{"id":21678,"date":"2008-01-22T14:20:59","date_gmt":"2008-01-22T14:20:59","guid":{"rendered":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/?p=21678"},"modified":"2024-05-01T11:19:22","modified_gmt":"2024-05-01T11:19:22","slug":"um-skoplegar-firrur-hjavisindi-og-vanthekkingu-heradsskjalavardar","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/2008\/01\/22\/um-skoplegar-firrur-hjavisindi-og-vanthekkingu-heradsskjalavardar\/","title":{"rendered":"Um skoplegar firrur, hj\u00e1v\u00edsindi og van\u00feekkingu h\u00e9ra\u00f0sskjalavar\u00f0ar"},"content":{"rendered":"<p>\u00c9g f\u00f3r ekki \u00e1 fyrirlestur Hrafns Sveinbjarnarsonar hj\u00e1 Sagnfr\u00e6\u00f0ingaf\u00e9laginu um skjalav\u00f6rslu \u201eSyndafl\u00f3\u00f0i\u00f0 kemur&#8220; \u00feann 15. jan\u00faar s\u00ed\u00f0astli\u00f0inn en \u00feegar \u00e9g heyr\u00f0i af \u00f3\u00e1n\u00e6gju me\u00f0al b\u00f3kasafns- og uppl\u00fdsingafr\u00e6\u00f0inga \u00e1kva\u00f0 \u00e9g a\u00f0 lesa yfir hi\u00f0 skrifa\u00f0a eintak fyrirlestursins sem a\u00f0gengilegt er \u00e1 <a href=\"https:\/\/vefsafn.is\/is\/20110202115202mp_\/http:\/\/www.sagnfraedingafelag.net\">heimas\u00ed\u00f0u Sagnfr\u00e6\u00f0ingaf\u00e9lagsins<\/a>. \u00cd fyrirlestrinum er Hrafn st\u00f3ror\u00f0ur um marga hluti. Einna har\u00f0or\u00f0astur er hann \u00ed gar\u00f0 skjalastj\u00f3ra. \u00deetta er greinilega hr\u00e6\u00f0ilegt f\u00f3lk sem gerir mikinn &#8222;\u00f3skunda&#8220;. \u00c9g er ekki alveg me\u00f0 \u00e1 hreinu hva\u00f0an Hrafn hefur heimildir s\u00ednar um n\u00e1m \u00ed skjalastj\u00f3rn innan b\u00f3kasafns- og uppl\u00fdsingafr\u00e6\u00f0i sem hann kallar &#8222;hj\u00e1v\u00edsindi&#8220;, en allavega vir\u00f0ist hann hafa afar \u00feokukenndar hugmyndir um \u00fea\u00f0.<sup><a href=\"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/2008\/01\/22\/um-skoplegar-firrur-hjavisindi-og-vanthekkingu-heradsskjalavardar\/#fotunota1\">1<\/a><\/sup><\/p>\n<p>T\u00f6kum h\u00e9r d\u00e6mi af \u00fev\u00ed hvernig Hrafn fjallar um skiptingu skjala \u00ed virk og \u00f3virk skj\u00f6l. Hann segir: &#8222;\u00deess vegna finnst skjalav\u00f6r\u00f0um svol\u00edti\u00f0 skoplegt \u00feegar f\u00f3lki dettur s\u00fa firra \u00ed hug a\u00f0 skipta skj\u00f6lum \u00ed virk og \u00f3virk skj\u00f6l eftir aldri, eins og einhver geti s\u00e9\u00f0 fram \u00ed t\u00edmann og \u00e1kve\u00f0i\u00f0 \u00feetta \u00ed eitt skipti fyrir \u00f6ll&#8220;. N\u00fa veit \u00e9g ekki hva\u00f0 Hrafn heldur a\u00f0 \u00feessi hugt\u00f6k sem vi\u00f0 b\u00f3kasafns- og uppl\u00fdsingafr\u00e6\u00f0ingar notum \u00fe\u00fd\u00f0i en \u00fea\u00f0 er n\u00fa frekar einfalt. Virk skj\u00f6l eru \u00feau sem eru \u00ed daglegri notkun og \u00fearf a\u00f0 vera h\u00e6gt a\u00f0 n\u00e1lgast \u00e1 \u00f6rf\u00e1um m\u00edn\u00fatum. \u00d3virk (og h\u00e1lfvirk) skj\u00f6l eru \u00feau sem ekki er veri\u00f0 a\u00f0 nota dagsdaglega og m\u00e1 geyma \u00fear sem tekur lengri t\u00edma a\u00f0 n\u00e1lgast \u00feau. Ekkert kemur \u00ed veg fyrir a\u00f0 \u00f3virk skj\u00f6l ver\u00f0i aftur flokku\u00f0 sem virk.