Ekki minn dagur

http://mbl.is/mm/frettir/innlent/frett.html?nid=1256980

Ég er á lí­fi og óbrotin en aum á nokkrum stöðum. Bí­llinn minn er óökufær og var dregin til Keflaví­kur. Morguninn er sí­ðan búin að fara í­ lögguskýrslur og sjúkrahússkoðanir. Ég var send heim með rútu og á að hví­la mig andlega og lí­kamlega að læknisráði. Læknirinn varaði mig við því­ að næstu daga yrði ég sjálfsagt alveg að drepast og á að háma í­ mig verkjatöflur.

Annars erum við að pirrast þessa dagana yfir BA riterð, safnafræðiverkefni,tí­maleysi, flutningum í­ vinnunni og viðbjóðinum sem fylgir því­, brúðkaupsundirbúningi, væntanlegum flutningum okkar eftir 2 mánuði, erum ekki komin með neinn stað til að búa á. Svo það er fí­nt að fá meira til að pirrast yfir s.s eymslum í­ lí­kamanum, bí­lleysi og áhyggjur af peningum því­ það er jú alltaf sjálfsábyrgð og við þurfum að borga dráttarbí­linn.
En jú þetta hefði ví­st getað farið miklu verr í­ morgun svo ég er auðvitað þakklát fyrir það.