Innkaupakerrulíf

Þann 18. ágúst 2002 setti ég innkaupakerrumyndir á netið. Þetta átti að vera langtímaverkefni en dagaði uppi. Hér getið þið dáðst að myndunum sem hafa of lengi verið óveflægar. Fyrir neðan er gestabók sem fylgdi þessum litla vef mínum.

Gestabók

Bára
snaeugla@itn.is
Barnakerra dóttur minnar
26-12-02
01:44

Einkennilega heillandi og fangandi sýn. Kom mér á óvart hvað myndirnar höfðu dáleiðandi og áhugaverð áhrif á mig. Ég varð einhvernvegin að smella á næstu mynd og svo næstu og svo….. Ætli þetta sé dulið einhverfu einkenni hjá mér? Oh well, gleðileg jól býst ég við.


Ingo
Bónus
30-11-02
17:16

Rofl! dude Steikur ! kv. BulloK


Ben
25 í röðinni
28-11-02
12:41

snaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaa snaaarvitlaus takki flottar myndir


r0dy
??
?
28-11-02
11:22

Hi ho maybe you should write those things above in english, i didn’t understand at all… anyway great pics, i really liked that work.


Hakuchi
hakuchi_san@hotmail.com
32, lýsir samheldni kerruandans
27-11-02
13:25

Þetta er athyglisverð síða um stórmerkilegt og vanmetið fyrirbæri. Nú hef ég ekki skoðað allar myndirnar en allar þær myndir sem ég hef skoðað sýna kerruna eina og yfirgefna eða í samneyti með öðrum yfirgefnum kerrum. Þetta virðist vera nokkuð einhæf sýn á líf kerrunnar. Engar myndir virðast vera til af því þegar kerran er við störf sín, að uppfylla göfugan tilgang sinn, að strita í dagsins önn í glaðværri viðleitni sinni til að halda hjólum samfélagsins gangandi. Nú eða þá myndir af kerrunum í þrælavinnu fyrir illa innrættar og afburðarlöt manndýr sem kúga greyið kerruna daginn út og inn með því að láta hana burðast með dekurdraslið sem þau í duttlungakasti sínu hafa ákveðið að kaupa. Síðan skilja þessar miskunarlausu verur kerruna bara eftir úti á stétt eftir að hafa misnotað hana án þess að huga að neinu leyti að hamingju hennar eða sjálfsögðum kerruréttindum. Bæði sjónarmiðin eru fyllilega gjaldgeng, gott ef þau eru ekki fleiri.


HÁSTAFABLOGGARINN
ritari@fron.is
mmmm svo margar..get bara ekki valið
26-11-02
15:06

Mér finnst sumar myndirnar óskýrari en aðrar og þá fá ekki allar kerrurnar sömu athygli og aðdáun….Það er mjög ósanngjarnt gagnvart þeim kerrum sem eru virkilega fallegar en missa alveg af þeirri aðdáun sem þær eiga skilið….


Ágúst
38&40
19-11-02
00:21

Snilld!


Fannar öXe
iam@simnet.is
6
29-10-02
12:57

Mjög skemmtileg og fróðleg síða…
Innkaupakerru áhugmenn heimsins sameinist!


Eygló
eyglot@simnet.is
8
19-08-02
21:36

Flott og furðulegt!


Siggi ‘Chocko’
gandalf@simnet.is
25
18-08-02
22:42

Ekkert um þetta að segja, nema ég næ ekki að tengja mig við líf innkaupakerra. En annars er 25 bezta myndin, lýsingarlega séð.

Innkaupakerrulíf
Innkaupakerrulíf