00e1 e.t.v. skrifa \u00e1 pers\u00f3nulegt reynsluleysi mitt \u00ed p\u00f3lit\u00edk) og \u00e9g hef strengt sj\u00e1lfum m\u00e9r d\u00fdran ei\u00f0 a\u00f0 nota \u00feetta or\u00f0alag aldrei framar. \u00c9g reyndi a\u00f0 \u00fatsk\u00fdra betur hva\u00f0 \u00e9g v\u00e6ri a\u00f0 fara \u00ed athugasemda\u00fer\u00e6\u00f0inum \u00ed framhaldinu:<\/p>\n<blockquote><p>\u201eM\u00e9r finnst mikilv\u00e6gt a\u00f0 ger\u00f0ar ver\u00f0i breytingar \u00e1 stj\u00f3rnkerfi r\u00edkisins  til hins betra, og a\u00f0 um \u00fe\u00e6r n\u00e1ist brei\u00f0 samsta\u00f0a \u00e1 stj\u00f3rnlaga\u00feingi svo  al\u00feingi hafi s\u00ed\u00f0ur umbo\u00f0 til a\u00f0 krukka \u00ed breytingarnar eftir s\u00ednu h\u00f6f\u00f0i  eftir \u00e1. \u00c9g er l\u00edka hlynntur a\u00f0skilna\u00f0i r\u00edkis og kirkju. Ma\u00f0ur tiltekur  fyrst \u00fea\u00f0 sem sett er \u00e1 oddinn, anna\u00f0 kemur \u00fear \u00e1 eftir. B\u00e6\u00f0i h\u00e9r, \u00e1  Svipunni og annarssta\u00f0ar.<\/p>\n<p>[&#8230;]<\/p>\n<p>En \u00fea\u00f0 stendur sem \u00e9g sag\u00f0i \u00e1\u00f0ur: \u00c9g vil losa tengslin milli r\u00edkis og  kirkju. \u00c9g vil bara gera \u00fea\u00f0 \u00e1 \u00feann h\u00e1tt a\u00f0 sem best s\u00e1tt n\u00e1ist um \u00fea\u00f0,  ef h\u00e6gt er. \u00dea\u00f0 finnst m\u00e9r l\u00edka r\u00edma fullkomlega vi\u00f0 anna\u00f0 sem \u00e9g sag\u00f0i \u00e1  Svipunni.\u201c<\/p><\/blockquote>\n<p>\u00deetta er semsagt \u00fea\u00f0 sem m\u00e9r finnst, fyrst spurt var. \u00dea\u00f0 er ekkert leyndarm\u00e1l. \u00d6llum hlekkjum m\u00e1 s\u00ed\u00f0an fylgja til a\u00f0 ganga \u00far skugga um samhengi\u00f0.<\/p>\n<p>A\u00f0 \u00fev\u00ed s\u00f6g\u00f0u vil \u00e9g tilkynna fulltr\u00faum biskupsstofu a\u00f0 \u00e9g hef alvarlegar efasemdir um a\u00f0 svara spurningunum \u00ed k\u00f6nnun \u00feeirra \u00e1 vefnum<a title=\"kirkjan\" href=\"http:\/\/kirkjan.is\/\"> kirkjan.is<\/a> og mun ekki gera \u00fea\u00f0 nema a\u00f0 vandlega \u00edhugu\u00f0u m\u00e1li. \u00deetta svar er ekki sent me\u00f0 \u00fea\u00f0 fyrir augum. \u00c9g dreg \u00ed efa heilindi \u00feess a\u00f0 \u00fej\u00f3\u00f0kirkjan, sem a\u00f0ili me\u00f0 beina og auglj\u00f3sa hagsmuni af \u00fev\u00ed hver afsta\u00f0a stj\u00f3rnlaga\u00feingmanna til 62. greinar stj\u00f3rnarskr\u00e1rinnar ver\u00f0ur, \u00e6tli s\u00e9r a\u00f0 fara a\u00f0 beita s\u00e9r \u00ed a\u00f0draganda kosninganna.<\/p>\n<p>Svo \u00e9g nefni hli\u00f0st\u00e6\u00f0u: \u00c9g efast um a\u00f0 \u00e9g myndi taka \u00fe\u00e1tt \u00ed k\u00f6nnun \u00e1 vegum L.\u00cd.\u00da. \u00fear sem frambj\u00f3\u00f0endur til stj\u00f3rnlaga\u00feings v\u00e6ru spur\u00f0ir um afst\u00f6\u00f0u \u00feeirra til \u00feess hvort hafa \u00e6tti \u00e1kv\u00e6\u00f0i um n\u00e1tt\u00faruau\u00f0lindir sem \u00fej\u00f3\u00f0areign \u00ed stj\u00f3rnarskr\u00e1nni.<\/p>\n<p>Sem borgari \u00feessa lands hef \u00e9g af \u00feessu \u00e1hyggjur.