<\/p>\n<p>Aldur er s\u00ed\u00f0an ekkert h\u00f6fu\u00f0atri\u00f0i \u00ed \u00feessum m\u00e1lum en vissulega eru eldri skj\u00f6l yfirleitt minna notu\u00f0 en yngri. \u00deetta er \u00feessi &#8222;skoplega&#8220; &#8222;firra&#8220; sem Hrafn talar um.<\/p>\n<p>Hrafni finnst l\u00edka \u00e1kaflega sl\u00e6mt a\u00f0 \u00ed skjalastj\u00f3rn \u00ed b\u00f3kasafns- og uppl\u00fdsingafr\u00e6\u00f0i s\u00e9 haldi\u00f0 fram kostum t\u00f6lukerfa me\u00f0 \u00f3endanlegum \u00fatv\u00edkkunarm\u00f6guleikum \u00fear sem \u00dej\u00f3\u00f0skjalasafni\u00f0 vilji ekki sl\u00edkt. Hrafn l\u00edtur alveg framhj\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 kostir hins \u00f3endanlega kerfis eru \u00f3tv\u00edr\u00e6\u00f0ir og al\u00fej\u00f3\u00f0legur sta\u00f0all um uppl\u00fdsingar, skjalfestingu og skjalastj\u00f3rn ISO 15489 s\u00fdnir d\u00e6mi um \u00feess h\u00e1ttar kerfi. T\u00f6lukerfi me\u00f0 \u00f3endanlega st\u00e6kkunarm\u00f6guleika gerir m\u00f6nnum kleyft a\u00f0 b\u00e6ta s\u00edfellt vi\u00f0 n\u00fdjum flokkum eftir \u00fev\u00ed sem \u00fearfir breytast. \u00dej\u00f3\u00f0skjalasafni\u00f0 k\u00fds frekar tugstafakerfi (sem er reyndar l\u00edka kennt \u00ed b\u00f3kasafns- og uppl\u00fdsingafr\u00e6\u00f0i) sem hefur takmarka\u00f0a st\u00e6kkunarm\u00f6guleika. \u00dea\u00f0 er sama hve vel er sta\u00f0i\u00f0 a\u00f0 ger\u00f0 skjalakerfa fyrir lifandi skjalasafn, enginn getur s\u00e9\u00f0 framt\u00ed\u00f0ina fyrir og \u00fev\u00ed er betra a\u00f0 vera ekki inniloka\u00f0ur me\u00f0 kerfi sem hefur takmarka\u00f0a st\u00e6kkunarm\u00f6guleika. Hvers vegna \u00e6tti ekki a\u00f0 halda \u00e1 lofti kostum kerfis sem er einfaldlega betra?<\/p>\n<p>Uppspretta misskilnings Hrafns er a\u00f0 m\u00f6rgu leyti s\u00e1 a\u00f0 hann vir\u00f0ist ekki \u00e1tta sig \u00e1 a\u00f0 n\u00e1m \u00ed skjalastj\u00f3rn \u00e1 a\u00f0 undirb\u00faa b\u00f3kasafns- og uppl\u00fdsingafr\u00e6\u00f0inga undir a\u00f0 starfa b\u00e6\u00f0i hj\u00e1 hinu opinbera og einkaa\u00f0ilum.<\/p>\n<p>\u00deetta sk\u00fdrir l\u00edklega a\u00f0 \u00ed fyrirlestri sem fjallar a\u00f0 mestu um var\u00f0veislu opinberra skjala talar hann um grisjunar\u00e1\u00e6tlanir sem eiga bara vi\u00f0 \u00feegar um skjalas\u00f6fn einkaa\u00f0ila er a\u00f0 r\u00e6\u00f0a. \u00dea\u00f0 er r\u00e9tt a\u00f0 leggja \u00e1herslu \u00e1 \u00fea\u00f0 a\u00f0 \u00fea\u00f0 hefur aldrei veri\u00f0 kennt anna\u00f0 \u00ed b\u00f3kasafns- og uppl\u00fdsingafr\u00e6\u00f0i en a\u00f0 fara eigi eftir l\u00f6gum um var\u00f0veislu gagna \u00ed opinberum s\u00f6fnum. \u00cd raun er l\u00f6g\u00f0 mj\u00f6g mikil \u00e1herslu \u00e1 \u00feetta atri\u00f0i. Einnig er nemendum kynnt stefna \u00dej\u00f3\u00f0skjalasafns og fari\u00f0 \u00ed heims\u00f3kn \u00e1 safni\u00f0. Hrafn segir hins vegar a\u00f0 kennt s\u00e9 a\u00f0 &#8222;e\u00f0lilegt [s\u00e9] a\u00f0 grisja 95% af \u00feeim skj\u00f6lum sem myndu\u00f0 eru [og a\u00f0 h]in 5 pr\u00f3sentin [s\u00e9u] svok\u00f6llu\u00f0 s\u00f6guleg skj\u00f6l&#8220; eins og \u00feetta eigi vi\u00f0 um skjalastj\u00f3rn hj\u00e1 opinberum stofnunum. \u00dea\u00f0 er bara alls ekki r\u00e9tt.<\/p>\n<p>Mig grunar reyndar a\u00f0 hj\u00e1 einkafyrirt\u00e6kjum g\u00e6ti \u00fea\u00f0 veri\u00f0 r\u00e9tt a\u00f0 5-10% s\u00e9u s\u00f6guleg skj\u00f6l (\u00feumalputtareglu um hve st\u00f3rt hlutfall skjala hafa s\u00e9rstakt gildi). \u00deetta \u00fe\u00fd\u00f0ir ekki a\u00f0 \u00f6llum \u00f6\u00f0rum g\u00f6gnum s\u00e9 sj\u00e1lfkrafa eytt. \u00c9g tel hins vegar a\u00f0 grisjun s\u00e9 \u00e1kaflega mikilv\u00e6g \u00ed skjalas\u00f6fnum fyrirt\u00e6kja. Ef vi\u00f0 t\u00f6kum d\u00e6mi af verslunum \u00fe\u00e1 er st\u00f3r hluti af \u00feeim skj\u00f6lum sem ver\u00f0a til \u00fear kassastrimlar sem \u00fearf a\u00f0 geyma \u00ed sj\u00f6 \u00e1r l\u00f6gum samkv\u00e6mt. N\u00fa get \u00e9g ekki \u00fatiloka\u00f0 a\u00f0 einhver sagnfr\u00e6\u00f0ingur framt\u00ed\u00f0arinnar g\u00e6ti haft gagn og gaman af \u00fev\u00ed a\u00f0 r\u00falla \u00feeim \u00ed sundur og sko\u00f0a hvernig innkaupin voru \u00ed fort\u00ed\u00f0inni en mig grunar a\u00f0 \u00fe\u00e6r hafi hvort e\u00f0 er f\u00f6lna\u00f0 um of \u00e1\u00f0ur en til \u00feess kemur. \u00deessum g\u00f6gnum er e\u00f0lilegt a\u00f0 ey\u00f0a. S\u00ed\u00f0an m\u00e1 l\u00edka nefna a\u00f0 m\u00f6rg skj\u00f6l eru til \u00ed margriti og ekkert a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 ey\u00f0a auka eint\u00f6kum. Allt sl\u00edkt er hluti af e\u00f0lilegri grisjun skjalasafna fyrirt\u00e6kja.<\/p>\n<p>\u00deetta eru n\u00fa a\u00f0alatri\u00f0in sem \u00e9g vildi gera athugasemdir vi\u00f0 og \u00e9g leyfi ekki ergelsi m\u00ednu a\u00f0 taka v\u00f6ldin af m\u00e9r \u00feannig a\u00f0 \u00e9g fari a\u00f0 t\u00edna til allar snei\u00f0arnar sem komu fr\u00e1 Hrafni \u00ed fyrirlestrinum.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 er samt r\u00e9tt hj\u00e1 Hrafni a\u00f0 \u00fea\u00f0 eru margar h\u00e6ttur sem \u00feeir sem starfa a\u00f0 skjalastj\u00f3rn\/skjalav\u00f6rslu ver\u00f0a a\u00f0 vera me\u00f0vita\u00f0ir um. Yfirleitt er \u00fea\u00f0 vegna \u00feess a\u00f0 enginn hefur umsj\u00f3n me\u00f0 skjalas\u00f6fnunum e\u00f0a einfaldlega vegna \u00feess a\u00f0 \u00feau eru ne\u00f0arlega \u00ed forgangsr\u00f6\u00f0inni. \u00dea\u00f0 \u00fearf samstarf til a\u00f0 leysa \u00feessi m\u00e1l og \u00e9g vona a\u00f0 sagnfr\u00e6\u00f0imennta\u00f0ir skjalaver\u00f0ir s\u00e9u jafn tilb\u00fanir \u00ed sl\u00edkt og b\u00f3kasafns- og uppl\u00fdsingafr\u00e6\u00f0imennta\u00f0ir skjalastj\u00f3rar. \u00dea\u00f0 er allavega lj\u00f3st a\u00f0 \u00fea\u00f0 gerir engum gagn a\u00f0 r\u00e1\u00f0ast \u00e1 st\u00e9tt manna og fr\u00e6\u00f0igrein me\u00f0 r\u00f3gi og van\u00feekkingu a\u00f0 vopni, sl\u00edkt eitrar bara fyrir gagnlegri samvinnu. M\u00e1lflutningurinn lyktar l\u00edka af \u00fev\u00ed a\u00f0 h\u00f6fu\u00f0markmi\u00f0 Hrafns s\u00e9 a\u00f0 reyna a\u00f0 koma \u00e1 einokun sagnfr\u00e6\u00f0inga \u00e1 skjalasvi\u00f0inu. En ef samvinna kemur ekki til greina hj\u00e1 Hrafni \u00e6tti hann allavega a\u00f0 halda sig vi\u00f0 hei\u00f0arlega samkeppni hugmynda, \u00feekkingar og kunn\u00e1ttu \u00e1 svi\u00f0inu en l\u00e1ta \u00f3sannindin vera.