Eftirleikur flutningsins

Merkilegt hvað fólk er duglegt að elta mig á nýjan stað, heimsóknir eru bara rétt undir meðallagi. Það munar miklu að Bloggari Dauðans og Illi tvíburinn hafa báðir uppfært hlekki sína á mig fljótt og vel. Margir gestir virðast líka koma í gegnum aðalsíðu Kaninku (kíkið þangað til að sjá fallega mynd af mér).

Ég hef enn trú á að Bjarni lagi tengingarnar á okkur sem fluttum á Kaninkuna, samt erfitt fyrir hann að finna sér tíma þegar alheimsfrægð (með tilheyrandi vinnu) bíður.

Samsærið Ónýtt

Hjörvar virðist ekki hafa vitað að í mörg ár hef verið í gangi viðamikið samsæri meðal vinstri manna um að reyna að sannfæra Davíð Oddsson um að hann sé góður rithöfundur. Augljóslega hefur þetta verið gert til þess að fá einræðisherra krúnunnar til að afsala sér völdum með það í huga að nota tímann í skriftirnar. Afleiðing þessa yrði að sjálfsögðu allsherjar stríð meðal kjölturakka hans sem hingað til hafa verið þægir og ánægðir með það sem hrekkur af borði meistarans.

Vonum að Davíð lesi ekki blogg né að Hannes lesi þau ekki fyrir hann.

Bráðabirgðalausn

Meðan ég er að laga til í þessu rugli þá stel ég lúkkinu hans Palla og prufa núna tvennt.

Þetta er ekkert merkilegt annars.

Uppfært!
Síðan er að lagast, ég tók inn nýtt stylesheet og hef verið að rugla með það síðustu mínútur, hugsanlega hefur þetta valdið geðveiki hjá þeim er heimsóttu síðuna á meðan.

Bíðandi eftir kraftaverki

Það var verið að segja mér frá því að Tryggingastofnun trúi á kraftaverk. Svo virðist sem blindir og heyrnalausir þurfi að fara á tveggja ára fresti í skoðun til að athuga hvort þeir séu ennþá blindir og heyrnalausir. Mig grunar reyndar að þetta hljóti að ganga yfir flesta sem eru á einhvern hátt fatlaðir. Fólk sem hefur misst útlimi þarf að öllum líkindum að fara reglulega til að athuga hvort það hafi froskagen sem valda því að nýjir útlimir vaxi á það. Það hlyti að spara gríðarlega fjármuni á hverju ári ef það væri bara hægt að merkja við fólk “Þetta er varanlegt, þurfum ekki að tjékka þetta aftur”.

Jarðarför

Í kvöld fór ég í jarðarför. Ég get ekki sagt að ég hafi þekkt einstaklinginn vel en þó hitt hann nokkrum sinnum.

Ég ákvað að skreppa til Sigga í kvöld til að gefa Eygló færi á að skúra. Þegar ég kem til Sigga þá er kassi á rúminu hans og kemur í ljós að það er músin hans. Siggi sannfærði mig um að koma með honum að jarða hana (mér hafði þá mistekist að benda honum á kosti innanhúsgrafreitsins þar sem dvergar gætu gætt mýslu).

Við keyrðum langt og gáfumst upp á að finna skjól fyrir rigningunni þegar komið var að Öskjuhlíðinni, þar fann ég henni greftrunarstað og Siggi jarðaði. Ekkert varð af myndtökum vegna rigningar.

Síðan fengum við okkur ís.

Siggi er annars hress og ekki með SARS (né HABL).

Falun Gong

Augljóst er að það væri gott að koma saman til að minnast mótmælanna í fyrra, umræðan um atburðina er að komast af stað aftur og góður tími til að taka þetta til endurskoðunnar.

Síminn

Miðað við það sem ég hef heyrt þá er skeytið sem ég sendi Árna Pétri frænda (reyndar ekki beint frændi heldur svona óbeint) aðfaranótt sunnudags ekki komið, hugsanlega kemur það ekki fyrr en á morgun, þeir eru ekki fyrir að koma svona hlutum til skila á “rauðum dögum”. Er það nokkuð óeðlilegt? Er nokkurn tíman sem fólk heldur upp á áfanga á þessum “rauðu dögum”? Reyndar aðallega þessar fermingar og útskriftir en fólk sendir ekki skeyti á svoleiðis dögum… er það nokkuð?
Ég ætla að vona að þetta sé ekki satt sem ég var að heyra og að skeytið hafi komist til skila. Helvítis Síminn, allavega var hann þá hundlengi að koma þessu til skila ef þetta þá komst í gær.