{"id":18950,"date":"2020-09-25T12:00:36","date_gmt":"2020-09-25T12:00:36","guid":{"rendered":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/?p=18950"},"modified":"2020-09-25T15:08:50","modified_gmt":"2020-09-25T15:08:50","slug":"samsaeriskenningarugl-og-rangfaerslur-i-mogganum","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/2020\/09\/25\/samsaeriskenningarugl-og-rangfaerslur-i-mogganum\/","title":{"rendered":"Sams\u00e6riskenningarugl og rangf\u00e6rslur \u00ed Mogganum"},"content":{"rendered":"<p>\u00dea\u00f0 vir\u00f0ast einhverjir enn kaupa Moggann. \u00c9g veit ekki hvers vegna. N\u00fana gengur um Twitter grein sem var birt \u00fear, v\u00e6ntanlega \u00ed dag. Greinin er eftir \u00d6nnu Karen J\u00f3nsd\u00f3ttur (BS hagfr\u00e6\u00f0i) og fjallar um Black Lives Matter hreyfinguna. \u00deessi grein f\u00f3r ekki \u00e1 flakk af \u00fev\u00ed a\u00f0 h\u00fan er vel skrifu\u00f0 og \u00edgrundu\u00f0. \u00dea\u00f0 er n\u00e6stum erfitt a\u00f0 gera upp \u00e1 milli hvort er verra, m\u00e1lfari\u00f0 e\u00f0a efni\u00f0.<\/p>\n<p>Samkv\u00e6mt \u00d6nnu Karen \u00fe\u00e1 er m\u00e1lflutningur BLM bygg\u00f0ur \u00e1 misskilningi e\u00f0a rangf\u00e6rslum. H\u00fan segir:<\/p>\n<blockquote>\n<p>\u00c1ri\u00f0 2019 voru 10 svartir \u00f3vopna\u00f0ir skotnir til dau\u00f0a samkv\u00e6mt gagnagrunni Washington Post.<\/p>\n<\/blockquote>\n<p>\u00dea\u00f0 er margt athugavert vi\u00f0 \u00feessa fullyr\u00f0ingu. \u00cd fyrsta lagi er h\u00fan r\u00f6ng. \u00dea\u00f0 voru 14 \u00f3vopna\u00f0ar svartar manneskjur skotnar til bana af l\u00f6greglu \u00e1ri\u00f0 2019 skv. umr\u00e6ddu gagnasafni. \u00cd \u00f6\u00f0ru lagi \u00fe\u00e1 er skilgreiningin \u00e1 a\u00f0 vera &#8222;vopna\u00f0ur&#8220; mj\u00f6g \u00f3lj\u00f3s. L\u00f6greglan skaut allavega fj\u00f3ra sem voru &#8222;vopna\u00f0ir&#8220; me\u00f0 leikf\u00f6ngum. \u00cd \u00feri\u00f0ja lagi er h\u00e9rna einungis veri\u00f0 a\u00f0 tala um \u00fe\u00e1 sem eru skotnir. \u00dei\u00f0 muni\u00f0 a\u00f0 t.d. George Floyd var kraminn til bana. \u00cd fj\u00f3r\u00f0a lagi er h\u00e9rna gert r\u00e1\u00f0 fyrir a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 alltaf r\u00e9ttl\u00e6tanlegt a\u00f0 drepa f\u00f3lk ef \u00fea\u00f0 er &#8222;vopna\u00f0&#8220;. H\u00e9rna erum vi\u00f0 a\u00f0 tala um land \u00fear sem stj\u00f3rnarskr\u00e1in ver r\u00e9ttindi f\u00f3lks til a\u00f0 bera vopn.<\/p>\n<p>T\u00f6lfr\u00e6\u00f0in er mj\u00f6g einf\u00f6ld. <strong>Svart f\u00f3lk er mun l\u00edklegra til a\u00f0 vera drepi\u00f0 af l\u00f6greglu en a\u00f0rir h\u00f3par og \u00fe\u00e1 s\u00e9rstaklega \u00feegar \u00fea\u00f0 er \u00f3vopna\u00f0<\/strong>.<\/p>\n<blockquote>\n<p>Til samanbur\u00f0ar voru 48 l\u00f6greglumenn myrtir. Hver s\u00e1 sem l\u00fdsir yfir stu\u00f0ningi vi\u00f0 l\u00f6gregluna \u00e1 \u00feessum mor\u00f0um \u00e1 hins vegar \u00e1 h\u00e6ttu a\u00f0 vera rekinn \u00far vinnu e\u00f0a sk\u00f3la.