Hjálpsami maðurinn…

Rakst á Véstein áðan í stiganum. Við förum að spjalla og hann spyr mig hvenær Alþingi sé sett. Ég var ekki alveg viss en akkúrat þá gengur maður framhjá sem myndi vita svarið.  Ég spyr því “hvenær er Alþingi sett Hannes?” og Hannes svaraði mér að það væri yfirleitt sett 1. október.  Hjálpsamur maður.