{"id":1318,"date":"2004-10-03T02:05:15","date_gmt":"2004-10-03T02:05:15","guid":{"rendered":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/2004\/10\/03\/skyrdagurinn-mikli\/"},"modified":"2025-02-18T13:26:45","modified_gmt":"2025-02-18T13:26:45","slug":"skyrdagurinn-mikli","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/2004\/10\/03\/skyrdagurinn-mikli\/","title":{"rendered":"Skyrdagurinn mikli"},"content":{"rendered":"<p>Skyrdagurinn krefst yfirfer\u00f0ar og jafnvel fors\u00f6gu, hvort \u00feetta er meira fyrir mig e\u00f0a ykkur er ekki gott a\u00f0 segja, l\u00edklega meira fyrir mig.<\/p>\n<p><img decoding=\"async\" class=\"aligncenter\" src=\"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-content\/uploads\/sites\/2\/2025\/02\/2004_1001_132638AA5B05D.jpg\" \/><\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 var \u00e1 f\u00f6studaginn fyrir r\u00famlega viku sem V\u00e9steinn stakk upp \u00e1 \u00fev\u00ed \u00e1 spjallinu okkar Vantr\u00faarseggja a\u00f0 vi\u00f0 myndum s\u00fdna heimildarmyndina um Helga H\u00f3seasson (hann haf\u00f0i \u00feegar fengi\u00f0 leyfi h\u00f6funda) \u00ed Snarr\u00f3t \u00feann 10. okt\u00f3ber \u00feegar 32 \u00e1r v\u00e6ru li\u00f0inn fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 skyrinu var slett. \u00c9g svara\u00f0i nokku\u00f0 flj\u00f3tt og spur\u00f0i \u00fe\u00e1 hven\u00e6r \u00feingsetningin v\u00e6ri og hvort \u00fea\u00f0 v\u00e6ri ekki gott tilefni, s\u00ed\u00f0an mundi \u00e9g eftir og minntist \u00e1 a\u00f0 vi\u00f0 h\u00f6f\u00f0um einhvern t\u00edmann tala\u00f0 um a\u00f0 m\u00e6ta \u00e1 \u00feingsetningu me\u00f0 skyr og bor\u00f0a \u00fea\u00f0 me\u00f0an \u00feingmenn f\u00e6ru framhj\u00e1. Og \u00e9g tala\u00f0i a\u00f0eins vi\u00f0 sj\u00e1lfan mig \u00e1 spjallinu og var \u00fe\u00e1 a\u00f0 lokum kominn me\u00f0 grunnhugmyndina a\u00f0 \u00fev\u00ed hva\u00f0 vi\u00f0 \u00e6ttum a\u00f0 gera.<\/p>\n<p>\u00deetta var r\u00e6tt fram og til baka, \u00e9g minntist \u00e1 \u00feetta vi\u00f0 f\u00f3lk og \u00fea\u00f0 var alveg lj\u00f3st a\u00f0 \u00feetta g\u00e6ti tekist vel og \u00feetta g\u00e6ti tekist illa. \u00c1 sunnudaginn var \u00e1kve\u00f0i\u00f0 a\u00f0 l\u00e1ta va\u00f0a, vi\u00f0 undirbjuggum skyrdaginn, s\u00f6mdum fr\u00e9ttatilkynningar og f\u00f3rum fram og til baka me\u00f0 or\u00f0alag (h\u00e1lfger\u00f0 nefndarvinna). \u00c9g var s\u00edfellt a\u00f0 reyna a\u00f0 stj\u00f3rna \u00feessu \u00feannig a\u00f0 vi\u00f0 v\u00e6rum bara a\u00f0 taka eitt skref \u00ed einu \u00feannig a\u00f0 vi\u00f0 v\u00e6rum ekki a\u00f0 hugsa um allt \u00e1 sama t\u00edma.<\/p>\n<p>Fr\u00e9ttatilkynningin var send \u00fat \u00e1 \u00feri\u00f0judag og daginn eftir <a href=\"https:\/\/web.archive.org\/web\/20130818041518\/http:\/\/badabing.is\">spjalla\u00f0i Fr\u00e9ttabla\u00f0i\u00f0<\/a> vi\u00f0 mig og Bylgjan <strong>yfirheyr\u00f0i<\/strong> mig (\u00e9g vildi a\u00f0 \u00feeir v\u00e6ru jafn harkalegir vi\u00f0 dulspekili\u00f0i\u00f0 \u00fearna hj\u00e1 \u00cd\u00da), \u00e9g er samt ekkert \u00f3s\u00e1ttur vi\u00f0 Bylgjumenn \u00fe\u00f3 \u00feeir hafi veri\u00f0 har\u00f0ir. Um kv\u00f6ldi\u00f0 var sendur \u00fat t\u00f6lvup\u00f3stur til \u00feingmanna.<\/p>\n<p>\u00c1 fimmtudag var skyri\u00f0 keypt, \u00fea\u00f0 var st\u00f3rfyndi\u00f0 a\u00f0 sj\u00e1 allt \u00feetta skyr. \u00dea\u00f0 kom l\u00edka \u00ed lj\u00f3s a\u00f0 Helgi H\u00f3seasson sj\u00e1lfur myndi hugsanlega m\u00e6ta, vi\u00f0 h\u00f6f\u00f0um varla \u00feora\u00f0 a\u00f0 vona \u00fea\u00f0, bu\u00f0um honum en hef\u00f0um \u00ed raun veri\u00f0 \u00e1kaflega s\u00e1ttir ef hann hef\u00f0i einungis l\u00e1na\u00f0 okkur skilti. V\u00e9steinn var settur \u00ed a\u00f0 spjalla vi\u00f0 Helga, V\u00e9steinn uppl\u00fdsti l\u00edka um gu\u00f0lastsf\u00f6ndri\u00f0 sitt. Um kv\u00f6ldi\u00f0 f\u00f3r \u00e9g a\u00f0 n\u00e1 \u00ed barmmerkin sem Palli og Stebbi h\u00f6f\u00f0u teki\u00f0 a\u00f0 s\u00e9r a\u00f0 hanna, prenta og pressa fyrir okkur. Stebbi kom me\u00f0 r\u00e1\u00f0leggingar og upp\u00e1stungur sem hj\u00e1lpu\u00f0u, hann hefur reynsluna.<\/p>\n<p>\u00c1 f\u00f6studagsmorgun vakna\u00f0i \u00e9g snemma, \u00feurfti a\u00f0 skutla Eygl\u00f3 \u00ed vinnuna svo \u00e9g g\u00e6ti haft b\u00edlinn. \u00c9g gat ekkert sofna\u00f0 eftir \u00feetta, var \u00ed raun of spenntur til a\u00f0 leggja mig. \u00c9g \u00e1kva\u00f0 a\u00f0 senda \u00edtrekun til fj\u00f6lmi\u00f0la, \u00fear minntist \u00e9g \u00e1 a\u00f0 Helgi myndi hugsanlega koma. \u00c9g hringdi \u00ed st\u00fadentana til a\u00f0 tryggja a\u00f0 \u00fe\u00e6r v\u00e6ru vakna\u00f0ir, f\u00f6studagar eru yfirleitt nota\u00f0ir til a\u00f0 sofa frameftir \u00feegar enginn er sk\u00f3linn. S\u00ed\u00f0an hringdi R\u00daV \u00ed mig og spjalla\u00f0i a\u00f0eins, vildi vita hvort vi\u00f0 \u00e6tlu\u00f0um a\u00f0 kasta skyrinu og \u00e9g held \u00e9g hafi jafnvel heyrt vonbrig\u00f0ist\u00f3n \u00ed r\u00f6ddinni \u00feegar \u00e9g l\u00fdsti yfir a\u00f0 vi\u00f0 myndum ekki gera neitt svolei\u00f0is. T\u00f3ti af Fr\u00e9ttabla\u00f0inu haf\u00f0i l\u00edka samband og spur\u00f0i um Helga enda \u00e1kaflega vinveittur honum. Brj\u00e1la\u00f0ur morgun.<\/p>\n<p>Hvernig fer\u00f0ast ma\u00f0ur um me\u00f0 64 dollur af skyri? Hvernig er best a\u00f0 geyma skyr svo \u00fea\u00f0 s\u00e9 h\u00e6gt a\u00f0 labba me\u00f0 \u00fea\u00f0? \u00c9g \u00e1kva\u00f0 a\u00f0 nota gamla \u00ed\u00fer\u00f3ttat\u00f6sku sem Eygl\u00f3 \u00e1. Skyri\u00f0 t\u00f3k meira pl\u00e1ss en \u00e9g h\u00e9lt, \u00e9g byrja\u00f0i a\u00f0 fylla mi\u00f0h\u00f3lfi\u00f0 og bj\u00f3st vi\u00f0 a\u00f0 \u00e9g g\u00e6ti haft eitthva\u00f0 d\u00f3t me\u00f0 m\u00e9r \u00ed hinum h\u00f3lfunum en nei, \u00e9g \u00feurfti a\u00f0 fylla \u00feau l\u00edka. \u00dea\u00f0 var st\u00f3rkostlegt a\u00f0 sj\u00e1 t\u00f6skuna \u00feegar \u00e9g haf\u00f0i loki\u00f0 af m\u00e9r, 64 skyrdollur smellp\u00f6ssu\u00f0u on\u00ed, \u00fea\u00f0 hef\u00f0i ekki komist ein dolla \u00ed vi\u00f0b\u00f3t. \u00c9g haf\u00f0i l\u00edka me\u00f0 m\u00e9r hl\u00fd f\u00f6t, diktaf\u00f3n, myndav\u00e9l, k\u00f3k\u00f3mj\u00f3lk og barmmerkin, allt nau\u00f0synlegt.<\/p>\n<p>Vi\u00f0 Hjalti vorum m\u00e6ttir \u00e1 g\u00f3\u00f0um t\u00edma \u00ed Snarr\u00f3t \u00fear sem vi\u00f0 fengum l\u00e1na\u00f0 bor\u00f0 en Kalli var seinn fyrir, vi\u00f0 \u00e1kv\u00e1\u00f0um a\u00f0 lokum a\u00f0 fara bara me\u00f0 allt d\u00f3ti\u00f0 sj\u00e1lfir. \u00dea\u00f0 hef\u00f0i veri\u00f0 vert a\u00f0 taka mynd af okkur r\u00f6ltandi inn \u00ed b\u00e6 me\u00f0 plastbor\u00f0, st\u00fatfulla \u00ed\u00fer\u00f3ttat\u00f6sku, st\u00f3l (ef Helgi vildi sitja), f\u00e6turna undan plastbor\u00f0inu og \u00fdmsan annan farangur. \u00c9g get sagt ykkur a\u00f0 64 dollur af skyri eru \u00feyngri en margur myndi halda. \u00c1 lei\u00f0inni r\u00e1kumst vi\u00f0 \u00e1 f\u00f3lk sem spur\u00f0i hva\u00f0 vi\u00f0 v\u00e6rum a\u00f0 gera, vi\u00f0 \u00fatsk\u00fdr\u00f0um \u00fea\u00f0 og fengum andlegan stu\u00f0ning fr\u00e1 \u00feeim, \u00e9g hef\u00f0i veri\u00f0 til \u00ed a\u00f0 f\u00e1 stu\u00f0ninginn l\u00edkamlega.<\/p>\n<p>Vi\u00f0 settum upp \u00e1 Austurvelli og hittum \u00fear Darri sem er n\u00fdkominn til li\u00f0s vi\u00f0 Vantr\u00fa (\u00e9g var a\u00f0 henda inn fyrstu greininni hans r\u00e9tt \u00e1\u00f0an, til hamingju me\u00f0 afm\u00e6li\u00f0 Darri). Vi\u00f0 vorum komnir 12:45, l\u00f6ngu \u00e1 undan \u00f6llum \u00f6\u00f0rum, l\u00f6greglan kom og spjalla\u00f0i vi\u00f0 okkur en \u00feeir voru frekar r\u00f3legir yfir \u00feessu. Kalli m\u00e6tti s\u00ed\u00f0an seint en m\u00e6tti \u00fe\u00f3.<\/p>\n<p>Fyrsta l\u00edfsmarki\u00f0 var \u00feegar Helgi Hj\u00f6rvar og Einar M\u00e1r Sigur\u00f0sson komu, vi\u00f0 k\u00f6llu\u00f0um \u00e1 \u00fe\u00e1 og \u00feeir komu. \u00deeir t\u00f3ku sinn t\u00edma a\u00f0 velja en endu\u00f0u b\u00e1\u00f0ir \u00e1 jar\u00f0aberjaskyri, af \u00fev\u00ed \u00fea\u00f0 er rautt. B\u00e1\u00f0ir kurteisir og ind\u00e6lir. S\u00ed\u00f0an kom upp vandam\u00e1l sem \u00e9g haf\u00f0i s\u00e9\u00f0 fyrir en ekki leyst, ma\u00f0ur \u00feekkir ekki alla \u00feingmennina og \u00fe\u00f3 ma\u00f0ur viti a\u00f0 einhver s\u00e9 \u00feingma\u00f0ur \u00fe\u00e1 man ma\u00f0ur ekki \u00f6ll \u00feessi n\u00f6fn. Vi\u00f0 g\u00e1tum \u00fear af lei\u00f0andi ekki kalla\u00f0 \u00e1 alla sem okkur gruna\u00f0i a\u00f0 v\u00e6ru \u00feingmenn, kj\u00e1nalegt. Bj\u00f6rn Bjarnason var einbeittur \u00ed a\u00f0 horfa ekki \u00ed \u00e1ttina a\u00f0 okkur, ef \u00e9g \u00feekki Bj\u00f6rn r\u00e9tt \u00fe\u00e1 hefur hann \u00e1n efa lesi\u00f0 t\u00f6lvup\u00f3stinn sinn og vita\u00f0 af okkur.