Little fat boy

Einn af uppáhalds youtuburunum mínum heitir Frankie og kallar sig Little fat boy. Hann er vöruhönnuður sem hefur gefið út matreiðslubók með taiwönskum uppskriftum.

Það skemmtilegasta sem hann gerir er að taka klassískan amerískan mat eins og morgunkorn, Twinkies, Spaghettios og Campell súpu

og bæta við taiwönskum og öðrum asískum innihaldsefnm eins og svörtum sesamfræum, yuzu og matcha. Hann hannar líka áhugaverðar og flottar eins og hátískuveski úr pappa sem innihalda hans útgáfu af Buffalo wings.

Ef þig langar að horfa á einhvern skemmtilegan og skapandi mæli ég með honum.

Vefsíðan hans er hér þar er hægt að finna uppskriftir eftir hann https://littlefatboy.com/

Hér er youtube rásin hans  https://www.youtube.com/@LittleFatBoy

Ps. snara.is sökkar varð bara að segja hún hjálpaði mjög lítið við gerð þessarar bloggfærslu.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *