{"id":18440,"date":"2020-04-07T10:18:15","date_gmt":"2020-04-07T10:18:15","guid":{"rendered":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/?p=18440"},"modified":"2025-02-22T10:33:49","modified_gmt":"2025-02-22T10:33:49","slug":"hvada-ahrif-hefur-faraldurinn-a-mig","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/2020\/04\/07\/hvada-ahrif-hefur-faraldurinn-a-mig\/","title":{"rendered":"Hva\u00f0a \u00e1hrif hefur faraldurinn \u00e1 mig?"},"content":{"rendered":"<p>\u00deetta eru undarlegir t\u00edmar. \u00c9g dr\u00f3 mig a\u00f0eins fyrr \u00ed hl\u00e9 en a\u00f0rir af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00e9g haf\u00f0i \u00e1hyggjur af \u00fev\u00ed a\u00f0 astminn minn ger\u00f0i mig vi\u00f0kv\u00e6mari fyrir veirunni. Lukkulega vir\u00f0ast \u00fe\u00e6r \u00e1hyggjur ekki \u00e1 r\u00f6kum reistar (\u00fe\u00f3 erfitt s\u00e9 a\u00f0 vita nokku\u00f0 fyrir v\u00edst) en \u00e9g var byrja\u00f0ur a\u00f0 fresta \u00fev\u00ed a\u00f0 hitta f\u00f3lk \u00e1\u00f0ur en sta\u00f0fest smit komu fram \u00e1 \u00cdslandi.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 er or\u00f0i\u00f0 t\u00f6luvert langt s\u00ed\u00f0an \u00e9g t\u00f3k upp \u00fe\u00e1tt af hla\u00f0varpinu m\u00ednu <em><a href=\"http:\/\/botninn.is\">Botninn<\/a><\/em>. \u00d6nnur pl\u00f6n \u00ed <em><a href=\"http:\/\/kistan.is\">Kistunni<\/a><\/em> eru l\u00edka \u00ed bi\u00f0st\u00f6\u00f0u. \u00dea\u00f0 er enginn spenntur a\u00f0 borga fyrir a\u00f0gang a\u00f0 uppt\u00f6kuveri \u00ed \u00feessu \u00e1standi.<\/p>\n<p>\u00c9g hef hins vegar afreka\u00f0 a\u00f0 taka upp tvo \u00fe\u00e6tti af <em><a href=\"http:\/\/storiesoficeland.com\">Stories of Iceland<\/a><\/em> hla\u00f0varpinu m\u00ednu. \u00dea\u00f0 er alltaf miki\u00f0 ni\u00f0urhal \u00e1 \u00feeim \u00fe\u00e1ttum og \u00fea\u00f0 er alveg sm\u00e1 peningur a\u00f0 koma inn \u00ed gegnum <a href=\"http:\/\/patreon.com\/storiesoficeland\">Patreon<\/a>.<\/p>\n<p>\u00c9g var l\u00edka r\u00e9tt byrja\u00f0ur a\u00f0 stofna einkahlutaf\u00e9lag um reksturinn minn &#8211; <a href=\"http:\/\/gneistinn.is\">Gneistinn &#8211; menningarmi\u00f0lun ehf.<\/a> &#8211; og \u00fe\u00f3 kennitalan s\u00e9 komin \u00fe\u00e1 er \u00e9g ekki einu sinni b\u00fainn a\u00f0 stofna bankareikning. Ekki bara til a\u00f0 for\u00f0ast f\u00f3lk heldur vanta\u00f0i mig t\u00f3ner \u00ed prentarann og \u00fea\u00f0 var merkilega erfitt a\u00f0 redda \u00fev\u00ed.<\/p>\n<p>\u00c9g er a\u00f0 vinna \u00ed 2-3 spilahugmyndum sem \u00e9g \u00e6tti a\u00f0 geta kl\u00e1ra\u00f0 fyrir sumari\u00f0 \u00feannig a\u00f0 \u00feau komi \u00fat fyrir j\u00f3l en \u00e9g er svol\u00edti\u00f0 frosinn eins og er. \u00c1standi\u00f0 \u00ed \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9laginu er \u00feannig a\u00f0 ma\u00f0ur veit ekki hvort \u00fea\u00f0 s\u00e9 g\u00f3\u00f0 hugmynd a\u00f0 keyra hugmyndir \u00e1fram.<\/p>\n<p>\u00c9g h\u00e9lt a\u00f0 \u00e9g g\u00e6ti flj\u00f3tlega fari\u00f0 a\u00f0 borga sj\u00e1lfum m\u00e9r reglubundinn laun &#8211; frekar en reikna\u00f0 endurgjald &#8211; en ma\u00f0ur veit ekkert hva\u00f0a \u00e1hrif \u00e1standi\u00f0 hefur. \u00dea\u00f0 l\u00edtur \u00fat fyrir a\u00f0 \u00feetta hafi ekki veri\u00f0 g\u00f3\u00f0ur t\u00edmi til a\u00f0 h\u00e6tta \u00ed \u00f6ruggu starfi og byrja a\u00f0 byggja upp rekstur.<\/p>\n<p>M\u00e9r fannst vanta uppbyggilega af\u00fereyingu fyrir f\u00f3lk \u00e1 \u00feessum t\u00edmum \u00feannig a\u00f0 \u00e9g ger\u00f0i alv\u00f6ru \u00far \u00fev\u00ed a\u00f0 endurvekja <a href=\"http:\/\/profork.rafbokavefur.is\">pr\u00f3farkalestur Rafb\u00f3kavefsins<\/a>. Eftir \u00e1 f\u00f3r \u00e9g a\u00f0 p\u00e6la a\u00f0 \u00e1 sama t\u00edma voru \u00f3tal fyrirt\u00e6ki a\u00f0 setja upp vefverslanir. \u00dea\u00f0 er verkefni sem reynir \u00e1 s\u00f6mu kunn\u00e1ttu og a\u00f0 setja upp vef\u00fej\u00f3n fyrir Rafb\u00f3kavefinn fyrir utan a\u00f0 vefverslanir eru kerfi sem sett eru upp \u00e1 hverjum degi um allan heim \u00feannig a\u00f0 \u00fea\u00f0 eru til miklar og g\u00f3\u00f0ar lei\u00f0beiningar fyrir svolei\u00f0is \u00e1 me\u00f0an \u00e9g var l\u00edklega s\u00e1 fyrsti sem setti upp \u00feessa \u00fatg\u00e1fu af <a href=\"http:\/\/pgdp.net\">DP-kerfinu<\/a>. \u00c9g er ekki endilega g\u00f3\u00f0ur a\u00f0 gr\u00e6\u00f0a peninga \u00e1 hugmyndum m\u00ednum og h\u00e6fileikum.<\/p>\n<p>Fyrir svona viku \u00e1kva\u00f0 \u00e9g a\u00f0 klippa mig og snyrta skeggi\u00f0. Eitthva\u00f0 var einbeitingin l\u00e9leg \u00feannig a\u00f0 \u00e9g n\u00e1\u00f0i a\u00f0 raka of miki\u00f0 af. \u00dea\u00f0 enda\u00f0i me\u00f0 skeggi sem var styttra en \u00fea\u00f0 hefur veri\u00f0 \u00ed \u00f3talm\u00f6rg \u00e1r. Lukkulega \u00fearf enginn a\u00f0 sj\u00e1 \u00feetta nema fj\u00f6lskyldan. Str\u00e1kunum fannst \u00feetta ekki gott l\u00fakk. \u00dear sem \u00e9g haf\u00f0i veri\u00f0 a\u00f0 gr\u00ednast \u00ed Gunnsteini, sem missti t\u00f6nn, me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 syngja &#8222;Hann er tannlaus greyi\u00f0&#8220; f\u00f3r Gunnsteinn a\u00f0 syngja fyrir mig &#8222;Hann er skegglaus greyi\u00f0&#8220;. \u00c9g b\u00e6tti vi\u00f0 eitthva\u00f0 \u00e1 \u00feessa lei\u00f0 &#8222;skeggi\u00f0 hann missti rakstursslysi \u00ed&#8220;.<\/p>\n<p>St\u00f3ra spurningin sem vi\u00f0 h\u00f6fum spurt okkur \u00e1 heimilinu er hvort vi\u00f0 h\u00f6fum kannski fengi\u00f0 v\u00edrusinn. Allavega gekk yfir alda h\u00f3standi fj\u00f6lskyldume\u00f0lima. Var \u00fea\u00f0 v\u00edrusinn? Enginn f\u00e9kk nema nokkrar kommur \u00ed hita en aftur \u00e1 m\u00f3ti hafa margir sem Eygl\u00f3 umgekkst \u00ed vinnunni fengi\u00f0 sta\u00f0festar greiningar. Ef \u00fea\u00f0 ver\u00f0ur m\u00f6gulegt a\u00f0 pr\u00f3fa hvort ma\u00f0ur hafi mynda\u00f0 m\u00f3tefni gegn v\u00edrusnum \u00fe\u00e1 langar mig \u00ed \u00fea\u00f0 pr\u00f3f.<\/p>\n<p>\u00dear sem vi\u00f0 vorum h\u00f3standi h\u00e9ldum vi\u00f0 str\u00e1kunum meira og minna heima fyrir p\u00e1skafr\u00ed. Hva\u00f0 vi\u00f0 gerum eftir p\u00e1ska kemur \u00ed lj\u00f3s. P\u00e1skapl\u00f6nin m\u00edn eru annars \u00f6ll horfin. Eygl\u00f3 \u00e6tla\u00f0i a\u00f0 fara me\u00f0 str\u00e1kana austur \u00e1 me\u00f0an \u00e9g v\u00e6ri heima a\u00f0 kl\u00e1ra \u00fdmislegt \u00ed framkv\u00e6mdum h\u00e9rna heima vi\u00f0. \u00dear sem margir \u00feeirra sem Eygl\u00f3 og str\u00e1karnir \u00e6tlu\u00f0u a\u00f0 hitta fyrir austan eru m\u00f6gulega vi\u00f0kv\u00e6mir fyrir v\u00edrusnum \u00fe\u00e1 var au\u00f0vita\u00f0 h\u00e6tt vi\u00f0 \u00fe\u00e1 fer\u00f0. M\u00e9r finnst l\u00edka ekkert fr\u00e1b\u00e6r hugmynd a\u00f0 vera \u00ed h\u00e1v\u00e6rum framkv\u00e6mdum me\u00f0an n\u00e1grannarnir eru allir heima.<\/p>\n<p>\u00cd sta\u00f0inn hef \u00e9g veri\u00f0 a\u00f0 baka \u00fdmislegt. Hef n\u00fana pl\u00f6n um a\u00f0 steikja kleinur vi\u00f0 t\u00e6kif\u00e6ri. Heimatilb\u00fain p\u00e1skaegg eru l\u00edka \u00e1 dagskr\u00e1nni \u00e1 fimmtudag\/f\u00f6studag. \u00c9g hef gert svolei\u00f0is nokkrum sinnum \u00e1\u00f0ur. Ekkert fl\u00f3ki\u00f0, bara br\u00e6\u00f0a s\u00fakkula\u00f0i \u00ed form. L\u00edklega ver\u00f0ur s\u00ed\u00f0an settur einhver \u00fer\u00edv\u00edddarprenta\u00f0ur karakter \u00e1 toppinn.<\/p>\n<p>\u00c9g hef veri\u00f0 a\u00f0 leika m\u00e9r \u00ed t\u00f6lvuleik sem heitir <em>Epiphany<\/em>. S\u00e1 er eftirherma af langsamlega upp\u00e1haldst\u00f6lvuleik m\u00ednum: <em>Boulder Dash<\/em>. <em>Epiphany<\/em> er opinn hugb\u00fana\u00f0ur og einhver hefur teki\u00f0 a\u00f0 s\u00e9r a\u00f0 b\u00faa til t\u00f3l \u00fear sem ma\u00f0ur getur sj\u00e1lfur b\u00fai\u00f0 s\u00e9r til n\u00fd bor\u00f0 til a\u00f0 spila. \u00c9g skemmti m\u00e9r t\u00f6luvert \u00ed g\u00e6r a\u00f0 b\u00faa til sn\u00f6ggt bor\u00f0 og s\u00ed\u00f0an spila \u00fea\u00f0. \u00dea\u00f0 var erfi\u00f0ara en ma\u00f0ur hef\u00f0i haldi\u00f0. \u00c9g fann au\u00f0vita\u00f0 galla \u00ed h\u00f6nnun minni sem \u00e9g \u00feurfti a\u00f0 laga en s\u00ed\u00f0an \u00feurfti ma\u00f0ur sm\u00e1 lagni til a\u00f0 kl\u00e1ra bor\u00f0i\u00f0.<\/p>\n<p>M\u00e9r er fari\u00f0 a\u00f0 lei\u00f0ast tilbreytingaleysi\u00f0 og a\u00f0 hanga inni. Tilhugsunin um a\u00f0 loftmengun \u00ed borginni s\u00e9 \u00ed s\u00f6gulegu l\u00e1gmarki vekur hj\u00e1 m\u00e9r langanir til a\u00f0 fara \u00fat a\u00f0 hj\u00f3la en \u00fea\u00f0 v\u00e6ri ekkert rosalega g\u00f3\u00f0 hugmynd. \u00c9g \u00feyrfti l\u00edka a\u00f0 setja nagladekkinn undir og svona.<\/p>\n<p>\u00cd heild hef \u00e9g \u00fea\u00f0 \u00e1g\u00e6tt en hef au\u00f0vita\u00f0 \u00e1hyggjur af framt\u00ed\u00f0inni eins og \u00fei\u00f0 hin. Ma\u00f0ur getur vona\u00f0 a\u00f0 komandi kreppa ver\u00f0i til umb\u00f3ta \u00ed samf\u00e9laginu en au\u00f0vita\u00f0 er alltaf h\u00e6tta \u00e1 hinum gagnst\u00e6\u00f0a. Ma\u00f0ur ver\u00f0ur allavega a\u00f0 gera sitt best til a\u00f0 b\u00e6ta heiminn.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00deetta eru undarlegir t\u00edmar. \u00c9g dr\u00f3 mig a\u00f0eins fyrr \u00ed hl\u00e9 en a\u00f0rir af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00e9g haf\u00f0i \u00e1hyggjur af \u00fev\u00ed a\u00f0 astminn minn ger\u00f0i mig vi\u00f0kv\u00e6mari fyrir veirunni. Lukkulega vir\u00f0ast \u00fe\u00e6r \u00e1hyggjur ekki \u00e1 r\u00f6kum reistar (\u00fe\u00f3 erfitt s\u00e9 a\u00f0 vita nokku\u00f0 fyrir v\u00edst) en \u00e9g var byrja\u00f0ur a\u00f0 fresta \u00fev\u00ed a\u00f0 hitta f\u00f3lk &hellip; <a href=\"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/2020\/04\/07\/hvada-ahrif-hefur-faraldurinn-a-mig\/\" class=\"more-link\">Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa: <span class=\"screen-reader-text\">Hva\u00f0a \u00e1hrif hefur faraldurinn \u00e1 mig?<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":18441,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[11],"tags":[1137,146,1145],"class_list":["post-18440","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-dagbok","tag-q55605","tag-q84263196","tag-frjals-og-opinn-hugbunadur"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/18440","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=18440"}],"version-history":[{"count":3,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/18440\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":23464,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/18440\/revisions\/23464"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/media\/18441"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=18440"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=18440"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=18440"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}