<\/p>\n<p>\u00de\u00e1 langar mig a\u00f0 taka til umtals br\u00e9fi\u00f0 sem m\u00e9r barst gegnum \u00e1\u00f0urnefnda Fasb\u00f3kars\u00ed\u00f0u um a\u00f0ger\u00f0ir til a\u00f0skilna\u00f0ar r\u00edkis og kirkju, \u00fear sem v\u00edsa\u00f0 var \u00e1 <a title=\"A\u00f0skilna\u00f0ur\" href=\"http:\/\/adskilnadur.is\/\">s\u00ed\u00f0u sem sett hefur veri\u00f0 upp<\/a> me\u00f0 \u00fea\u00f0 fyrir augum a\u00f0 flokka a\u00f0skilna\u00f0arsinnana \u00e1 annan veginn og \u00edhaldsf\u00f3lki\u00f0 \u00e1 hinn. Tilgangur s\u00ed\u00f0unnar er \u00fatlista\u00f0ur skilmerkilega \u00e1 fors\u00ed\u00f0u hennar:<\/p>\n<blockquote><p>\u201e\u00deessarri [svo] vefs\u00ed\u00f0u er \u00e6tla\u00f0 a\u00f0 uppl\u00fdsa kj\u00f3sendur hva\u00f0a frambj\u00f3\u00f0endur til  stj\u00f3rnlaga\u00feings eru a\u00f0skilna\u00f0arsinnar (gr\u00e6ni listinn) og hverjir eru  r\u00edkiskirkjusinnar (rau\u00f0i listinn). Listarnir voru mi\u00f0a\u00f0ir vi\u00f0 opinberar  yfirl\u00fdsingar frambj\u00f3\u00f0enda \u00e1 eftirfarandi vefs\u00ed\u00f0um &#8230;\u201c<\/p><\/blockquote>\n<p>&#8230; og svo er v\u00edsa\u00f0 \u00e1 \u00fe\u00e6r \u00ferj\u00e1r s\u00ed\u00f0ur sem \u00e9g hlekkja\u00f0i \u00e1 og vitna\u00f0i \u00ed undir m\u00e1li m\u00ednu h\u00e9r a\u00f0 framan. \u201e<a title=\"Gr\u00e6nn listi\" href=\"http:\/\/adskilnadur.is\/graeni-listinn\">Gr\u00e6ni listinn<\/a>,\u201c s\u00e1 sem er a\u00f0standendum s\u00ed\u00f0unnar \u00fe\u00f3knanlegur, er kynntur me\u00f0 \u00feessum or\u00f0um:<\/p>\n<blockquote><p>\u201eEftirfarandi frambj\u00f3\u00f0endur eru \u00feeir sem \u00feor\u00f0u a\u00f0 taka sk\u00fdra og opinbera  afst\u00f6\u00f0u ME\u00d0 a\u00f0skilna\u00f0i r\u00edkis og kirkju. \u00a0\u00deeir sem s\u00f6g\u00f0ust vilja  \u201cendursko\u00f0a samband r\u00edkis og kirkju\u201d e\u00f0a eitthva\u00f0 \u00e1l\u00edka tv\u00edst\u00edgandi  or\u00f0alag komust ekki inn \u00e1 listann. Ekki heldur \u00feeir sem vildu l\u00fdsa yfir  pr\u00edvat stu\u00f0iningi [svo] en ekki hafa \u00fea\u00f0 part af opinberri l\u00fdsingu.\u201c<\/p><\/blockquote>\n<p>Kynningin \u00e1 \u201e<a title=\"Rau\u00f0ur listi\" href=\"http:\/\/adskilnadur.is\/raudi-listinn\">Rau\u00f0a listanum<\/a>\u201c er svohlj\u00f3\u00f0andi:<\/p>\n<blockquote><p>\u201eEftirfarandi frambj\u00f3\u00f0endur taka sk\u00fdra og opinbera afst\u00f6\u00f0u GEGN  a\u00f0skilna\u00f0i r\u00edkis og kirkju. Vi\u00f0 m\u00e6lum me\u00f0 a\u00f0 a\u00f0skilna\u00f0arsinna\u00f0ir  kj\u00f3sendur for\u00f0ist \u00fe\u00e1 eins og heitan eldinn.\u201c<\/p><\/blockquote>\n<p>\u00deegar \u00e9g renndi augunum yfir \u00feennan s\u00ed\u00f0ari lista rak \u00e9g \u00fear augun \u00ed nafn frambj\u00f3\u00f0anda n\u00famer 3502, Hj\u00f6rvars P\u00e9turssonar. \u00deegar \u00feessi or\u00f0 eru ritu\u00f0 er \u00fea\u00f0 \u00fear enn.