Myndir neðst
Í febrúar tók ég þátt í teikniáskorun í einum discord hópnum mínum.
Við fengum mánuð til að teikna 10 myndir og þemað var resilience eða segla.
Ég ákvað að teikna plöntur og dýr sem lifa við erfiðar aðstæður en þrífast samt eins og hrúðurkarla, sveppi, fléttur og blóm sem vaxa upp úr sprungum.
Þetta var mjög skemmtileg áskorun, ég notaði blýant, strokleður, tússpenna og kúlupenna til að skyggja. Ég eyddi 5 vikum í Þorlákshöfn að passa köttinn minn (hann þoldi ekki að flytja á 4 hæð verandi úti köttur svo hann flutti til mömmu og pabba) Það er ekki mjög mikið að gerast í Þorlákshöfn svo ég hafði með mér nóg af verkefnum þ.á.m. þessa áskorun.