<\/p>\n<\/blockquote>\n<p>\u00c9g myndi vilja gagnr\u00fdna \u00feetta en \u00e9g skil ekki einu sinni hvert Anna Karen er a\u00f0 fara h\u00e9rna. &#8222;Hver s\u00e1 sem l\u00fdsir yfir stu\u00f0ningi vi\u00f0 l\u00f6gregluna \u00e1 \u00feessum mor\u00f0um&#8220; er bara \u00f3skiljanleg rugl. Satt best a\u00f0 segja v\u00e6ri r\u00f6kr\u00e9ttast a\u00f0 skilja \u00feetta \u00feannig a\u00f0 h\u00fan s\u00e9 a\u00f0 tala um \u00fe\u00e1 sem sty\u00f0ja a\u00f0 l\u00f6gregluf\u00f3lk s\u00e9 myrt en \u00e9g held a\u00f0 h\u00fan meini \u00fea\u00f0 \u00f6rugglega ekki. \u00c9g veit ekki hvort h\u00fan er a\u00f0 tala stu\u00f0ning vi\u00f0 l\u00f6greglu \u00feegar l\u00f6greglumenn eru drepnir e\u00f0a stu\u00f0ning vi\u00f0 mor\u00f0 l\u00f6greglu \u00e1 \u00f3vopnu\u00f0u sv\u00f6rtu f\u00f3lki. Ef h\u00fan meinar \u00fea\u00f0 fyrrnefnda \u00fe\u00e1 er \u00fea\u00f0 \u00e1n efa rugl. Allavega v\u00e6ri \u00e9g til \u00ed a\u00f0 f\u00e1 lista yfir f\u00f3lk sem hefur veri\u00f0 reki\u00f0 fyrir a\u00f0 s\u00fdna sam\u00fa\u00f0 \u00feegar l\u00f6greglumenn eru drepnir.<\/p>\n<p>Notkun \u00d6nnu Karenar \u00e1 hagt\u00f6lum bendir til \u00feess a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 einhver brotal\u00f6m \u00ed hagfr\u00e6\u00f0imenntun hennar, eins og s\u00e9st h\u00e9r:<\/p>\n<blockquote>\n<p>\u00der\u00e1tt fyrir a\u00f0 vera bara 13,4% \u00fej\u00f3\u00f0innar \u00fe\u00e1 eru svartir \u00ed langflestum tilfellum yfirgn\u00e6fandi meirihluti afbrotamanna. Sem d\u00e6mi voru samkv\u00e6mt \u00e1rssk\u00fdrslu New York Police Department \u00e1ri\u00f0 2019 afbrotahlutf\u00f6llin \u00feessi:<\/p>\n<\/blockquote>\n<p>H\u00e9rna tekur Anna Karen fj\u00f6lda svarts f\u00f3lks \u00ed Bandar\u00edkjunum og yfirf\u00e6rir \u00e1 New York borg til a\u00f0 s\u00fdna gl\u00e6phneig\u00f0 \u00feeirra. En vandam\u00e1li\u00f0 er a\u00f0 \u00ed New York \u00fe\u00e1 er hlutfall svartra mun h\u00e6rra en v\u00ed\u00f0a annars sta\u00f0ar. \u00deannig a\u00f0 t\u00f6lurnar hennar eru mj\u00f6g villandi. En au\u00f0vita\u00f0 er \u00fea\u00f0 aukaatri\u00f0i \u00fev\u00ed sta\u00f0reyndin er s\u00fa a\u00f0 \u00fea\u00f0 er ekki svart f\u00f3lk sem er l\u00edklegra til a\u00f0 vera handteki\u00f0 fyrir gl\u00e6pi heldur f\u00e1t\u00e6kt f\u00f3lk.<\/p>\n<p>\u00dear sem efnahagskerfi Bandar\u00edkjanna hefur veri\u00f0 hanna\u00f0 til \u00feess a\u00f0 gera svart f\u00f3lk f\u00e1t\u00e6kt (leiti\u00f0 a\u00f0 t.d. &#8222;red lining&#8220; \u00e1 netinu) \u00fe\u00e1 er \u00fea\u00f0 l\u00edklegra til \u00feess a\u00f0 fremja gl\u00e6pi. Af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fea\u00f0 er f\u00e1t\u00e6kt. Af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fev\u00ed skortir t\u00e6kif\u00e6ri.