<\/p>\n<p>N\u00fa langar mig a\u00f0 bi\u00f0ja a\u00f0standendur s\u00ed\u00f0unnar <a href=\"http:\/\/adskilnadur.is\/\">adskilnadur.is<\/a> um a\u00f0 uppl\u00fdsa mig um eftirfarandi:<\/p>\n<p>Hva\u00f0 n\u00e1kv\u00e6mlega var \u00fea\u00f0 \u00e1 kynningars\u00ed\u00f0um D\u00f3msm\u00e1lar\u00e1\u00f0uneytis, Svipunnar og DV sem var\u00f0 til \u00feess a\u00f0 \u00fei\u00f0 dr\u00f3gu\u00f0 \u00fe\u00e1 \u00e1lyktun a\u00f0 \u00e9g t\u00e6ki \u201esk\u00fdra og opinbera afst\u00f6\u00f0u GEGN  a\u00f0skilna\u00f0i r\u00edkis og kirkju\u201c og b\u00e6ri \u00fev\u00ed a\u00f0 for\u00f0ast \u201eeins og heitan eldinn\u201c af \u00feeim sem vilja rj\u00fafa tengsl r\u00edkis og kirkju?<\/p>\n<p>\u00c9g get kannski skili\u00f0, \u00ed lj\u00f3si s\u00ed\u00f0ustu bloggf\u00e6rslu minnar um m\u00e1li\u00f0, a\u00f0 ykkur finnist \u00e9g ekki eiga skili\u00f0 a\u00f0 komast \u00ed h\u00f3p \u00feeirra sem eru \u00e1 \u201eGr\u00e6na listanum.\u201c \u00dea\u00f0 er m\u00e9r a\u00f0 meinalausu. En \u00e9g geri m\u00e9r ekki grein fyrir hva\u00f0 \u00ed or\u00f0um m\u00ednum og stefnum\u00e1lum gerir mig a\u00f0 andst\u00e6\u00f0ingi a\u00f0skilna\u00f0ar r\u00edkis og kirkju.<\/p>\n<p>E\u00f0a var \u00feetta kannski bara eitthva\u00f0 kl\u00fa\u00f0ur hj\u00e1 ykkur?<\/p>\n<p>Ef svo er, \u00fe\u00e1 myndi \u00e9g gjarnan \u00feiggja a\u00f0 vera fjarl\u00e6g\u00f0ur af \u201eRau\u00f0a listanum\u201c ykkar vi\u00f0 fyrsta t\u00e6kif\u00e6ri, ef \u00fea\u00f0 v\u00e6ri ekki of mikil fyrirh\u00f6fn. Afs\u00f6kunarbei\u00f0ni v\u00e6ri l\u00edka falleg. Og \u00fei\u00f0 m\u00e6ttu\u00f0 \u00fe\u00e1 l\u00edka renna aftur yfir b\u00e1\u00f0a listana ykkar til \u00f6ryggis og l\u00faslesa fyrirliggjandi g\u00f6gn til a\u00f0 \u00fatiloka a\u00f0 n\u00f6fn einhverra annarra frambj\u00f3\u00f0enda s\u00e9u skrifu\u00f0 \u00fear sem \u00feau eiga ekki a\u00f0 vera. \u00dea\u00f0 er ykkar verk a\u00f0 hreinsa \u00fea\u00f0 upp, ekki \u00feeirra.<\/p>\n<p>Ef, hins vegar, a\u00f0standendum s\u00ed\u00f0unnar finnst mega draga \u00fe\u00e1 \u00e1lyktun af or\u00f0um m\u00ednum a\u00f0 \u00e9g s\u00e9 har\u00f0ur andst\u00e6\u00f0ingur \u00feess a\u00f0 skilja a\u00f0 r\u00edki og kirkju, \u00fe\u00e1 \u00fe\u00e6tti m\u00e9r \u00e1g\u00e6tt a\u00f0 f\u00e1 sk\u00fdran r\u00f6kstu\u00f0ning \u00e1 \u00fev\u00ed me\u00f0 v\u00edsun \u00ed m\u00edn eigin or\u00f0.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 m\u00e1 vera a\u00f0 markmi\u00f0i\u00f0 me\u00f0 listunum s\u00e9 a\u00f0 skipta \u00f6llum frambj\u00f3\u00f0endum \u00ed tv\u00f6 horn, \u00e9g veit \u00fea\u00f0 ekki. A\u00f0 \u00feeir sem ekki l\u00fdsi yfir ein\u00f6r\u00f0um \u00e1setningi til \u00feess a\u00f0 skilja a\u00f0 r\u00edki og kirkju s\u00e9u \u00fearme\u00f0 sj\u00e1lfkrafa \u00e1 m\u00f3ti \u00fev\u00ed. A\u00f0 \u00feetta s\u00e9 \u00e6tla\u00f0 til \u00feess a\u00f0 skilja hafrana fr\u00e1 sau\u00f0unum. S\u00e9 s\u00fa raunin, \u00fe\u00e1 er \u00fea\u00f0 akk\u00farat \u00fea\u00f0 sem m\u00e9r finnst ekki \u00feurfa \u00e1 \u00feetta stj\u00f3rnlaga\u00feing. Megn and\u00fa\u00f0 m\u00edn \u00e1 sl\u00edkri flokkadr\u00e1ttahugsun og \u00feverhausamennsku var einmitt ein af h\u00f6fu\u00f0\u00e1st\u00e6\u00f0um \u00feess a\u00f0 \u00e9g bau\u00f0 mig fram til a\u00f0 byrja me\u00f0. Ef svo, \u00fe\u00e1 hafi\u00f0 sk\u00f6mm m\u00edna fyrir.