<\/p>\n<p>\u00c1g\u00fast \u00d3lafur \u00c1g\u00fastsson f\u00e9kk hj\u00e1 okkur ferskjuskyr og l\u00fdsti yfir stu\u00f0ningi vi\u00f0 a\u00f0skilna\u00f0 r\u00edkis og kirkju, takk fyrir \u00fea\u00f0 \u00c1g\u00fast. Halld\u00f3r \u00c1sgr\u00edmsson gekk framhj\u00e1 og \u00e9g kalla\u00f0i \u00e1 hann, hann sag\u00f0i eitthva\u00f0 sem \u00e9g heyr\u00f0i ekki og kom ekki til okkar. \u00d6ssur Skarph\u00e9\u00f0insson kalla\u00f0ist l\u00edka \u00e1 vi\u00f0 okkur og sag\u00f0ist hafa fengi\u00f0 s\u00e9r skyr n\u00fa \u00feegar. J\u00f3hanna Sigur\u00f0ard\u00f3ttir var \u00e1 hra\u00f0fer\u00f0 og vildi f\u00e1 seinna.<\/p>\n<p>V\u00e9steinn hringdi og sag\u00f0i a\u00f0 hann v\u00e6ri vi\u00f0 r\u00e1\u00f0h\u00fasi\u00f0 me\u00f0 Helga sj\u00e1lfan og \u00feyrfti einhverja til a\u00f0 halda \u00e1 skiltum, \u00e9g sendi Kalla og Hjalta \u00ed \u00feetta og innan skamms komu \u00feeir tilbaka. Helgi var me\u00f0 skiltin s\u00edn, vi\u00f0 l\u00e1nu\u00f0u herst\u00f6\u00f0vaandst\u00e6\u00f0ingum allavega eitt skilti sem \u00e1tti meira heima \u00ed \u00feeirra a\u00f0ger\u00f0. \u00c9g var me\u00f0 Helga eftir \u00fea\u00f0, skrapp reyndar a\u00f0eins fr\u00e1 honum \u00feegar \u00feess \u00feurfti.<\/p>\n<p>Stuttu eftir a\u00f0 Helgi kom \u00fe\u00e1 s\u00e1 \u00e9g Kristinn H. Gunnarsson koma, skyrbor\u00f0i\u00f0 var t\u00f6luvert fr\u00e1 okkur \u00feannig a\u00f0 \u00e9g kalla\u00f0i \u00ed Hjalta sem kom st\u00f6kkvandi me\u00f0 tv\u00e6r skyrdollur. Kristinn f\u00e9kk a\u00f0 velja s\u00e9r tegund og \u00fea\u00f0 er upp\u00e1haldsmyndin m\u00edn fr\u00e1 deginum. Hjalti hallar s\u00e9r fram me\u00f0 tv\u00e6r skyrd\u00f3sir, Helgi H\u00f3seasson me\u00f0 m\u00f3tm\u00e6laspjald \u00ed bakgrunninum og Kristinn hallar s\u00e9r \u00e1 m\u00f3ti Hjalta. Brilljant.<\/p>\n<p>\u00c1 \u00feessum t\u00edmapunkti var Austurv\u00f6llur a\u00f0 fyllast af f\u00f3lki og ma\u00f0ur s\u00e1 a\u00f0 fj\u00f6ldi manns horf\u00f0i \u00e1 Helga einsog stj\u00f6rnu, Helgi \u00e1tti marga sko\u00f0anabr\u00e6\u00f0ur \u00fearna, b\u00e6\u00f0i fri\u00f0arsinna og tr\u00faleysingja. Helgi var mynda\u00f0ur \u00ed bak og fyrir, St\u00f6\u00f0 2 t\u00f3k s\u00ed\u00f0an vi\u00f0 hann vi\u00f0tal. Helgi t\u00f3k fram a\u00f0 hann hef\u00f0i ekki veri\u00f0 vi\u00f0 \u00feingsetningu \u00ed 32 \u00e1r, ekki s\u00ed\u00f0an hann sletti skyrinu, \u00e9g haf\u00f0i ekki veri\u00f0 viss um \u00fea\u00f0 og var \u00e1n\u00e6g\u00f0ur a\u00f0 f\u00e1 a\u00f0 vita \u00feetta me\u00f0 vissu. Stuttu seinna hringdi Bylgjan \u00ed mig og \u00fear sem \u00e9g var a\u00f0 hugsa um \u00f3tal hluti \u00ed einu \u00fe\u00e1 ger\u00f0i \u00e9g mig ekki alveg skiljanlegan \u00feannig a\u00f0 or\u00f0alagi\u00f0 \u00e1 fr\u00e9tt \u00feeirra um m\u00e1li\u00f0 var \u00f6rl\u00edti\u00f0 skringilegt, \u00fea\u00f0 var m\u00e9r a\u00f0 kenna.