<\/p>\n<p>En Anna Karen telur a\u00f0 rasismi geti ekki veri\u00f0 vandam\u00e1li\u00f0:<\/p>\n<blockquote>\n<p>\u00c1st\u00e6\u00f0ur f\u00e1t\u00e6ktar geta veri\u00f0 margar og fl\u00f3knar. Rasismi er hins vegar langs\u00f3tt sk\u00fdring \u00e1ri\u00f0 2020. Ef hv\u00edti ma\u00f0urinn stj\u00f3rnar efnahagnum milli kyn\u00fe\u00e1tta og heldur \u00feannig efnahagsst\u00f6\u00f0u svartra ni\u00f0ri, \u00e6tti \u00fe\u00e1 s\u00e1 hv\u00edti ekki a\u00f0 hafa sett sig \u00ed fyrsta launaflokk \u00e1 undan As\u00edub\u00faanum? Sl\u00edkt er ekki raunin en <span style=\"color: #993300;\">As\u00edub\u00faar<\/span> eru \u00ed flestum m\u00e6lingum me\u00f0 betri afkomu en hv\u00edtir.<\/p>\n<\/blockquote>\n<p>H\u00e9r kemur til algj\u00f6r van\u00feekking hennar \u00e1 innflytjendastefnu Bandar\u00edkjanna. \u00dea\u00f0 voru lengi miklar takmarkanir \u00e1 fj\u00f6lda innflytjenda fr\u00e1 As\u00edu (s\u00e9rstaklega reyndar K\u00edna sbr. The Chinese Exclusion Act). \u00deegar var fari\u00f0 a\u00f0 hleypa inn fleirum fr\u00e1 \u00feessum heimshluta \u00fe\u00e1 var l\u00f6g\u00f0 \u00e1hersla \u00e1 a\u00f0 hleypa inn menntu\u00f0um einstaklingum. Vel mennta\u00f0 f\u00f3lk er l\u00edklegra til a\u00f0 f\u00e1 h\u00e6rri laun og a\u00f0 eignast b\u00f6rn sem menntar sig vel. \u00deannig a\u00f0 g\u00f3\u00f0 efnahagsleg sta\u00f0a f\u00f3lks sem rekur uppruna s\u00edns til As\u00edu er komin til vegna (ras\u00edskrar) innflytjendastefnu. \u00dea\u00f0 er mj\u00f6g fr\u00f3\u00f0leg umr\u00e6\u00f0a um \u00feetta \u00ed hla\u00f0varpinu &#8222;Whiting Wongs&#8220;.<\/p>\n<p>H\u00fan Anna Karen reynir l\u00edka a\u00f0 flytja inn \u00e1kve\u00f0na tegund af bandar\u00edskri \u00edhaldsp\u00f3lit\u00edk:<\/p>\n<blockquote>\n<p>\u00dea\u00f0 eru margir \u00fe\u00e6ttir sem hafa \u00e1hrif \u00e1 f\u00e1t\u00e6kt. \u00dea\u00f0 m\u00e1 velta \u00fev\u00ed fyrir s\u00e9r hvort \u00fea\u00f0 s\u00e9 \u00fat af menningu e\u00f0a vegna \u00feess a\u00f0 70% af <span style=\"color: #993300;\">litu\u00f0um<\/span> b\u00f6rnum \u00ed dag f\u00e6\u00f0ast utan hj\u00f3nabands.<\/p>\n<\/blockquote>\n<p>Vi\u00f0 \u00cdslendingar sem erum v\u00f6n \u00fev\u00ed a\u00f0 b\u00f6rn f\u00e6\u00f0ist utan hj\u00f3nabands erum frekar hissa \u00e1 svona m\u00e1lflutningi. Af hverju er hj\u00f3nabandssta\u00f0a eitthva\u00f0 lykilatri\u00f0i? B\u00e1\u00f0ir synir m\u00ednir er f\u00e6ddir utan hj\u00f3nabands. En er ekki l\u00edklegra a\u00f0 efnahagslegt umhverfi hafi \u00e1hrif \u00e1 hj\u00f3nabandsst\u00f6\u00f0u heldur en \u00f6fugt?