<\/p>\n<p>\u00c9g hef reyndar litlu minni \u00edmugust \u00e1 \u00feessu framtaki ykkar en \u00fev\u00ed sem \u00e9g fr\u00e9tti af me\u00f0 br\u00e9finu fr\u00e1 Biskupsstofu. \u00de\u00f3tt hugsunin a\u00f0 baki s\u00e9 vir\u00f0ingarver\u00f0ari.<\/p>\n<p>A\u00f0 lokum vil \u00e9g benda fulltr\u00faum Biskupsstofu \u00e1 a\u00f0 \u00feeir geti spara\u00f0 s\u00e9r \u00f3maki\u00f0 af k\u00f6nnun sinni og \u00ed sta\u00f0inn einfaldlega sent \u00fe\u00e1 sem vilja l\u00e1ta v\u00edsa s\u00e9r \u00ed r\u00e9tta \u00e1tt inn \u00e1 s\u00ed\u00f0u A\u00f0skilna\u00f0ar r\u00edkis og kirkju, me\u00f0 \u00f6fugum formerkjum. \u00c6ttu \u00fe\u00e1 b\u00e1\u00f0ir a\u00f0 geta una\u00f0 vi\u00f0 sitt.<\/p>\n<p>Me\u00f0 vir\u00f0ingu og \u00fe\u00f6kk,<\/p>\n<p>Hj\u00f6rvar P\u00e9tursson, einnig \u00feekktur sem 3502.<\/p>\n<p>Sent \u00c1rna Svani Dan\u00edelssyni og Steinunni Bj\u00f6rnsd\u00f3ttur (fyrir h\u00f6nd Biskupsstofu) og Reyni Erni (f\u00f6\u00f0urnafn \u00f3\u00feekkt, fyrir h\u00f6nd A\u00f0skilna\u00f0ar r\u00edkis og kirkju). Einnig birt \u00e1 bloggs\u00ed\u00f0u minni (http:\/\/gamla.truflun.net\/hjorvar) og \u00ed greinasafni m\u00ednu \u00e1 stj\u00f3rnlaga\u00feingsvef dv.is.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00c1g\u00e6tu vi\u00f0takendur. N\u00fa fyrr \u00ed dag b\u00e1rust m\u00e9r tv\u00f6 br\u00e9f me\u00f0 stuttu millibili, eitt fr\u00e1 Biskupsstofu og anna\u00f0 gegnum s\u00ed\u00f0u og p\u00f3stlista sem \u00e9g er \u201el\u00e6kari\u201d og \u00e1skrifandi a\u00f0 \u00e1 Fasb\u00f3k, um A\u00f0ger\u00f0ir til a\u00f0skilna\u00f0ar r\u00edkis og kirkju. \u00cd br\u00e9finu fr\u00e1 Biskupsstofu sag\u00f0i eftirfarandi: \u201eK\u00e6ri frambj\u00f3\u00f0andi til stj\u00f3rnlaga\u00feings, Biskupsstofa vill stu\u00f0la a\u00f0 uppl\u00fdstri umr\u00e6\u00f0u um [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":6,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[12],"tags":[],"class_list":["post-1882","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-stjornlagaing"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/hjorvar\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1882","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/hjorvar\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/hjorvar\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/hjorvar\/wp-json\/wp\/v2\/users\/6"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/hjorvar\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=1882"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/truflun.net\/hjorvar\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1882\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/hjorvar\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=1882"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/hjorvar\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=1882"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/hjorvar\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=1882"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}