Drama dagsins

Drama dagsins var alveg voðalegt. Drengurinn sat við borðið að klára seríósið sitt og ákvað að það vantaði nú aðeins meiri mjólk, greip fernuna og hellti. Ég sá þetta en var aðeins of seinn. Mér fannst þetta fyrst vera heill lítri en líklega hefur þetta bara verið hálfur. Ekki gaman að þrífa þetta upp.