<\/p>\n<p>\u00cd seinni hluta greinarinnar fer Anna Karen \u00ed sams\u00e6riskenningastu\u00f0. H\u00fan nefnir til Bill Gates og George Soros. H\u00fan bendir l\u00edka a\u00f0 K\u00edna hafi l\u00fdst yfir stu\u00f0ningi vi\u00f0 Black Lives Matter eins og \u00fea\u00f0 s\u00fdni hve vafas\u00f6m samt\u00f6kin eru. \u00dea\u00f0 a\u00f0 keppinautar \u00e1 al\u00fej\u00f3\u00f0asvi\u00f0inu noti mannr\u00e9ttindam\u00e1l til a\u00f0 koma h\u00f6ggi \u00e1 andst\u00e6\u00f0inga s\u00edna er ekki n\u00fdtt og \u00fea\u00f0 \u00f3gildir ekki mannr\u00e9ttindabar\u00e1ttuna.<\/p>\n<p>\u00cd dramat\u00edsku \u00fatspili spyr Anna Karen:<\/p>\n<blockquote>\n<p>H\u00f6fum vi\u00f0 gleymt Tiannanmen Square 1989?<\/p>\n<\/blockquote>\n<p>\u00c9g j\u00e1ta a\u00f0 \u00e9g man mj\u00f6g vel eftir atbur\u00f0unum \u00e1ri\u00f0 1989 en \u00e9g man l\u00edka a\u00f0 \u00e1 \u00cdslandi var \u00fea\u00f0 kalla\u00f0 Torg hins himneska fri\u00f0ar. \u00dea\u00f0 er f\u00e1tt hall\u00e6rislegra en a\u00f0 nota ensk heiti \u00e1 sv\u00e6\u00f0i utan hins enskum\u00e6landi heims.<\/p>\n<p>\u00de\u00e1 dregur Anna Karen fram vafasamar fullyr\u00f0ingar um r\u00f3tt\u00e6ka fort\u00ed\u00f0 konu sem tengist BLM.<\/p>\n<blockquote>\n<p>Me\u00f0h\u00f6ndlun fj\u00e1rmagnsins sem \u00feessir fj\u00e1rsterku a\u00f0ilar leggja hreyfingunni til fer \u00ed gegnum Susan Rosenberg og situr h\u00fan \u00ed fj\u00e1r\u00f6flunarnefnd samtakanna BLM.<\/p>\n<p>Susan \u00feessi er d\u00e6mdur hry\u00f0juverkama\u00f0ur og \u00e6vilangur akt\u00edvisti, sem hefur leitt til dau\u00f0a \u00fe\u00f3 nokkurra manna.<\/p>\n<\/blockquote>\n<p>\u00c9g \u00e6tla ekki a\u00f0 reyna a\u00f0 t\u00e6ta \u00ed sundur fyrri setninguna \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00f3 h\u00fan s\u00e9 b\u00f3kstaflega r\u00f6ng \u00fe\u00e1 er \u00fea\u00f0 a\u00f0allega vegna \u00feess a\u00f0 Anna Karen kann ekki a\u00f0 tj\u00e1 sig \u00ed ritu\u00f0u m\u00e1li. \u00dea\u00f0 hvort vi\u00f0 \u00e6ttum a\u00f0 kalla Susan Rosenberg hry\u00f0juverkamann er \u00e1litam\u00e1l (sj\u00e1 <a href=\"https:\/\/www.snopes.com\/fact-check\/blm-terrorist-rosenberg\/\">Snopes<\/a>). En \u00fea\u00f0 a\u00f0 h\u00fan hafi &#8222;til dau\u00f0a \u00fe\u00f3 nokkurra manna&#8220; byggir ekki \u00e1 sta\u00f0reyndum. H\u00fan var ekki d\u00e6md fyrir neitt sl\u00edkt, ekki einu sinni \u00e1k\u00e6r\u00f0, en h\u00fan hefur vissulega veri\u00f0 s\u00f6ku\u00f0 um \u00fea\u00f0. Ferill hennar fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 h\u00fan var leyst \u00far fangelsi fyrir n\u00e6r tuttugu \u00e1rum er hins vegar \u00f3neitanlega laus vi\u00f0 tengsl vi\u00f0 ofbeldi e\u00f0a \u00f3gnanir.<\/p>\n<p>Anna Karen vill helst kalla BLM hry\u00f0juverkasamt\u00f6k og notar \u00fe\u00e1 st\u00f3rar yfirl\u00fdsingar \u00e1n sannana.<\/p>\n<blockquote>\n<p>Hreyfingin sn\u00fdst ekki um rasisma heldur p\u00f3lit\u00edsk v\u00f6ld. Ef \u00fe\u00fa brennir fyrirt\u00e6ki, lemur, drepur e\u00f0a nau\u00f0gar \u00f6\u00f0ru f\u00f3lki og gj\u00f6rsamlega r\u00fastar heilu borgunum, ertu \u00fe\u00e1 ekki hry\u00f0javerkama\u00f0ur?<\/p>\n<\/blockquote>\n<p>N\u00e6r ekkert af \u00feessu l\u00fdsir BLM en \u00feetta er \u00e1g\u00e6t l\u00fdsing \u00e1 \u00fev\u00ed hvernig komi\u00f0 hefur veri\u00f0 fram vi\u00f0 svart f\u00f3lk \u00ed Bandar\u00edkjunum \u00ed gegnum t\u00ed\u00f0ina.<\/p>\n<p>\u00c9g ver\u00f0 a\u00f0 lokum a\u00f0 benda \u00e1 \u00feessa setningu sem er svo undarleg a\u00f0 \u00e9g h\u00e1lfd\u00e1ist a\u00f0 henni:<\/p>\n<blockquote>\n<p>F\u00f3lki\u00f0 sem gagnr\u00fdnir nasista Hitlers er \u00e1 sama t\u00edma b\u00fai\u00f0 a\u00f0 l\u00fdsa yfir stu\u00f0ningi vi\u00f0 samt\u00f6kin \u00e1 samf\u00e9lagsmi\u00f0lum.<\/p>\n<\/blockquote>\n<p>Brav\u00f3.<\/p>\n<p>\u00deetta \u00e1 ekki a\u00f0 vera endanleg yfirfer\u00f0 \u00e1 greininni. Hvorki m\u00e1lfars- e\u00f0a efnislega. Bara nokkur atri\u00f0i sem var einfalt a\u00f0 benda \u00e1. Hlutir sem Anna Karen hef\u00f0i v\u00e6ntanlega geta\u00f0 flett upp sj\u00e1lf.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00dea\u00f0 vir\u00f0ast einhverjir enn kaupa Moggann. \u00c9g veit ekki hvers vegna. N\u00fana gengur um Twitter grein sem var birt \u00fear, v\u00e6ntanlega \u00ed dag. Greinin er eftir \u00d6nnu Karen J\u00f3nsd\u00f3ttur (BS hagfr\u00e6\u00f0i) og fjallar um Black Lives Matter hreyfinguna. \u00deessi grein f\u00f3r ekki \u00e1 flakk af \u00fev\u00ed a\u00f0 h\u00fan er vel skrifu\u00f0 og \u00edgrundu\u00f0. \u00dea\u00f0 er &hellip; <a href=\"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/2020\/09\/25\/samsaeriskenningarugl-og-rangfaerslur-i-mogganum\/\" class=\"more-link\">Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa: <span class=\"screen-reader-text\">Sams\u00e6riskenningarugl og rangf\u00e6rslur \u00ed Mogganum<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":18951,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[58],"tags":[172,176,175,170,173,174],"class_list":["post-18950","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-stjornmal","tag-q30","tag-q19600530","tag-q1193236","tag-menningarstrid","tag-q151036","tag-rasismi"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/18950","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=18950"}],"version-history":[{"count":7,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/18950\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":18958,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/18950\/revisions\/18958"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/media\/18951"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=18950"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=18950"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=18950"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}