eru akkúrat 3. mánuðir í brúðkaup:) Finnst voða langt í þetta en ef tíminn fer ekki aðeins að hægja á sér verður þetta rosalega fljótt að líða.
Category Archives: Uncategorized
Föstudagurinn þrettándi…
.. farið því varlega í dag elskurnar! Ég og Hrafnkell erum búin að vera saman í 9. ár í dag:)
Smá pressa;)
1 dagur í skil á skattaskýrslu (sótti um framlengingu) 12 dagar í páska (verð að vinna alla páskana en ætla samt að fá páskaegg) 44 dagar í flutning (shit og ég ekki búin að finna neinn stað til að búa á ) 45 dagar í lokaskil BA ritgerða (vó og allt of mikið eftir) 69 […]
Ferming
í gærmorgun var Sigrún Elfa(systurdóttir mín) fermd í Hjallakirkju í Kópavogi. Ég mætti að sjálfsögðu í athöfnina og gekk til altæris með henni. Veislan var líka mjög vel heppnuð í alla staði, maturinn góður og salurinn flottur. Enn og aftur til hamingju með daginn Sigrún mín:) Á myndinni er fermingarbarnið ásamt foreldrum og systkinum.
Allir að kíkja á þetta
http://framtidarlandid.is/sattmali
Smá uppfærsla úr lífi okkar
Jæja helst í fréttum er : *Saumaklúbburinn kom til mín um daginn og það var auðvitað rosa gaman að hitta þær, allar komust nema Svana og Dröfn en þær komast vonandi næst:) (verðum að fara að finna nafn stelpur) * Á laugardaginn fyrir rúmri viku fórum við Hrafnkell í sextugs afmæli til Lalla, þangað mættu […]
4. mánuðir og 1 dagur í brúðkaup:)
Ég var að gera svona brúðkaupssíðu fyrir okkur turtildúfurnar. http://brudkaup.is/brudhjon/brudskoda.asp?WedID=779 Hvernig finnst ykkur þetta? Eigum þó eftir að bæta og breyta:)
Betri tíð.
Mér líður mun betur en í gær. Reyndar með verki um allann skrokkinn og get voðalítið gert en verkjataflan sem ég tók í morgun svínvirkar;) Það eru ótrúlega margir búnir að hringja í mig og spurja mig hvernig mér líði og ég vil bara þakka fyrir það. Mjög uppörvandi að finna hvað maður á marga […]
*Pirr, pirr*
í dag er ég alveg ógeðslega pirruð. Það var einhver að blogga um að hálka væri ekki orsakavaldurinn að slysinu í gær. Hvað í andskotanum þykist fólk vita um hagi annara. 1. Ég er vön að keyra þessa leið og þekki leiðina eins og handarbakið á mér. Þar sem vinna mín er í Keflavík en […]
Ekki minn dagur
http://mbl.is/mm/frettir/innlent/frett.html?nid=1256980 Ég er á lífi og óbrotin en aum á nokkrum stöðum. Bíllinn minn er óökufær og var dregin til Keflavíkur. Morguninn er síðan búin að fara í lögguskýrslur og sjúkrahússkoðanir. Ég var send heim með rútu og á að hvíla mig andlega og líkamlega að læknisráði. Læknirinn varaði mig við því að næstu daga […]