{"id":999,"date":"2008-11-26T22:58:01","date_gmt":"2008-11-26T22:58:01","guid":{"rendered":"http:\/\/gamla.truflun.net\/hjorvar\/2008\/11\/26\/um-vekjaraklukkur-snooze-takka-og-%c3%bejo%c3%b0felagsastand\/"},"modified":"2008-11-26T22:58:01","modified_gmt":"2008-11-26T22:58:01","slug":"um-vekjaraklukkur-snooze-takka-og-%c3%bejo%c3%b0felagsastand","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/truflun.net\/hjorvar\/2008\/11\/26\/um-vekjaraklukkur-snooze-takka-og-%c3%bejo%c3%b0felagsastand\/","title":{"rendered":"Um vekjaraklukkur, snooze-takka og \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9lags\u00e1stand"},"content":{"rendered":"<p>M\u00e9r finnst vekjaraklukkur vera mikil \u00fearfa\u00feing. Ein af merkustu uppfinningum og mestu framfaraskrefum mannkyns. En snooze-takkinn finnst m\u00e9r aftur \u00e1 m\u00f3ti vera \u00f3ttalega gagnslaus uppfinning. Flest erum vi\u00f0 undir \u00fe\u00e1 s\u00f6k seld a\u00f0 \u00feurfa a\u00f0 koma okkur \u00e1 f\u00e6tur fyrir \u00e1kve\u00f0inn t\u00edma flesta morgna. \u00dea\u00f0 \u00fearf a\u00f0 vekja b\u00f6rnin og koma \u00feeim \u00e1 r\u00f3l, snyrta sig til og sinna \u00f6\u00f0rum morgunverkum, sj\u00e1 til \u00feess a\u00f0 allir f\u00e1i morgunver\u00f0, gefa g\u00e6lud\u00fdrunum ef einhver eru \u00e1\u00f0ur en haldi\u00f0 er til vinnu e\u00f0a \u00ed sk\u00f3la, leiksk\u00f3la e\u00f0a til dagm\u00f6mmu. \u00d6\u00f0ru hvoru megin vi\u00f0 upphaf unglings\u00e1ranna er b\u00f6rnunum svo fali\u00f0 a\u00f0 sj\u00e1 um \u00feetta sj\u00e1lf. \u00deau f\u00e1 s\u00edna eigin vekjaraklukku. Me\u00f0 eigin snooze-takka.<\/p>\n<p class=\"MsoNormal\">\u00c9g man \u00feetta sj\u00e1lfur fr\u00e1 m\u00ednum eigin unglings\u00e1rum. \u00dea\u00f0 kom fyrir a\u00f0 gripi\u00f0 var til snooze-takkans. A\u00f0 k\u00fara\u00f0 var d\u00e1litla stund enn. Bara t\u00ed\u00ed\u00edu m\u00edn\u00fatur \u00ed vi\u00f0b\u00f3t. \u00dea\u00f0 var blunda\u00f0 d\u00e1litla stund, jafnvel svifi\u00f0 um sinn inn \u00ed draumalandi\u00f0, svo hringdi vekjaraklukkan aftur og \u00ed svefnrofunum var ma\u00f0ur ekki alveg viss hvort ma\u00f0ur v\u00e6ri a\u00f0 vakna e\u00f0a sofna. Svo \u00fea\u00f0 var \u00fdtt aftur \u00e1 snooze-takkann. Bara einu sinni enn. Bara a\u00f0 k\u00fara \u00ed p\u00ednustund \u00ed vi\u00f0b\u00f3t. Svo allt \u00ed einu var hrokki\u00f0 upp vi\u00f0 \u00fea\u00f0 a\u00f0 h\u00e1lfur morgunninn var li\u00f0inn, sk\u00f3linn l\u00f6ngu byrja\u00f0ur og allt \u00ed \u00f3ttalegu volli. Kannski jafnvel st\u00f6\u00f0upr\u00f3f e\u00f0a ma\u00f0ur var t\u00e6pur \u00e1 m\u00e6tingu fyrir og n\u00e1msferlinum stefnt \u00ed \u00f3\u00fearfa tv\u00eds\u00fdnu. Seint og um s\u00ed\u00f0ir sta\u00f0i\u00f0 \u00ed sk\u00f3lastofug\u00e6ttinni og stuni\u00f0 upp: \u201eFyrirgefi\u00f0, \u00e9g svaf yfir mig. \u00c9g gleymdi m\u00e9r \u00e1 snooze-takkanum.\u201c<\/p>\n<p class=\"MsoNormal\">\u00deetta ger\u00f0ist a\u00f0 v\u00edsu ekki oft. \u00c9g komst einhvern veginn aldrei upp \u00e1 lag me\u00f0 a\u00f0 temja m\u00e9r \u00feetta almennilega. Hef ekki nota\u00f0 \u00feessa gr\u00e6ju \u00e1ratugum saman. En \u00fea\u00f0 eru einhverjir sem geta greinilega ekki \u00e1n hennar veri\u00f0. \u00dea\u00f0 bara hl\u00fdtur a\u00f0 vera, fyrst h\u00fan er alltaf h\u00f6nnu\u00f0 inn \u00ed vekjarann.<\/p>\n<p class=\"MsoNormal\">En til hvers \u00ed \u00f3sk\u00f6punum? Hva\u00f0a gagn er af snooze-t\u00f6kkum? S\u00e1 sem er vansvefta hefur gott af a\u00f0 sofa lengur, og \u00fea\u00f0 heilum svefni, ekki rumskandi \u00e1 t\u00edu m\u00edn\u00fatna fresti. Vekjaranum er \u00e6tla\u00f0 a\u00f0 hringja til \u00feess a\u00f0 l\u00e1ta vita af \u00fev\u00ed a\u00f0 n\u00fa \u00feurfi a\u00f0 fara \u00e1 f\u00e6tur: Ef h\u00e6gt er a\u00f0 k\u00fara t\u00edu m\u00edn\u00fatum lengur, \u00fe\u00e1 er mesta gagni\u00f0 a\u00f0 vakna bara t\u00edu m\u00edn\u00fatum s\u00ed\u00f0ar og dr\u00edfa sig \u00fe\u00e1 \u00e1 f\u00e6tur (\u00feetta er meir a\u00f0 segja v\u00edsindalega sanna\u00f0: \u00e9g las \u00fea\u00f0 \u00ed fyrirs\u00f6gn \u00e1 internetinu). Og ef \u00fea\u00f0 er ekki t\u00edmi til a\u00f0 k\u00fara, \u00fe\u00e1 gerir snooze-takkinn ekkert nema \u00f3gagn.<\/p>\n<p class=\"MsoNormal\">N\u00f3g um \u00fea\u00f0.<\/p>\n<p class=\"MsoNormal\">\u00deessa dagana eru erfi\u00f0ir t\u00edmar. Yfir \u00edslenskar fj\u00f6lskyldur hafa duni\u00f0 \u00e1f\u00f6ll af, m\u00e9r liggur vi\u00f0 a\u00f0 segja, \u00e1\u00f0ur \u00f3\u00feekktum st\u00e6r\u00f0argr\u00e1\u00f0um. \u00deegar \u00feetta er rita\u00f0 (\u00ed enda\u00f0an okt\u00f3ber 2008) er ekki nema hluti af \u00e1fallinu kominn fram. Enn er n\u00e1nast ekkert fari\u00f0 a\u00f0 brj\u00f3ta til mergjar hva\u00f0 ger\u00f0ist, hvernig \u00fea\u00f0 gat gerst og af hverju \u00ed \u00f3sk\u00f6punum \u00fev\u00ed var leyft a\u00f0 gerast. Hvernig s\u00fa sta\u00f0a kom upp a\u00f0 \u00fev\u00ed var leyft a\u00f0 gerast. \u00cd m\u00e9r \u00f3lgar rei\u00f0i \u00fat \u00ed marga \u00fe\u00e1 a\u00f0ila sem hafa veri\u00f0 \u00ed fr\u00e9ttum af \u00fev\u00ed hvernig f\u00f3r. \u00c9g \u00e1fellist l\u00edka sj\u00e1lfan mig. Ekki fyrir \u00fea\u00f0 a\u00f0 \u00e9g hafi djamma\u00f0 of villt \u00ed \u00edslenska l\u00e1napart\u00edinu (\u00fevert \u00e1 m\u00f3ti \u2013 vi\u00f0 hj\u00f3nin t\u00f3kum b\u00e6\u00f0i me\u00f0 okkur \u00fe\u00e6r lex\u00edur fr\u00e1 \u00e6sku\u00e1runum a\u00f0 lifa ekki um efni fram og reyna alltaf a\u00f0 hafa bor\u00f0 fyrir b\u00e1ru), heldur yfir \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00e9g skyldi hafa leyft \u00fev\u00ed a\u00f0 gerast a\u00f0 landi m\u00ednu og framt\u00ed\u00f0 \u00feess var allt a\u00f0 \u00fev\u00ed stoli\u00f0 undan nefinu \u00e1 m\u00e9r. \u00dea\u00f0 er s\u00fa tilfinning sem \u00e9g ber \u00ed brj\u00f3sti.<\/p>\n<p class=\"MsoNormal\">\u00c9g ber kv\u00ed\u00f0boga fyrir framt\u00ed\u00f0inni. \u00c9g kv\u00ed\u00f0i \u00fev\u00ed, sem \u00feriggja barna fa\u00f0ir, ekki a\u00f0eins hvernig pers\u00f3nulegir hagir m\u00ednir og konunnar minnar munu \u00fer\u00f3ast \u00e1 allra n\u00e6stu \u00e1rum, heldur einnig og ekki s\u00ed\u00f0ur a\u00f0 hve miklu leyti skuldir okkar kynsl\u00f3\u00f0ar koma til me\u00f0 a\u00f0 lenda \u00e1 her\u00f0um barna okkar. Jafnvel barnabarna. \u00c9g hef ekki svo miklar \u00e1hyggjur af uppvexti barna minna og a\u00f0b\u00fana\u00f0i allra n\u00e6stu \u00e1rin (\u00feau eru tveggja, fimm og \u00e1tta \u00e1ra \u00feegar \u00feetta er rita\u00f0). Vi\u00f0 foreldrar \u00feeirra eigum \u00fea\u00f0 sameiginlegt a\u00f0 hafa alist upp \u00e1 heimilum \u00fear sem neita \u00feurfti s\u00e9r um \u00fdmis \u00fe\u00e6gindi og jafnvel \u00feannig a\u00f0 \u201eoft var brau\u00f0i\u00f0 skori\u00f0 sm\u00e1tt,\u201c eins og sk\u00e1ldi\u00f0 sag\u00f0i. Og \u00fea\u00f0 var f\u00ednt. \u00dea\u00f0 var margt alveg hreint \u00e6\u00f0islegt vi\u00f0 a\u00f0 vaxa \u00feannig \u00far grasi. Hamingja \u00e6skunnar ver\u00f0ur ekki metin \u00fat fr\u00e1 l\u00e1nsfj\u00e1r\u00e1byrg\u00f0 e\u00f0a m\u00e6ld \u00ed gengisv\u00edsit\u00f6lum.<\/p>\n<p class=\"MsoNormal\">En \u00e9g geri m\u00e9r lj\u00f3st a\u00f0 \u00feeir dagar munu koma \u00feegar b\u00f6rnin m\u00edn, \u00fe\u00e1 komin til vits og \u00e1ra, munu staldra vi\u00f0 og spyrja mig \u00feeirra spurninga sem \u00e9g spyr mig sj\u00e1lfur \u00ed dag: Hvernig g\u00e1tum vi\u00f0 foreldrar \u00feeirra leyft \u00feessu a\u00f0 gerast? Og \u00e9g veit ekki hvort sv\u00f6rin ver\u00f0i neitt sk\u00e1rri en \u00feegar ma\u00f0ur st\u00f3\u00f0 sk\u00f6mmustulegur \u00ed sk\u00f3lastofug\u00e6ttinni for\u00f0um daga:<\/p>\n<p>\u201eFyrirgef\u00f0u, barni\u00f0 mitt. Vi\u00f0 sv\u00e1fum yfir okkur. Vi\u00f0 gleymdum okkur \u00e1 snooze-takkanum.\u201c<\/p>\n<p>(Birtist \u00ed n\u00fd\u00fatkomnu t\u00edmariti <a href=\"http:\/\/www.ibby.is\/\" title=\"B\u00f6rn og menning\"><em>Barna og menningar<\/em><\/a>, sem  \u00e9g hvet alla \u00e1hugamenn um b\u00f6rn, og, \u00f6\u00f6h, menningu, a\u00f0 kynna s\u00e9r og gerast \u00e1skrifendur me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 smella \u00e1 bornogmenning hj\u00e1 gmail.com. Vi\u00f0 hj\u00f3nin erum alvarlega a\u00f0 p\u00e6la \u00ed \u00fev\u00ed, fyrir okkar leyti.)<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>M\u00e9r finnst vekjaraklukkur vera mikil \u00fearfa\u00feing. Ein af merkustu uppfinningum og mestu framfaraskrefum mannkyns. En snooze-takkinn finnst m\u00e9r aftur \u00e1 m\u00f3ti vera \u00f3ttalega gagnslaus uppfinning. Flest erum vi\u00f0 undir \u00fe\u00e1 s\u00f6k seld a\u00f0 \u00feurfa a\u00f0 koma okkur \u00e1 f\u00e6tur fyrir \u00e1kve\u00f0inn t\u00edma flesta morgna. \u00dea\u00f0 \u00fearf a\u00f0 vekja b\u00f6rnin og koma \u00feeim \u00e1 r\u00f3l, snyrta [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":6,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[2],"tags":[],"class_list":["post-999","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-almennt"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/hjorvar\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/999","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/hjorvar\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/hjorvar\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/hjorvar\/wp-json\/wp\/v2\/users\/6"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/hjorvar\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=999"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/truflun.net\/hjorvar\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/999\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/hjorvar\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=999"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/hjorvar\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=999"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/hjorvar\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=999"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}