<\/p>\n<p>Biggi kom og einnig Ingibj\u00f6rg n\u00e1granni Helga sem hefur miki\u00f0 hj\u00e1lpa\u00f0 honum, Birgir f\u00e9kk Krosslafsskilti\u00f0 og var mj\u00f6g gla\u00f0ur. Vi\u00f0 Al\u00feingish\u00fasi\u00f0 f\u00f3ru l\u00f6greglumenn a\u00f0 marsera og V\u00e9steinn klappa\u00f0i fyrir \u00feeim til a\u00f0 h\u00e6\u00f0ast a\u00f0 \u00feeim, mannfj\u00f6ldinn t\u00f3k undir. Helga fannst ekkert vit \u00ed a\u00f0 klappa en \u00e9g benti \u00e1 a\u00f0 l\u00f6greglum\u00f6nnunum \u00fe\u00e6tti \u00f6rugglega \u00f3\u00fe\u00e6gilegt a\u00f0 heyra f\u00f3lk h\u00e6\u00f0ast a\u00f0 \u00e6fingunum \u00feeirra. Helgi haf\u00f0i illan bifur \u00e1 l\u00f6greglunni enda hefur hann oft veri\u00f0 illa leikinn af \u00feeim, hann vildi ekki fara of n\u00e1l\u00e6gt \u00feeim til a\u00f0 byrja me\u00f0. Vi\u00f0 Helgi horf\u00f0um \u00e1 \u00feingmenn ganga \u00ed kirkju \u00far fjarl\u00e6g\u00f0.<\/p>\n<p>Skyrbor\u00f0i\u00f0 var f\u00e6rt alveg upp a\u00f0 k\u00f6\u00f0lunum sem voru til a\u00f0 gir\u00f0a \u00feingmennina inni, l\u00f6greglan var ekki alveg viss hva\u00f0 gera skyldi en Hjalti, Kalli og V\u00e9steinn st\u00f3\u00f0u fastir og \u00fea\u00f0 f\u00e9kk a\u00f0 vera. Flott.<\/p>\n<p>Vi\u00f0 Ingibj\u00f6rg og Biggi reyndum a\u00f0 sannf\u00e6ra Helga til a\u00f0 koma n\u00e6r, hann var tregur en a\u00f0 lokum f\u00e9kkst hann til koma n\u00e1l\u00e6gt ka\u00f0linum en ekki alveg upp a\u00f0. Hva\u00f0 skyldu l\u00f6greglumenn hafa hugsa\u00f0? \u00c6tli \u00feeir sem st\u00f3\u00f0u stjarfir me\u00f0 h\u00f6ndina upp a\u00f0 h\u00fafinni hafi hugsa\u00f0 til f\u00e9laga sinna sem hreyf\u00f0u sig ekki \u00e1 me\u00f0an Helgi skvetti skyrinu? Hver veit, allavega var gott a\u00f0 hafa hann \u00fearna.<\/p>\n<p>\u00deegar \u00feingmenn gengu \u00ed \u00feingh\u00fasi\u00f0 \u00fe\u00e1 st\u00f3\u00f0u \u00f3tal m\u00f3tm\u00e6lendur vi\u00f0 ka\u00f0allinn, Herst\u00f6\u00f0vaandst\u00e6\u00f0ingar, f\u00e9lagar \u00cdsland-Palest\u00edna, kennarar og tr\u00faleysingjar. \u00c9g f\u00e9kk a\u00f0 standa vi\u00f0 hli\u00f0ina \u00e1 Helga H\u00f3seassyni fr\u00e6gasta m\u00f3tm\u00e6landa \u00cdslands, \u00fev\u00ed gleymi \u00e9g aldrei.<\/p>\n<p>\u00deegar \u00feingmennirnir voru komnir inn \u00fe\u00e1 \u00feurfti a\u00f0 \u00e1kve\u00f0a hva\u00f0 vi\u00f0 skyldum gera n\u00e6st, plani\u00f0 haf\u00f0i veri\u00f0 a\u00f0 leysa okkar a\u00f0ger\u00f0 upp \u00fe\u00e1 og \u00feegar. Spurningin var hva\u00f0 vi\u00f0 skyldum gera vi\u00f0 afgangsskyri\u00f0, l\u00f6greglan var ekki tilb\u00fainn a\u00f0 ferja \u00fea\u00f0 inn \u00ed \u00feingh\u00fasi\u00f0 \u00feannig a\u00f0 \u00e9g greiddi atkv\u00e6\u00f0i me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 gefa f\u00f3lkinu \u00fearna skyri\u00f0. Vi\u00f0 \u00e1kv\u00e1\u00f0um a\u00f0 b\u00ed\u00f0a eftir a\u00f0 \u00d3lafur Ragnar k\u00e6mi \u00fat, vi\u00f0 bi\u00f0um t\u00f6luvert lengi en ekkert b\u00f3la\u00f0i \u00e1 forsetanum. \u00c9g ba\u00f0 b\u00edlstj\u00f3ra forsetans um a\u00f0 taka skyr fyrir \u00d3laf en hann vildi \u00fea\u00f0 ekki.