{"id":2289,"date":"2012-02-11T21:09:33","date_gmt":"2012-02-11T20:09:33","guid":{"rendered":"http:\/\/gamla.truflun.net\/hjorvar\/?p=2289"},"modified":"2012-02-11T21:09:33","modified_gmt":"2012-02-11T20:09:33","slug":"songvakeppni-sjonvarpsins-urslit-i-beinni","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/truflun.net\/hjorvar\/2012\/02\/11\/songvakeppni-sjonvarpsins-urslit-i-beinni\/","title":{"rendered":"S\u00f6ngvakeppni Sj\u00f3nvarpsins: \u00darslit! \u00cd beinni!!!"},"content":{"rendered":"<p>Ji \u00fea\u00f0eru bara \u00farslit \u00ed kv\u00f6ld. \u00deetta ver\u00f0ur aldeilis spennandi. Og allt \u00ed beinni \u00fatsendingu.<\/p>\n<p>Nei \u00ed alv\u00f6runni. Sj\u00f6 l\u00f6g, misg\u00f3\u00f0 einsog gengur, en ekkert \u00feeirra afspyrnusl\u00e6mt. Og stefnir a\u00f0 \u00f3s\u00e9\u00f0u \u00ed a\u00f0 \u00feetta fari alltsaman \u00e1g\u00e6tlega, hvernig sem fer.<\/p>\n<p>\u00c9g dunda\u00f0i m\u00e9r vi\u00f0 \u00fea\u00f0 \u00ed dag a\u00f0 telja saman hva\u00f0a l\u00f6g hef\u00f0u fengi\u00f0 mesta spilun \u00ed <a title=\"\u00fe\u00fa + r\u00f6r = \u00fej\u00f3nvarp\" href=\"http:\/\/www.youtube.com\/\">\u00dej\u00f3nvarpinu<\/a>. Eins og f\u00f3lk gerir og er bara alveg fullkomlega e\u00f0lilegt. Ekkert bogi\u00f0 vi\u00f0 \u00fea\u00f0. Og. samkv\u00e6mt lauslegri k\u00f6nnun \u00e6ttu str\u00e1karnir \u00ed Bl\u00e1um \u00d3pal a\u00f0 r\u00falla \u00feessu upp. M\u00e9r s\u00fdnist sem \u00fea\u00f0 s\u00e9 b\u00fai\u00f0 a\u00f0 gl\u00e1pa helmingi meira \u00e1 \u00fe\u00e1 helduren \u00feau Gretu og J\u00f3nsa. Reg\u00edna kom n\u00e6st og svo Magni eitthva\u00f0 \u00fear fyrir aftan, og restin me\u00f0 enn minni athygli en \u00fea\u00f0.<\/p>\n<p>Sj\u00e1lfur held \u00e9g a\u00f0 slagurinn ver\u00f0i \u00e1 milli Gretu og J\u00f3nsa, Magna og str\u00e1kanna \u00ed Bl\u00e1um \u00d3pal. \u00dea\u00f0 vinnur d\u00e1l\u00edti\u00f0 gegn henni Gretu a\u00f0 eiga tv\u00f6 g\u00f3\u00f0 (og d\u00e1l\u00edti\u00f0 svipu\u00f0) l\u00f6g \u00e1 \u00farslitakv\u00f6ldinu. Ef \u00fe\u00e6r Hei\u00f0a og Gu\u00f0r\u00fan \u00c1rdn\u00fd stela ekki of miklu af athyglinni \u00e6ttu Greta og J\u00f3nsi samt vel a\u00f0 geta unni\u00f0 \u00feetta. \u00c9g vona \u00fea\u00f0 bara, held \u00e9g. Rokkball\u00f6\u00f0uslagurinn stendur \u00e1 milli \u00feeirra og Magna. Lagi\u00f0 hans er \u00fea\u00f0 besta sem hann hefur veri\u00f0 sendur me\u00f0 inn\u00ed S\u00f6ngvakeppni Sj\u00f3nvarpsins. Og \u00fea\u00f0 er meira\u00f0segja bara b\u00fdsna gott. \u00dea\u00f0 g\u00e6ti vel unni\u00f0 l\u00edka. Str\u00e1karnir \u00ed Bl\u00e1um \u00d3pal hafa \u00fea\u00f0 me\u00f0 s\u00e9r a\u00f0 vera me\u00f0 eina hressa stu\u00f0lagi\u00f0 \u00ed kv\u00f6ld. Og gegn \u00feeirri hef\u00f0 sem hefur m\u00f3tast \u00ed kringum hress stu\u00f0l\u00f6g \u00ed S\u00f6ngvakeppni Sj\u00f3nvarpsins, \u00fe\u00e1 er \u00fea\u00f0 alveg lj\u00f3mandi f\u00ednt. Og \u00feeir sungu \u00fea\u00f0 ekkert svo illa \u00e1 undankv\u00f6ldinu. M\u00e9r fyndist \u00fea\u00f0 s\u00ed\u00f0ri kostur en hin tv\u00f6, en samt alveg \u00ed g\u00f3\u00f0u lagi. Ef \u00feannig f\u00e6ri.<\/p>\n<p>J\u00e6ja. N\u00fa er \u00fea\u00f0 bara barna\u00fe\u00e1tturinn Merl\u00edn, me\u00f0an vi\u00f0 b\u00ed\u00f0um. Hva\u00f0 er eiginlega m\u00e1li\u00f0 me\u00f0 a\u00f0 s\u00fdna \u00feetta klukkan h\u00e1lf\u00e1tta \u00e1 laugardagskv\u00f6ldi? Er \u00e9g or\u00f0inn svona gamall, e\u00f0a er \u00feetta kannski ekki alveg sni\u00f0ugasta sj\u00f3nvarpsefni\u00f0 til a\u00f0 sameina fj\u00f6lskylduna vi\u00f0 imbakassann?<\/p>\n<p>Hva\u00f0 er or\u00f0i\u00f0 af <a title=\"Kennslu\u00fe\u00e1ttur \u00ed uppeldi\" href=\"http:\/\/www.youtube.com\/watch?v=4fZ74s1kd64&amp;feature=related\">Fyrirmyndarf\u00f6\u00f0ur<\/a> \u00e6sku minnar?<\/p>\n<p>Me\u00f0an vi\u00f0 b\u00ed\u00f0um, er h\u00e6gt a\u00f0 \u00feegja um st\u00f3ra Kristalhallarm\u00e1li\u00f0? \u00c9g veit ekki alveg hva\u00f0 m\u00e9r finnst. \u00c9g skil \u00e6singinn \u00ed honum Palla \u00d3skari afskaplega vel; \u00e9g er bara ekki sannf\u00e6r\u00f0ur um a\u00f0 \u00fea\u00f0 a\u00f0 segja sig fr\u00e1 keppni s\u00e9 sj\u00e1lfkrafa \u00fea\u00f0 r\u00e9tta a\u00f0 gera \u00ed st\u00f6\u00f0unni.<\/p>\n<p>N\u00fa hef \u00e9g ekki sett mig inn\u00ed \u00feetta alltof n\u00e1i\u00f0. \u00de\u00f3 er lj\u00f3st a\u00f0 f\u00f3lk hefur veri\u00f0 bori\u00f0 \u00fat og fari\u00f0 illa me\u00f0 \u00fea\u00f0. Tvennum s\u00f6gum fer af \u00fev\u00ed hversu beint \u00fea\u00f0 tengist \u00fev\u00ed a\u00f0 veri\u00f0 er a\u00f0 reisa h\u00f6ll utanum s\u00f6ngvakeppnina.<\/p>\n<p>\u00c6, \u00e9g veit \u00fea\u00f0 ekki. \u00dea\u00f0 er h\u00e6gt a\u00f0 breg\u00f0ast vi\u00f0 \u00feessu \u00e1 svo marga vegu sem v\u00e6ru bara hr\u00e6sni. Eitthva\u00f0 er sj\u00e1lfsagt a\u00f0 gera. En a\u00f0 h\u00e6tta vi\u00f0 er ekkert endilega \u00fea\u00f0 r\u00e9tta. Tala n\u00fa ekki um a\u00f0 halda s\u00edna eigin keppni me\u00f0 g\u00f3\u00f0a f\u00f3lkinu og vinum okkar \u00e1 Nor\u00f0url\u00f6ndum. M\u00e9r finnst \u00fea\u00f0, afsaki\u00f0i, bara anga af Slavaford\u00f3mum. Svona, &#8222;\u00fei\u00f0 eru\u00f0 b\u00fain a\u00f0 ey\u00f0ileggja keppnina okkar og n\u00fa t\u00f6kum vi\u00f0 hana til baka&#8220; f\u00edlingur.<\/p>\n<p>En \u00fea\u00f0 er kannski bara \u00e9g.