<\/p>\n<hr \/>\n<p style=\"padding-left: 40px;\"><a id=\"fotunota1\"><\/a>1. Fyrir \u00f3innv\u00edg\u00f0a er v\u00e6ntanlega erfitt a\u00f0 skilja muninn \u00e1 skjalav\u00f6rslu og skjalastj\u00f3rn. \u00cd H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands eru \u00feetta tv\u00e6r a\u00f0skildar greinar. \u00cd sagnfr\u00e6\u00f0i er kennd skjalavarsla en skjalastj\u00f3rn er innan b\u00f3kasafns- og uppl\u00fdsingafr\u00e6\u00f0innar. Skjalastj\u00f3rn \u00e1 sinn sess innan b\u00f3kasafns- og uppl\u00fdsingafr\u00e6\u00f0innar \u00e1 heimsv\u00edsu, Nor\u00f0ur-Amer\u00edku, Evr\u00f3pu og \u00c1stral\u00edu. Fyrir utan \u00fe\u00e1 tvo fimm eininga k\u00farsa sem fjalla einungis um skjalastj\u00f3rn eru fj\u00f6lm\u00f6rg skyld n\u00e1mskei\u00f0 \u00ed bo\u00f0i s.s. lyklun, skr\u00e1ning og flokkun. Einnig er bo\u00f0i\u00f0 upp \u00e1 s\u00e9rstaka aukagrein: Uppl\u00fdsinga- og skjalastj\u00f3rn hj\u00e1 skipulagsheildum.<\/p>\n<hr \/>\n<p><a href=\"https:\/\/vefsafn.is\/is\/20110202115202mp_\/http:\/\/hugsandi.is\/articles\/um-skoplegar-firrur-hjavisindi-og-vanthekkingu-heradsskjalavardar\/\">Upprunalega birt \u00e1 vefritinu Hugsandi: [22. 1. 2008 14:20]<\/a><\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00c9g f\u00f3r ekki \u00e1 fyrirlestur Hrafns Sveinbjarnarsonar hj\u00e1 Sagnfr\u00e6\u00f0ingaf\u00e9laginu um skjalav\u00f6rslu \u201eSyndafl\u00f3\u00f0i\u00f0 kemur&#8220; \u00feann 15. jan\u00faar s\u00ed\u00f0astli\u00f0inn en \u00feegar \u00e9g heyr\u00f0i af \u00f3\u00e1n\u00e6gju me\u00f0al b\u00f3kasafns- og uppl\u00fdsingafr\u00e6\u00f0inga \u00e1kva\u00f0 \u00e9g a\u00f0 lesa yfir hi\u00f0 skrifa\u00f0a eintak fyrirlestursins sem a\u00f0gengilegt er \u00e1 heimas\u00ed\u00f0u Sagnfr\u00e6\u00f0ingaf\u00e9lagsins. \u00cd fyrirlestrinum er Hrafn st\u00f3ror\u00f0ur um marga hluti. Einna har\u00f0or\u00f0astur er hann \u00ed &hellip; <a href=\"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/2008\/01\/22\/um-skoplegar-firrur-hjavisindi-og-vanthekkingu-heradsskjalavardar\/\" class=\"more-link\">Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa: <span class=\"screen-reader-text\">Um skoplegar firrur, hj\u00e1v\u00edsindi og van\u00feekkingu h\u00e9ra\u00f0sskjalavar\u00f0ar<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":21679,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[9],"tags":[366,365,367],"class_list":["post-21678","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-bokasafns-og-upplysingafraedi","tag-hrafn-sveinbjarnarson","tag-hugsandi-endurbirting","tag-q117285255"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/21678","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=21678"}],"version-history":[{"count":6,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/21678\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":21685,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/21678\/revisions\/21685"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/media\/21679"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=21678"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=21678"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=21678"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}