Plássfrek kona

Í fyrrinótt þá spurði Eygló mig hvað ég hefði verið að gera fyrir átta árum.  Þá töluðum við semsagt fyrst saman.  Seinna um nóttina þá var ég alveg að ná að sofna en þá var slengt í mig handlegg og Eygló sagði, mjög sofandi, “Færðu þig, ég þarf pláss”.  Ég lá þá á brúninni mín megin.  Hún hefur verið of góðu vön þarna á tímabili.