<\/p>\n<p>Helgi var or\u00f0inn \u00fereyttur \u00feannig a\u00f0 vi\u00f0 \u00e1kv\u00e1\u00f0um a\u00f0 skutla honum heim, minn b\u00edll var n\u00e6r (og st\u00f6\u00f0um\u00e6lirinn a\u00f0 renna \u00fat, \u00e9g eyddi einhverjum hundra\u00f0k\u00f6llum \u00ed st\u00f6\u00f0um\u00e6la \u00e1 skyrdeginum) \u00feannig a\u00f0 \u00e9g f\u00f3r a\u00f0 n\u00e1 \u00ed hann. Vi\u00f0 komumst ekki n\u00e1l\u00e6gt Austurvelli vegna \u00feess a\u00f0 g\u00f6turnar voru margar loka\u00f0ar og allt tro\u00f0i\u00f0 \u00feannig a\u00f0 \u00e9g keyr\u00f0i a\u00f0 r\u00e1\u00f0h\u00fasinu. \u00deessi \u00f6kufer\u00f0 gekk ekki vel, \u00e9g f\u00f3r \u00ed kringum tj\u00f6rnina og \u00feurfti s\u00ed\u00f0an fara einhverja sn\u00faninga til a\u00f0 enda r\u00e9ttum megin vi\u00f0 g\u00f6tuna. Vi\u00f0 n\u00e1\u00f0um a\u00f0 koma skiltunum hans Helga \u00ed b\u00edlinn minn, Helgi var kvaddur af \u00feeim sem eftir ur\u00f0u og vi\u00f0 \u00f3kum af sta\u00f0.<\/p>\n<p>\u00d6kufer\u00f0in var \u00e1hugaver\u00f0, Helgi spjalla\u00f0i um hitt og \u00feetta, hr\u00f3sa\u00f0i me\u00f0al annars barmmerkjunum okkar og einnig merkjunum sem Herst\u00f6\u00f0vaandst\u00e6\u00f0ingarnir voru a\u00f0 dreifa. Vi\u00f0 Helgi hristum h\u00f6fu\u00f0i\u00f0 yfir \u00fev\u00ed hvernig f\u00f3lk g\u00e6ti tr\u00faa\u00f0 \u00e1 Gu\u00f0, \u00e9g sag\u00f0i honum fr\u00e1 \u00fev\u00ed sem \u00e9g var n\u00fdb\u00fainn a\u00f0 lesa um Dau\u00f0ahafshandritin og honum fannst \u00fea\u00f0 \u00e1hugavert. Helgi minntist \u00e1 hve m\u00e6lskur Birgir v\u00e6ri og m\u00e9r heyr\u00f0ist a\u00f0 hann vildi helst a\u00f0 Biggi k\u00e6mi s\u00e9r \u00ed stj\u00f3rnm\u00e1labar\u00e1ttuna, \u00e9g veit ekki hvort \u00fea\u00f0 s\u00e9 framt\u00ed\u00f0in.<\/p>\n<p>\u00deegar vi\u00f0 komum a\u00f0 lei\u00f0arenda \u00fe\u00e1 h\u00e9ldum vi\u00f0 saman \u00e1 skiltunum inn til hans, \u00e9g s\u00e1 \u00fear \u00farklippusafni\u00f0 hans og me\u00f0al annars grein eftir Steingr\u00edm Jo\u00f0 \u00fear sem Helgi haf\u00f0i merkt vi\u00f0 m\u00f6rg atri\u00f0i sem hann var samm\u00e1la. \u00deegar \u00e9g kvaddi Helga \u00fe\u00e1 ba\u00f0 hann mig a\u00f0 b\u00ed\u00f0a og n\u00e1\u00f0i \u00ed epli, appels\u00ednfl\u00f6sku og nammi handa m\u00e9r, \u00e9g \u00fe\u00e1\u00f0i \u00fea\u00f0. \u00c9g veit a\u00f0 \u00feegar \u00e9g keyr\u00f0i aftur ni\u00f0ur \u00ed b\u00e6 \u00fe\u00e1 var \u00e9g me\u00f0 \u00fev\u00edl\u00edkt kj\u00e1naglott \u00e1 m\u00e9r, \u00feetta var fr\u00e1b\u00e6rt og m\u00e9r fannst \u00e1 Helga a\u00f0 hann v\u00e6ri n\u00e6rri jafn \u00e1n\u00e6g\u00f0ur og \u00e9g.<\/p>\n<p>\u00deegar \u00e9g kom \u00e1 Austurv\u00f6ll voru allir Vantr\u00faarseggir farnir en \u00e9g f\u00e9kk a\u00f0 heyra \u00feeirra s\u00f6gu seinna, Matti m\u00e6tti l\u00edka einmitt um \u00fea\u00f0 leyti sem \u00e9g f\u00f3r me\u00f0 Helga. \u00deeir bi\u00f0u eftir \u00d3lafi Ragnari en \u00feegar hann kom \u00fat \u00fe\u00e1 vildi hann ekki skyr, Dorrit vildi hins vegar f\u00e1 en l\u00f6gregluma\u00f0ur og b\u00edlstj\u00f3ri forsetans st\u00f6\u00f0vu\u00f0u hana. V\u00e9steinn n\u00e1\u00f0i fr\u00e1b\u00e6rri mynd af \u00feessu sem er a\u00f0almyndin \u00ed <a href=\"http:\/\/www.vantru.is\/2004\/10\/02\/00.56\/\">myndasyrpunni sem er \u00e1 Vantr\u00fa<\/a>.<\/p>\n<p>Eftir a\u00f0 forsetinn var farinn \u00fe\u00e1 g\u00e1fu Vantr\u00faarseggir \u00feeim sem vildu skyr, s\u00ed\u00f0an r\u00f6ltu \u00feeir yfir \u00ed Snarr\u00f3t me\u00f0 skyrbor\u00f0i\u00f0 \u00ed fullri reisn (\u00e9g asna\u00f0ist til a\u00f0 taka t\u00f6skuna me\u00f0 m\u00e9r). \u00c1 lei\u00f0inni til Snarr\u00f3tar \u00fe\u00e1 var\u00f0 \u00e1 vegi \u00feeirra kona me\u00f0 \u00ferj\u00fa b\u00f6rn \u00ed b\u00edl, b\u00f6rnin voru sv\u00f6ng og gr\u00e9tu og \u00fe\u00e1 bu\u00f0u Vantr\u00faarseggir konunni skyr, konan var\u00f0 hissa og spur\u00f0i hvort \u00feeir v\u00e6ru a\u00f0 selja skyr. Nei, skyri\u00f0 er \u00f3keypis og \u00fe\u00e1 fengu \u00feau skyr, s\u00ed\u00f0an meira skyr og a\u00f0eins meira skyr. \u00deetta \u00feyrfti einhver a\u00f0 skrifa um sem var \u00e1 sta\u00f0num.<\/p>\n<p>\u00deeir voru farnir \u00far Snarr\u00f3t \u00feegar \u00e9g kom \u00fear nema V\u00e9steinn var \u00fear, vi\u00f0 spj\u00f6llu\u00f0um \u00ed stutta stund en \u00e9g l\u00e9t mig hverfa \u00fev\u00ed b\u00edllinn var \u00e1 st\u00f6\u00f0um\u00e6li frekar langt \u00ed burtu, \u00e9g \u00feurfti l\u00edka a\u00f0 fara \u00ed umr\u00e6\u00f0ut\u00edma. \u00deegar umr\u00e6\u00f0ut\u00edminn var n\u00fdbyrja\u00f0ur \u00fe\u00e1 b\u00e6ttist vi\u00f0 n\u00fdr me\u00f0limur \u00ed h\u00f3pinn minn, Silfurrefurinn sj\u00e1lfur, fyrrverandi \u00feingma\u00f0urinn. M\u00e9r \u00fe\u00f3tti fyndi\u00f0 a\u00f0 spjalla vi\u00f0 hann \u00fear sem \u00e9g var n\u00fdkominn af Austurvelli, me\u00f0 mold \u00e1 sk\u00e1lmunum og sk\u00f3num. Ekki tengist \u00feetta a\u00f0als\u00f6gunni.<\/p>\n<p>\u00c9g sneri aftur \u00ed Snarr\u00f3t til a\u00f0 hitta V\u00e9stein svo vi\u00f0 g\u00e6tum sett upp st\u00f3la en hann var of seinn, vi\u00f0 \u00de\u00f3rarinn Haki f\u00e6r\u00f0um til h\u00fasg\u00f6gn en a\u00f0 lokum kom V\u00e9steinn. Birgir kom s\u00ed\u00f0an og l\u00edka \u00de\u00f3ra sem framleiddi myndina um Helga, vi\u00f0 spj\u00f6llu\u00f0um saman um m\u00e1li\u00f0 hans Helga og \u00fea\u00f0 er lj\u00f3st a\u00f0 \u00feetta ver\u00f0ur ekki \u00ed s\u00ed\u00f0asta skipti sem vi\u00f0 munum vekja athygli \u00e1 honum.