Framtíðar festival

Myndir neðst

Í vikunni fór ég tvisvar á framtíðar festival sem er haldin í Borgarbókasafninu Grófarhúsi.

Á miðvikudaginn fór ég og lærði að búa til blómapotta úr pappamassa og gömlum bókum. Námskeiðið var mjög skemmtilegt haldið af Ingiriði Halldórsdóttir sem kallar sig Lyfveru og þótti mér mjög gaman að spjalla við hana um listir, solarpunk og það að vera langveikur sem við báðar erum.

Borgarbókasafnð býður upp fræsafn þar sem maður getur fengið fræ til að taka með sér heim og ég tók nokkra pakka og setti niður timjan og steinselju.

Eftir námskeiðið fór ég í Brauð og co og keypti brauð og bestu snúða í heimi.

Á laugardeginum fór í Hafnarhúsið og skoðaði þrjár sýningar, ein af þeim var sérstaklega áhugaverð um hraunmyndanir og ég myndi kalla hana lavapunk.  Hún hafði áður verið sýnd á Feneyjar tvíæringnum í Arkitektúr

Þar á eftir fór ég og bjó til svefnpoka fyrir símann minn úr faraday efni sem gerir það að meðan síminn er í pokanum er ekkert netsamband og þvi auðveldara að hunsa hann.

Námskeiðið var haldið af Endurtakk og Emmu Shannon.

Ég teiknaði svo ljósaperur á pokann minn sem táknar allar hugmyndirnar sem ég á eftir að fá þegar get hundsað símann minn (við sjáum til hvernig það fer)

Eftir fór ég í kaffi Iðu og fékk mér eplapæ og bragðlausasta chai latte sem ég hef smakkað (getur verið að afgreiðslukonan hafi gleymt að setja teið út í og ég hafi bara fengið flóaða mjólk?)

Í kaffi Iðu keypti ég mér tvær bækur sem ég ætlaði reyndar alls ekki að gera en sjálfsagi finnst ekki í mér í rikum mæli 🙂

Bækurnar eru um krúttmenningu og götustíl í Kína.

Ég mæli með Framtíðar festivalinu, frábært framtak hjá Borgarbókasafninu. Það er góð ástæða fyrir að bókasöfn eru uppáhalds staðirnir mínir (fyrir utan íbúðina mína auðvitað)

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *