{"id":1706,"date":"2005-06-07T23:24:19","date_gmt":"2005-06-07T23:24:19","guid":{"rendered":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/2005\/06\/07\/eddie-rips-up-egilshollin-reykjavik-070605\/"},"modified":"2005-06-07T23:24:19","modified_gmt":"2005-06-07T23:24:19","slug":"eddie-rips-up-egilshollin-reykjavik-070605","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/2005\/06\/07\/eddie-rips-up-egilshollin-reykjavik-070605\/","title":{"rendered":"Eddie Rips Up Egilshollin Reykjavik 07\/06\/05"},"content":{"rendered":"<p>\u00deetta voru skemmtilegir t\u00f3nleikar.  \u00dea\u00f0 er reyndar svo a\u00f0 \u00e9g er ekki st\u00f3r a\u00f0d\u00e1andi Iron Maiden en m\u00e9r \u00fe\u00f3tti \u00f3h\u00e6fa a\u00f0 sleppa \u00feessu.\n<\/p>\n<p>\u00c9g s\u00f3tti Eygl\u00f3 \u00ed vinnuna og vi\u00f0 keyptum okkur pizzur til a\u00f0 ver\u00f0a ekki sv\u00f6ng \u00e1 t\u00f3nleikunum (vi\u00f0 lentum illa \u00ed \u00fev\u00ed \u00e1 Plant-t\u00f3nleikunum \u00fear sem eing\u00f6ngu voru seldar r\u00e1nd\u00fdrar fl\u00f6gur og litlar k\u00f3kd\u00f3sir).  Vi\u00f0 komum r\u00e9tt fyrir sex en \u00fe\u00e1 \u00e1tti h\u00fasi\u00f0 a\u00f0 opna, \u00fea\u00f0 opna\u00f0i samt ekki klukkan sex, opna\u00f0i seint og s\u00ed\u00f0armeir.  Hugsanlega vegna vandam\u00e1la me\u00f0 eldvarnareftirliti\u00f0, heyr\u00f0i starfsmenn eitthva\u00f0 vera a\u00f0 r\u00e6\u00f0a \u00fea\u00f0.\n<\/p>\n<p>\u00dear sem \u00e9g st\u00f3\u00f0 fyrir utan Egilsh\u00f6ll \u00fe\u00e1 kom m\u00e9r til hugar skrif Robert Rankin um h\u00f3pa ungra karlmanna \u00ed sv\u00f6rtum bolum, \u00feeir voru nefnilega \u00fearna.  \u00c9g held a\u00f0 Iron Maiden g\u00e6ti \u00e1tt met \u00ed fj\u00f6lda seldra hlj\u00f3msveitabola, Eddie er bara drauma\u00e6kon \u00feegar ma\u00f0ur er 12-15 \u00e1ra unglingsstr\u00e1kur.  Sj\u00e1lfur eigna\u00f0ist \u00e9g raunar ekki Maiden bol fyrr en \u00ed kv\u00f6ld.  Eygl\u00f3 keypti s\u00e9r l\u00edka bol.\n<\/p>\n<p>Vi\u00f0 komumst nokku\u00f0 snemma inn og pl\u00f6ntu\u00f0um okkur \u00e1 g\u00f3\u00f0um sta\u00f0 \u00e1 B-sv\u00e6\u00f0inu sem vi\u00f0 vorum \u00e1 alla t\u00f3nleikana.  R\u00e9tt \u00e1\u00f0ur en upphitunarhlj\u00f3msveitin byrja\u00f0i \u00fe\u00e1 s\u00e1 \u00e9g A\u00f0alstein fr\u00e6nda koma \u00ed \u00e1ttina a\u00f0 m\u00e9r me\u00f0 fr\u00ed\u00f0u f\u00f6runeyti.  Hann settist alveg r\u00e9tt fyrir framan mig en t\u00f3k ekkert eftir m\u00e9r fyrren \u00e9g reif \u00ed h\u00e1ri\u00f0 \u00e1 honum og Solla benti \u00e1 mig.\n<\/p>\n<p>Nevolution hita\u00f0i upp og \u00feeir voru alveg \u00e1g\u00e6tir, st\u00falkan sem var a\u00f0 selja bolina \u00feeirra var hins vegar ekki mj\u00f6g upptekin \u00feegar vi\u00f0 litum til hennar.\n<\/p>\n<p>R\u00e9tt \u00e1\u00f0ur en Maiden byrja\u00f0i \u00fe\u00e1 s\u00e1 \u00e9g D\u00fadda fr\u00e6nda og leit til hans, til a\u00f0 spjalla vi\u00f0 hann \u00fe\u00e1 f\u00f3r \u00e9g \u00e1 pallinn sem var \u00fearna fyrir hj\u00f3last\u00f3la (gott framtak \u00fea\u00f0).  Eftir sm\u00e1 spjall heyri \u00e9g a\u00f0 einhver er a\u00f0 tala illa um mig fyrir a\u00f0 vera a\u00f0 nota hj\u00f3last\u00f3lapallinn til a\u00f0 sj\u00e1 betur.  \u00c9g leit vi\u00f0 og \u00fatsk\u00fdr\u00f0i fyrir manninum a\u00f0 \u00e9g \u00e6tla\u00f0i n\u00fa ekki a\u00f0 vera \u00fearna me\u00f0an hlj\u00f3msveitin v\u00e6ri a\u00f0 spila heldur bara a\u00f0 spjalla vi\u00f0 fr\u00e6nda minn a\u00f0eins (\u00e9g var ekki fyrir neinum).  \u00dea\u00f0 var hins vegar ekkert a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 skammast \u00fat \u00ed mig \u00fearna, sj\u00e1lfur hef\u00f0i \u00e9g \u00f6rugglega einmitt gert \u00fea\u00f0 sama \u00ed hans sporum ef \u00e9g hef\u00f0i haldi\u00f0 a\u00f0 einhver \u00e6tla\u00f0i a\u00f0 misnota s\u00e9r a\u00f0st\u00f6\u00f0u \u00e6tla\u00f0a f\u00f6tlu\u00f0um.\n<\/p>\n<p>Eftir \u00fatsk\u00fdringuna \u00fe\u00e1 minnti \u00e9g manninn \u00e1 a\u00f0 vi\u00f0 hef\u00f0um unni\u00f0 saman fyrir nokkrum \u00e1rum.  Hann mundi strax eftir m\u00e9r og mundi meira\u00f0segja a\u00f0 \u00e9g h\u00e9ti \u00d3li.  \u00dear sem vi\u00f0 tveir unnum \u00fe\u00e1 vorum vi\u00f0 b\u00e1\u00f0ir duglegir a\u00f0 gagnr\u00fdna yfirmenn okkar fyrir a\u00f0 fara illa me\u00f0 starfsf\u00f3lki\u00f0 og vorum b\u00e1\u00f0ir reknir fyrir viki\u00f0.  Vi\u00f0 bl\u00f3tu\u00f0um \u00feessum bj\u00e1lfum a\u00f0eins og s\u00ed\u00f0an hvarf \u00e9g aftur til s\u00e6tis m\u00edns.  \u00deegar \u00e9g var kominn aftur \u00fe\u00e1 s\u00e1 \u00e9g a\u00f0 Ey\u00fe\u00f3r var vi\u00f0 hli\u00f0ina \u00e1 D\u00fadda og \u00e9g haf\u00f0i ekkert teki\u00f0 eftir honum.\n<\/p>\n<p>\u00c9g veit ekki hva\u00f0 \u00e9g \u00e1 a\u00f0 segja um Maiden.  Flottir t\u00f3nleikar, \u00e9g sj\u00e1lfur \u00feekkti ekki \u00f6ll l\u00f6gin en \u00fe\u00f3 komu \u00fearna m\u00f6rg sem eru \u00ed upp\u00e1haldi.  Run to the Hills og Number of the Beast voru h\u00e1punktar en Hallowed Be Thy Name og Phantom of the Opera st\u00f3\u00f0u l\u00edka upp\u00far.\n<\/p>\n<p>\u00deegar lj\u00f3st var a\u00f0 t\u00f3nleikunum var loki\u00f0 \u00fe\u00e1 drifum vi\u00f0 okkur \u00fat, f\u00f3rum a\u00f0 b\u00edlnum sem haf\u00f0i veri\u00f0 komi\u00f0 fyrir \u00e1 mj\u00f6g strateg\u00edskum sta\u00f0 og brunu\u00f0um heim.  Vi\u00f0 vorum ekki nema um kort\u00e9r \u00fat Grafarvoginum.\n<\/p>\n<p>\u00c9g \u00e6tla\u00f0i annars a\u00f0 n\u00fdta t\u00e6kif\u00e6ri\u00f0 a\u00f0 til a\u00f0 bi\u00f0jast afs\u00f6kunar \u00e1 brandara m\u00ednum um nafn Grafarvogs \u00ed f\u00e6rslu fyrr \u00ed dag, hann var afar slakur.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00deetta voru skemmtilegir t\u00f3nleikar. \u00dea\u00f0 er reyndar svo a\u00f0 \u00e9g er ekki st\u00f3r a\u00f0d\u00e1andi Iron Maiden en m\u00e9r \u00fe\u00f3tti \u00f3h\u00e6fa a\u00f0 sleppa \u00feessu. \u00c9g s\u00f3tti Eygl\u00f3 \u00ed vinnuna og vi\u00f0 keyptum okkur pizzur til a\u00f0 ver\u00f0a ekki sv\u00f6ng \u00e1 t\u00f3nleikunum (vi\u00f0 lentum illa \u00ed \u00fev\u00ed \u00e1 Plant-t\u00f3nleikunum \u00fear sem eing\u00f6ngu voru seldar r\u00e1nd\u00fdrar fl\u00f6gur og &hellip; <a href=\"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/2005\/06\/07\/eddie-rips-up-egilshollin-reykjavik-070605\/\" class=\"more-link\">Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa: <span class=\"screen-reader-text\">Eddie Rips Up Egilshollin Reykjavik 07\/06\/05<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[92],"tags":[],"class_list":["post-1706","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-tonleikar"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1706","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=1706"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1706\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=1706"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=1706"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=1706"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}