Myndin af mér

Ég ætlaði að sofa út í dag og líkami minn er á því að það sé fínt að sofa til svona tíu að dönskum tíma.

Ferðadagbókin er tilbúin og ég fer að birta hana og vonandi styttri ferðasögu líka.

Fyrir þá sem voru spenntir fyrir því að sjá mig í blöðum þá er kannski réttast að benda á að það kom mynd af mér í Árósablaði Jótlands póstsins.

JP

Þarna fremst er Sigga, síðan Eggert og ég sem hafði vit á að sýna aðeins andlitið enda meðvitaður um ljósmyndarann. Daníel er í aðalhlutverki að kenna okkur um riddarasögur.