<\/p>\n<p>Ooooog vi\u00f0 erum byrju\u00f0. Hera Bj\u00f6rk tekur Evr\u00f3visj\u00f3nsyrpu: Serbneska lagi\u00f0 Molitva (e\u00f0a e-\u00f0 svolei\u00f0is) hennar, \u00fearna, Dijon. E\u00f0a, er h\u00e6gt a\u00f0 tala um syrpu \u00feegar l\u00f6gin eru bara tv\u00f6? Hva\u00f0 segja or\u00f0sifjarnar?<\/p>\n<p>\u00c1 \u00e9g a\u00f0 tala um kj\u00f3lana og svolei\u00f0is? \u00c6, \u00e9g veit ekki. J\u00fa au\u00f0vita\u00f0. Hva\u00f0 er h\u00fan Brynja me\u00f0 um h\u00e1lsinn?! Og hvar \u00ed andskotanum eru eiginlega Palla\u00e9tturnar?!!!<\/p>\n<p>Noh. Gr\u00e6na herbergi\u00f0 bara gr\u00e6nt og alltsaman. \u00dea\u00f0 munar ekki um \u00fea\u00f0.<\/p>\n<p>J\u00e6ja, \u00fe\u00e1 eru \u00fea\u00f0 \u00fe\u00e6r Hei\u00f0a og Gu\u00f0r\u00fan \u00c1rdn\u00fd me\u00f0 &#8222;Aldrei sleppir m\u00e9r.&#8220; \u00dea\u00f0 ver\u00f0ur spennandi a\u00f0 sj\u00e1 hvort \u00fe\u00e6r ver\u00f0i aftur \u00ed hofgy\u00f0judressunum. Og hvort Hei\u00f0a &#8222;kafnar \u00far g\u00e6sah\u00fa\u00f0&#8220; vi\u00f0 flutninginn. Sj\u00e1lfum finnst m\u00e9r \u00feetta \u00fea\u00f0 s\u00ed\u00f0ra af l\u00f6gunum hennar Gretu Sal\u00f3me. En \u00e1g\u00e6tt lag samt.<\/p>\n<p>J\u00e1, \u00fea\u00f0 eru hofgy\u00f0judressin. Amb\u00e1ttirnar \u00ed bakr\u00f6ddunum reyndar komnar \u00ed pils. Annars afskaplega \u00e1g\u00e6tt. \u00deetta ver\u00f0ur sennilega aldrei lagi\u00f0 sem vinnur &#8212; st\u00f3ra spurningin hva\u00f0 \u00feetta stelur miklu fr\u00e1 hinu laginu hennar Gretu Sal\u00f3mear.<\/p>\n<p>Og \u00fe\u00e1 er Magni m\u00e6ttur. Er b\u00fai\u00f0 a\u00f0 taka saman t\u00f6lfr\u00e6\u00f0i um \u00fea\u00f0 hvort a\u00f0 slott n\u00famer tv\u00f6 s\u00e9 sama b\u00f6lvun \u00ed heimakeppninni og \u00ed Evr\u00f3visj\u00f3nkeppninni sj\u00e1lfri? Ma\u00f0ur veltir \u00fev\u00ed fyrir s\u00e9r&#8230; en hann er hress og fyndinn gaur, hann Magni. \u00c9g s\u00e1 \u00e1 bi\u00f0r\u00f6\u00f0inni \u00ed B\u00f3nus a\u00f0 hann og Eyr\u00fan eru \u00e1 fors\u00ed\u00f0u Vikunnar. &#8222;Tapa\u00f0i \u00e1ttum eftir Rock Star.&#8220; Synd a\u00f0 hafa ekki lesi\u00f0 \u00feetta.<\/p>\n<p>Myndastyttueffekt \u00e1 g\u00edtarleikurunum \u00ed upphafi. \u00c9\u00e9\u00e9\u00e9veitekki. En hann syngur \u00feetta vel, str\u00e1kurinn. Og V\u00d3! bara tekur heddsetti\u00f0 \u00far eyranu og alltsaman. \u00c1h\u00e6ttuatri\u00f0i \u00ed beinni.<\/p>\n<p>&#8222;Hugarr\u00f3&#8220; er gott lag. Besta lag sem Magni hefur veri\u00f0 sendur me\u00f0 \u00ed s\u00f6ngvakeppnina. Og \u00fe\u00f3tt hann Sveinn R\u00fanar eigi tv\u00f6 l\u00f6g \u00ed keppninni \u00fe\u00e1 eru \u00feau \u00fea\u00f0 \u00f3l\u00edk a\u00f0 \u00feau eru sennilega ekki miki\u00f0 a\u00f0 b\u00edtast um s\u00f6mu atkv\u00e6\u00f0in. Hann \u00e1 g\u00f3\u00f0an s\u00e9ns, hann Magni.<\/p>\n<p>\u00de\u00e1 er \u00fea\u00f0 hitt lagi\u00f0 hans Sveins R\u00fanars, &#8222;Stund me\u00f0 \u00fe\u00e9r.&#8220; \u00c9g ver\u00f0 a\u00f0 segja a\u00f0 \u00e9g var ekki alveg sannf\u00e6r\u00f0ur eftir flutninginn \u00e1 forkv\u00f6ldinu. Sj\u00e1um til n\u00fana.<\/p>\n<p>P\u00e1ll \u00d3skar me\u00f0 \u00f3l\u00e9ttut\u00f6lfr\u00e6\u00f0ina \u00e1 t\u00e6ru. H\u00fan R\u00f3sa Birgitta vinnur mig ekki alveg \u00e1 sitt band sem s\u00f6ngkona. En miki\u00f0 \u00f3skaplega er h\u00fan falleg frumbyrja. Nei \u00f3kei, \u00feetta er miklu betur lukka\u00f0ur flutningur en \u00e1 forkv\u00f6ldinu. \u00c9g fer a\u00f0 ver\u00f0a p\u00ednu hrifinn af \u00feessu. Eiginlega bara mj\u00f6g hrifinn. E\u00f0a kannski er \u00fea\u00f0 bara bumban og netatoppurinn.<\/p>\n<p>J\u00e6ja, \u00fe\u00e1 er \u00fea\u00f0 flippn\u00famer kv\u00f6ldsins. N\u00fa hneigist \u00e9g til a\u00f0 vera svag fyrir flippu\u00f0um atri\u00f0um: Botnle\u00f0ju, Hvanndalsbr\u00e6\u00f0rum. En \u00e9g var ekkert yfir mig hrifinn af Simba og Hr\u00fatspungunum \u00fearna um daginn. \u00dea\u00f0 vanta\u00f0i eitthva\u00f0. Meira \u00f6ryggi, til d\u00e6mis. Og nokkra sentimetra ne\u00f0anundir fors\u00f6ngvarann. \u00deeir byrja d\u00e1l\u00edti\u00f0 falskir. Og ekki alveg \u00e1 slaginu. Farnir a\u00f0 syngja saman \u00ed erindinu. \u00c6, einhvernveginn gerir \u00fea\u00f0 \u00feetta alltsaman bara enn l\u00edkara <a title=\"Vont flipp\" href=\"http:\/\/www.youtube.com\/watch?v=59kq2-mQV-k\">port\u00fagalska flippn\u00famerinu<\/a> fr\u00e1 \u00ed fyrra. \u00dea\u00f0 er eiginlega fyrsta krafa \u00e1 flippn\u00famer a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 virkilega flippa\u00f0. Ef \u00fea\u00f0 n\u00e6st ekki almennilega, \u00fe\u00e1 bara, tjah, \u00fe\u00e1 er \u00fea\u00f0 ekki alveg n\u00f3gu gott.<\/p>\n<p>Noh. T\u00e9kknesku klaufab\u00e1r\u00f0arnir \u00e1 bor\u00f0um \u00ed gr\u00e6na herberginu. \u00c9g vil heyra s\u00f6guna um \u00fea\u00f0.<\/p>\n<p>Ja miki\u00f0 sem hann Sigtryggur Baldursson er n\u00fa alltaf heimilislegur.<\/p>\n<p>\u00de\u00e1 er \u00fea\u00f0 h\u00fan Reg\u00edna og &#8222;Hjarta\u00f0 brennur.&#8220; Og. loksins. eru. Palla\u00e9ttur. Gullsk\u00f3r og vindv\u00e9l. \u00c9g hef ekki s\u00e9\u00f0 svona hressilega notkun \u00e1 vindv\u00e9l s\u00ed\u00f0an Eyvi s\u00f6ng &#8222;\u00c9g er vindurinn sem \u00fe\u00fdtur&#8220; h\u00e9rna um \u00e1ri\u00f0.<\/p>\n<p>\u00deess m\u00e1 annars geta a\u00f0 &#8222;Hjarta\u00f0 brennur&#8220; er fyrsta lagi\u00f0 \u00ed s\u00f6ngvakeppninni sem er sami\u00f0 af samnorr\u00e6nni nefnd. H\u00fan var skipu\u00f0 Sv\u00edum a\u00f0 \u00feremur fimmtu. Og, \u00e6, \u00e9g veit \u00fea\u00f0 ekki. \u00deetta er \u00f3ttalega s\u00e6nskt eitthva\u00f0, finnst m\u00e9r. Og sami\u00f0 af nefnd. En h\u00fan ger\u00f0i \u00feetta vel stelpan, o seisei j\u00e1.