<\/p>\n<p>Einhvern veginn var\u00f0 kvikmyndas\u00fdningin \u00fatundan \u00ed undirb\u00faningnum og \u00fea\u00f0 m\u00e6ttu ekkert s\u00e9rstaklega margir, \u00e9g l\u00e9t mig hverfa af sv\u00e6\u00f0inu \u00fear sem \u00e9g \u00feurfti a\u00f0 s\u00e6kja Eygl\u00f3 en t\u00f3k mig samt til og flutti l\u00e9lega r\u00e6\u00f0u fyrst. M\u00e9r skilst a\u00f0 \u00feetta hafi veri\u00f0 skemmtileg s\u00fdning.<\/p>\n<p>\u00deegar \u00feessu var loki\u00f0 \u00fe\u00e1 hugsa\u00f0i \u00e9g: \u00c6\u00f0islegt a\u00f0 vi\u00f0 \u00e1kv\u00e1\u00f0um a\u00f0 gera \u00feetta, st\u00f3rkostlegt hva\u00f0 \u00feetta gekk vel og sem betur fer er \u00feetta b\u00fai\u00f0.<\/p>\n<p>\u00deetta var fr\u00e1b\u00e6rt og m\u00e9r fannst alveg \u00feess vir\u00f0i a\u00f0 skrifa \u00feessa hundl\u00f6ngu f\u00e6rslu um \u00feetta me\u00f0 \u00f3\u00fe\u00f6rfum sm\u00e1atri\u00f0um. Ef eitthva\u00f0 er vitlaust hj\u00e1 m\u00e9r \u00fe\u00e1 g\u00e6ti \u00fea\u00f0 tengst \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fea\u00f0 var allt a\u00f0 gerast \u00e1 sama t\u00edma \u00e1 \u00feessum degi.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Skyrdagurinn krefst yfirfer\u00f0ar og jafnvel fors\u00f6gu, hvort \u00feetta er meira fyrir mig e\u00f0a ykkur er ekki gott a\u00f0 segja, l\u00edklega meira fyrir mig. \u00dea\u00f0 var \u00e1 f\u00f6studaginn fyrir r\u00famlega viku sem V\u00e9steinn stakk upp \u00e1 \u00fev\u00ed \u00e1 spjallinu okkar Vantr\u00faarseggja a\u00f0 vi\u00f0 myndum s\u00fdna heimildarmyndina um Helga H\u00f3seasson (hann haf\u00f0i \u00feegar fengi\u00f0 leyfi h\u00f6funda) \u00ed &hellip; <a href=\"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/2004\/10\/03\/skyrdagurinn-mikli\/\" class=\"more-link\">Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa: <span class=\"screen-reader-text\">Skyrdagurinn mikli<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[11],"tags":[935,455],"class_list":["post-1318","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-dagbok","tag-q15045388","tag-q16429700"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1318","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=1318"}],"version-history":[{"count":3,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1318\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":23238,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1318\/revisions\/23238"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=1318"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=1318"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=1318"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}