<\/p>\n<p>\u00de\u00e1 eru \u00fea\u00f0 hressu str\u00e1karnir \u00ed Bl\u00e1um \u00d3pal. N\u00fa er \u00e9g b\u00fainn a\u00f0 tala vel um \u00feetta lag, og \u00fe\u00e1 vil \u00e9g bara segja strax a\u00f0 &#8222;Stattu upp fyrir sj\u00e1lfum s\u00e9r&#8220; er p\u00ednlegasti texti sem heyrst hefur \u00ed gervalli Evr\u00f3visj\u00f3ns\u00f6gu \u00cdslands fr\u00e1 upphafi. Evver.<\/p>\n<p>\u00c9g er svag fyrir austur-berl\u00ednska gangbrautarkarlinum. Og \u00fea\u00f0 er \u00e1n\u00e6gjuleg tilbreyting a\u00f0 heyra unga str\u00e1ka sem ekki syngja beinl\u00ednis illa. \u00c9g er samt ekki alveg a\u00f0 kaupa bl\u00e1gr\u00e1a Lumberdjakkl\u00fakki\u00f0. Hvar eru Hawaiiskyrturnar? \u00cd \u00fea\u00f0 heila teki\u00f0: Hresst og vel flutt lag, ef ekki \u00fea\u00f0 merkilegasta fr\u00e1 upphafi Evr\u00f3visj\u00f3n. \u00c9g fer ekki a\u00f0 grenja ofan\u00ed glasi\u00f0 mitt \u00fe\u00f3tt \u00feetta stingi s\u00e9r fram\u00far \u00feeim Gretu\/J\u00f3nsa og Magna.<\/p>\n<p>Einsog konan m\u00edn sag\u00f0i um hana Gretu Sal\u00f3me: H\u00fan er me\u00f0 munninn fullan af t\u00f6nnum. Afskaplega fallegum t\u00f6nnum og hv\u00edtum, vissulega. En munnurinn \u00e1 henni er fullur af \u00feeim. Og hann er \u00fe\u00f3 ekki l\u00edtill. Ji hva\u00f0 \u00feetta er svo fallegur kj\u00f3ll. H\u00fan er a\u00f0 stela hugmynd sem kvikna\u00f0i \u00e1 milli okkar hj\u00f3nanna einusinni eftir a\u00f0 vi\u00f0 vorum b\u00fain a\u00f0 kaupa okkur Volkstrachten \u00fearna um \u00e1ri\u00f0: \u00dea\u00f0 \u00fearf a\u00f0 h\u00e6pa upp \u00f3d\u00fdrari og k\u00fala\u00f0ri \u00fatg\u00e1fu af \u00edslenska \u00fej\u00f3\u00f0b\u00faningnum. Og n\u00fana er h\u00fan til. H\u00fan er \u00e1 Eldborgarsvi\u00f0inu \u00ed H\u00f6rpu.<\/p>\n<p>\u00deetta er eiginlega bara d\u00e1l\u00edti\u00f0 \u00f3ge\u00f0slega flott. \u00c9g held me\u00f0 \u00feessu. \u00deetta gerir allt \u00fea\u00f0 r\u00e9tt me\u00f0 \u00fej\u00f3\u00f0lega v\u00e6bi\u00f0 sem Simbi og Hr\u00fatspungarnir kl\u00fa\u00f0ru\u00f0u fyrr \u00ed kv\u00f6ld.<\/p>\n<p>Hei, h\u00f6fundur &#8222;Stattu upp&#8220; me\u00f0 annan klaufab\u00e1r\u00f0inn \u00ed Gr\u00e6na herberginu. Hver er sagan? HVEEER EEER SAAAGAAAN?!!!\u00a0 Fokk, hvernig \u00ed helv\u00edtinu er h\u00e6gt a\u00f0 tala vi\u00f0 mann me\u00f0 Nap\u00f3le\u00f3nshatt \u00e1 hausnum og spyrja hann EKKI afhverju hann s\u00e9 me\u00f0 t\u00e9kkneska tuskud\u00fakku \u00ed fanginu? Brynja, ertu ekki starfi \u00fe\u00ednu vaxin?!<\/p>\n<p>Greiningardeildin leggst yfir t\u00f3nlistars\u00f6gu Aserb\u00e6sjan. Og \u00feykir m\u00e9r h\u00fan \u00f6ll hin fr\u00f3\u00f0legasta. \u00c9g vil f\u00e6ra til b\u00f3kar a\u00f0 \u00e9g hef alltaf haft gaman af Evr\u00f3visj\u00f3nframl\u00f6gum Aserb\u00e6sjana. Tr\u00fa stor\u00ed. \u00dea\u00f0 er h\u00e6gt a\u00f0 l\u00faslesa bakklogginn minn \u00fev\u00ed til sta\u00f0festingar.<\/p>\n<p>Noh. P\u00e1ll \u00d3skar me\u00f0 mannr\u00e9ttindam\u00f3n\u00f3l\u00f3g. (&#8222;Hva\u00f0 er \u00feetta me\u00f0 karlmenn og m\u00f3n\u00f3l\u00f3ga?&#8220;) \u00c9g tek ofan Nap\u00f3le\u00f3nshattinn: Hann \u00feurfti a\u00f0 dansa eftir f\u00ednni l\u00ednu \u00ed kv\u00f6ld milli \u00feess a\u00f0 kynna Evr\u00f3visj\u00f3nforkeppni og ag\u00edtera fyrir \u00feeim s\u00f6mu mannr\u00e9ttindum og hann vill a\u00f0 barist ver\u00f0i fyrir me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 draga sig \u00fat\u00far keppninni. And he&#8217;s actually pulling it off.<\/p>\n<p>Ekki \u00fea\u00f0 a\u00f0 nokkur hafi \u00feurft a\u00f0 efast.<\/p>\n<p>Er a\u00f0 horfa \u00e1 endurrennsli\u00f0 \u00e1 \u00feessu \u00f6llusaman. \u00dea\u00f0 ger\u00f0i sig ekki alveg hj\u00e1 honum Simba og \u00feeim a\u00f0 hr\u00f3pa &#8222;Hey!&#8220; og reka hnefann upp\u00ed lofti\u00f0 sem einn ma\u00f0ur. Vakti ekki alveg r\u00e9ttu kenndirnar. Og \u00fe\u00e1 er \u00e9g h\u00e6ttur a\u00f0 tala illa um \u00fe\u00e1, str\u00e1kana. Nema a\u00f0 \u00fea\u00f0 kom sm\u00e1 sjokk hj\u00e1 \u00feeirri \u00e1tta \u00e1ra \u00feegar h\u00fan \u00e1tta\u00f0i sig \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 h\u00fan haf\u00f0i \u00f3vart kosi\u00f0 &#8222;Hey&#8220; \u00ed sta\u00f0inn fyrir &#8222;Stattu upp.&#8220; H\u00fan f\u00e9kk a\u00f0 kj\u00f3sa aftur. \u00d6nnur atkv\u00e6\u00f0i \u00e1 heimilinu f\u00f3ru til Magna og Gretu\/J\u00f3nsa.<\/p>\n<p>Spurningakeppni gr\u00e6na herbergisins. Sveinn R\u00fanar, HVERNIG ER H\u00c6GT A\u00d0 VITA EKKI A\u00d0 HERREYS-SK\u00d3RNIR VORU GYLLTIR, FOR KR\u00c6NG \u00c1T L\u00c1D?!!!<\/p>\n<p>J\u00e6ja, \u00fe\u00e1 fer \u00feetta a\u00f0 ver\u00f0a b\u00fai\u00f0. M\u00edn sp\u00e1 er \u00f3breytt: \u00c9g b\u00e6\u00f0i held og vona a\u00f0 &#8222;Mundu eftir m\u00e9r&#8220; muni vinna. Ef &#8222;Hugarr\u00f3&#8220; e\u00f0a &#8222;Stattu upp&#8220; hnuplar sigrinum \u00fe\u00e1 ver\u00f0ur \u00fea\u00f0 \u00e1g\u00e6tt. \u00d6nnur \u00farslit myndu koma m\u00e9r \u00f3\u00fe\u00e6gilegar \u00e1 \u00f3vart.<\/p>\n<p>Greiningardeildin me\u00f0 fullt af g\u00f3\u00f0um l\u00f6gum sem aldrei t\u00f3ku \u00fe\u00e1tt. Tek undir hverja till\u00f6gu. M\u00e9r hefur tild\u00e6mis alltaf fundist a\u00f0 Sigurr\u00f3s \u00e6tti a\u00f0 semja \u00feriggja m\u00edn\u00fatna popplag og fara \u00ed Evr\u00f3visj\u00f3n. Alas, allt \u00fea\u00f0 sem aldrei var\u00f0 en hef\u00f0i geta\u00f0 or\u00f0i\u00f0.<\/p>\n<p>Rennt yfir samkeppnina. M\u00e9r s\u00fdnist Noregur \u00e6tla a\u00f0 fara all-in \u00ed \u00e1r. P\u00e1ll \u00d3skar varpar sprengju: H\u00e6ttur me\u00f0 Evr\u00f3visj\u00f3n\u00fe\u00e1ttinn Alla lei\u00f0. Could life ever be same again? Hera Bj\u00f6rk og Valger\u00f0ur r\u00e6\u00f0a um breytt fyrirkomulag me\u00f0 hlutverki a\u00f0d\u00e1enda \u00ed sj\u00f3nvarpssal. Ef m\u00e9r ver\u00f0ur ekki bo\u00f0i\u00f0 \u00feanga\u00f0 ver\u00f0 \u00e9g verulega m\u00f3\u00f0ga\u00f0ur.<\/p>\n<p>Oooog \u00farslitin eftir b\u00f3kinni. &#8222;Mundu eftir m\u00e9r&#8220; til Bak\u00fa og &#8222;Stattu upp&#8220; \u00ed \u00f6\u00f0ru s\u00e6tinu. Allir s\u00e1ttir bara. Takk fyrir kv\u00f6ldi\u00f0.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Ji \u00fea\u00f0eru bara \u00farslit \u00ed kv\u00f6ld. \u00deetta ver\u00f0ur aldeilis spennandi. Og allt \u00ed beinni \u00fatsendingu. Nei \u00ed alv\u00f6runni. Sj\u00f6 l\u00f6g, misg\u00f3\u00f0 einsog gengur, en ekkert \u00feeirra afspyrnusl\u00e6mt. Og stefnir a\u00f0 \u00f3s\u00e9\u00f0u \u00ed a\u00f0 \u00feetta fari alltsaman \u00e1g\u00e6tlega, hvernig sem fer. \u00c9g dunda\u00f0i m\u00e9r vi\u00f0 \u00fea\u00f0 \u00ed dag a\u00f0 telja saman hva\u00f0a l\u00f6g hef\u00f0u fengi\u00f0 mesta [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":6,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[2],"tags":[],"class_list":["post-2289","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-almennt"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/hjorvar\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/2289","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/hjorvar\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/hjorvar\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/hjorvar\/wp-json\/wp\/v2\/users\/6"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/hjorvar\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2289"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/truflun.net\/hjorvar\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/2289\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/hjorvar\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2289"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/hjorvar\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=2289"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/hjorvar\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=2289"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}